Morgunblaðið - 10.12.1991, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 10.12.1991, Blaðsíða 41
MORGÚnBLAÐIÐ ÞRIÐÍÚdÁgÚr 'io'/ dÉsÉmBER 1991 Fimm þingmál til nefnda: Breytingar á lögum um eftir- laun aldraðra vísað tíl nefndar Fjárlagagerðin og niður- skurður var mönnum of- arlega í huga á alþingi í gærdag. ÞINGSTÖRF gengu óvenju vel og rösklega fyrir sig á Alþingi í gær. Þó leiða megi að því líkur að þingmenn hafi verið með hugann við eitthvað annað en þau mál sein voru á dagskrá 46. fundar Alþingis í gær. Þingmenn voru önnum kafnir við viðræður sín á milli í göngum og fundarherbergjum víðsvegar. Það var ljóst og auðheyrt að fjárlaga- gerð og niðurskurður var mönnum efst í liuga og fremst á tungu. Að jafnaði var ekki fjölmenni í þingsal. Forsætisnefnd þingsins lét þó ekki mannaflaskort, hamla þingstörfum nema síður væri. Síðdegis í gær tókst að ljúka fyrstu umræðu um sex mál og fimm mál voru af- greidd til nefnda. Frumvarpi til laga um breyt- ingu á lögum um eftirlaun til aldr- aðra var vísað til heilbrigðis- og trygginganefndar. Frumvarpi um breytingu á lögum um almanna- tryggingar var vísað til heilbrigðis- og trygginganefndar. Frumvarpi um vatnsveitur sveitarfélaga var vísað til félagsmálanefndar. Frum- varpi um lífeyrissjóð bænda var vísað til efnahags- og tiygginga- nefndar. Frumvarpi um aukatekjur ríkis- sjóðs var vísað til efnahags- og við- skiptanefndar. Frumvarpið varðar ýmis gjöld sem ríkisvaldið innheimtir fyrir þjónustu sína og eftirlit s.s. dómsmálagjöld, skráningargjöld, gjöld fyrir veitingu atvinnuréttinda, leyfisgjöld fyrir atvinnustarfsemi. Með þessu frumvarpi er horfið frá því að ráðherra ákveði einstök gjöld með reglugerð. I þessu frumvarpi er gert ráð fyrir að í lög séu leidd ákveð- in grunngjöld, sem síðan taki breyt- ingum með hliðsjón af verðlagsbreyt- ingum. Þannig sé það löggjafarvaldið sem ákveði í reynd gjöld þessi en ekki framkvæmdavaldið. Ólafur Ragnar Grímsson (Ab-ltv) lýsti stuðningi við þetta frumvarp og taldi að sú leið sem það vísar til væri til mikilla bóta. Kristínu Ástgeirsdóttur (Sk-Rv) þótti ekki vera fullt sam- ræmi milli sumra gjalda s.s. að leyfi til að stunda almennar tannlækning- ar á að kosta 50.000 krónur en leyfi til tæknifræðinga, verkfræðinga, arkitekta, lyfjafræðinga, viðskipta- fræðinga og hagfræðinga einungis 25.000 krónur. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra sagði skýringuna vera þá að gjöldin hefðu verið ákvörðuð í mismunandi ráðuneytum og minnti hann reyndar að gjaldið á tæknifræðinga og verkfræðinga hefði verið ákvarðað allverulega lægra í iðnaðarráðuneytinu. Annars yrði sér „heldur þungt um mál og tungu að hræra” þegar hann væri beðinn um að útskýra allar forsendur fyrir gjaldtöku í frumvarpinu. (Þess má geta að t.d: „Leyfi til áfengisveit- inga (tækifærisveitinga) kr. 5.000.” Það má ætla að löggjafarvaldið vilji stuðla að bindindissemi því: „Leyfi til tækifærisveitinga, kr. 3.000.” Inn- skot. Blm.) Ennfremur varð lokið umræðu um frumvarp um stofnun sjóðs til að styrkja efnilega íslcnska íþrótta- menn. Ingi Björn Albertsson (S-Rv) er fyrsti flutningsmaður en með- flutningsmenn eru tuttugu og þrír þingmenn úr öllum flokkum nema Samtökum um kvennalista. Inga Birni mun hafa láðst að leita eftir stuðningi þingmanna úr þeim sam- tökum. Kristín Ástgeirsdóttir (Sk- Rv) sagði að þær kvennalistakonur sem hefðu stundað sund og/eða kast- að handbolta „væru soldið sárar”. Kristín ætlar þó að taka þetta frum- varp til velviljaðrar athugunar í menntamálanefnd og ekki láta sárindi ráða sinni afstöðu. Það kom fram að kvennalistakonum voru al- menningsíþróttir ofarlega í huga. Ingi Björn og fleiri þingmenn töldu frumvarpið geta gefið boltann, og veitt sóknarfæri að því marki. Þegar „okkar menn” vinna sigur þá draga þeir fjöldann með. Frumvarp til laga um breytingu á almannatryggingalögum: Jafnréttí sjúkra og fatlaðra barna Þyrfti að ganga lengra segja stj órnarandstæðingar um þessar breytingar FRUMVARP til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar miðar að því að tryggja jafnan rétt allra sjúkra og fatlaðara barna og aðstandenda þeirra. „Greiða skal framfærendum fatlaðra og sjúkra barna innan 16 ára aldurs, sem dveljast i heimahúsi, umönnunarbætur allt að kr. 43.450. á mánuði ef andleg eða líkamleg hömlun barns hefur í för með sér tilfinnanlcg útgjöld eða sérstaka umönnun eða gæslu. Tryggingastofnun ríkisins úrskurðar og annast greiðslu umönnunar- bóta að fengnum tillögum svæðisstjórna um málefni fatlaðra,” segir m.a. í frumvarpinu. Sighvatur Björgvinsson heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra mælti fyrir málinu í gær. Hann gerði grein fyrir því að allt frá gildistöku laga um málefni fatlaðra, hafí verið greitt fjárframlag til forráðamanna þeirra barna og unglinga 16 ára og yngri sem undir lögin féllu. Hafi það sætt gagnrýni að ákvæði sem þetta skuli ekki vera í lögum um almanna- tiyggingar, m.a. vegna samræming- ar á bótagreiðslum hins opinbera. Heilbrigðisráðherra benti á að hér væri ekki um kostnaðaraukningu að ræða heldur eingöngu skipulags- breytingu, með það fyrir augu að koma á samræmingu þeirra bóta- greiðslna sem um væri að ræða á vegum ríkisins og að um þær fari samkvæmt lögum um almannatrygg- ingar en ekki lögum um málefni fatl- aðra, sem fyret og fremst er ætlað að tryggja fötluðum þjónustu. Heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra lagði til að málinu yrði að vísað til heilbrigðis- og trygginganefnd og hraðað sem kostur væri til þess að það gæti orðið að lögum um næstu áramót. Margrét Frímannsdóttir (Ab-Sl) vísaði til þess ráðherrann hefði greint frá því að þetta frumvarp væri vænt- anlegt þegar hann svaraði fyrirspurn hennar um málefni krabbameins- sjúkra barna fyrir rúmri viku. Hún þakkaði ráðherra fyrir flutning þessa frumvarp en henni var engin launung á því að hún hefði viljað fá að sjá fleiri umbætur, aðalefni þessa frum- varps væri einfaldlega flutningur á umönnunarbótum milli lagabálka. Nefndi hún m.a. í þessu sambandi, styrki vegna heimilisaðstoðar og ferðalaga. Síðast en ekki síst gagn- rýndi hún einnig að frumvarpið gerir ráð fyrir því að við 16 ára aldur falli greiðslur umönnunarbóta niður. Margréti taldist einnig svo til að stór- lega væri vanáætlað fyrir þessum greiðslum í frumvarpi til fjárlaga. Finnur Ingólfsson (F-Rv) fagnaði þessu frumvarpi en taldi að hér væri á ferð fyrst og fremst lagatiltekt sem hann myndi ekki standa gegn. En honum þótti frumvarpið ganga of skammt og minnti hann á frumvarp sem heilbrigðisráðherra hefði kallað „yfírboð”. Taldi Finnur afstöðu heil- brigðisráðherra ámælisverða. Finnur benti einnig á að upphæðin 43.450 krónur væri ekki rausnarleg og hlyti þarna að vera eitthvað málum bland- að. Hann kannaðist við þessa tölu frá því í vor, en sér reiknaðist til að nú ætti upphæðin að vera a.m.k. 47.111 krónur. Sighvatur Björgvinsson heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra þakkaði þingmönnum góðar undir- tektir við meginefni frumvarpsins. Hann vék nokkuð að þeim ábending- um og athugasemdum sem komu fram í máli fyrri ræðumanna. Ráð- herrann kvaðst vel skilja að menn vildu ganga lengra en hér væri la^ til. Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra benti m.a. á það að við 16 aldur öðlast, einstaklingur rétt til örorkulífeyris sem hann fær sjálfur til eigin þarfa. Sighvatur Björgvins- son tók undir með Finni Ingólfsyni að 43.450 krónur væri ekki rétt upp- hæð; hér hefði orðið mistök, „pen- naglöp”, og yrðu lagfærð. Umræðu um málið varð lokið og var málinu vísað til heilbrigðis- og trygginganefndar eins og ráðherra hafði gert tillögu um. Stuttar þingfréttir Búnaðarbankinn hf. Guðni Ágústsson (F-Sl) og for- maður bankaráðs í Búnaðarbank- anum, sem er ríkisbanki, gagn- rýndi harðlega áform ríkisstjórnar- innar um að breyta 'nonum í hluta- félag og selja hlut ríkisins. Guðni hefur komið þessari gagnrýni á framfæri í ýmsum fjölmiðlum og einnig á 45. þingfundi, síðastliðinn laugardag. Bankaráðsmaðurinn telur næsta víst að almenningur vantreysti hlutafélagsskipaninni þegar um banka sé að ræða. í bankaráði slíkra banka sitji ekki fulltrúar valdir af Alþingi heldur fulltrúar fyrir hagsmunaaðila sem jafnvel sumir hveijir hafi sýnt sig í því að feta næsta vafasamar brautir. Guðni telur að Búnaðarbankinn hafi staðið sig betur í samkeppn- inni við einkabanka: „þar er gætn- in meiri, þar er fyrirhyggjan meiri, töpin færri ... Margur atvinnurek- andinn leitaði sér leiðsagnar gegn- um þennan trausta banka.” Bank- aráðsmaðurinn telur yfirlýsingar um að einkavæða Búnaðarbankann vera til þess fallnar að grafa undan bankanum, jafnvel til þess ætlaðar. Davíð Oddsson forsætisráðherra álítur hins vegar ekki efni til að ætla annað en að einkabanki sé ekki síður í stakk búinn til að veita viðskiptamönnum þjónustu og ör- yggi. Muni ekki síður njóta trausts og tiltrúar almennings. Foreætis- ráðherra benti ennfremur á að í síðari tið hafi íslenskur einkabanki ekki farið á hausinn en það hafi ríkisbanki gert. 2. umræðu um fjárlagafrumvarpið frestað Önnur umræða um frumvarp til fjárlaga 1992 verður ekki í dag eins og síðustu vonir höfðu staðið til. Umræðan verður væntanlega á morgun, miðvikudag. í upphaflegri starfáætlun þingsins var gert ráð fyrir því að frumvarpið yrði rætt öðra sinni þriðjudaginn 3. desem- ber og að þriðja umræða yrði næst- komandi föstudag 13. desember. Handafl/handleiðsla Stjórnarandstæðingar, margir hverjir, vilja beita „handafli” til að ná niður vöxtum. Þoreteinn Pálsson kirkjumálaráðherra vill veita „handleiðslu". Stjórnarandstæð- ingar hafa haldið því fram að kirkj- umálaráðherrann sé að snúast til átrúnaðar á þeirra úrræði. Davíð Oddsson forsætisráðherra virðist hins vegar ekki óttast að kirkjumálaráðherrann hafí turnast til trúar á hjálpræði stjórnarand- stæðinga. Forsætisráðherra bendir á að í kirkjum veita prestar hand- leiðslu en „í þeim samkomuhúsum sem ég sótti meira á yngri árum beittu útkastarar handafli”. Bjargræði Davíðs Oddssonar gegn óhóflegum og ókristilegum vöxtum; vegur til velferðar á varan- legur grunni: „Standa þannig að fjárlagagerðinni að varanlegir vextir verði þeirrar stærðar að at- vinnulífið geti undir þeim risið.” Forsætisráðherra veitti þessar orðskýringar og útleggingu í orð- ræðu um frumvarp um ráðstafanir í ríkisfjármálum á árinu 1992 síð- astliðinn laugardag. 350 milljónir af jöfnunargjaldi Þess er vænst að ýmis fylgi- eða tekjuöflunarfrumvörp með fjárlag- afrumvarpinu muni á næsta ári afla ríkissjóði um 2 milljarða í tekj- ur. Á sjöunda tímanum síðdegis í gær var dreift hinu fyrsta af þess- um tekjuöflunarfrumvörpum, frumvarp til laga um breyting á lögum um jöfnunargjald. Gjaldið var upphaflega lagt á innfluttan varning til að vega upp á móti þeim uppsöfnunaráhrifum sem.inn- lendar vörur urðu fyrir vegna þá- verandi söluskattskerfís. Með upp- töku söluskatts í árebyijun 1990 varð mikil breyting á en talið var að uppsöfnunaráhrif söluskattsins myndu gæta en um nokkra hrið. Á síðasta þingi var gildistími jöfnun- argjaldsins framlengdur til ársloka 1991 en gert var ráð fyrir því að það yrði síðan aflagt. En nú segir í greinargerð með því frumvarpi sem dreift var í gær: „Ekki er með nákvæmni unnt að segja til um hvenær uppsöfnunaráhrifa af sölu- skatti hættir að gæta og ákvörðun um lokadag jöfnunagjaldsins getur því ekki verið einhlít. Með tilliti til þess og brýnnar tekuþarfar ríkisins á næsta ári er hér lagt til að jöfnun- argjald haldist óbreytt þ.e. 3% til miðs næsta áre.” í athugasemdum með frumvarpinu kemur fram að tekjur af gjaldinu eru áætlaðar 350 milljónir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.