Morgunblaðið - 13.05.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 13.05.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1992 21 Umboðsmaður Alþingis um innheimtu Húsnæðisstofminar: Oheimilt að styðjast við gjaldskrá Lögmannafélags í ÁLITI sem Gaukur Jörundsson umboðsmaður Alþingis hefur sent frá sér kemst hann að þeirri niðurstöðu að Húsnæðisstofnun rikisins hafi ekki heimild í lögum til að leggja gjaldskrá Lögmannafélags Islands til grundvallar ákvörðun um innheimtukostnað vegna van- skila lántakenda hjá stofnuninni. Hins vegar geti Húsnæðissstofnun krafið skuldara um greiðslu kostnaðar við innheimtu lána sem eru í vanskilum við þá sjóði sem undir stofnunina falla þannig að stofnun- in verði skaðlaus af. Umboðsmanni Alþingis bárust kvartanir frá tveimur aðilum vegna álagningar innheimtukostnaðar á afborganir húsnæðislána sem ekki hafði verið staðið í skilum með. í áliti hans kemur fram að það sé almenn regla að kröfuhafi geti kraf- ið skuldara um þann kostnað sem stafi af réttmætum ráðstöfunum til innheimtu kröfu vegna vanskila skuldara, þannig að kröfuhafi verði skaðlaus, og á grundvelli þessarar almennu réttarreglu geti Húsnæðis- stofnun ríkisins krafíð skuldara um greiðslu kostnaðar vegna innheimtu lána í vanskilum. Stofnunin geti Ferðamálanefnd Reykjavíkurborgar; Oánægja að nefndin skuli vera sniðgengin Nefndarmenn fá 16.600 krónur á tímann í STJÓRN Ferðamálanefndar Reykjavíkur hefur komið fram bókun, þar sem segir að nefndin hafi enn á ný verið sniðgengin i kynningar- málum, nú síðast við opnun Ráðhússins. Hlutaðeigandi virðast ekki viti að í samþykkt fyrir nefndinni eru henni falin kynnigarmál, segir í bókuninni. Hallgrímur S. Sveinsson lagið bókunina fram á fundi nefndarinnar og segir þar, að í 1. grein samþykkt- arinnar komi fram að Ferðamál- nefnd starfí í umboði borgarstjórnar að eflingu ferðaþjónustu í Reykja- vík og kynningu á borginni og stofnunum hennar jafnt innanlands sem erlendis. Hlutverk hennar sé meðal annars að sjá um Reykjavík- urviku og framkvæmd hennar, ann- ast útgáfu á kynningar- og upplýs- ingabæklingum fyrir borgarbúa og ferðamenn. Þá segir, „Eflaust hefði verið hægt að koma í veg fyrir óánægju borgarbúa vegna þess hvernig stað- ið var að opnunarhátíð Ráðhússins. Óánægjan hefur verið svo almenn að ritstjórar Morgunblaðsins þann 12.4. og DV þann 13.4. sáu ástæðu til þess að leggja heila leiðara und- ir málið og hefði það einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar. Á meðan er ferðamálanefnd hálf verkefnalaus, en á tímabilinu apríl 1991 til mars 1992 voru haldnir 7 fundir í nefndinni, sem stóðu í alls 550 mínútur og bókuð seta nefndar- manna 2280 mínútur, eða 38 klukkustundir samtals. Fyrir þessa fundarsetu hefur borgarsjóður greitt a.m.k. 630.000 krónur í nefndarlaun, eða um 16.600 krónur fyrir hvern nefndarmann á tímann og sérþóknun fyrir formennsku í nefndinni að auki. Væri það vel athugandi að skera nefndarlaunin, ef frekari verkefni rekur ekki á fjör- ur nefndarinnar." NOTAÐU PENINGANA ÞÍNA f EITTHVAÐ ÁNÆGJULEGRA EN DRATTARVEXTI Við minnum á gjalddaga húsnæðislána sem var 1. MAI 16. MAI leggjast dráttarvextir á lán með lánskjaravísitölu. UÚNÍ___________________ leggjast dráttarvextir á lán með byggingavísitölu. HÚSNÆDISSTOFNUN RÍKISINS Li SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK SÍMI696900 sett reglur um heimtu hóflegs end- urgjalds á þessum kostnaði innan þeirra marka sem lagareglur setja, en hins vegar verði ekki séð að nein lagaheimild sé til að jafna á skuldara sérstökum kostnaði sem rakinn verði til vanskila í einstökum tilvikum. í áliti umboðsmanns Alþingis kemur fram að Húsnæðisstofnun hafí lýst því yfir í bréfi til hans að umrædd gjaldtaka vegna vanskila- kostnaðar fari fram í nafni lög- manna Húsnæðisstofnunar ríkisins og sé byggð á gjaldskrá Lögmanna- félags íslands. Hann bendir á að sú gjaldskrá hljóti að taka mið af þjónustu lögmannsstofa sem reknar eru á eigin ábyrgð og áhættu sjálf- stæðra lögmanna. Á vegum Hús- næðisstofnunar starfi ekki sjálf- stæð lögfræðingadeild heldur inn- láns- og innheimtudeild sem jafn- framt sjái um lögfræðileg málefni. Þeir lögfræðingar sem í deild þess- ari starfi hafi verið ráðnir með laun- um samkvæmt kjarasamningum og ekki verði séð að lögum samkvæmt verði að gera kröfu um að þeir hafí lögmannsréttindi eða til þess sé nauðsyn af öðrum ástæðum. Með hliðsjón af þessu sé það niðurstaða umboðsmanns Alþingis að Hús- næðisstofnun ríkisins hafi ekki heimild í lögum til að leggja gjald- skrá Lögmannafélags Islands til grundvallar ákvörðun þess inn- heimtukostnaðar sem um sé rætt. Eru það tilmæli hans að framvegis hagi stofnunin innheimtu vanskila- skulda í samræmi við þau sjónar- mið hans sem grein er gerð fyrir í álitinu. Morgunblaöið/Hallgrímur Magnússon Sr. Sigurður Kr. Sigurðsson og Friðrik Vignir Stefánsson á tón- leikunum í Grundarfjarðarkirkju. Grundarfj ör ður: Sóknarpresturinn held- ur einsöngstónleika Grundarfirði. FYRIR skömmu hélt sóknarpresturinn í Setbergsprestakalli, sr. Sigurður Kristinn Sigurðsson, cinsongstónleika í Grundarfjarð- arkirkju. Efnisskráin var afar skemmtileg og hefur nú klerkur sýnt og sannað sóknarbörnuin sínum hver afbragðs tenórsöngv- ari hann er og mun engan undra héðan af hve tónið hjá honum hljómar vel við messugjörð í kirkjunni á sunnudögum. Friðrik Vignir Stefánsson tón- listarkennari og organisti staðar- ins lék undir á píanó, en fyrsta verkið á efnisskránni var ljóða- flokkurinn Dichterliebe op. 78 eftir Róbert Schumann. Eftir hlé söng sr. Sigurður 14 íslensk ein- söngslög sem öll eiga það sam- merkt að hafa um áratuga skeið verið ofarlega á blaði sem síðasta lagið fyrir fréttir í ríkisútvarpinu. Meðal þessara laga voru Lindin eftir Eyþór Stefánsson og Huldu, í dag skein sól eftir Pál Isólfsson og Davíð Stefánsson og Ég lít í anda liðna tíð eftir Sigvalda Kaldalóns og Höllu Eyjólfsdóttir. Var sérstök unun að því að hlýða á öll þessi 14 lög svona vel sung- in. Leitaði hugurinn 35 ár aftur í tímann þegar útvarpið hljómaði allan daginn inni í stofu og síð- asta lagið fyrir fréttir gaf fyrir- heit um heitan hádegisverð, soð- inn þorsk, kartöflur og mörflot. Nú eru flestir íslendingar hætt- ir að borða heitan mat í hádeginu en þessi lög eru enn í fullu gildi og ylja miðaldra íslendingum enn um hjartarætur og vekja upp ljúfsárar minningar. - Hallgrímur. HÁREYÐING Engin óæskileg hór. Þú velur sjólf þægilegustu aðferð- ina við að fjarlægja óæskileg hór af leggjum og andliti. 1) Kalt V3X fyrir leggi og andlit sem er tilbúið til notkunar strax. 2) Háreyðandi gele. 3) Heitt vax, fyrir leggi og andlit. A nokkrum mínútum ón erfiðleika, næst fullkominn órangur með MaryDavins hóreyðingunni. 'sértræðiggyr Útsölustaðir: Stella, Bankastræti; Topptískan, Laugavegi; Ingólfsapótek, Kringlunni; Hagkaup Krín unni og Skeifunni; Breiðholtsapótek, Mjódd; Húsavikurapótek. A

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.