Morgunblaðið - 10.12.1991, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1991
51
MITSUBISHI
MYNDBANDSTÆKI
Þú ljós sem ávallt lýsa vildir mér
þú logar enn
í gegnum bárur, brim og voðasker.
Nú birtir senn.
Og ég finn aftur andans fögm dyr
og engla þá, sem barn ég þekkti fyr.
(Newman - Matthías Jochumsson)
Hrafn Jónsson og fjölskylda.
Mig langar í fáum orðum að
minnast Árna B. Kristinssonar skip-
stjóra sem fórst í því átakanlega
slysi er m/b Eldhamar fórst 22.
nóvember síðastliðinn og fimm ung-
ir sjómenn létust.
Árni var sonur hjónanna Hrannar
Árnadóttur og Kristins B. Kristins-
sonar. Hann var elstur þriggja
bræðra, eftir eru Vignir og Krist-
inn. Fjölskyldan flutti til Grindavík-
ur árið 1975 og hefur búið hér síð-
an.
Árni kvæntist Erlu Sigurpáls-
dóttur árið 1984 og áttu þau tvö
börn, Sigurpá! 7 ára og Hrönn á
öðru ári. Árni var maður rólegur
og íhugull og gætinn til orða og
verka. Hann hafði ákveðnar skoð-
anir á mönnum og málefnum og
var málsvari þeirra sem minna
mega sín. Árni var sérlega barngóð-
ur og ég minnist þess að aldrei
gleymdist að færa þeim glaðning
þegar koniið var heim úr erlendri
höfn. Hann hafði ákveðnar skoðan-
ir um fagurt heimilishald og höfðu
þau hjónin nær lokið smíði hússins
á Glæsivöllum 5 með dugnaði og
hagsýni. Árni útskrifaðist frá Sjó-
mannaskólanum árið 1979 og hafði
hann brennandi áhuga á því er þau
réttindi gáfu. Aflaði sér upplýsinga
um veiðisvæði og veiðarfæri, teikn-
aði og skráði þær upplýsingar mjög
nákvæmlega. Hann fylgdist með
veiðarfæratilraunum og öllum nýj-
ungum á sviði þróunar til þess að
búa sig sem best undir að takast á
við_ framtíðina.
Árni var stýrimaður hjá mér í 3
ár og áttum við bæði góðar og
strangar stundir saman. Ég minnist
þess er við tókum þátt í björgun
áhafnar flutningaskipsins Kampen,
hve vel hann var að sér og fór mjúk-
Arni B. Kristíns-
son - Kveðjuorð
um höndum um þá menn er við
náðum. Einnig er mér minnisstætt
hve snyrtilega_ hann lét ganga um
skipið okkar. Ég held að við höfum
ekki komið oft að landi án þess að
hann hafi látið i-yksuga og þvo það
sem mest mæddi á.
Árni tók síðan við skipstjórn á
Ólafi GK 33 árið 1988 og var þar
uns hann tók við stjórninni á Eld-
hamri í maí á þessu ári. Hann batt
miklar vonir við að þar gætu draum-
ar hans ræst, sérstaklega eftir þær
breytingar sem gerðar voru á skip-
inu í Póllandi nú í haust og þeirri
reynslu sem varð af heimasiglingu
í vonskuveðri.
Að lokum bið ég guð að styrkja
eiginkonu, börn, foreldra, bræður,
mágkonur og aðra ættingja í þeirra
miklu sorg.
Vertu sæll vinur. Guð láti engla
sína leiða þig heim til horfinna vina.
Jens Óskarsson
Skíði og
skíðafatnaður
100% vind- og
vatnsþéttur.
Glæsilegt úrval.
Fæddur 13. maí 1959
Dáinn 22. nóvember 1991
Mig langar í örfáum orðum að
kveðja og minnast góðs vinar og
fyrrum vinnufélaga, Árna Bern-
harðs Kristinssonar, sem lést á svo
sviplegan hátt ásamt 4 félögum sín-
um er Eldhamar GK 13 strandaði
við Grindavík 22. nóvember síðastl-
iðinn.
Þegar Erla hringdi í mig og sagði
mér þessar hörmulegu fréttir, voni
fyrstu viðbrögðin að vilja ekki trúa
þessu, en þegar veruleikinn vinnur
á og honum verður ekki haggað,
koma upp í hugann minningar um
góðan dreng sem gott var að hafa
kynnst. _
Við Árni kynntumst árið 1986
er við vorum saman til sjós. Við
eyddum ófáum stundum saman í
brúnni og ræddum ýmis mál í full-
um trúnaði um lífið og tilveruna.
Myndaðist strax með okkur og fjöl-
skyldum okkar góður vinskapur.
Árni var góður sjómaður, kunni
vel til verka og var snar að leysa
þær þrautir, sem komu upp á hveij-
um tíma, en var samt þolinmóður
við okkur hina, sem minna kunnum
og gaf sér alltaf tíma til þess að
leiðbeina. Þess vegna var hann val-
inn til forystu, því hæfileikarnir
voru svo sannarlega fyrir hendi.
Árni var traustur og einlægur
vinur, sem sjaldan skipti skapi, enda
Birting af-
mælis- og
minning-
argreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
geislaði af honum lífsgleðin og
grunnt var á „húmorinn” og glettn-
ina, en þó duldist engum ef honum
mislíkaði.
Við komum oft á heimili Árna
og Erlu og þau til okkar, þótt heim-
sóknirnar yrðu stijálli eftir að við
fluttumst til Reykjavíkur. Voru það
alltaf gleðistundir, mikið hlegið og
rætt opinskátt um hlutina, oftast
um sjóinn auðvitað og framkvæmd-
ir við húsið þeirra, því það var Árna
kappsmál að hlúa sem best að fjöl-
skyldu sinni og að hafa fallegt í
kringum sig, því hann var mikill
smekkmaður.
Og með tilkomu farsímans
hringdi hann oft í okkur utan af
sjó, bara til þess að „spjalla” eða
bjóða fisk í soðið. Árni hafði mjög
gaman af tónlist, og sátum við oft
dijúga stund við hljómtækin og
rökræddum hinar ýmsu tónlistar-
stefnur.
En nú er hláturinn hljóðnaður
og skammdegið enn svartara en
áður, eftir lifir minningin um góðan
dreng, sem mikill fengur var í að
hafa kynnst og unnið með. Ég
þakka honum vinskapinn og sam-
veruna og veit að við eigum eftir
að hittast aftur.
Elsku Erla mín, það er skammt
stórra högga á milli og sorgin virð-
ist óyfirstíganleg, en mundu að það
er ljós hinum megin ganganna.
Við biðjum æðri máttarvöld að
styrkja þig og börnin þín Sigurpál
og Hrönn litlu á þesari erfiðu stund.
Foreldrum Árna, bræðrum og öðr-
um aðstandendum sendum við okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur og
svo öllum öðrum, sem eiga um sárt
að binda eftir þetta hörmulega slys.
F
MITSUBISHI E12
Þriggja hausa tæki með fullkominni kyrrmynd, skipanir á skjá,
árs upptökuminni, digital tracking, intellegent picture nær því
besta úr gömlum myndböndum, index, tímaleitun, swift servo
gerir alla þræðingu og hraðspólun mun hraðvirkari og betri,
fullkomin fjarstýring o.fl.
Sértilboó kr. 36.950,- stgr.
MITSUBISHI E41
Þriggja hausa tæki með fullkominni kyrrmynd, 8 tíma afspil-
un/upptöku, skipunum á skjá, mynd í mynd með strópi, árs
upptökuminni, barnalæsing, tímaleitun, index, intelligent pic-
ture sem nær því besta úr gömlum myndböndum, swift servo
gerir alla þræðingu og hraðspólun mun hraðvirkari og betri,
digital tracking, forritanleg fjarstýring o.fl.
SértHboó kr. 44.950,- stgr.
MITSUBISHI M34
Fjögurra hausa tæki með iong play, 8 tíma afspilun/upptöku,
skipanir á skjá, swift servo gerir alla þræðingu og hraðspólun
mun hraðvirkari og betri, digital tracking, index, tímaleitun,
barnalæsing, intelligent picture nær því besta úr gömlum
myndböndum, árs upptökuminni, digital tracking, fullkomin
fjarstýring o.fl.
Sértilboó kr. 44.950,- stgr.
MITSUBISHI M55
Afspilun á evrópskum og amerískum
spólum við venjulegt sjónvarp.
Fjögurra hausa tæki með long play, 8 tíma afspilun/upptöku,
NICAM HIFI STEREO, NTSC afspilun á PAL tæki, afspilun á
S-VHS spólum, index, tímaleitun, skipanir á skjá, árs upptöku-
minni, sjálfvirk hausahreinsun, swift servo gerir alla þræðingu
og hraðspólun mun hraðvirkari og öruggari, edit möguleikar,
intelligent picture nær því besta úr gömlum myndböndum,
digital tracking, fullkomin fjarstýring o.fl.
Sértilboó 63.950,- stgr.
MITSUBISHI M82
Super VHS tæki með NTSC, 8 tíma afspilun/upptöku, NICAM
HIFI STEREO, swift servo gerir alla þræðingu og hraðspólun
mun hraðvirkari og betri, intelligent picture nær því besta úr
gömlum myndböndum, sjálfvirk hausahreinsun, skipanir á
skjá, index, tímaleitun, edit möguleikar, qrs upptökuminni,
digital tracking, forritanleg fjarstýring o.fl.
Sértilboó kr. I 19.950,- stgr.
Munalán
Afborgunarskilmálar
Vönduð verslun
UJiilAMOO
FÁKAFENI 11 - SÍMI 688005