Morgunblaðið - 10.12.1991, Side 26

Morgunblaðið - 10.12.1991, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1991 Jafnaðarmannaflokkur íslands, hvar ert þú? eftir Sigurð Pétursson Jafnaðarstefnan er fögnr hug- sjón. Þá Lilju hafa margir viljað kveðið hafa. Alþýðuflokkurinn hef- ur löngum verið vettvangur ís- lenskra jafnaðarmanna, en fyrir krókaleiðir sögunnar hefur hluti þeirra einnig átt sína leið innan Sósíalistaflokksins og Alþýðu- bandalagsins. Eitt sinn var sagt að Framsóknarkratar væru sterkir, og því hefur verið haldið fram að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins sé ekkert annað en jafnaðarmenn að grundvallarlífsskoðun. Nýlokið er landsfundi Alþýðu- bandalagsins. Formaður þess hélt því fram að þar færi sá flokkur sem í raun réttri bæri merki jafnaðar- stefnunnar. Og gott ef hann bauð ekki öllum öðrum jafnaðarmönnum að ganga til liðs við sig. Ég ætla nú strax að afþakka það boð, og skýra í nokkrum orðum hvers vegna Alþýðubandalagið er ekki sá vett- vangur sem fylgjendur jafnréttis og velferðar geta átt samleið með: 1. Alþýðuflokkurinn hefur komið á mikilvægustu lögum um réttindi launafólks í landinu, svo sem al- mannatryggingum, verkamannabú- stöðum, orlofi, lífeyrissjóðum, námslánum, jafnrétti kynja og rétt- indum fatlaðra. — Ekki Alþýðu- bandalagið. 2. Alþýðuflokkurinn hefur árum saman barist fyrir hagsmunum neytenda með afdráttarlausri stefnu í landbúnaðarmálum. — Ekki Alþýðubandalagið. • 3. Alþýðuflokkurinn hefur verið fylgjandi og haft forystu um þátt- töku íslands í Evrópsku efnahags- svæði. — Ekki Alþýðubandalagið. 4. Alþýðuflokkurinn hefur beitt sér fyrir eflingu stóriðju til að tre- ysta undirstöður atvinnulífs í land- inu. - Ekki Alþýðubandalagið. 5. Alþýðuflokkurinn hefur síð- ustu áratugi ávallt verið í stjórn þegar verðbólga hefur komist niður „Ég ætla nú strax að afþakka það boð, og skýra í nokkrum orðum hvers vegna Alþýðu- bandalagið er ekki sá vettvangur sem fylgj- endur jafnréttis og vel- ferðar geta átt samleið með.” fyrir tíu prósent. — Ekki Alþýðu- bandalagið. 6. Alþýðuflokkurinn hefur á síð- ustu fjórum árum staðið fyrir bygg- ingu helmings alls félagslegs hús- næðis í landinu. — Ekki Alþýðu- bandalagið. 7. Alþýðuflokkurinn hefur barist gegn núverandi kvótakerfi í sjávar- útvegi, fyrir raunverulegri sameign þjóðarinnar á auðlindum hafsins kringum landið. — Ekki Alþýðu- Valda lántökur heímilanna halla á þjóðarskútunni? eftirHörð Friðbertsson Séu lántökur sem hlutfall af vergri landsframleiðslu áranna 1980 og 1990 bomar saman, kemur í ljós að lán til heimilanna hafa hækkað úr kr. 48.000.000.000 — fjörutíu og átta milljörðum — í kr. 173.000.000.000 — eitthundraðsjö- tíu og þijá miljarða — og eru að nálgast 700.000 — sjöhundruðþús- und — á hvert mannsbam í landinu. Hækkun um 260%. En sem hlutfall af lánakökunni er þetta hækkun um 83,15%, þegar ríki, sveitarfélög og atvinnuvegimir hafa lækkað. Öll útlán lánakerfisins árið 1990 kr. 530.000.000.000 - fimmhundruð og þijátíu milljarðar. Árið 1980 voru samkvæmt lána- flokkun lánakerfísins skuldir alls hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu 78,2%. Árið 1990 var sama tala 153,7% og skiptist þannig, sem hlut- fall af lánakökunni. Arið 1980 Heimili 17,8% Ríki 17,1% Sveitarf. 6,0% Atvinnuv. 59,1% mikið talað um að ríki og sveitarfélög hafi og séu að leggja óbærilegar byrðar á alla landsmenn með lántökum. Ég get ekki betur séð en að almennt séu landsmenn ekki hræddir við skuldaaukningu þar sem aukningin milli áranna 1980 og 1990 er um 260% til heimilanna og á þessu ári hefur þessi aukning orð- ið gífurleg, samanber aukningu út- Árið 1990 32,6% Hækkun um 83,15% 14,1% Lækkunum 17,54% 3,5% Lækkun um 41,67% 49,8% Lækkunum 15,74% gáfu húsbréfa. En eins og áður segir hækkaði hlutfall heimilanna milli áranna 1980 og 1990 um 83,15% sem hlut- fall af lánakökunni. 30. nóvember. Höfundur er fyrrverandi skipstjóri. RCR KRISTML FAKAFENI 9, SIMI 679688 HEILDSOLUDREIFING 3lfan<£innarstutíur OPIÐ LAUGARDAGA. OPIÐ SUNNUDAGA 13-18 Sigurður Pétursson bandalagið. 8. Alþýðuflokkurinn hefur barist fyrir sameign landsmanna á afrétt- um og orkunýtingu fallvatna og jarðvarma. — Ekki Alþýðubanda- lagið. 9. Alþýðuflokkurinn hefur fylgt ábyrgri stefnu í ríkisfjármálum til að tryggja framtíð og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar. — Ékki AI- þýðubandalagið. 10. Alþýðuflokkurinn hefur ávallt staðið fyrir lýðræði, frelsi og jafnrétti. — Ekki Alþýðubandalagið. Hvar er þá að finna þann flokk sem með stefnu sinni og verkum stendur vörð um afkomu og fram- tíð launafólks í landinu? Ekki er það flokkurinn sem gekk frá landsfundi um síðustu helgi án þess að geta gert upp skoðun sína á Evrópska efnahagssvæðinu, einu mesta hags- munamáli íslenskrar alþýðu um þessar mundir. (Var það ekki Ás- mundur Stefánsson sem benti á það? (- En hann var náttúrlega ekki valinn til setu á landsfundin- um.) Og ekki er það flokkurinn sem veit ekki hvort hann vill byggja upp stóriðju, en tilkoma álvers mun stór- efla atvinnu í landinu. (Var það ekki Guðmundur J. sem benti á það? — En hann er náttúrlega hætt- urí flokknum). Og ekki erþað flokk- urinn sem er óviss um hvort hann vill veija núverandi fískveiðistefnu eða taka upp gjald fyrir veiðileyfi. í öllum þessum málum (svo ekki sé minnst á landbúnaðarmálin,) hefur annar flokkur sett fram raun- hæfar lausnir. Það er sá flokkur sem jafnaðarmenn, hvar sem þá er að finna nú um stundir, eiga sam- leið með. Alþýðuflokkurinn hefur ávallt staðið vörð um velferð og réttlæti í íslensku þjóðfélagi. Alþýðuflokkurinn er og verður hinn eini sanni Jafnaðannanna- flokkur Islands. Höfundur er sagnfræðingur og formaður Sambands ungra jafnaðarmanna. Frá námskeiði í víðavangsleit hunda að Nesjavöllum. Hundur getur leitað á við tíu leitarmenn NAMSKEIÐ í víðavangsleit hunda var haldið að Nesjavöllum fyrir skömmu og var það í fyrsta sinn, sem slíkt námskeið er haldið á íslandi. Björgunarhundasveit íslands gekkst fyrir námskeiðinu og stóð það í íjóra daga. Um tuttugu manns tóku þátt í því með fjórtán hunda. Tveir norskir hundaþjálfarar frá Norska leitarhundasambandinu stjómuðu námskeiðinu ásamt Sól- veigu Smith, formanni Björgunar- hundasveitarinnar. I fréttatilkynningu frá Lands- björg, landssambandi björgunar- sveita, segir að víðavangsleit hunda felist í því að hundur sé látinn leita fram og til baka eftir svæði, sem sé allt að 100 metrar að breidd, en þjálfrinn gangi eftir svæðinu miðju og stjómi hundinum. Hundurinn eigi að finna allt óviðkomandi á svæðinu, svo sem föt, dýr og fólk og gefi þjálfaranum merki um það. Talið sé að vel þjálfaður hundur geti með þessu móti leitað svæði á við tíu vana leitarmenn. Lykilinn að Stöð 2 færðu hjá okkur og umboðsmönnum um land allt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.