Morgunblaðið - 13.05.1992, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1992
33
Lúxustollar á leigubifreiðar
eftir Sigfús
Bjarnason
Þegar ríkisstjórnin stendur
frammi fyrir miklum efnahagsvanda
eins og nú, þarf oft að gripa til óvin-
sælla aðgerða, ýmist til að afla meiri
tekna eða spara í rekstri og fram-
kvæmdum. En oft skila þessar að-
gerðir ekki tilætluðum árangri eða
koma annars staðar niður á ríkinu.
Því verður að gera sér grein fyrir
öllum afleiðingum ráðstafana sem
gerðar eru.
Hluti af Bandorminum svokallaða
var að hækka aðfiutningsgjöld af
stærri einkabifreiðum. Þessi aðgerð
átti að skila 100.000 krónum í ríkis-
sjóð og gefið var í skyn að þessi
hækkun næði aðallega til jeppabif-
reiða hinna ríku, sem hefðu vel efni
á að greiða hærri tolla. Einnig var
því haldið fram að þetta lenti nær
eingöngu á amerískum bifreiðum.
Það er rétt að jeppamir og stærri
amerískar fólksbifreiðar hækka í
verði við þessar breytingar. En það
er einnig ljóst að með þessum aðgerð-
um er verið að fæla fólk frá því að
festa kaup á þessum bifreiðum. Nú
er til dæmis orðið mun hagstæðara
að festa kaup á 11 manna torfærubif-
reið frá Ameríku en þessum venju-
legu jeppum. Ástæðan fyrir þessu
er að 11 manna bifreiðar bera 30%
aðflutningsgjöld en stærri jeppar allt
að 87%, en voru allt að 76% fyrir
þessa hækkun.
En þetta eru ekki einu afleiðing-
amar. Með þessari hækkun er enn
verið að hækka tolla á díselbifreiðum
umfram bensínbifreiðar, þar sem dis-
elbifreiðar þurfa meira sprengirými
en bensínbifreiðar á hvetja orkuein-
ingu. Umhverfisráðherra ríkisstjóm-
arinnar ekur um á díseljeppa til að
sýna gott fordæmi, því díselbifreiðar
eru umhverfisvænni en bensínbif-
reiðar. Á sama tíma gerir ríkisstjóm-
in það næstum ókleift, bæði fyrir
einkaaðila og atvinnubifreiðastjóra,
að kaupa díselbifreiðar, með því að
leggja á þær lúxustolla.
Þeir sem fara verst út úr þessari
stefnu stjórnvalda í tollamálum emm
við leigubifreiðastjórar. Það væri
mjög hagstætt fyrir okkur að nota
díselbifreiðar, bæm þær ekki þessa
lúxustolla. Einnig er gerð til okkar
sú krafa að vera með stærri bifreiðar
en algengustu einkabifreiðar. Þess
vegna bera bifreiðar sem við höfum
gjaman notað í leiguaksturinn hlut-
fallslega mun hærri aðflutningsgjöld
en einkabifreiðar. Og enn er verið
„Lægri aðflutnings-
gjöld af bifreiðum sem
nota á í atvinnuskyni,
tryggja meiri atvinnu,
efla ferðaþjónustuna,
jafna vöruverð innan-
lands, eru gjaldeyris-
sparandi o g minnka
mengun.“
að hækka aðflutningsgjöld af leigu-
bifreiðum. Með þessari lúxustolla-
stefnu er verið að gera leigubifreiða-
stjómm ókleift að festa kaup á sóma-
samlegum bifreiðum við endumýjun.
Þessi hækkun á aðflutningsgjöld-
um beinir mönnum á aðrar brautir
í bifreiðainnkaupum, en eykur ekki
tekjur ríkissjóðs og mér kæmi ekki
á óvart áð tekjumar lækkuðu við
þessa aðgerð. Áfleiðingamar verða
þær að sportmennimir kaupa frekar
11 manna bifreiðar en minni jeppa,
menn kaupa frekar bensínbifreiðar
en díselbifreiðar og leigubifreiða-
stjórar kaupa minni eða eldri bifreið-
ar en áður.
Annars staðar á Norðurlöndum er
gerður greinarmunur á einkabifreið-
um og bifreiðum sem nota á í atvinn-
uskyni, þegar aðflutningsgjöld em
ákveðin. Hér er hins vegar flokkað
eftir gerð bifreiðar og hvemig hún
er útbúin. Það þarf stefnubreytingu
í þessum efnum og þarf að gera
skýran greinarmun á aðflutnings-
gjöldum einkabifreiða og þeirra sem
nota á í atvinnuskyni.
Besta lausnin væri sú að aðflutn-
ingsgjöld á atvinnubifreiðar væm
afnumin í áföngum. Ef slík bifreið
er seld til einkaaðila fer hún aftur í
gegnum tollmeðferð eins og um not-
aða innflutta bifreið væri að ræða.
Slík aðgerð mundi efla samkeppni
íslenskra aðila sem gera út bifreiðar
í atvinnuskyni, þegar tekið er tillit
til þeirrar auknu samkeppni sem mun
fylgja þátttöku í Evrópsku efnahags-
svæði og vera þjóðhagslega hag-
kvæm þegar á allt er litið. Lítum á
nokkra þætti:
1. Ferðaþjónusta á íslandi er vax-
andi atvinnugrein og sú grein sem
hefur mesta vaxtarmöguleika.
Ferðaþjónustan er hins vegar
mjög viðkvæm fyrir háu verðlagi.
Lág aðflutningsgjöld af fólks-
flutningabifreiðum stuðla að lágu
Sigfús Bjarnason
verði á ferðalögum innanlands, á
það sérstaklega við um erlenda
ferðamenn. Auk þess bætir það
samkeppnisaðstöðu innlendra að-
ila sem standa að ferðum innan-
lands, en það hefur færst mjög í
aukana að erlendar rútur komi
hingað með hópa.
2. Með samningum um Evrópskt
efnahagssvæði er ljóst að sam-
keppni við erlenda verktaka mun
aukast. Til þess að bæta sam-
keppnisaðstöðu íslenskra verk-
taka er nauðsynlegt að lækka
aðflutningsgjöld af bifreiðum.
3. Lægri aðflutningsgjöld af vöru-
flutningabifreiðum munu leiða til
jafnara vöruverðs innanlands og
stuðla almennt að lægra vöru-
verði.
4. Lægri aðflutningsgjöld af fólks-
flutningabifreiðum bæta sam-
keppni þeirra við einkabílinn og
leiða af sér minni mengun og eru
gjaldeyrissparandi.
Lægri aðflutningsgjöld af bifreið-
um sem nota á í atvinnuskyni,
tryggja meiri atvinnu, efla ferðaþjón-
ustuna, jafna vöruverð innanlands,
eru gjaldeyrissparandi og minnka
mengun.
Nú þegar við íslendingar stöndum
frammi fyrir samningum um Evr-
ópskt efnahagssvæði, verðum við að
mynda okkur stefnu í samgöngumál-
um, við verðum að ákveða að hve
miklu leyti við ætlum að taka þátt
í uppbyggjngu samgöngukerfisins og
ferðaþjónustu. Árangursríkasta og
ódýrasta aðgerðin sem hægt er að
grípa til í þessum efnum er að af-
nema aðflutningsgjöld af atvinnubif-
reiðum.
Höfundur er fonnaður Bandalags
íslenskra leigubifreiðastjóra og
Samtaka landflutningamanna,
sem eru heildarsamtök þeirra sem
reka bifreiðar og vinnuvélar í
atvinnuskyni.
'Wkrdl ffyrir Wiiiows 2.0
15 klukkustunda námskeið fyrir þá sem gera kröfur um góða ritvinnslu.
Höfum kennt á Word frá árinu 1987.
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar
Grensásvegi 16 • stofnuö 1. mars 1986 (J)
kfnversk leikfimi
Ný 3ja vikna morgun- og kvöldnámskeið
hefjast í dag, miðvikudaginn 13. maí,
í Hreyfilistahúsinu, Vesturgötu 5.
Skráning og upplýsingar f Hreyfilistahúsinu,
sími 629470.
HREYFILISTAHUSIÐ
Vesturgötu 5, sími 62 94 70
€
L
Verslunin Kadír býður upp ó fjölbreytt úrval
af handunnum tyrkneskum teppum. AS baki
teppunum býr heillandi heimur, hver þróður
og liver hnútur hefur ókveðinn tilgang og lýsir
ókveðinni menningu og sögu.
Við vorum oð taka upp nýja sendingu of
hondunnu tyrknesku teppunum og bjóðum
þessi einstæðu listaverk nú ó sérstöku
sumartilboðsverði.
Mikið úrval - míkil gæði - gott verð!
20% staðgreiðsluafslátlur af öllum
hnýttum teppum.
Sértilboð ó Kilim-teppum (flatofin teppi).
Tyrknesku teppin eru eftirsóknarverð
eign öllum þeim sem kunna að
njótasannrar listar. ^ h i f /
SKIPHOLTI 50c
105 REYKJAVlK
SÍ'MI 62 67 1 0
Allir
þekkja
Polyfilla!
Innandyra
Vinsæla fylliefnið sem rýrnar
ekki. Til notkunar innandyra.
Utandyra
Nýtt og enn betra fylliefni sem
rýrnar ekki. Til notkunar
utandyra.
Tilbúið í túpum
Handhægt tilbúið fylliefni í
túpum til smærri viðgerða.
MultifyU
Tilbúið alhliða fylliefni til
notkunar á stein og tré,
innandyra sem utan.
Hraðsement
Hraðþornandi vatnsþolið
viðgerðarefni sem þornar
einnig á kafi í vatni.
Husrep
Alhliða fylliefni í duftformi,
hentugt í stærri göt utandyra
oginnan.
Polyfilla viðgerðarefnin
fást í flestum byggingavöru-
og málningarbúðum um land
allt.
Einkaumboð á íslandi.
Heildsala — smásala.
Grandagarði 2 ■ Rvk. • Simi 28855