Morgunblaðið - 03.04.1992, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1992
Evrópufrímerki 6. apríl nk.
________Frfmerki_____________
Jón Aðalsteinn Jónsson
Næstu frímerki Póst- og síma-
málastofnunarinnar koma út næst-
komandi mánudag, 6. apríl. Verða
það tvö frímerki í hinum árlega
flokki Evrópufrímerkja svonefndra
CEPT-landa. En að auki koma
þessi merki út í smáörk, þar sem
fram kemur nokkru meira af því
landabréfi, sem sést á sjálfum
merkjunum.
Hið sameiginlega myndefni Evr-
ópumerkjanna að þessu sinni er
helgað því, að seint á þessu ári eru
500 ár liðin síðan Kólumbus og
menn hans stigu fæti sínum á
vesturheimska jörð. Sjálfsagt var,
að íslenzka póststjórnin notaði
þetta tækifæri til þess að minna
umheiminn á, að það var íslenzkur
maður, Leifur Eiríksson hinn
heppni, sem steig reyndar á land
í Vesturheimi tæpum fimm hundr-
uð árum fyrr. Þetta er gert á þann
skemmtilega hátt að láta annað
frímerkið sýna víkingaskip á sigl-
ingu um Norður-Atlantshaf og
stefna á Vínland. Hitt frímerkið
sýnir svo skip Kólumbusar sigla
þöndum seglum í átt að Karíba-
hafi. Þá notfærir færeyska póst-
stjórnin sér þetta sama myndefni
á frímerki sín, enda þótt ekki verði
beint séð, hver tengsl frænda vorra
í Færeyjum voru við Leif heppna.
En hvað um það, Það er einungis
ágætt, að þeir komi hér til liðs við
okkur, því að allir vita, hversu'dug-
legir Norðmenn eru í því að eigna
sér Leif heppna.
í tiikynningu póststjórnarinnar
er greint 'allrækilega frá þessum
tveimur sæförum. Kólumbus var
ítalskur að uppruna, en fluttist til
Portúgals. Hugur hans stóð til
landkönnunar. Studdi Spánarkon-
ungur hann til ferðar í vesturveg
til þess að finna sjóleiðina til Ind-
lands. Heimildir segja, að Kólubus
hafí komið til Islands 15 árum áður
en hann sté á land í Vesturheimi.
ítalska póststjórnin gaf út 1990
smáörk, þar sem siglingar Kólum-
busar um N-Atlantshaf og viðkoma
hans á Islandi eru markaðar. Þá
eru og uppi sagnir um, að hann
hafi haft hér vetursetu á stað, þar
sem sjá mátti í góðu skyggni
fjallstinda á Grænlandi. E.t.v. hefur
hann þá heyrt einhveijar sögur um
fund Grænlands og Vínlands, enda
lifðu þá eins og alltaf sagnir um
þessa landafundi meðal íslendinga.
Landafundir Kólumbusar mörkuðu
þáttaskil í mannkynssögunni og
skópu nýja heimsmynd, enda þótt
hann fyndi ekki Indland. Er því
ekki nema eðlilegt, að Evrópu-
merkin séu helguð þessum merka
atburði.
Um Vínlandsferðirnar eru svo
alllangur kafli í tilkynningunni.
Segir þar fyrst frá landnámi föður
Leifs, Eiríks rauða og stofnun
blómlegs ríkis syðst á vesturströnd
Grænlands. Er sú saga rakin í
stuttu máli eftir Eiríks sögu rauða
og Grænlendinga sögu allt frá upp-
hafi og þar til hún rofnaði í upp-
hafi 14. aldar.
Þröstur Magnússon hefur hann-
að þessi frímerki og smáörkina, og
það eitt táknar góð og skemmtileg
vinnubrögð. Er vonandi, að ís-
lenzka póststjómin kunni að meta
og notfæra sér kunnáttu þessa
listamanns um mörg ókomin ár.
Ég segi vonandi, því að mér hefur
nú í seinni tíð fundizt hún hafa
sniðgengið hann um of. Ég hygg,
að margir séu mér samdóma um
það. Merkin eru offset-prentuð í
Hollandi hjá Joh. Enschéde en Zon-
en, en sú prentsmiðja hefur oft
prentað mörg og falleg frímerki
» bCIFOR EIRIKSSON -UM 1000
KUROf’A
IT'S'LAND r^r
:m°° Æ»
FUNtWS
AMKRÍKU
* KfttSTÓFKR KÓl.UMI!US 1492 EUKOFA
fyrir okkur. Eg held, að hér ætti
ísl. póststjórnin einnig að halla sér
oftar að en hún gerir.
Vefðgildi þessara frímerkja er
55 krónur, og eru 50 frímerki í
örk, en aftur tvö í smáörkinni, Það
er vel til fundið hjá póststjórninni
að velja þetta verðgildi, því að það
hentar einmitt undir almennt bréf
til Vesturheims. Þannig minna þau
Vesturheimsbúa alveg sérstaklega
á Leif heppna og fund Vínlands.
Er því vonandi, að ekki þurfi að
breyta þessu burðargjaldi í náinni
framtíð, svo að tilgangi með útgáfu
þeirra verði sem bezt náð. Þeir, sem
senda almenn bréf til Ameríku,
ættu þess vegna einkum að nota
sem oftast á póst sinn.það frímerk-
ið, sem sýnir siglingu Leifs heppna
og félaga hans á leið til N-Ameríku.
FRÍMEX 92
Á þessu ári eru 35 ár, síðari'
F’élag frímerkjasafnara var stofnað
hér í Reykjavík. Síðan hefur það
starfað með miklum blóma og er
langstærstu samtök safnara hér-
lendis. Stjórn FF ákvað á liðnu
hausti að minnast þessa afmælis
meðTrímerkjasýningu. Verður hún
haldin í húsakynnum Alþýðusam-
bands íslands að Grensásvegi 26a
dagana 24.-26. þ.m. Þetta verður
svonefnd landssýning og undir
vernd Landssambands íslenzkra.
frímerkjasafnara. Formaður
sýningarnefndar er Rúnar Þór
Stefánsson, en aðrir í nefndinni eru
Guðni F. Gunnarsson og Þorvaldur
Jóhannesson. Vel mun hafa gengið
að afla sýningarefnis, en það kem-
ur frá innlendum söfnurum og eins
frá öðrum Norðurlöndum. Um 160
rammar verða þarna og er um
helmingurinn unglingasöfn frá öll-
um Norðurlöndunum og að auki tvö
söfn frá Eistlandi. Tíu íslenzkir
unglingar eiga þarna margvíslegt
efni í 30 römmum.
Nokkrir þekktir íslenzkir safn-
arar eiga þarna margs konar efni,
þótt það verði ekki rakið nánar
hér. Ég vil einungis minnast á það,
að á FRÍMEX982 verður í fyrsta
skipti sýnt nær einstætt safn af
fyrstu útgáfum íslenzkra frímerkja
og flest þeirra á bréfum. Á ég von
á, að margur muni hafa gaman af
að skoða þetta safn. Tekið skal
fram, að aðgangseyrir er enginn
að FRÍMEX 92.
Svo sem venja er, verður pósthús
á sýningarstað og notaður sér-
stimpill. Sú er von sýningarnefnd-
ar, að sem flestir sjái ástæðu til
að sækja þessa sýningu heim og
kynna sér það efni, sem þar má
skoða.
Meðan FRÍMEX 92 stendur
verður landsþing LÍF haldið í húsa-
kynnum Landssambandsins í Síðu-
múla 17. og í boði Félags frímerkja-
safnara.
Frímerkjauppboð
Þau skemmtilegu tíðindi gerast
í sambandi við FRÍMEX 92, að
sérstakt frímerkjauppboð verður
haldið í sal LÍF í Síðumúla 17. Slík
uppboð hafi því miður legið niðri
hérlendis um mörg ár. Uppboðið
verður haldið sunnudaginn 26. apríl
og hefst kl. 14. Þar verða 295
númer og efnið af margvíslegum
toga. Langmest er það íslenzkt, en
einnig nokkuð frá öðrum Norður-
löndum, og örfá númer frá Græn-
landi og Dönsku Vestur-Indíum.
Efnið verður til sýnis uppboðsdag- ,
inn í Síðumúla 17 milli kl. 12 og
14. Annars er skrá yfir efnið í
nýútkomnu hefti af Grúskinu, en
það fá allir þeir, sem eru í samtök-
um innan LJF. Vafalaust geta svo
aðrir áhugamenn fengið keypt ein-
tak í frímerkjaverzlunum borgar-
innar eða hjá LÍF í Síðumúla. Skrif-
leg boð má senda og merkja þau:
LIF-Uppboð, Pósthólf 8753, 128
Reykjavík. Er skilafrestur þeirra
til 21. apríi.
í tilhugalífinu
Ástin unnin; Pacino og Pfeiffer í Frankie og Johnny.
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Frankie og Johnny. Sýnd í Há-
skólabíói. Leikstjóri: Garry
Marshall. Handrit: Terence
McNally. Kvikmyndataka: Dante
Spinotti. Aðalhlutverk: A1 Pacino,
Michelle Pfeiffer, Hector Eliz-
ondo, Kate Nelligan og Nathan
Lane.
Stórkostleg stúlka eftir Garry
Marshall náði ógnaivinsældum á
sykurhúðuðu nútíma Öskubusku-
ævintýri um mellu sem fann Paradís
hjá milljónamæringi. Það var vond
mynd því hún snerist mikið til um
lágkúrulega ást á skrumi. í Frankie
og Johnny segir Marshall aftur ástar-
sögu en hefur fótfestu á jörðinni í
þetta skiptið, hallærislega prinsessu-
ævintýrið um tískubúðarápið hefur
vikið fyrir raunsæislegri stíl, hér er
saga um almúgafólk. Kom því ekki
á óvart að myndin kolféll í Bandaríkj-
unum.
Hollywood hefur löngum átt í
erfiðleikum með að lýsa Iífi hins
óbreytta verkamanns (nýleg dæmi:
Stanley og íris, Stella) en Marshall
tekst það ágætlega með brakandi
ekta umhverfi og persónum á almúg-
ans veitingastað í New York. Reynd-
ar er fullmikil tilfinningasemi yfir
einstaka samskiptum, sérstaklega er
lengi dvalið við það þegai- öldruð
gengilbeina á staðnum mætir örlög-
um sínum, en það er allt hluti af
hugþekkri lýsingu á því litla samfé-
lagi á veitingastaðnum sem myndin
snýst öðrum þræði um.
Eina rétta lífið í þessari mynd er
sambúð í einhvetju formi. Við fáum
að sjá það á nágrönnum Michelle
Pfeiffer, sem leikur aðra gengilbein-
una á veitingastaðnum, við fáum að
sjá það á kæru heimilislífi veitinga-
hússeigandans, við fáum að sjá það
alstaðar í samskiptum fólks. Við
fáum líka að sjá inn í framtíð Pfeif-
fer, ef hún ætlar að halda áfram að
pipra, í einmanalegum dauðdaga
samstárfskonunnar og í gamalli pip-
armey sem vinnur á staðnum og
verður að teljast skrýtin.
Þau einu sem bijóta upp sambúð-
ardrauminn eru A1 Pacino og Pfeiff-
er. Hún er staðráðin að lifa einlífi,
hefur áður brennt sig á hjónabandi.
Hann hefur setið í fangelsi og misst
tengslin við sína fjölskyldu þegar
hann fær vinnu sem koltkur á
veitingastaðnum. Þau eiga sameigin-
lega einmanalega og slæma fortíð
og tækifærið til að byija upp á nýtt
en það gengur ekki andskotalaust
að ná saman. Öll myndin snýst um
baráttu Pacinos við þverhausinn
Pfeiffer og hvernig hann fær hana
smám saman til að bijótast úr sjálf-
skapaðri einangrun.
Þau fara ágætlega með hlutverkin
sín, Pacino og Pfeiffer. Hann er kím-
inn og skemmtilega hungraður og
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Bíóborgin:
Herra Johnson - „Mister Johnson"
Leikstjóri . Bruce Beresford.
Handrit Beresford, byggt á skáld-
sögn Joyce Cary. Tónlist George
Delerue. Aðalleikendur Pierce
Brosnan, Edward Woodward,
Maynard Eziashi, Beatie Edney.
Bandaríkin 1991.
Sögusviðið er nýlenda Bretá í
Vestur- Afríku á þriðja áratugnum,
nánar til tekið afskekkt héraðsmið-
stöð þar sem Brosnan er fulltrúi
heimsveldisins. Honum til fulltingis
er eini, menntaði heimamaðurinn,
herra Johnson (Eziashi). Hann reyn-
ir að semja sig að háttum herraþjóð-
arinnar og er veikari fyrir kostum
þrjóskur, enda gagntekinn af ást, á
meðan hún neytir allra bragða til að
losna við hann, síst tilbúin að leyfa
honum að troða sér inn í líf sitt.
Efnasambandið á milli þeirra er gott.
Marshall fer um ástarsöguna mjúk-
um höndum og fær það besta úr
þess en gerist og gengur. Dáir völd,
skartklæði og peninga og verða þeir
honum að falli. Því Johnson er þjóf-
óttur, en þar fyrir utan hugmynda-
ríkur og útsjónarsamur og hefði
spjarað sig vel ef litarhátturinn hefði
verið ljósari. En þess í stað er hann
sífellt að reka sig á múr kynþátta-
bilsins og hvinnskan verður honum
fjötur um fót þrátt fyrir að lands-
stjórinn og þorpskaupmaðurinn (Wo-
odward) beri til hans-hlýhug.
Draumórafullir Afríkubúar voru
tímaskekkja á öndverðri öldinni,
hafa reyndar verið það til skamms
tíma og gæðablóðið Johnson fær að
finna fyrir því. Þó hann vilji öllum
gott gera passar hann ekki inní
umhverfið þrátt fyrir sína ensku skó
og hálstau. Hinsvegar er hann hinn
þægilegasti blóraböggull og þegar
honum hefur nánast verið úthýst af
leikurunum sínum; sérstaklega er
gaman að bresku leikkonunni Kate
Nelligan með þykkan Brooklyn-
hreim. Þótt hér sé ekki meiri skáld-
skapur á ferðinni en í venjulegri sjón-
varpsmynd kemst myndin ansi langt
á sjarmanum.
samfélaginu er stolt hans svo sært
að hann grípur til örþrifaráða. Ezias-
hi leikur þessa sérstæðu persónu af
innsæi og tilþrifum og Brosnan og
Woodward eru báðir traustir sem
útverðir hagsmuna Breta þarna í
órafjarlægð frá siðmenningunni sem
þó skal ráða. Beresford er manna
lagnastur við að gera lágstemmdar
myndir og Herra Johnson er á köfl-
um bæði áleitin og átakanleg. Tón-
list Delerue skapar rétta tóninn,
umhverfið, fólkið og venjur þess
framandi og gefa trúverðuga sýn
af sögusviðinu en það er einsog vanti
meira kjöt á beinin. Og persónurnar
eru, þrátt fyrir allt heldur grunnar,
ekki síst titilpersónan. Þær hafði
Beresford til staðar ásamt matar-
meiri söguþræði í sínum bestu mynd-
um, Ekið með Daisy, Breaker
Morant og Tender Mercies.
Þrennir
tónleikar í
Kópavogi
Tónlistarskóli Kópavogs heldur
þrenna vortónleika í byijun apríl:
Laugardaginn 4. apríl kl. 11.00,
mánudaginn 6. apríl kl. 20.30 og
miðvikudaginn 8. apríl kl. 19.00. Á
tónleikunum 6. apríl munu ein-
göngu söngnemendur koma fram.
Allir tónleikarnir verða haldnir í
húsnæði skólans, Hamraborg ,11.
Aðgangur er ókeypis og allir eru
velkomnir.
-----» ♦ ♦---
Höggmynda-
sýning á Kjar-
valsstöðum
HELGI Gíslason opnar högg-
myndasýningu í vestursal Kjar-
valsstaða laugardaginn 4. apríl
kl. 16.00. Á sýningunni eru 17
höggmyndir unnar á tveimur síð-
astliðnum árum.
Verkin á sýningunni eru flest
steypt í brons, sum þeirra hafa einn-
ig að geyma gler og tin. Helgi hefur
gert ýmis útiverk á síðustu árum,
má þar nefna verk í Fossvogskirkju,
Hallargarðinum, Stykkishólmi og á
Höfn í Hornafirði.
Helgi hlaut bjartsýnisverðlaun
Bröstes 1991. Sýningin er opin dag-
lega tjl 20. apríl frá kl. 10-18.
Þ.ÞORGRÍMSSON&CO
UU RUTLAND
UU ÞÉTTIEFNI
Á ÞÖK - VEGGI - GÚLF
ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640
Hvinnskan og herra Johnson