Morgunblaðið - 10.12.1991, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 10.12.1991, Blaðsíða 56
MQRiQUNJiLAÐIþ í>RIÐ.IUDAGURrl&.i DBSEMBER 1991' m + Systir okkar, GÍSLÍNA KRISTJÁNSDÓTTIR, andaðist í Sjúkrahúsi Akraness 8. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Systkinin. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÍVAR BJÖRNSSON vélstjóri, andaðist á heimili sínu laugardaginn 7. desember sl. Fyrir hönd aðstandenda. Indriði H. (varsson. t Eiginkona mín og móðir okkar, GUÐNÝ BJÖRNSDÓTTIR, Borgarnesi, andaðist í Sjúkrahúsi Akraness mánudaginn 9. desember sl. Jarðarför verður auglýst síðar. Halldór Magnússon og dætur hinnar látnu. t Eiginmaður minn og faðir okkar, AÐALSTEINN ELÍASSON, Hraunbæ 34, lést í Borgarspítalanum 8. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigríður Sigurbrandsdóttir, Einar Aðalsteinsson, Elsa Aðalsteinsdóttir, Oddný Einarsdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐBJÖRN ÞORSTEINSSON skipstjóri, verðurjarðsunginnfrá Fossvogskirkju fimmtudaginn 12. desem- ber kl. 10.30. Svanhildur Snæbjörnsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Konan mín og móðir okkar, INGIBJÖRG GÍSLADÓTTIR, Bárugötu 36, andaðist 8. desember. Jón Eiríksson, Sigurður Jónsson, Eiríkur Jónsson, Sigurborg Jónsdóttir og fjölskyldur. t Ástkær móðir okkar, HRAFNHILDUR ÁSTA JÓNSDÓTTIR, Ljósheimum 18, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 10. desember kl. 15.00. Einar Már Árnason, Margrét Eiríksdóttir, Vilhelm Þór Árnason, Kristrún Jónsdóttir, Jón Vignir Árnason, Brynhildur Bjarnadóttir, Ásgeir Árnason, Sigrún Olgeirsdóttir og barnabörn. t Yndisleg dóttir okkar og barnabarn, MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, Skólavörðustíg 18, verður jarðsett frá Lágafellskirkju miðvikudaginn 11. desember kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Barnaspítala Hringsins. Kristfn I. Pálsdóttir, Guðmundur Karl Arnarson, Ragnheiður Jónsdóttir, Páll Halldórsson, Margrét Guðmundsdóttir, Örn Höskuldsson. Guðmundur Torfa,- son - Minning Fæddur 5. febrúar 1901 Dáinn 3. desember 1991 Þegar siglt er að sunnan, fyrir Útvíkur til Patreksfjarðar, er síð- asta víkin Kollsvík, milli Hnífa og Blakkness. Öldurnar brotna á sandströnd en fyrir ofan hana taka við melar og síðan ftjórra gras- lendi, umlukt fjöllum og hæðum. Þetta er lítil sveit og nú fámenn en áður var þar allmikið útræði og nokkur búfjárrækt. Þar fæddist 5. febrúar 1901 Guðmundur Torfa- son sem í dag verður borinn til grafar. Hann var næstyngstur 13 systk- ina, barna þeirra Torfa Jónssonar bónda og útvegsmanns í Kollsvík og konu hans, Guðbjargar Ólínu Guðbjartsdóttur. Af þessum 13 systkinum komust 11 til fullorðins- ára og varð Guðmundur síðastur þeirra systkina til að kveðja þenn- an heim. Þegar Guðmundur var á þriðja ári varð fjölskyldan fyrir því áfalli að Torfí fórst í lendingu í ofsa- veðri og varð kona hans og sumt af bömunum sjónarvottar að því slysi. Fjölskylda með svona mörg böm gat ekki látið mikið eftir sér, þótt ekki sé miðað við lífskjör nú á dögum, en þá var álitamál hvort auðið yrði að sjá heimilinu farborða þegar fyrirvinnan var fallin frá. Fyrir dugnað og samheldni fjöl- skyldunnar tókst það samt en það útheimti að hver legði fram krafta sína eftir megni. Þegar systkinin náðu fullorðins- aldri og vom sum gift og flutt úr föðurhúsum, fór Guðmundur í Hvítárbakkaskóla, síðan í Iðnskól- ann og þá í Vélstjóraskólann. Lauk hann prófi frá þeim öllum með lof- legum vitnisburði og hlaut jafnvel verðlaun fyrir frábæran náms- árangur. Hann stundaði sjósókn um tíma en ævistarf hans var að vera efnis- vörður í Stálsmiðjunni þar sem hann vann meðan honum entist þrek og aldur leyfði. Hann var einn af stofnendum Öfnasmiðjunnar hf. en lét áður en langt um leið af hlutdeild sinni í henni. Árið 1938 kvæntist hann Þór- hildi Ingibjörgu Jakobsdóttur frá Árbakka í Vindhælishreppi, mikil- hæfri konu sem reyndist honum tryggur lífsförunautur. Þau eign- uðust þrjú börn og var þeirra elst Sigurlaug Ólöf, ekkja Jóns Þórs Þórhallssonar, húsasmiðs, sem lést 1. janúar 1978 og eignuðust þau tvo syni. Næstur í röðinni var Torfi Guðbjartur, járnsmiður, kvæntur Ellen Anderson og eiga þau einnig tvo syni. Yngstur var Jakob Hall- freður Heiðar, kvæntur Helgu Hermannsdóttur og búa þau á Árbakka, æskuheimili Þórhildar, og eiga tvær dætur. Barnabarna- börn þeirra Guðmundar og Þórhild- ar eru orðin 3. Þau hjón bjuggu alla sína hjúskaparævi á Njálsgötu 36 hér í borg. Séra Þorsteinn Gíslason frá Steinnesi gaf þau Guðmund og Þórhildi saman í hjónaband og er það sonur hans, séra Guðmundur Þorsteinsson, sem nú jarðsyngur Guðmund. Þau áhrif sem Guðmundur varð fyrir í uppeldinu hjá móður sinni, trúaðri konu, fylgdu honum alla ævi síðan. Hann var sjálfur trúað- ur og siðgæði kristninnar mótaði líf hans og viðhorf ófrávíkjanlega. t Systir mín og móðursystir okkar, ANNA PÁLMADÓTTIR, Bólstaðarhlíð 45, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu, á morgun, miðvikudaginn 11. desember, kl. 13.30. Eva Pálmadóttir, Erla Elíasdóttir, Halldóra Elíasdóttir, Ágúst H. Elíasson. t Útför systur minnar, MARÍU GUÐJÓNSDÓTTUR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, ferframfrá Akraneskirkju miðvikudaginn 11. desemberkl. 11.OOf.h. Þóra Guðjónsdóttir. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GÍSLIT. GUÐMUNDSSON póstmaður, Sólheimum 25, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtudaginn 12. desem- ber kl. 15.00. Kristín S. Björnsdóttir, Kristín Gisladóttir, Jakob L. Kristinsson, Örn Gfslason, Guðrún Áskelsdóttir, Björn Gíslason, Karólína Gunnarsdóttir og barnabörn. LEGSTEINAR LIÓSKER - KERTl - STYTTUR "= # Graníl ;@öffi(3© HELLUHRAUNI 14-220 HAFNARFIRÐI ■ SÍMI 652707 OP/Ð 9-18. LAUGARDAGA FRÁ KL. 10-15. Hann var trúr, allt til dauða, Guði, fjölskyldu sinni og vinnuveitend- um. Hann hataði ekkert meira en óheiðarleika, brigðmælgi og hvers konar svik enda gat aldrei neinn brugðið honum um neitt af því tagi. Hann lifði fyrir íjölskyldu sína og fann hamingju sína innan henn- ar. Börn sín vildi hann jafnan hafa með sér ef hann fór eitthvað í frí- stundum sínum, stundum á báti til hrognkelsaveiða eða upp í Esju til eggjatöku. Þá upplifði hann á ný æskuárin í Kollsvík, fiskveiðar og eggjaferðir í Látrabjarg sem þá var leið til lífsbjargar en síðar á ævinni ánægjuleg og um leið gagnleg dægrastjrtting. Bömin hans minnast samvistanna við hann með söknuði og um leið með þökk fyrir allar góðu stundirnar í félagsskap hans. Á heimili Guðmundar og Þór- hildar var mikill gestagangur, af hálfu ættingja og vina þeirra hjóna beggja og var öllum tekið af sömu gestrisninni. Bömin ólúst því upp við fjölmenni og glaðværð í góðum vinahópi, jafnvel þótt stundum væri svo þétt setinn bekkurinn að þau áttu fullt í fangi með að finna afdrep til heimanáms síns. Og þótt á milli væri seint gengið til sængur hafði það engin áhrif á stundvísi Guðmundar í vinnu sína. Vinnan var mikilvægt atriði í lífi hans enda gat hann ekki til þess hugsað að sitja auðum höndum. Hann var sívinnandi meðan þrekið leyfði allt til þess er heilbrigði þraut. Páll postuli telur upp í Galata- bréfinu það sem hann kallar „ávöxt andans”. Það eru kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska, hógværð og bindindi. Það var eins og Guðmundur hefði kunnað þessa upptalningu utan- bókar og haft hana að leiðaijósi. Þetta voru einmitt þeir mannkostir sem hann mat mest, þeir sem gerðu mann að sönnum manni í hans augum. Þegar maður með slíkt ljós til leiðsagnar á vegi sínum kveður þetta líf fyrir fullt og allt, er heimurinn fátækari eftir. En þá er það hlutverk okkar sem eftir iifum að breyta sem næst því í minningu hans. Torfi Ólafsson Blómastofa hiðfinm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld tii ki. 22einnig um helgar. Skreytingar við öli tilefni. Gjafavörur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.