Morgunblaðið - 10.12.1991, Síða 65
MÖRGÍWÖLAblÖ'ÞRtÐJUDAÖUfe ÍO! títótíMBERl^Í
65
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
B91282KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
éiuntm
Þessir hringdu . ..
Athugasemd við grein
Húsmóðir á Akureyri vildi
koma með athugasemd við grein-
ina „Barna- og örorkubætur”
sem birtist i Velvakanda 29.
nóv. Hún sagðist geta tekið und-
ir með greinarhöfundi að tekju-
tengja ætti barnabætur. En hún
hafði margt að athuga við það
sem hann sagði um örorkubæt-
urnar. Hún sagðist sjálf vera
bakveik og vera 65% öryrki og
bæturnar væru 9.092 krónur á
mánuði. Henni fyndist því grein-
arhöfundur lítið vita um málið
þegar hann talaði um bætur upp
á 40-60 þúsund krónur. Hún
sagðist reyndar einnig fá 17.000
krónur frá verkalýðsfélaginu en
hún hefði verið á vinnumarkaðn-
um frá 16 ára aldri og þetta
væri ekki nein stórupphæð.
Verslunarferðirnar
Kona hringdi og sagðist tæp-
ast eiga orð yfir þessu versluna-
ræði fólks í útlöndum. Hún sagð-
ist ekki skilja hvemig fólk hefði
efni á þessu endalaust og til
dæmis vissi hún að hátt_ í 200
manns frá Granda hefðu farið í
svona ferð og hún vissi ekki bet-
ur en þetta væri það fólk sem
væri að boða verkfall. Annað sem
hún vildi taka fram var að
kunningjakona hennar sem var
að koma frá Dublin sagði frá því
að ekki hefði verið skoðað í eina
einustu töáku hjá farþegunum
og því þætti henni undarlegar
þær fréttir þar sem sagt væri
að tollgæslan væri að herða eftir-
lit sitt.
Filofax
Filofax tapaðist fyrir um
tveimur vikum. í því eru vega-
bréf og fæðingarvottorð eigand-
ans, Davids Wallachs. Það er því
um mjög mikilvæga pappíra að
ræða. Finnandi vinsamlegast
hafi samband í síma 688484 eða
689686.
Gott ferðablað
Vesturbæingur hringdi og
vildi færa ritstjóra ferðablaðs
Morgunblaðsins þakkir fyrir frá-
bært blað, hann sagðist vera
mjög ánægður með þetta nýja
blað sem kæmi nú út á föstudög-
um. Hann vildi einnig þakka fyr-
ir leikritið „Sjóarinn, spákonan,
blómasalinn, skóarinn, málarinn
og Sveinn” sem sýnt var 1. des.
í sjónvarpinu. Hann sagði það
véra meiriháttar og leikurinn
stórkostlegur og það mætti
gjarnan sýna það aftur.
Gullhringur
Gullhringur með litlum de-
manti týndist í haust einhvers
staðar á leiðinni Seltjarnarnes-
Vesturbær. Finnandi vinsamleg-
ast hiingi í síma 21152.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um
EES
Sesselja hringdi og sagðist
vilja taka undir orð Jóhannesar
Snorrasonar' í Velvakanda 6.
des. um að efna ætti til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um EES.
Akstur í nálægð líkfylgdar
Hafsteinn hringdi og vildi
koma með litla ábendingu til
fólks varðandi akstur í nálægð
líkfylgdar. Hann sagði það vera
lágmark að stöðva bifreiðina og
votta þannig hinum látna virð-
ingu sína, það væri enginn það
upptekinn að hann gæti ekki
stoppað í eina mínútu. Hann
sagðist sjálfur alltaf stoppa hvort
sem hann væri akandi eða gang-
andi þegar líkfylgd færi hjá.
Barnaskyrta
Barnaskyrta fannst fyrir utan
Kringluna fimmtudaginn 5. des.
Upplýsingar í síma 623845.
Þakkir fyrir greinar
Jón Magnússon hringdi og
vildi þakka Þorsteini bónda í
Vatnsnesi fyrir skrif hans í Vel-
vakanda undanfarið um innflutn-
ing á litu fólki. Jón hvetur hann
til að skrifa meira um þetta mál.
A
Ibúar á Akranesi:
Látið ljósin loga!
Morgunblaðið er nú borið út
fyrr á morgnanna á Akranesi en
áður var og því oft á tíðum erfitt
fyrir blaðberana að sjá handa
sinna skil þegar fólk lætur ekki
útiljósin loga. Því er þeim vinsam-
legu tilmælum beint til allra kaup-
enda Morgunblaðsins á Akranesi
að þeir hafí útiljósin á yfir nóttina
svo blaðburðurinn megi ganga
áfallalaust.
ij^stjörnuspekistöóin
sendum í póstkröfu
gunnlaugur guðmundsson
kjörgarði
laugavegi 59, sími 91-10377
NÝ PRJÓNA UPPSKRIFT
r
Islenskt handprjónaband - Fjölbreytt litaval
Útsölustaðir um land allt
Plötulopi Hosuband Flos
Hespulopi Loðband Flóra
8B8ÍSTEX.
ÍSLENSKUR TEXTÍLIÐNAÐUR H.F.
• Pósthólf 140 • 270 Mosfellsbæ • Sími 91-6663 00
Nýtt fyrirtæki í ullariðnaði
9 ASKO
Hæð x breidd x dýpt = 49.S x 55.5 x 57 cm.
Finnst þér gaman
að þvo upp?
Sennilega ekki, nema þú eigir eina af nýju
uppþvottavélunum frá ASKO, þá horfir
málið öðruvísi við.
%
Nýia
rirferðarlítil, rúmgóð, vandvirk, fljót og
ögul, aðeins 41 dB(A). Rúmar 6-manna
borðbúnað og 8 bolla eða glös. Þvær
"hraðþvott" á 25 mín. og notartil þess
aðeins 11 Itr. af vatni og 0,4 Kwst af orku.
Frábær hönnun, að utan sem innan.
Frístæð eða innbyggð. Veldu um 5 gerðir
sænsku ASKO-ASEA uppþvottavélanna á
verði frá kr. 51.960 (staðgreitt)
Góðir greiðsluskilmálar, t.d. VISA og EURO
raðgreiðslur til allt að 18. mánaða,
án útborgunar.
/rOniX
Hátúni 6a • Simi 91-24420