Morgunblaðið - 03.04.1992, Page 56
MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1556 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
FOSTUDAGUR 3. APRIL 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
I.VKII I.IW AD GÓDU KVÖLDI
1*1
LETTOI
Flutti héðan fyrir 3 árum með óafgreitt svikamál:
Rekinn frá Ameríku
fyrir glæpastarfsemi
Handtekinn í Leifsstöð og úrskurðaður í farbann
26 ÁRA gamall íslenskur var ný-
lega handtekinn á Keflavíkurflug-
velli eftir að honum hafði verið
vísað úr landi í Bandaríkjunum.
Þar hafði hann verið i haldi Iög-
reglu í um það bil fjóra mánuði
vegna gruns um aðild að líkams-
árásum, innbrotum og þjófnuðum
í Virginíufylki. Áður hafði maður-
Árni Erling Sigmundsson
Fórst við
Grundartanga
MAÐURINN sem fórst í slysinu
á hafnarsvæðinu við Grundar-
tanga hét Árni Erling Sigmunds-
son, skipstjóri á Þjóti.
Árni Erling Sigmundsson fæddist
1937 á Hesteyri í Jökulfjörðum.
Árni var búsettur á Akranesi frá
árinu 1970. liann lætur eftir sig
eiginkonu, Sigurlaugu Ingu Árna-
dóttur, og fimm uppkomin börn.
ihn látið sig hverfa eftir að hafa
fengið boð frá útlendingaeftirliti
vestra um að landvistarleyfi hans
yrði ekki endurnýjað. Manni þess-
um hefur nú verið gert að sæta
farbanni frá íslandi uns kveðinn
hefur verið upp dómur í máli sem
höfðað var gegn honum fyrir
sakadómi Reykjavíkur vorið 1989.
Það mál var aldrei tekið fyrir þar
sem maðurinn hvarf um það leyti
úr iandi.
Haustið 1989 spurðist til hans í
Bandaríkjunum, en samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins taldi
dómsmálaráðuneytið ekki tilefni til
að biðja um framsal eins og dómari
óskaði eftir.
Rekstur málsins lá því niðri hér-
lendis þar til seint í marsmánuði.
Þá hafði maðurinn setið í fangelsi
í Norfolk í Virginia frá 20. nóvember
1991, að sögn Guðmundar Helgason-
ar í alþjóðadeild utanríkisráðuneytis-
ins, og hafði verið ákærður fyrir lík-
amsárás, innbrot og þjófnaði
Eftir formlega brottvísun var flog-
ið með manninn hingað til lands
þann 24. mars síðastliðinn og við
komu í Leifsstöð handtók lögregla
hann og færði fyrir dómara sem úr-
skurðaði hann í farbann.
I þeirri ákæru er hann sakaður
um að hafa komist yfir 2,5 milljónir
króna með því að notfæra sér van-
heilsu, greindarskort og dómgreind-
arleysi konu nokkurrar til að fá hana
til að undirrita um 20 víxla, skulda-
bréf og tékka og hagnýta sjálfum
sér andvirði þeirra.
Skuldbindingar þessar leiddu til
þess að konan var gerð gjaldþrota
og missti eignir sem hún átti. Vorið
1989 höfðaði ríkissaksóknari refsi-
mál gegn manninum vegna þessa.
Pétur Guðgeirsson sakadómari
hefur mál þetta til meðferðar og er
dóms að vænta fyrir næstu mánaða-
mót.
Morgunblaðið/KGA
Snú snú í góðviðrinu
Brjóst grædd
á konur með
flutningi vöðva
og húðflipa
ÁLITIÐ er að rúmlega sextíu
íslenskar konur missi brjóst af
völdum krabbameins á ári
hverju. Til skamms tíma höfðu
konur sem misstu brjóst einungis
tvo valkosti, að fá brjóstapúða
eða silíkon. Með tækni og kunn-
áttu lækna er nú svo komið að
þær geta látið græða á sig bijóst
með því að flytja vöðva og
húðflipa frá öðrum líkamshluta.
Sigurður E. Þorvaldsson lýta-
læknir hefur nú um skeið gert að-
gerðir af þessu tagi. Rætt er við
Sigurð og tvær konur sem hafa
gengist undir slíkar aðgerðir í C-
blaði Morgunblaðsins, Daglegu lífi,
bls. 4 og 5.
Kaupmáttur jókst um 1,4% árið 1991 en hafði rýmað um 6-7% áður;
Sýnir að þjóðarsáttin
náði settu markmiði
- segja Asmundur Stefánsson og Einar Oddur Kristjánsson
GREITT tímakaup landverkafólks innan Alþýðusambands íslands hækk-
aði að meðaltali um 7,1% frá fjórða ársfjórðungi 1990 til sama tíma
1991 og minnkaði kaupmáttur um 0,6% þar sem framfærsluvísitala
hækkaði um 7,8% sama tímabil, að því er fram kemur í frétt frá Kjara-
rannsóknanefnd. Þar kemur fram að kaupmáttur heildarlauna minnk-
aði um rúm 2% vegna styttri vinnutíma, en kaupmáttur jókst um 1,4%
á mælikvarða framfærsluvísitölu ef litið er á árið í heild og að á árinu
1991 stöðvaðist kaupmáttarrýrnun tveggja undangenginna ára, en þá
rýrnaði kaupmáttur greidds tímakaups um 6-7% hvort árið.
„Við sjáum það með því að skoða
fréttabréfið að kaupmáttarhrapið
sem gekk yfir 1988 og 1989 er í
raun stöðvað í upphafi árs 1990,“
sagði Ásmundur_ Stefánsson, forseti
Alþýðusamband íslands. „Þessar töl-
ur sýna að hvað kaupmátt snertir
og verðbólgu í meginatriðum stóðust
samningarnir sem gerðir voru í
febrúar 1990. Þegar litið er yfir þann
veg sjáum við ósköp einfaldlega að
þau markmið sem menn settu sér
náðust og það er meira en sagt verð-
ur um mörg samningstímabil önnur."
Lokaðist inni í káetu er lóðsbátnum hvolfdi:
Gat kafað út í annarri tilraun
— seg’ir Davíð Guðlaugsson stýrimaður á Þjóti frá Akranesi
DAVÍÐ Guðlaugsson stýrimaður
á lóðsbátnum Þjóti frá Akranesi
lokaðist inni í káetu bátsins er
honum hvolfdi og hann sökk á
s hafnarsvæðinu við firundar-
tanga í fyrrakvöld. í káctunni
var loftrými þannig að hann gat
andað og neyðarljós logaði svo
hann sá handa sinna skil. En
honum mistókst að kafa út úr
káetunni í fyrstu tilraun og
þurfti að snúa aftur til baka í
loftrýmið. „Ég gat kafað rétta
Ieið út í annarri tilraun enda gaf
ég mér þá tíma til að meta að-
Stæður og finna réttu leiðina úr
bátnum,“ segir Davíð í samtali
við Morgunblaðið.
Hvað varðar tildrög slyssins seg-
- ir Davíð að hann hafi verið inni í
stýrishúsinu er það varð. Þjótur var
að aðstoða japanskt skip við að
leggjast að bryggju á Grundar-
tanga er skyndilega strekktist svo
á togvírnum milli lóðsbátsins og
skipsins að bátnum hvolfdi. „Þetta
gerðist svo snögglega að ég náði
ekki að losa togvírinn frá með ör-
yggisbúnaði sem er til þess um
borð,“ segir Davíð. „Eftir að bátn-
um hvolfdi skolaði mér með sjó inn
í káetuna sem er fyrir neðan stýris-
húsið en þar hafði loftrými mynd-
ast og þar logaði neyðarljós. Ég
var í úlpu sem ég klæddi mig úr
og reyndi síðan að kafa úr káet-
unni en fór ekki rétta leið og varð
að snúa við aftur.“
Að sögn Davíðs reyndi hann að
vera rólegur og hugsa sitt ráð er
hann var kominn inn í loftrýmið í
káetunni í annað sinn. „Ég gat
áttað mig á aðstæðum og hugsað
út leiðina sem ég þurfti að fara.
Einu áhyggjurnar voru hvort hurð-
in á stýrishúsinu væri læst eða
ekki. Er ég kom að þeirri hurð í
seinni ferð minni úr káetunni var
hún brotin en fyrir utan hana rakst
ég á vegg sem ég áttaði mig ekki
á strax. Þar var um lunninguna
að ræða enda báturinn á hvolfi og
ég kafaði undir hana og síðan upp
á yfirborðið," segir Davíð.
Hann segir að hann geti ekki
gert sér grein fyrir því hve langan
tíma það tók hann að komast úr
Þjóti og upp á yfírborðið en frá
stýrishúsinu og upp á yfirborðið
hafi hann þurft að synda um tvær
Morgunblaðið/Sverrir.
Davíð Guðlaugsson: „Eftir að
bátnum hvolfdi skolaði mér
með sjónum úr stýrishúsinu inn
í káetuna fyrir neðan það.“
mannhæðir. Um leið og honum
skaut úr kafi sáu menn um borð í
Þrótti, hinum lóðsbátnum, hann,
komu til hans björgunarhring og
drógu hann um borð. Þá frétti hann
að leit stæði yfir að félaga hans
um borð, Árna Erling Sigmunds-
syni skipstjóra, en Davíð taldi víst
að hann hefði komist af þar sem
hann var út á dekki er lóðsbátnum
hvoifdi.
Er Davíð kom á sjúkrahúsið á
Akranesi var líkamshiti hans kom-
inn niður í 32 gráður. Davíð segir
að það hafi verið gífurleg áreynsla
að komast úr bátnum en þetta sýni
sér hve miklu mannslíkaminn getur
áorkað undir álagi. Hann fékk að
fara heim af sjúkrahúsinu í gærdag
og er við góða heilsu.
Guðmundur Jónsson skipstjóri á
Þrótti sem bjargaði Davíð úr sjón-
um segir að þeir hafi náð honum
strax um borð eftir að honum skaut
úr kafi. „Hann hressist fljótt og
stóð sjálfur uppi á dekkinu er við
náðum honum um borð,“ segir
Guðmundur.
Davíð hefur unnið sem sjómaður
í 38 ár og er þetta í fyrsta sinn
sem hann lendir í slysi á þeim ferli
sínum. Hann hóf störf á Þjóti í
ársbyijun 1990 en hafði áður verið
á vertíðarbátum og togurum, síðast
skipstjóri á togaranum Krossvík frá
Akranesi.
Hann sagði að það sem hefði
brugðist hefði verið að jaunvextir
hefðu hækkað og ríkissjóðshallinn
vaxið og atvinnuástandið í heild
væri mun verra en gert hefði verið
ráð fyrir. Þar kæmi margt til, meðal
annars háir vextir og lítill kvóti.
„Háar kauptölur gagnast ekki ef
gengisfellingar og verðbólga éta þær
upp og stöðugt gengi hefur verið
undirstaðan á öllu þessu tímabili,“
sagði Ásmundur ennfremur.
„Þetta sýnir það sem við höfum
lengi haldið fram að síðustu kjara-
samningar náðu fullkomlega settu
marki sem var fyrst og fremst að
stöðva þetta kaupmáttarhrap og við-
halda kaupmætti. Við höfum haldið
því fram að það hafi gerst og þetta
er bara enn ein staðfesting á því að
svo sé,“ sagði Einar Oddur Kristjáns-
son, formaður Vinnuveitendasam-
bands íslands.
Hann sagði að fyrir rúmum tveim-
ur árum, þegar samningurinn var
gerður, hefðu menn ekki haft sann-
anir fyrir því að lág verðbólga og
jafnvægi 'á öllum sviðum þjóðlífsins
gætu skilað árangri, heldur hefði þfið
verið byggt á huglægu mati og sann-
færingu. Margir hefðu verið efins
fyrir tveimur áriim en þeir þyrftu
ekki að vera það lengur, þetta væru
staðreyndir.
„Við höldum áfram að halda þessu
fram að við þær aðstæður þegar
heildartekjur þjóðfélagsins eru að
rýrna eins og raun ber vitni sé það
helst með þessum hætti sem við get-
um varið kaupmáttinn og sönnunina
er að finna í síðustu samningum,“
sagði Einar Oddur ennfremur.
-------------------
Mjólkurfræð-
ingar boða yf-
irvinnubann
M J ÓLKU RFRÆÐIN G AR liafa
boðað yfirvinnubann hjá viðseinj-
endum sínum frá og með föstu-
deginum 10. apríl.
Aðilar sátu á fundi hjá ríkissátta-
semjara í gærdag og í gærkvöldi.
Rétt fyrir miðnætti var yfirvinnu-
bannið boðað og stóð samningafund-
ur þá enn.