Morgunblaðið - 13.05.1992, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1992
luui^uiiuiouiuf t aiuimai xvi isi>iiioauii
Allt fundahald ráðstefnunnar fór fram í húsnæði íþróttamiðstöðvar ÍSÍ í Laugardal en verklegi
hlutinn þar sem íslenskir knapar sýndu gæðinga sína og þátttakendur dæmdu fór fram í Víðidal.
Alþjóðleg dómararáðstefna FEIF:
Stefnt að samræmingu
keppnisreg’lna aðildarlanda
________Hestar____________
Valdimar Kristinsson
Fjörutíu og sex hestaíþrótta-
dómarar sóttu alþjóðlega dóm-
araráðstefnu FEIF (Evrópusam-
bands eigenda íslenskra hesta)
FEIF, og Hestaíþróttasambands
íslands fyrir skömmu. Var ráð-
stefnan haldin í íþróttamiðstöð-
inni í Laugardal þar sem fram
fóru fyrirlestrar, umræða og
myndbandssýningar og i Víðidal
á svæði hestamannafélagsins
Fáks þar sem verklegi hluti ráð-
stefnunnar fór fram.
á milli einstakra landa hvað varðar
keppnisreglur. Pétur Jökull Há-
konarson formaður HÍS sagði að
sjónarmið íslendinga hafa hlotið
góðan hljómgrunn og nefndi sem
dæmi að Iíkur væru á a tekin yrði
upp íslenska útfærslan á hraða-
breytingum í tölti þar sem riðin
er milliferð á langhliðum í stað
yfirferðar eins og Þjóðverjar gera
og hraðaaukning byrjaði þegar
kæmi út úr beygjum en ekki í sjálf-
um beygjunum. Þá nefndi Pétur
einnig gæðingaskeiðið í þessu sam-
bandi en þar hefðu menn verið
sammála um að íslenska útfærslan
hentaði betur. Ráðstefnan stóð
yfir í þijá daga og var farið í allar
keppnisgreinar, fyrst dæmt í Víði-
dal og allt tekið upp á myndband
og síðan farið yfir dómana í ráð-
stefnusalnum í íþróttamiðstöðinni
í Laugardal þar sem hvert atriði
var rætt til hlítar.
- í undirbúningsnefnd fyrir ráð-
stefnuna áttu sæti auk Péturs,
Sigurbjörn Bárðarson, Eyjólfur
ísólfsson, Magnús Lárusson,
Sveinn Jónsson og Karólína
Geirsdótir. Ráðstefnan var sett á
fimmtudagskvöld og lauk síðdegis
á sunnudag.
Raðstefnan mun bæta
dóma á alþjóðamótum
nes formaður
íþróttaráðs FEIF
„Eg er mjög ánægð að svo
margir dómarar frá aðildar-
löndum FEIF hafi séð sér fært
að mæta, þeir eru mun fleiri
en við áttum von á,“ sagði Toni
Kolnes Noregi sem er formaður
íþróttaráðs FEIF „Þá er ég
einnig mjög ánægð með alla
aðstöðu sem boðið hefur verið
upp á og öll skipulagning ráð-
stefnunnar verið til mikillar
fyrirmyndar hjá Islendingum
þeir hafa unnið frábært starf."
Toni Kolnes sagði erfítt á þessari
stundu að segja um hver árangur-
inn af ráðstefnunni yrði. Þó taldi
hún að það eitt hversu margir
hefðu mætt væri frábær árangur
út af fyrir sig. „Hér hefur verið
tekin upp kennslumynd sem vafa-
laust mun nýtast vel á komandi
árum í fræðslu og endurhæfíngu
dómara. Megin tilgangur ráð-
stefnunnar er að fá dómara saman
til að ræða um hlutina, kynnast
og samræma túlkun á dómsatrið-
um. í ráði er að halda svona ráð-
stefnur árlega og ég er ekki í
vafa um að þær muni bæta störf
dómara á alþjóðlegum mótum í
framtíðinni," sagði Toni Kolnes.
Hvað sig sjálfa sig varðaði
kvaðst hún ánægð ef þessar ráð-
stefnur verða haldnar árlega á
íslandi en tók þó fram að ekkert
væri ákveðið í þeim efnum. Það
fylgdi því mikill kostnaður að
halda þetta héma og vafalaust
réðist framhaldið af því hvort að-
ildarlöndin væru tilbúin til að
leggja í þann aukakostnað sem
fylgdi ráðstefnuhaldi á íslandi.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Toni Kolnes: Island besti stað-
urinn fyrir dómararáðstefnur
sem þessa.
Þegar Toni var spurð hvað hún
teldi mæla sérstaklega með því
að ráðstefnurnar yrðu haldnar hér
sagði hún að í fyrsta lagi væri
ísland eina landið sem gæti boðið
upp á jafn mikinn fjölda góðra
hrossa og manna sem væru tilbún-
ir að koma og sýna dómurum þau.
„Ég gæti trúað að erfiðlega gengi
að fá keppnismenn erlendis til að
koma með hrossin sín á dómara-
námskeið á þessum tíma, rétt áður
en keppnistimabilið hefst, þar sem
bæði kostir og sérstaklega gallar
hrossanna væru krufnir til mergj-
ar. Þá er alltaf sérstakt andrúms-
loft hér í upprunalandi hestsins.
Hér hafíð þið heilu hesthúsaþorpin
sem er fyrirbæri sem hvergi ann-
arstaðar er að fínna í heiminum.
Þið eruð með góða velli, reiðhöll
og mikinn fjölda góðra hrossa allt
í seilingar fjarlægð sem gerir
mönnum auðveldara fyrir,“ sagði
Toni Kolnes að iokum.
Spurning hvort haldaeigi
ráðstefnuna árlega á Islandi
- segir Hans Pfaffen frá Sviss
„Viðbrögð þátttakenda eru mjög jákvæð og eru allir sammála um
nauðsyn þess að halda þær árlega, spurningin er hvort eigi að
halda þær árlega á fslandi eða annað hvert ár hér og hitt árið þar
sem heimsmeistaramótin eru haldin hverju sinni,“ sagði Hans Pfaff-
en frá Sviss en hann er meðlimur í stjórn íþróttaráðs FEIF.
Sveinn Jónsson, Sigurbjörn Bárð-
arson, Marlisa Grimm, Þýskalandi
og Johann Haggberg, Svíþjóð,
fluttu framsöguerindi um einstak-
ar keppnisgreinar á þessari fyrstu
ráðstefnu sinnar tegundar sem
haldin er á vegum FEIF og er
gert ráð fyrir að þær verði haldnar
árlega og miða að því að samræma
keppnisreglur aðildarlandanna og
túlkun dómara á einstökum dóms-
atriðum. Til tals hefur komið að
þessar ráðstefnur verði framvegis
á íslandi en einnig eru hugmyndir
um að þær verði haldnar annað
hvert ár hérlendis en hitt árið í
því landi þar sem heimsmeistar-
mótin eru haldin hverju sinni.
Þátttakendur voru almennt
mjög ánægðir með umræðuna á
ráðstefnunni og töldu hana miða
vel að því að brúa það bil sem er
„Ráðstefnur sem þessar eru eina
leiðin til að beina keppnisreglum
aðildarlandanna í sama farveg.
Ég hef setið margar dómararáð-
stefnur á vegum FEIF og er þetta
sú besta sem ég hef tekið þátt í.
Ég hef það á tilfínningunni að það
hafi einnig góð áhrif á þróun
keppnisreglna á íslandi að hafa
ráðstefnurnar hér, í þá átt íslend-
ingar tileinki sér FIPO reglurnar
(alþjóðlegar keppnisreglur FEIF).
Mér skilst að í ráði sé að íslending-
ar taki upp eitt til tíu skalann í
stað eitt til fímmtán sem ég tel
mjög jákvætt,“ sagði Hans Pfaff-
en.
Pfaffen var mjög ánægður með
skipulagningu og alla aðstöðu sem
boðið var upp á og gat hann sér-
staklega um þátt Sigurbjörns
Bárðarsonar sem sá um að útvega
mismunandi hestgerðir bæði frá
sjálfum sér og öðrum. Sagði hann
hinn flölbreytilega hestakost sem
boðið var upp hafa komið af stað
frjórri umræðu á ráðstefnunni en
ella og hefði þetta verið gagnlegt
í alla staði.
Hans Pfaffen: Fjölbreytilegur
hestakostur lífgaði umræðuna.
■ 11 n njjm iíuÍ pSyÉj
KJÖL V* ÁRMÚLA 30 S. 6 UR hf. 78890 - 678891