Morgunblaðið - 13.05.1992, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.05.1992, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1992 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1992 25 iltagaiifytefrtfe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Eftir hverju er beðið? Búrfiskurinn hefur verið mikið í fréttum Morgunblaðsins að undanfömu. Bæði í fréttum og sérstökum greinum í sérblaði Morgunblaðsins um sjávarátvegs- mál, Úr verinu, hefur verið ítarlega sagt frá þessum fiski, sem skilar Nýsjálendingum 5 milljarða út- flutningstekjum árlega. Búrfiskur- inn er einhver dýrasti botnfiskur á fiskmörkuðum heimsins og seljast flökin í Bandaríkjunum á um og yfir 600 krónur kílóið, sem er mun hærra en fæst fyrir þorskinn. Til þessa hefur búrinn verið talinn staðbundinn í Eyjaálfu, en síðustu misserin hafa íslenzk skip verið að fá stór höl af þessum góðfiski innan lögsögu okkar og okkur ber- ast sögur af gífurlegum afla fran- skra togara, bæði af búra og lang- hala, í hafinu austur og suður af landinu. Sala búrans héðan hefur gengið afar vel, hvort sem um er að ræða sölu á heilum ferskum fiski til Frakklands eða ferskum flökum til Bandaríkjanna. Reyndar er þegar komin upp mikil sam- keppni um búrann meðal fiskverk- enda og seljenda sjávarafurða. Því er svo háttað hér, að nánast ekkert er vitað um þennan fisk, sem á næstu árum gæti orðið mik- ilvæg fisktegund. Vísindamenn telja sig vita, að heimkynni hans séu í hafinu suðvestur, suður og suðaustur af landinu, en hans hef- ur einnig orðið vart í Víkurál. Hafrannsóknastofnun undirbýr nú viðamikla rannsókn á djúpslóð og undir hana fellur búrfiskurinn. Talið er, að rannsóknin í heild kosti um 30 milljónir, en þær eru ekki til. „Þótt við reiknum ekki með að framkvæma þessa rann- sóknaráætlun í ár er hún á kostn- aðaráætlun stofnunarinnar fyrir næsta ár. Sem betur fer eru við- horf til nýtingar á áður ónýttum tegundum, eins og búrfíski, að breytast og við teljum okkur vita að hægt er að nýta ýmsar tegund- ir sem lifa á djúpslóðinni," sagði Jakob Magnússon, aðstoðarfor- stjóri Hafrannsóknastofnunar, í samtali við Morgunblaðið fyrir skömmu. í sömu frétt sagði Krist- ján Ragnarsson, framkvæmda- stjóri LÍU, að Hafrannsóknastofn- mn ætti að beita sér fyrir rannsókn- ‘ um á búrfiskinum, útbreiðslu hans, 'stofnstærð og mögulegri nýtingu. „Það er mikilvægt að komast að því hvort þarna er um stofn að ræða sem veiðanlegur er í umtals- verðum mæli. Ef svo reynist verður iþað kærkomin búbót,“ sagði for- maður LÍÚ. Þorsteinn Pálsson, sjávarátvegsráðherra, sagði í sam- tali við Morgunblaðið fyrir rúmri viku, að rannsóknir af þessu tagi væru mikilvægar. Aðspurður hvort sjávarútvegsráðuneytið mundi beita sér fyrir, að fjár yrði aflað svo hægt yrði að framkvæma þessa rannsókn fyrr, sagði ráðherrann að ráðuneytið hefði ekki sérstaka sjóði til að láta fé af hendi í þetta verkefni. „Fé til þessa verkefnis verður að koma af ráðstöfunarfé Hafrannsóknastofnunar og þó ég telji að þessi rannsókn sé eitt af brýnustu málum stofnunarinnar er það hún sjálf sem raðar verkefnum sínum í forgangsröð,“ sagði Þor- steinn Pálsson. Allt eru þetta fögur orð, en hér þarf meira til. íslenzkur sjávarút- vegur berst í bökkum vegna offjár- festingar í fiskiskipum og fisk- vinnslu. Verkefni skortir bæði fyr- ir skip og hús og atvinnuleysi er meira en nokkru sinni í nærri þijá áratugi. Er þá verjandi að veigra sér við að eyða 30 milljónum króna, sem er minna en 5% af ráðstöfun- arfé Hafrannsóknastofnunar, til rannsókna á fiskistofni, sem hugs- anlega gæti skilað okkur veruleg- um útflutningstekjum á ári hveiju? Hafrannsóknastofnun er með í undirbúningi áætlun fyrir næsta ár, en hvað um þetta ár? Sjávarát- vegsráðherra segir, að fé til rann- sóknanna verði að koma af ráðstöf- unarfé stofnunarinnar og hún raði verkefnum sínum í forgangsröð. Þetta er opinber stofnun, sem fær ráðstöfunarfé sitt frá hinu opin- bera, annaðhvort með sölu veiði- heimilda Hagræðingarsjóðs eða beint af fjárlögum. Þegar svo mikl- ir hagsmunir eru í húfí verða stjórnvöld að beita sér fyrir nauð- synlegum aðgerðum þegar í stað. Þá ber útgerðarmönnum skylda til að reyna fyrir sér sjálfír. Fyrst staðan er slík að skipin hafa ekki næg verkefni, hlýtur það að vera rökrétt að nýta þau til rannsókna af þessu tagi, meðan þau hafa ekki kvóta til að stunda veiðar. Nær eina frumkvæðið, sem vart hefur orðið í þessu máli, er hjá útgerð tveggja togara í Vest- mannaeyjum og Netagerðinni Ing- ólfí á sama stað. Þar hafa menn þann dug sem þarf til að bjarga sér sjálfir. Á vegum Netagerðar- innar er verið að gera út leiðangur til Nýja Sjálands í því skyni að kynna sér veiðar á þessum fiski. „Nú þegar hafa 10 til 15 útgerðar- menn sýnt áhuga á að fara í þessa ferð,“ segir Birkir Agnarsson, framkvæmdastjóri Netagerðarinn- ar Ingólfs, í samtali við Verið á miðvikudag. Hann segir að ferðin kosti 250 til 300 þúsund krónur fyrir manninn, en ekki þurfi að selja mörg kör af búra til að borga þann kostnað. í þessum orðum Birkis liggur sannleikurinn eins einfaldur og hann er í raun. Það þarf að leggja í nokkurn kostnað til að fá miklar tekjur og það er óveijandi að gera það ekki nú þeg- ar. Rannsóknaráætlunin liggur nánast fyrir, fé ætti að gera það líka og útgerðarmönnum er engin vorkunn að leggja til skipin. UMSATURSASTAND I HLIÐUNUM I TÆPA ÞRJA TIMA YEGNA BYSSUMANNS Morgunblaðið/Júlíus VAR ROLEGUR VIÐ HANDTOKUNA Maðurinn virtist rólegur en óöruggur þegar hann kom sjálfviljugur og óvopnaður út á tröppur hússins kl. 21.38. Hann hlýddi fyrirmælum víkingasveitarmanna í hvívetna, en þeir skipuðu honum með háum hrópum að ganga rólegur með hendur á höfði niður tröppurnar og út á götuna. Þar var hann látinn fara á hnén og síðan var honum skipað að leggjast á magann. Þegar hann var lagstur var maðurinn umsvifalaust settur í járn, og veitti hann enga mót- spyrnu. Víkingasveitarmennirnir beindu byssum sínum að manninum allan tímann. Þegar maðurinn hafði verið handjárnaður kom lögreglubíll aðvífandi, sem staðsettur hafði verið í Lönguhlíð. Var maðurinn færður inn í bílinn, og skömmu síðar var ekið með hann á brott. Byssumaðurimi gafst upp eftir þriggja tíma umsátur lögr*eglu EFTIR tæplega þriggja klukkustunda umsátur vopnaðra lög- reglumanna gafst 21 árs gamall byssmaður upp og var hand- tekinn utan við heimili sitt í Mávahlíð 24 um klukkan 21.40 í gærkvöldi. Umsátrið hófst eftir að maðurinn hafði skotið 25 ára gamlan mann í andlitið með kindabyssu og síðan brotið rúðu á heimili sínu og skotið út um hana meðan sjúkra- lið og læknir voru utan við húsið að hlúa að hinum slasaða og flytja hann á sjúkrahús. Sá lá á sjúkrahúsi í nótt, fyrst og fremst til eftirlits að sögn lækna á slysadeild og var ekki talinn í lífshættu. Ósætti við drykkju Lögregla var kvödd á staðinn klukkan 19. Samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins var upphaf málsins það að fjórir eða fímm menn sátu að drykkju á heimili byssumannsins þegar kom til deilna milli húsráðandans og eins gest- anna. Gestinum mun hafa verið vís- að út en er hann sneri aftur og vildi komast inn greip húsráðandinn til kindabyssu og skaut hinn í andlitið. Skotið kom í kinn mannsins sem hljóp alblóðugur út á götu. Vegfar- endur komu hinum særða til aðstoð- ar og talaði hann ýmist við þá á ensku eða á íslensku. Skömmu síðar kom sjúkrabíll að en þegar Birgitta Birgisdóttir læknir og Jóhann Pétur Jónsson og Árni Stefánsson sjúkra- flutningsmenn bjuggu sig undir að hlúa að hinum særða framan við húsið var brotin rúða í íbúð byssu- mannsins á 2. hæð þannig að gler- brotum rigndi yfir gangstéttina og síðan var tveimur skotum hleypt af út um gluggann. Víkingasveitin kölluð út Eftir þetta var víkingasveit lög- reglunnar kölluð út og einnig var stefnt að staðnum fjölmennu lög- regluliði sem lokaði nærliggjandi götum og stöðvaði umferð um Lönguhlíð og hliðargötur hennar sunnan Miklubrautar. Fólk í nálæg- um húsum við Mávahlðið var beöið að bæra ekki á sér meðan á umsátr- inu stæði. Flestir þeir íbúar nálægra húsa sem Morgunblaðið ræddi við að loknu umsátrinu kváðust ekki hafa vitað af ástandinu fyrr en lög- regla tilkynnti þeim um það og íbúi í sama húsi kvaðst hafa í fyrstu talið að byssuskotin væru hurða- skellir. Annar íbúi hafði orðið var við það þegar sjúkraliðið kom á staðinn að eitthvað væri á seiði. Ummerki um eiturlyf og áfengi Lögreglan komst í símasamband við byssumanninn en í fyrstu lék vafi á hvort hann væri orðinn einn eftir í íbúðinni, eins og síðar kom á daginn, eða hvort einhveijir gesta hans væru þar enn. Þá var heldur ekki vitað hvernig byssu hann væri vopnaður. Talið er að maðurinn hafi hleypt af 1-2 skotum inni í húsinu meðan á umsátrinu stóð. Eftir alllangt þóf og rofin símtöl lét maðurinn undan fortölum lögregl- unnar og kom út úr húsinu óvopnað- Mikill mannfjöldi fylgdist með aðgerðum lögreglunnar. ur og með hendur á lofti. Eftir að hann hafði verið handtekinn og færður í lögreglubíl, fóru víkinga- sveitarmenn og síðan rannsóknar- lögreglumenn inn í húsið. Þar og í garði hússins fannst meðal annars hasspípa og ummerki um eiturlyf og áfengi. Byssumaðurinn var handtekinn og færður í fangageymslur lögregl- unnar. „Hann var undir áhrifum," eins og lögreglan tók til orða. Mikill fjöldi fylgdist með Meðan á umsátrinu stóð fylgdist fjöldi fólks með aðgerðum lögregl- unnar utan við girðingar sem komið var upp. Jónas J. Hallsson aðstoðar yfirlögregluþjónn sagði að lögreglan vildi koma á framfæri þakklæti til fólks í hverfinu, einkum til íbúa nærliggjandi húsa, fyrir þá stillingu sem það sýndi. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Heyrði tvo skothvelli en sá ekki hvar skotin lentu - segir Jóhann Pétur Jónsson sjúkraflutningamaður sem var í skotfæri byssumannsins þegar hann skaut út um gluggann Sjúkraflutningsmennirnir sem voru við Mávahlíð 24 þegar skotið var út um glugga skammt frá þeim segjast ekki gera sér grein fyrir því hvort skotið hafi verið að þeim. Jóhann Pétur Jónsson ökumaður neyðarbílsins segist hafa heyrt greini- lega að skotið var tvisvar, en gerir sér ekki grein fyrir því hvert var miðað eða hvar skotin lentu. Jóhann Pétur lýsir atburðinum þannig: „Við vorum staddir uppi á slökkvistöð, tveir sjúkraflutninga- menn ásamt lækni þegar við vorum beðnjr um að fara að þessu húsi í Mávahlíðinni, því þar væri alblóðug- ur maður. Við renndum á staðinn. Þá sat náunginn úti í tröppunum og maður að stumra yfir honum. Við lögðum bílnum fyrir framan húsið og skoðum manninn lítillega, sáum að það blæddi mikið úr and- liti hans. En hann var vel með með- vitund svo við studdum hann út í sjúkrabílinn. Félagi minn og læknirinn fóru með honum inn í bílinn. Þegar ég ætlaði að loka afturhurðinni bað hann um að vinur sinn kæmi með. Ég sagði að það væri sjálfsagt, hélt að það væri sá sem hafði verið að stumra yfir honum. Ég lokaði öðrum vængnum á afturhurðinni en við það trylltist hann, öskraði að ég væri að svíkja sig og æddi yfir mig og út á gangstétt. Hann virtist ætla að hjóla í mig og barst þetta meðfram þeirri hlið bílsins sem sneri að húsinu. Ég reyndi að tala um fyrir honum en var þó viðbúinn að taka á móti. Hinn sjúkraflutnings- maðurinn var kominn fyrir aftan hann tilbúinn að vefja hendur hans ef á þyrfi að halda. Læknirinn var með höfuðið út um hliðargluggann. Þá heyrði ég hljóð eins og bankað væri kröftuglega í glugga. Ég veitti því ekki frekar athygli fyrr en ég heyrði glerbrotshljóð. Þá leit ég aðeins í kringum mig, en átti erfítt með að líta mikið af manninum, og kallaði eftir lögregluhjálp í gegnum talstöð. Síðan heyrði ég tvo skot- hvelli. Þá leit ég upp og sá byssu- hlaup út um brotna rúðu á annarri hæð hússins. Þá greip ég náungann og dró hann fram fyrir bílinn og í skjól. Þar er hliðarhurð og fengum við hann til að koma þar inn í bílinn. Beint undir glugganum Við vorum á gangstéttinni beint undir glugganum þegar skotið var. Líklega eru 8 til 12 metrar upp í gluggann. Ég sá að þetta var frek- ar mjótt hlaup, hljóðið var ekki mjög hátt en ég heyrði greinilega tvisvar sinnum skotið. Hvert var miðað og hvert var skotið vissi ég ekki. Sem betur fer virðist það ekki hafa hæft. Árna Stefánssyni, sem var með mér á bílnum, sýndist hann nota fótboltapumpu til að bijóta rúðuna. Það blæddi mikið úr manninum. Ég ætlaði að loka hliðardyrunum afturí og skríða síðan inn í bílinn og forða mér frá. Þá tryllist hann aftur og rauk út úr bílnum og inn á milli húsa í átt að Drápuhlíð. Ég hljóp aftur með bílnum og gat að- varað lögregluna sem þá var að koma að, þannig að þeir færu ekki í skotlínu. Eins reyndum við að kalla í fólk og aftra því að það kæmi þarna að. í þessu kom einn dælubíll slökkviliðsins að og hann lokaði fyrir okkur Lönguhlíðinni í báðar áttir. Við fórum síðan á sjúkrabílnum yfir í Drápuhiíðina, náðum í sjúklinginn og sáum að það var sár við eyra og mikið blóð um hann allan, og fluttum á slysadeild. Við fórum síðan aftur á varðstöðu þarna ef eitthvað kæmi uppá aft- ur,“ sagði Jóhann Pétur. í miðjum skotbardaga á götu í New York Jóhann sagði að ýmislegt hefði gerst á 21 árs ferli hans sem sjúkra- flutningsmanns. Hann hefði komið í heimahús þar sem miðað var á hann byssu en aldrei skotið. Þá lenti hann nýlega inni í miðjum skotbar- daga á götu í New York á ferð hans til Bandaríkjanna í nóvember. Þetta var þegar rabbíni var skotinni inni á Marriot-hótelinu. Hann sagð- ist hafa verið að ganga fram hjá hóteldyrunum þegar tilræðismaður- inn kom út. Hann hefði miðað á leigubílstjóra og síðan komið til skotbardaga á milli hans og öryggi- svarða sem endaði með því að morð- inginn var skotinn í götuna skammt frá Jóhanni. Maðurinn braut rúðu á íbúðinni og skaut úr byssu sinni. Morgunblaðið/Júlíus Víkingasveit lögreglunnar mætir á staðinn með alvæpni. Sáum hlaupið birtast o g hlupum þá í burtu - segir Páll Ólafsson sem fyrstur kom á vettvang ásamt syni sínum PÁLL Ólafsson kennari og sonur hans á sautjánda ári komu fyrstir að manninum sem fékk í sig skot í Mávahlíð 24 í gær- kvöldi. Hann hringdi á sjúkrabíl og hlúði að manninum þar til sjúkrabíllinn kom. Páll lýsir atburðunum þannig: „Við vorum á leiðinni heim þegar við gengum fram á mann sem sat þarna alblóðugur. Við gengum að honum til að athuga hvað um væri að vera. Blóðið bunaði úr honum og kjálkinn margfaldur. Ég sá strax að það þurfti að kalla á sjúkabíl enda bað hann mig um það, talaði þá reyndar ensku. Ég fór inn í íbúð á fyrstu hæð húss- ins og hringdi á sjúkrabíl. Það blæddi mikið úr höfði mannsins og ég hélt að hann hefði dottið á ofninn í forstofunni því þar var stór blóðpollur á gólfinu. Þegar ég var búinn að hringja á sjúkabíl- inn fórum við að tala við mann- inn. Hann sagði að það hefði ver- ið ráðist á sig. Hann gerði okkur feðgana strax að vinum sínum og vildi fá okkur með í sjúkrabíl- inn. Hann rauk út úr sjúkrabíln- um af því ég fór ekki með honum, skilst mér. Ég gerði mér ekki grein fyrir því.“ Páll sagðist ekki hafa gert sér grein fyrir því hvernig rúðan í glugga á annarri hæð hússins hafi verið brotin. Sagði að á myndum liti það út sem maðurinn hafí fyrst skotið gat og síðan stækkað það með byssuskeftinu. Hann sagðist ekki hafa heyrt skothvelli. „Við sáum bara hlaup- ið birtast út um gluggann og vor- um fljótir að átta okkur og hlup- um í burtu,“ sagði Páll.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.