Morgunblaðið - 10.12.1991, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER '1991
spiritus
fyrir vibkvæma
pg feita húb
■SiKL::
Dúx spiritus er míld
djúphreinsandi
náfturusápa fyrir
felta húá. Dúx skílur
eftir raka I hú&inni
og viáhoidur e&liiegu
sýrustigi pH 3,3.
% FRIGG
snyrtivörur Í3
Þj óðmálakönnun Félagsvísindastofnunar:
71 % íslendinga eru andvígir
innflutningi landbúnaðarvara
50% eru neikvæðir gagnvart stefnu stjórnvalda í landbúnaðarmálum
SAMKVÆMT niðurstöðum þjóð-
málakönnunar Félagsvísinda-
stofnunar eru um 71% Islendinga
andvígir innflutningi á sambæri-
legum búvörum og framleiddar
eru hér á landi, en um 25% eru
fylgjandi innflutningi. Andstaða
við innflutning búvara hefur vax-
ið nokkuð frá því í fyrra, en í
könnun Félagsvísindastofnunar
þá voru 64% andvígir innflutningi
og 31% fylgjandi. í könnuninni
nú sögðust um 50% aðspurðra
vera neikvæðir gagnvart' stefnu
stjórnvalda í landbúnaðarmálum,
um 23% sögðust vera jákvæðir,
en 28% hlutlausir eða óvissir í
afstöðu sinni. í fyrra sögðust 45%
í þjóðmálakönnuninni, sem gerð
Skútuvogi 10a - Sími 686700
vera neikvæðir gagnvart stefnu
sfjórnvalda, 23% voru jákvæðir,
en 33% hlutlausir eða óvissir.
Könnun Félagsvísindastofnunar
var unnin fyrir Markaðsnefnd
landbúnaðarins, og var markmið
hennar að afla upplýsinga um við-
horf íslendinga tii landbúnaðar
og ýmissa máia sem honum tengj-
ast.
var dagana 11. til 19. október síð-
astliðinn, og náði til 1.500 manna
á aldrinum 18 til 75 ára af öllu
landinu, var meðal annars spurt um
afstöðu til landbúnaðarstefnu hins
opinbera, innflutnings á landbúnað-
arvörum, hollustu og um gæðaeftir-
lit með landbúnaðarvörum. Þá var
spurt um ýmis umhverfismál sem
að landbúnaði snúa, um afstöðu
fólks til ýmissa fyrirtækja og stofn-
ana, og um afstöðu til niður-
greiðslna á landbúnaðarvörum.
Konur tóku síður afstöðu en karl-
ar þegar spurt var um afstöðu fólks
til stefnu stjómvalda í landbúnaðar-
málum, en þær konur sem afstöðu
tóku voru hins vegar neikvæðari
en karlar. Þannig voru 53% kvenna
neikvæðar, en 47% karla, og ein-
ungis 14% kvenna sögðust vera já-
kvæðar gagnvart stefnu stjórn-
valda, en 31% karla. Neikvæðustu
stéttir gagnvart stefnu stjórnvalda
í landbúnaðarmálum reyndust vera
sjómenn og bændur, en 63% þeirra
eru neikvæðir og 23% jákvæðir.
Jákvæðasta stéttin er hins vegar
sérfræðingar og atvinnurekendur,
en 38% þeirra sögðust vera jákvæð-
ir gagnvart stefnu stjórnvalda. Ef
litið er á afstöðu fólks eftir því
hvaða stjómmálaflokk það styður
kemur í ljós að stuðningsmenn Al-
þýðuflokksins eru jákvæðastir, eða
35%, og á eftir þeim koma stuðn-
ingsmenn Sjálfstæðisflokksins, eða
32%. Hins vegar em 14-16% stuðn-
ingsmanna stjórnarandstöðuflokk-
anna jákvæðir gagnvart stefnu
stjórnvalda.
Spurt var hvort fólk teldi þá
ákvörðun stjórnvalda að gera bú-
vömsamning við bændur fyrr á
þessu ári hafa verið rétta eða ranga,
og reyndust 50% telja þá ákvörðun
rétta, en 43% töldu hana hins vegar
ranga. Stuðningsmenn Alþýðu-
flokks voru helst á því að þessi
ákvörðun væri röng, eða 56%, og
álíka hátt hlutfall stuðningsmanna
Sjálfstæðisflokksins vom einnig á
þeirri skoðun, eða 54%. Hins vegar
töldu 26% framsóknarmanna
ákvörðunina vera ranga og á sömu
skoðun voru 29% stuðningsmanna
Alþýðubandalags.
Um 96% þeirra sem spurðir vom
tóku afstöðu þegar spurt var um
hvort leyfa ætti innflutning land-
búnaðarvara. Þeir sem sögðust vera
andvígir innflutningi, 71% að-
spurðra, voru spurðir beint hvort
það myndi breyta afstöðu þeirra ef
ljóst væri að innfluttar landbúnað-
arvömr væm ódýrari en þær ís-
lensku. Þegar svörin við þessari
spurningu höfðu verið felld við svör-
in í upphaflegu spurningunni fer
hlutfall þeirra sem fylgjandi eru
innflutningi úr 25% í 35%, og hlut-
fall andvígra fer úr 71% niður í
61%. Þeir sem í upphaflegu spurn-
ingunni sögðust vera fylgjandi inn-
flutningi vom spurðir hvort það
myndi breyta afstöðu þeirra ef ljóst
væri að innflutningur hefði byggð-
aröskun og verulegan samdrátt í
íslenskum lamdbúnaði í för með
sér. Með þessu skilyrði breyttist
afstaða fólks töluvert, og fer hlut-
fall þeirra sem fylgjandi em inn-
flutningj úr 25% í um 14%, og hlut-
fall þeirra sem eru andvígir fer úr
71% í 81%.
Mikill munur er á afstöðu karla
og kvenna til innflutnings á land-
búnaðarvörum. Þannig eru 31%
karla fylgjandi innflutningi og 64%
em andvígir, en 21% kvenna em
fylgjandi og 78% þeirra em andvíg-
ar. Sú stétt sem helst er fylgjandi
innflutningi em sérfræðingar og
atvinnurekendur, eða 40%, en 17%
verka- og afgreiðslufólks er fylgj-
andi innflutningi, sem er sú stétt,
ásamt sjómönnum og bændum, sem
hvað mest virðist vera á móti inn-
flutningi. Um 8% stuðningsmanna
Framsóknarflokksins em fylgjandi
innflutningi landbúnaðarvara, 16%
þeirra sem styðja Alþýðubandalag-
ið, 22% stuðningsmanna Kvenna-
listans, 35% þeirra sem styðja Al-
þýðuflokkinn og 37% þeirra sem
styðja Sjálfstæðisflokkinn.
Þeir svarendur sem voru fylgj-
andi innflutningi voru spurðir um
það hvort þeir vildu leyfa innflutn-
ing á tilteknum landbúnaðarvörum.
Fæstir voru hlyntir því að leyfa
innflutning á mjólk, eða 7%, en hins
vegar voru flestir á því að leyfa
innflutning á grænmeti, eða um
21%.
Um 81% svarenda í könnuninni
telja að hollusta íslenskra landbún-
aðarvara sé meiri en erlendra. 19%
telja hana vera svipaða og um 1%
telur hana vera minni. Ef litið er á
afstöðu fólks til hollustu íslenskra
búvara eftir því hvort fólk er fylgj-
andi eða andvígt innflutningi á bú-
vörum kemur í ljós að 62% þeirra
sem em fylgjandi innflutningi telja
hollustu íslenskra landbúnaðaraf-
urða meiri en erlendra. Sama hlut-
fall fyrir þá sem andvígir eru inn-
flutningi er 87%.
Um 49% svarenda í könnuninni
sögðust vera hlyntir því að verð
innlendra landbúnaðarafurða sé
greitt niður af hinu opinbera. And-
vígir niðurgreiðslum eru 41%, en
10% eru hlutlausir eða óvissir.
Nokkur mismunur er á þessu eftir
því hvaða stjórnmálaflokk menn
styðja, og þannig em 585 stuðn-
ingsmanna Alþýðuflokksins andvíg-
ir niðurgreiðslum og 54% stuðn-
ingsmanna Sjálfstæðisflokksins.
Hlutfallið fyrir stuðningsmenn
Framsóknarflokks, Alþýðubanda-
lags og Kvennalista er á bilinu 27%
til 33%.
Mikil trú virtist vera á því að
hægt sé að flytja út íslenskt lamba-
kjöt þannig að það sé þjóðhagslega
hagkvæmt, en 65% aðspurðra voru
á þeirri skoðun. Konur hafa mun
meiri trú á þessu en karlar, en 77%
kvenna telja slíkan útflutning mög-
ulegan á móti 54% karla. 75% þeirra
sem eru á aldrinum 18 til 25 ára
telja þjóðhagslega hagkvæman út-
flutning mögulegan, en 51% þeirra
sem eru á aldrinum 60 til 75 ára.
LITAUÓSRITUN
Er ekki listamaður í fjölskyldunni?
Ef þú hannar þitt eigið jólakort, þá Ijósritum
við í öllum regnbogans litum.
LIT-RIT HF.,
Langholtsvegi 111, Reykjavík, sími 679929.
HEILSU
Nýbýlaveg 24,
t ivnni BORGARSÓL
LliNUllN SÓLBAÐSSTOFA
sími 46460 Eddufelli 2, sími 75666
✓ 70 tímar íIjós aðeins 2400,-
Gildir í 1 mánuð.
✓ Nuddað alla daga nema sunnu-
daga samkvæmt tímapöntunum.
✓ Kjörorð okkar er vöðvabólga og
stress
bless.
Borgarnes:
KB býður konum
í kaupstaðarferð
Borcamesi.
Borgamesi.
AÐ UNDANFÖRNU hefur Kaup-
félag Borgfirðinga Borgnesinga
boðið öllum konum sem eru
félagsmenn kaupfélagsins eða
ciga félagsmenn fyrir maka, til
fundar og kynnisferðar til Borg-
arness. Auk þess var boðið konum
sem eru bændur eða bændakonur
á svæðinu norðan fjalla á Snæ-
fellsnesi og utan Skarðsheiðar í
Borgarfjarðarsýslu og hafa lagt
inn sauðfé eða nautgripi í slátur-
hús félagsins. Fundina sóttu alls
413 konur.
urnar nýttu eins og hver vildi, bauð
kaupfélagið konunum upp á kvöld-
verð í Hyrnunni,- Þar var einnig boð-
ið upp á tískusýningu á fatnaði frá
vefnaðarvörudeild og sportvörudeild
kaupfélagsins. Sýnendur fatnaðar
voru kaupfélagsstjórinn, deildar-
stjórar og afgreiðslufólk í kaupfélag-
inu, ásamt öðrum Borgnesingum.
TKÞ.
Frá tískusýningunni.
Alls voru haldnir sjö fundir og
fóru rútur frá Sæmundi um sveitir,
allt frá Hvalfirði í suðri og vestur á
Snæfellsnes. Fyrst lá leiðin í salar-
kynni mjólkursamlagsins í Borgar-
nesi, þar sem konunum var kynnt
ýmiss konar framleiðsla. Síðan var
haldinn þar „húsmæðrafundur” sem
Jón Einarsson fulltrúi stjórnaði, en
Þórir Páll Guðjónsson kaupfélags-
stjóri kynnti starfsemi félagsins og
sögu þess. En á eftir voru almennar
umræður. Konurnar komu með fyrir-
spurnir og ábendingar sem fulltrúar
deilda og rekstrarsviða kaupfélagsins
svöruðu eða meðtóku. Síðan var far-
ið í skoðunarferð um Borgarnes og
að loknum fijálsa tímanum, sem kon-