Morgunblaðið - 03.04.1992, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1992
11
Helgi Hálfdanarson:
NÝTTLAG
Nýlega minntist Ríkisútvarpið
hins merka skólamanns Guðjóns
Guðjónssonar, sem hefði orðið
tíræður 23. marz sl.
Guðjón var maður fjölgáfaður
og miklum mannkostum búinn.
Hann var skáld gott, þá sjaldan
hann vildi það við hafa; en lítt
hélt hann á loft kveðskap sínum.
Barnavísurnar Það er leikur að
læra hlutu að verða kunnastar
af því sem hann orti, því þær
eru fyrir löngu orðnar sameigin-
legur skólasöngur allra barna á
íslandi:
Það er leikur að læra,
leikur sá er mér kær,
að vita meira og meira,
meira i dag en í gær.
Bjallan hringir, við höldum
heim úr skólanum glöð.
pnið og fijálsleg í fasi,
fram nú allir í röð.
(Vísnabókin, Rv. 1983)
Engin furða að þessar þokka-
fullu vísur urðu vinsælar. Hins
vegar er það leitt, að um söng
þeirra hefur slysalega til tekizt.
Ekki veit ég hvernig það hefur
atvikazt, að þær lentu í samfylgd
við lag sem alls ekki hæfir þeim;
því lagið á við allt annan bragar-
hátt en þann sem er á vísunum,
og misþyrmir þeim hraklega fyr-
ir bragðið. Hér þyrfti sem fyrst
úr að bæta og fínna vísunum lag
sem réttilega fellur að gerð
þeirra.
Lagið sem sungið hefur verið,
gerir ráð fyrir því, að ljóðlínurn-
ar hefjist á öfugum þrílið. Þó
er augljóst að svo er ekki. Þar
tekur stuðlasetningin alstaðar
af skarið. Væru vísurnar ortar
á öfugum þrílið, eins og lagið
krefst, kæmi höfuðstafur og þar
með fyrsta áherzla á þriðja at-
kvæði línunnar, ’rétt eins og þar
stæði:
Það er /eikur að /æra,
sá et' tókur mér kær.
En þannig eru vísurnar ekki
ortar. Þar kemur höfuðstafur al-
staðar á fyrsta atkvæði í línu, sem
þess vegna hlýtur að vera
áherzluatkvæði. Það er því ljóst,
að allar línur vísnanna hefjast á
réttum tvílið (á einum stað með
forlið).
Samkvæmt sönglaginu væri
hrynjandin á þessa leið (áherzlu-
atkvæði skáletruð):
Það er leik-ur að lær-a,
leikur sá er mér kær.
En samkvæmt stuðlasetningu
beggja vísnanna er hrynjandin
þessi:
Það er leik-m að lær-a,
leik-ur sá er mér kær.
í hverri línu eru þess vegna
þrír bragliðir en ekki tveir eins
og eftir laginu.
Litlu munar að þýzka lagið,
sem haft er við ljóð Jónasar,
Efst á Arnarvatnshæðum, falli
að vísum Guðjóns, þ.e.a.s. brag-
arháttárins vegna. Að öðru leyti
hæfir það lag vitaskuld ekki hinu
glaða og hressilega efni vísn-
anna.
Oft heyrist kvartað undan
því, að ruglukveðskapur, kennd-
ur við nútíma, sé að drepa ljóð-
smekk ungdómsins og slökkva
allt skynbragð á íslenzka brag-
hefð. Hvað sem því líður, verður
það sízt til að bæta bragheyrn
ungra barna að fara svo rang-
lega með góðan kveðskap, að
traust og vandað form hans verði
að umskiptingi.
Þess vegna skora ég á eitt-
hvert tónskáldið okkar að búa
til létt og glaðlegt lag sem falli
réttilega að þessum vösku og
bjartsýnu vísum Guðjons -Guð-
jónssonar. Síðan vænti ég þess,
að kennarar geri lagið að alls-
heijar skólasöng íslenzkra
barna, sem þegar hafa tekið
ástfóstri við vísurnar.
-
f NÝ SENDING Pils-blússur-buxur-peysur Tískuskemman, \
< Laugavegi.
SSherwoodT
Hljómflutningssamstæðan
sem sló í gegn í Ameríku
■■
fermin
GJOF
Sherwood hljómtækin hafa svo sannarlega gert garöinn
frægan í henni Ameríku, frábærir dómar og gríðarleg sala á
þeim segir meira en mörg orö. Góðar viðtökur hér á íslandi
hafa sýnt okkur að hægt er að mæla með MC 1200
hljómflutningssamstæðunni.
ÚTVARPSTÆKIÐ
Grafískur skjár, 30 stöðva
minni, sjálfvirkur leitari og
fínstilling.
MAGNARINN
Mjög öflugur, 2x100 músik
Wött. 5 banda grafískur tón-
jafnari (Equalizerj. Mótordrif-
inn styrkstillir. Aukainngangur
fyrir videó og sjónvarp.
TVÖFALT SEGULBAND
Frábær hljómgæði (Dolby B).
Tvöfaldur upptökuhraði. Sjálf-
virk spilun á spólu beggja
vegna. (Auto Rev.) Sjálfvirk
upptökustilling. Sjálfvirk
stöðvun á enda.
GEISLASPILARINN
Fullkominn lagaleitari. 20 laga
minni. Grafískur skjár. Hægt
er að láta sama lagið eða lögin
hljóma endalaust. Tekur bæði
5 og 3ja tommu diska.
HÁTALARARNIR
Þriggja-átta lokaðir hátalarar
með bassa „Woofer".
FJARSTÝRINGIN
Mjög fullkomin fjarstýring sem
gefur þér möguleika á að sitja
í rólegheitum í hæfilegri fjar-
lægð og stýra öllum aðgerðum.
PLÖTUSPILARINN
Hálfsjálfvirkur, tveggja hraða
45 og 33 snún. Verð kr. 7.890,-
.-0**'* VLl/
Heimilistækí hf
° SÆTÚNI8 SÍMI6915 15 ■ KRINGLUNNI SÍMI69 15 20
Traust þjónusta í 30 ár.
VtSA
e sp
MUNALAN
UERKlSMENN HF