Morgunblaðið - 10.12.1991, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1991
Minning:
Sr. Jón Kr. ísfeld
fyrrv. prófastur
Fæddur 5. september 1908
Dáinn 1. desember 1991
Það var mér mikið happ að kynn-
ast Jóni ísfeld. Þótt við værum báð-
ir Austfirðingar og ævistarf okkar
væri á Vesturlandi, þá fór nú svo
að liðið var á dag þegar fundum
okkar bar saman. Við höfðum sést
áður en þá aðeins stutta stund, en
eftir að vinátta okkar hófst óx hún
og dafnaði með hveiju ári sem leið.
' Hugsjónir okkar fóru saman og við
gátum miðlað hvor öðrum af reynsl-
unni og því sem á vegi okkar varð.
Eftir að aðalstarfi okkar var lokið
gáfum við okkur meiri tíma til sam-
skipta.
Séra Jón var þannig að eftir var
tekið. Hann var heill í hveiju máli
og ráðhollur hveijum sem til hans
leitaði. Sem sóknarprestur var hann
meira en prédikari. Það fengu sókn-
arbörnin hans að reyna. Koma hans
til Bíldudals var fólkinu smyrsl á
sárin sem þá blæddu eftir hryggilegt
slys og hugur þeirra sem hann batt
tryggð við leyndi sér ekki. Hann
átti svo mikið til að gefa. Hann gat
jafnvel gert erfíðar stundir að hátíð.
Þannig var hann. Allt sem hann
skrifaði var bending til betri lífs-
hátta og allar hans ræður bentu í
sömu átt og hans daglega líf var
samofíð því að fjölga ljósblettum á
vegi samferðamannanna og guð gaf
honum það að lífshugsjón hans og
áhugamál urðu sterkari eftir því sem
lengra leið á daginn. Og til hans var
gott að koma, þiggja leiðbeiningar,
því hann talaði af svo mikilli lífs-
reynslu. Nú hefir þessi góða sál ver-
ið kölluð heim. Ég veit að þar verða
margar fagnandi hendur og vinir í
varpa og þar verður gott að halda
jól. Gleðileg jól.
Hugur minn þakklátur og hlýr
fylgir honum og blessar minningu
hans. Landið okkar er góðum manni
fátækari, leiðarstjörnu sem lýsti vel
fram á veg og einhver sú besta ósk
sem ég gæti fært landi mínu og þjóð
væri að margir séra Jóni líkir mættu
koma í hans stað, því oft er þörf en
nú er nauðsyn. Séra Jóni gleymir
enginn sem honum kynnist. Guð
blessi góðan vin.
Arni Helgason
Nú þegar ég kveð afa minn hugsa
ég til þeirra stunda sem við áttum
saman. Eiginlega kemst ekkert ann-
að að hjá mér núna en hugsunin um
hann. Það var alltaf svo gott að gista
hjá honum og ömmu. Hjá þeirn fann
ég ávallt svo mikla hlýju. Ég veit
að það var hjartahlýja þeirra. Ég
vildi óska að ég gæti talað við hann
aftur og hann gæti rifjað upp gamla
tíma eins og við gerðum svo oft með
ömmu þegar ég gisti hjá þeim. En
nú verð ég bara að ímynda mér að
hann sé hjá mér og þegar mér fínnst
hann vera hjá mér líður mér vel.
Ég mun þá minnast hljóðsins í ritvél-
inni hans þegar hann „spilaði” á
hana.
Ég mun seint fyrirfinna slíkan vin
sem hann, svona hjartahlýjan, góðan
og umhyggjusaman. Eftir að hafa
umgengist hann í þau 14 ár sem ég
hef lifað hef ég kynnst mörgum stað-
reyndum um lífíð og ein af þeim
niðurstöðum sem ég hef komist að
er að lifa ekki í táradal sorgarinnar
þegar eitthvað bjátar á heldur minn-
ast góðu tímanna. Það vona ég að
sem flestir geti lært að gera.
Ég kveð afa minn og ég veit að
Guð sér vel um hann.
Guðmundur Fjalar
í dag fer fram frá Dómkirkjunni
í Reykjavík útför sr. Jóns Kr. ís-
felds, en hann lést að morgni 1. des-
ember sl.
Sr. Jón var Austfírðingur að ætt
og uppruna, fæddur 5. september
1908 í Haga í Mjóafirði. Foreldrar
hans voru hjónin Jens Kristján Guð-
mundsson, bóndi og útgerðarmaður
í Neskaupstað, og Júlía Sigríður
Steinsdóttir.
Að loknu guðfræðiprófi vígðist
hann til Hrafnseyrar árið 1942. Á
fyrsta prestskaparári sínu fékk hann
þáð erfíða verkefni að gegna þjón-
ustu á Bíldudal eftir hið mannskæða
Þormóðsslys þar sem m.a. sóknar-
pesturinn þar, srl Jón Jakobsson,
fórst.
Vart er hægt að hugsa sér hvílíkt
þrekvirki það hefur verið jafn ungum
manni og að vera kallaður til starfa
við svo þungbærar aðstæður, þar
sem yfir þijátíu manns höfðu farist
og flestir þeirra úr þessu fámenna
þorpi. Enda mátti heita að þorpið
væri lamað eftir þetta þunga högg.
En presturinn ungi gerði það ekki
endasleppt í þjónustunni við Bíldæl-
inga og aðra Arnfírðinga. Þarna
kaus hann sér starfsvettvang næstu
18 árin og þau áttu sannarlega eftir
að verða viburða- og árangursrík.
Sr. Jóni var einkar lagið að vinna
með börnum og unglingum. Hann
stofnaði sunnudagaskóla, varð lífið
og sálin í barnastúkunni, og auk
þess stofnaði hann unglingaskóla á
Bíldudal, sem enginn hafði þar verið
fyrir. Við sem uxum úr grasi á
Bíldudal á þessum árum nutum þess-
arar elju hans í mörgu.
Öll prestverk vann sr. Jón af stakri
prýði, tónaði flestum betur og var
einlægur í boðun sinni, enda setti
það mark sitt á allt dagfar hans og
viðhorf.
Flest árin á Bíldudal hélt hann úti
fjölrituðu blaði, Geisla, sem hefur að
geyma margháttaðan fróðleik sem
annars væri nú gleymsku hulinn.
Auk þess lagði sr. Jón mikla rækt
við ritstörf lengst af ævinnar sem
einkum voru helguð æskunni og
fræðimennsku.
Eftir að sr. Jón fluttist frá Bíldud-
al 1961 þjónaði hann á ýmsum stöð-
um á landinu.
Mér þótti afar ánægjulegt að hitta
hann aftur, er hann þjónaði í lok
starfsferils síns hér austur á Nes-
kaupstað, þaðan sem hann ungur
maður hafði lagt upp á sínum tíma.
Og ég fann á þeim hjónum að
þessi stutti tími var þeim einnig
kær. Sérstaklega þökkum við tryggð
þeirra við þessi endurnýjuðu kynni.
Um leið og við, fjölskylda mín,
sendum frú Auði, Hauki syni þeirra
og Auði, fósturdóttur þeirra og fjöl-
skyldum þeirra, innilegar samúðar-
kveðjur, biðjum við Jóni Kr. ísfeld
blessunar Guðs og þökkum fyrir að
hafa átt hann að fyrr og síðar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Br.)
Guðríður Guðbjartsdóttir,
Neskaupstað.
Þegar lífsins leiðir skilja Ijúfi Jes-
ús gæti þín. Nafni minn, eins og við
kölluðum alltaf hvor annan þegar
við töluðumst við hvort sem það var
í síma eða augliti til auglitis, er dá-
inn.
Ég vil með þessum fáu orðum
þakka honum fyrir uppeldi mitt sem
ég fékk hjá honum í Bíldudalskirkju
er ég fór sem barn að aldri í sunnu-
dagaskólann og bamastúkuna Vor-
boða sem séra Jón stofnaði. Ég man
ekki til þess að maður léti sig vanta,
hvorki í stúkuna né í sunnudagaskól-
ann, enda bar maður svo mikla virð-
ingu og svo mikið traust til þessa
góða æskulýðsleiðtoga að það hefði
aldrei komið til greina. Ég byijaði
að syngja hjá nafna mínum í kirkj-
unni, fyrst í sunnudagaskólanum,
síðan í kirkjukórnum fermingarárið
mitt 1954. Hingað til Bíldudals kom
séra Jón Kr. Isfeld 1944 frá góðu
brauði, Hrafnseyri, en tekur hér við
sem slíkur eftir Þormóðsslysið 1943.
Það sagði hann mér oft er við rædd-
um saman að það hefði verið mikið
átak fyrir ungan prest að ganga í
hús og tilkynna þetta hörmulega
slys. En það sannaðist þegar tíminn
leið hvað Jón var miklum hæfíleikum
búinn sem embættismaður og boð-
beri guðs.
Hann vann alla tíð mikið starf
bæði hér á Bíldudal og á þeim fjöl-
mörgu stöðum sem hann var á eftir
að hann fór héða'n 1960.
Við skriftir vann hann alltaf mjög
mikið, gaf út bækur og hér á Bíldud-
al blað sem hét Geisli og er í dag
mikill dýrgripur.
Ég bið góðan Guð að blessa eftir-
lifandi konu hans, Auði H. ísfeld,
þá góðu konu, og son þeirra, Hauk,
og hans ljölskyldu.
Ég lýk þessum fáu orðum og kveð
minn góða vin með orðum skáldsins:
Lækkar lífdaga sól
löng er orðin min ferð.
Fauk í faranda skjól
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið
gleddu og blessaðu þá
sem að lögðu mér lið
Ljósið kveiktu mér hjá.
(Herdís Andrésdóttir)
Jón Kr. Ólafsson, söngvari,
Bíldudal
BRIDSBÓK AB
Bók fyrir alla sem
vilja kunna brids. Hér
eru gefin góð ráð
bœði fyrirbyrjendur
og lengra komna.
Bók sem allir
bridsspilarar œttu að
hafa við höndina.
METSÖLUBÓK
Bœkurnar um Valla
ferðalang hafafarið
sigurför um heiminn
Bók fyrir alla J ^
fjölskylduna ; , '
Skemmtileg bók sem
þroskar
athyglisgáfuna i
Hvar er Valli?
Hvar er myndavélin
hans?
Hvar er stafurinn?
Hvar er maðurinn !
með hundinn?
Hvar er
lOORÁÐHANDA
BRIDSSPILimUM
mm
iútímanum
þjódsögur
VERÐLAUNAB0$
Kkþtnmtileg
verðlaunabók
œvintýri Uglu.
Aðalsteinn Ásberg
íSjgtírðsson erfyrir
Wtfguþekktur fm0k
skáldskap sinn.
Myndir Erlu'j^p(^'&.
Sigurðadóttur gefa
sögunni enn meira líf.
FYNDINBÓK ;Jf|l
Þjóðsögur úr
nútímanum, sem margir
kannast við. En eru þœr
sannar?
SkemmtUeg lesning&tytfi
vekur lesandann
jafnframt til
umhugsunar.