Morgunblaðið - 10.12.1991, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 10.12.1991, Blaðsíða 57
* MORGUNBLÁÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESBAÍBER 1991 57 Margrét Þorbergs- dóttir - Minning Fædd 24. september 1937 Dáin 24. nóvember 1991 Bend mér upp og yfir tjöldin skýja. Upp mig tak. Lát friðar myrkrið flýja. Fyrir Ijósi landinu engla frá. í lífi og dauða, herra, vert mér hjá. (St.Th.) Sólríkt sumar er liðið, eitt það besta sem menn muna og flestir hafa getað notið þess, farið í sumarfrí, skemmt sér og látið sér líða vel á margan hátt, en það eru alltaf einhverjir sem fara á mis við það, eru bundnir heima eða innan sjúkrahúsanna. Ein af þeim var hún Magga mín, sem háði sitt dauðastríð við illvígan sjúkdóm sem engum vægir. Nú hefur hún fengið lausnina. Guði sé lof fyrir það. Mig langar að minnast Möggu með fátæklegum orðum, þakka henni allar samverustundirnar sem við áttum saman síðastliðin 12 ár, frá því við fluttum svo að segja samtímis hér til Akureyrar. Marg- an sunnudagsbílstúrinn vorum við hjónin búin að fara saman. Skoða náttúrufegurð og það sem fyrir augu bar. Bændur okkar töluðu um landsins gagn og nauðsynjar. Við Magga aftur í og tókum upp léttara hjal. Já, það er margs að minnast frá þessum árum. Oft fór- um við saman á skemmtanir og í heimsóknir milli heimila. Þá var oft glatt á hjalla. Marga krossgát- una vorum við Magga búnar að glíma við og ráða og hafa gaman af. Kannski eigum við eftir að hitt- ast hinum megin og ráða þær gát- ur sem óráðnar voru hérna megin grafar. Magga var heilsteypt mann- eskja, viljasterk og vildi ætíð hafa það er sannara reyndist. Gott var að eiga hana að þegar sorg og andstreymi barði að dyrum. Hún hafði ekki um það mörg orð en frá henni streymdi samúð og velvilji, ávallt fús til hjálpar þeim sem bágt áttu. Margrét fæddist á Mjóeyri við Fáskrúðsfjörð en ólst upp í Hafnar- nesi í stórum systkinahópi. Ung fluttist hún til Reykjavíkur og vann þar við ýmis störf. Þar kynntist hún fyrri manni sínum, Hauki Sigurjónssyni og áttu þau saman 3 börn. Þau eru: Þorbergur Níels, kvæntur Bryndísi Fjólu Sigurðar- dóttur, eiga 2 börn; Haukur kvænt- ur Guðrúnu Eygló Stefánsdóttur, eiga 2 börn; og Sólrún, gift Ste- fáni Ólafssyni, eiga 2 börn. Þau Margrét og Haukur slitum sam- vistir. Eftir það lá leið hennar austur á Fljótsdalshérað með öll börnin. Réðst hún sem kaupakona í Hnef- Til greinahöfunda: Minningar- og afmæl- isgreinar Það eru eindregin tilmæli ritstjóra Morgunblaðsins til þeirra, sem rita minningar- og afmælisgreinar í blaðið, að reynt verði að forðast endur- tekningar eins og kostur er, þegar tvær eða fleiri greinar eru skrifaðar um sama ein- stakling. Þá verða aðeins leyfðar stuttar tilvitnanir í áður birt ljóð inni í textanum. Almennt verður ekki birtur lengri texti en sem svarar einni blaðsíðu eða fimm dálkum í blaðinu ásamt mynd um hvern einstakling. Ef meira mál berst verður það látið bíða næsta eða næstu daga. ilsdal á Jökuldal til Eyþórs Guð- mundssonar bónda þar. Það reynd- ist mikið gæfuspor. Þau gengu í hjónaband 5. júlí 1964. Eyþór reyndist henni elskulegur eigin- maður og börnunum hennar sem ástríkur faðir. Saman eignuðust þau 2 börn, Halldóru Hildi, gifta Stefáni Jónssyni, eiga 2 börn; Unnar Valdimar, kvæntur sænskri konu, Ásu, eiga þau eina dóttur. Vorið 1979 hætta þau búskap í Hnefilsdal og flytja til Akureyrar. Þar bjuggu þau sér fallegt heimili í Stapasíðu 4 og leið þeim þar í alla staði vel þar til á síðastliðnum vetri að dró ský fyrir sólu. Þá upp- lýstist með þennan voða sjúkdóm sem heltók Möggu á stuttum tíma, en hún tók því með miklum kjarki og æðruleysi, eiginmaður og dætur hennar styttu henni sjúkdórnsstríð- ið sem þau framast gátu og sýndu henni mikla ást og umhyggju. Að lokum þökkum við Möggu samfylgdina og vottum Eyþóri, vini okkar, börnum þeirra og öðr- um standendum, innilega samúð. Inga og Kristján. Sólveig mín, hún dó í nótt konan mín, sagði hann Eyþór frændi mér í símann sl. sunnudagsmorgun. Við vorum öll viðbúin því hún hafði verið svo mikið veik, svo lengi. En samt kom höggið í magann og kökkurinn í hálsinn, því að vera dáin er svo mikið meira en að vera deyjandi. „Og stofnar falla _og strengur brestur og stjama hrapar sem áður skein.” (D. St.) Það má með sanni segja að Magga skein á meðan nokkur orka var til. Allir sem komu til hennar dáðust að og undruðust þann styrk og gleði sem hún átti til og gat jafnvel veitt öðrum. Hún fæddist 29. september 1937 á Mjóeyri við Fáskrúðsfjörð og var því aðeins 54 ára þegar hún lést. Þegar hún kynntist Eyþóri var hún fráskilin með þijú ung börn, sem hann tók strax að sér sem sín eigin. Þau fluttust til hans í Hnef- ilsdal vorið 1962. Börnin eru Berg- ur, fæddur 11. nóvember 1954, býr á Eskifirði; Haukur fæddur 8. nóv- ember 1955, býr í Vestmannaeyj- um, og Sólrún fædd 29. júlí 1959. Þau eru öll Hauksbörn. Saman eignuðust Magga og Eyþór Hall- dóru fædda 3. september 1953, býr í Hnefilsdal og Unnar Valdi- mar fæddan 10. mars 1968, býr í Svíþjóð. í Hnefilsdal bjuggu þau svo til ársins 1979. Þangað var gott að koma og mest allt sumarið voru gestir sem fengu ekki bara mat og gistingu, heldur elskulegt viðmót. sem einkenndi þau hjónin, sem voru svo skemmtileg og hlógu svo mikið. Sama var í Stapasíð- unni eftir að þau fluttust til Akur- eyrar, allir hjartanlega velkomnir, alltaf nóg pláss. Hún Magga var mikil tilfinn- ingamanneskja sem var alveg eyði- lögð ef hún vissi af erfiðleikum eða veikindum hjá einhveijum, en góð- ar fréttir og skemmtilegar voru henni tilefni mikillar gleði. Þegar hún veiktist í ársbyijun kom aldrei annað til greina hjá dætrum hennar en að vera hjá henni til skiptis hvernig sem á stóð. Mikið voru þær sterkar. í fjölskylduna hefur komið stórt skarð. Við sem kveðjum Möggu nú eigum eftir að sakna hennar, hún sem var svo kát og góð mann- eskja. Við biðjum Eyþóri, börnun- um og öllum sem syrgja Möggu guðs blessunar. Hinsta kveðja úr Mýrarveginum og Lerkilundinum. Hafi Magga þökk fyrir allt og allt. „Svo hefur gesturinn göngu sína þó gnauði stormar og veður hörð og hugur veit að til himins stefnir þó hægt sé farið um grýtta jörð.” (D. St.) Sólveig t Ástkær sonur okkar, bróðir, barnabarn og barnabarnabarn, STEFÁN ERLING EINARSSON, Logafold 27, verður jarðsunginn miðvikudaginn 11. desember kl. 15.00 frá Fossvogskirkju. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlegast bent á barnadeild Landakotsspítala. Sigríður Andradóttir, Pálmi Þór Jónsson, Oktavía Stefánsdóttir, Ásta Tryggvadóttir, Sigrfður Björnsdóttir, Guðrún Jónasdóttir, Einar Erlingsson, Thelma Sif Einarsdóttir, Andri Páll Sveinsson, Erlingur Hallsson, Tryggvi Pétursson. t Kveðjuathöfn um elskulega móður okkar, FJÓLU GUÐMUNDSDÓTTUR, Kirkjulundi 6, Garðabæ, áður Fögruvöllum, verður í Garðakirkju fimmtudaginn 12. desember kl. 13.30. Jarðsett verður að Búðum, Snæfellsnesi, laugardaginn 14. desem- ber kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á að láta Búðakirkju njóta þess (reikning- ur 878 í Sparisjóði Ólafsvíkur). Börnin. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ PÁLSDÓTTIR, verður jarðsungin, miðvikudaginn 11. desember kl. 13.30, frá Fossvogskirkju. Erla Beck Eirfksdóttir, Baldur Þórirsson, Halldór Beck, Lára Þórarinsdóttir, Eirikur Beck Haraldsson, Gréta Haraldsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall FRIÐRIKS MAGNÚSSONAR hæstaréttarlögmanns frá Akureyri. Sérstakar þakkir til aílra þeirra, sem önnuðust hann í erfiðum veikindum. Fanney Guðmundsson, Magnús Árnason og fjölskylda, Gunnar Árnason og fjölskylda. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærr- ar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, STEINUNNAR JÓHANNSDÓTTUR, Garðavegi 8, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfóks lyfjadeildar St. Jósefsspítala, Hafn- arfirði, og starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sólvangs, Hafnarfirði. Þorgils Þorgilsson, börn, tengdabörn og barnabörn. Þökkum samúð og vináttu við andlát og útför systur okkar og mágkonu, SIGURLAUGAR SIGURÐARDÓTTUR, Háteigsvegi 40. Sérstakar þakkir færum við Sigurði Björnssyni, lækni, og öðru starfsfólki göngudeildar, læknum og hjúkrunarfólki deildar 11-E, Landspftalanum, og heimahjúkrun. Asa Sigurðardóttir, Elín Jónsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir, Guðmar Stefánsson, Magnús Sigurðsson, Ágústa Óskarsdóttir, Haraldur Sigurðsson, Guðrún Guðlaugsdóttir, systkinabörn og fjölskyldur. + Hjartans þakklæti fyrir auðsýnda sam- úð og hlýhug við andlát og’ útför ást- kærrar móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR ÁSGEIRSDÓTTUR, vistheimilinu Seljahlíð. Aðalbjörg Björnsdóttir, Margrét B. Skúladóttir, Erla B. Skúladóttir, Björn Einar Árnason, Brynhildur Árnadóttir, Ásgeir Þór Árnason, Jón L. Árnason, Skúli Guðmundsson, Árni Tómasson, Bradley Boyer, Þórunn Guðmundsdóttir og barnabarnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, ÞÓRSTEINU JÓHANNSDÓTTUR frá Þingholti, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hraunbúða og Sjúkrahúss Vest- mannaeyja fyrir góða umönnun. Kristinn Pálsson, Þórunn Pálsdóttir, Guðni Pálsson, Jón Pálsson, Margrét Pálsdóttir, Kristín Pálsdóttir, Hulda Pálsdóttir, Sævald Pálsson, Hlöðver Pálsson, Birgir Pálsson, Þórsteina Pálsdóttir, Þóra Magnúsdóttir, Grétar Þorgilsson, Ágústa Guðmundsdóttir, Helga Þorgeirsdóttir, Óli Sveinn Bernharðsson, Guðmundur Ingi Guðmundsson, Gunnlaugur Finnbogason, Svava Friðgeirsdóttir, Sonja Gránz, Eygló Sigurliðadóttir, Þórður Karlsson, Kristján Óskarsson, Emma Pálsdóttir, Lára Eðvaldsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.