Morgunblaðið - 13.05.1992, Page 48
Byssumaðurinn kom óvopnaður út úr húsinu og gafst upp fyrir vopnuðum Víkingasveitarmönnum. Morgunbiaðið/Júiíus Siguijónsson
Umsátur vopnaðra lögreglumanna um hús í Hlíðunum í gærkvöldi:
Byssumaður gafst upp eftir
að hafa skotið maiui í andlitið
21 ÁRS gamall byssumaður gafst upp fyrir vopnuðum lögreglu-
mönnum eftir tæplega þriggja klukkustunda umsátur um heim-
ili hans í Mávahlíð 24 í Reykjavík í gærkvöldi. Maðurinn hafði
skotið 25 ára gamlan gest sinn i andlitið með kindabyssu og
síðan hleypt af fleiri skotum úr byssunni fyrst út um brotinn
glugga meðan sjúkralið hlúði að hinum slasaða og síðan inni í
íbúðinni meðan á umsátrinu stóð. Hinn slasaði er ekki í lífs-
hættu, að sögn læknis á slysadeild.
Upphaf málsins var að til deilna
kom milli mannanna tveggja sem
voru ásamt fleirum í samkvæmi í
íbúð mannsins. Auk áfengis fann
lögreglan hasspípu og ummerki um
hassneyslu í íbúðinni og í garði við
húsið.
Lögreglu var gert vart um at-
burðinn klukkan 19. Þá hafði sá
sem fyrir skotinu varð hlaupið út
úr húsinu og leitað á náðir vegfar-
enda sem kölluðu á sjúkrabfl. Þeg-
ar sjúkralið kom á staðinn var
brotin rúða í húsinu og skotum
hleypt af. Sá slasaði var fluttur
með sjúkrabíl á slysadeild Borgar-
spítalans en var ekki talinn í lífs-
hættu að sögn læknis. Kúlan kom
í kinn hans. Maðurinn hafði ekki
gengist undir aðgerð þegar
Morgunblaðið leitaði upplýsinga
seint í gærkvöldi og var hann þá
sagður fyrst og fremst til eftirlits
á sjúkrahúsinu.
Sandgerði;
Fannst látinn í höfninni
Við leitina var m.a. notaður
sporhundur sem rakti slóð fram
á hafnargarðinn. Norðan við
hann fannst síðan lík mannsins
í sjónum um hálftíuleytið í gær-
kvöldi. Um 90 björgunarsveitar-
menn tóku þátt í leitinni og einn-
ig kom þyrla Landhelgisgæsl-
unnar við sögu.
-BB-
Morgunblaðiö/Bjðrn Blöndal
Kafarar búa sig undir að kafa í Sandgerðishöfn í gærkvöldi.
Kcflavík.
FJÖLMENNT lið björgunar-
sveitarmanna af Suðurnesjum
hóf í gær leit í Sandgerði að
28 ára gömlum manni sem
ekki hafði sést til síðan aðfara-
nótt sunnudags. Hann fannst
Iátinn í höfninni í gærkvöldi.
Byssumaðurinn gafst upp
klukkan 21.40 og kom óvopnaður
út úr húsinu. Hann hafði verið í
símasambandi við lögregluna með-
an á umsátrinu stóð.
Auk víkingasveitar lögreglunn-
ar var fjölmennu lögregluliði
stefnt á staðinn til að stöðva um-
ferð um Lönguhlíð sunnan Miklu-
brautar og hliðargötur þar. Fjöldi
fólks fylgdist utan girðingar lög-
reglunnar með aðgerðum en fólk
í nálægum húsum var beðið að
bæra ekki á sér meðan á umsátr-
inu stóð.
Rannsóknarlögregla ríkisins tók
við rannsókn málsins í gærkvöldi
eftir að byssumaðurinn hafði verið
færður í fangageymslur lögregl-
unnar til að sofa úr sér vímu en
að sögn Guðmundar Guðjónssonar
yfirlögregluþjóns var hann undir
áhrifum.
Sjá nánar á miðopnu.
Álftárós vill
selja áfengi
Byggingaverktakafyrirtækið
Alftárós vill reka áfengisútsölur
í Mosfellsbæ og Garðabæ.
Fyrirtækið sótti um leyfi til fjár-
málaráðuneytisins til að opna áfeng-
isútsölurnar fyrir rúmri viku. Svar
hefur ekki borist. Fyrirtækið sótti
einnig um leyfi til bæjarstjórna í
bæjunum tveimur.
Sjá einnig bls. 20.
Háhyrningurinn ét-
ur lúðuna af línunni
GÍFURLEG ásókn háhyrnings hefur gert skipum á lúðulínu afar erf-
itt fyrir nú í vor. Háhyrningurinn hnappast að skipunum, þegar þau
eru að draga og tekur nánast hveija lúðu. Ýmist tekur hann þær í
heilu lagi, eða klippir þær í sundur, þannig að aðeins hausinn kemur
upp. Þá hafa sjómennirnir orðið vitni að því, að hvalurinn kippir lúð-
unni af króknum og leikur sér svo með hana í sjávarborðinu.
Jón Páll Sigurjónsson, skrifstofu-
stjóri hjá Pétri Stefánssyni, segir
þetta tapað stríð, en bátur fyrirtæk-
isins, Stefán Þór, hætti á lúðunni
vegna ásóknar háhyrningsins. Stef-
án Þór fór tvo stutta túra á lúðulín-
una nú í vor og fékk samtals 15
tonn, áður en farið var yfir á keilu
og löngu. í fyrra fengu þeir 70 tonn
af lúðu enda var þá friður fyrir
hvalnum.
Sjá nánar í Úr verinu bls. Bl.