Morgunblaðið - 21.05.1992, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1992
Hagvirki sækir um
lóð fyrir íbúðir
aldraðra á Akureyri
Morgunblaðið/Sigurdur Jónsson
Ölfusárbrú opin léttri umferð
Selfossi.
ÖLFUSÁRBRÚ var opnuð fólksbílum í gærkvöldi eftir mánaðar-
lokun. Gert er ráð fyrir að opna hana fyrir þungaumferð eftir
næstu helgi. Síðasta verk vegagerðarmanna áður en brúin var
opnuð var að ganga frá tengihúsi fyrir vatnsleiðslur undir ak-
brautinni við norðurenda brúarinnar.
Búið er að ganga frá sjálfri
akbrautinni yfir brúna en eftir er
að steypa gangstétt austan megin
á brúnni en hún verður 1,80 m á
breidd. Sjálf akbrautin er 6,20
m. Einnig er eftir að ganga endan-
lega frá handriðum.
Verkið hefur staðist upphaflega
áætlun þó svo frost tefði steypu-
vinnuna um fimm daga. Opnunin
verður kærkomin Selfossbúum og
öðrum én miklum íjölda bíla hefur
daglega verið lagt beggja vegna
brúarinnar. Mikilvægi hennar sem
sámgöngumannvirkis hefur kom-
ið vel í ljós á meðan á lokuninni
stóð.
- Sig. Jóns.
Fjögur tilboð bárust
í eignir þrotabús Isno
ÞRJÚ tilboð höfðu borist í fasteignir og eldisaðstöðu þrotabús fisk-
eldisfyrirtækisins ísno hf. um miðjan dag í gær og von var á fjórða
tilboðinu. Nokkur tilboð höfðu einnig borist í eldisfiskinn. Tilboðs-
frestur rann út í gær. Heimamenn í Kelduhverfi og fyrri eigendur
ísno eru meðal þeirra aðila sem hafa sýnt áhuga á að kaupa stöðina.
HAGVIRKI-KIettur hf. hefur
sótt um lóð á Akureyri til að
byggja á eigin vegum 40 til 50
íbúðir fyrir aldraða. Félag aldr-
aðra á Ákureyri gekk í vikunni
Sameinuðu þjóðirnar:
Island ber
upp tillögri
um aðild
Slóveníu
ÍSLAND mun bera upp tillögu
um aðild Slóveníu að Sameinuðu
þjóðunum samkvæmt ósk Slóv-
ena, en líklegt er að tillagan
verði borin upp á fundi allsherj-
arþings Sameinuðu þjóðanna á
föstudaginn. Beiðni um að bera
upp tillöguna barst íslenskum
stjórnvöldum frá Slóvenum síð-
astliðinn föstudag.
Að sögn Grétars Más Sigurðs-
sonar sendiráðsritara í sendiráði
íslands í New York verður ísland
meginflytjandi tillögunnar um að-
ild Slóveníu að Sameinuðu þjóðun-
um og safnar stuðningsyfirlýsing-
um frá öðrum ríkjum. Hann sagði
að Slóvenar hefðu óskað eftir að
ísland tæki þetta að sér með þeim
orðum að þeir vildu að meginflytj-
andi tillögunnar yrði þjóð sem
hefði sýnt þeim skilning og samúð
í sjálfstæðisbaráttu þeirra.
að tilboði SS-Byggis í byggingu
70 íbúða en það var 25 milljón-
um króna hærra en tilboð Hag-
virkis-Kletts.
Hagvirki-Klettur átti lægsta til-
boð í byggingu íbúðanna á vegum
Félags aldraðra við Lindarsíðu en
því var hins vegar hafnað. Jóhann
G. Bergþórsson, forstjóri fyrirtæk-
isins, segir að sér virðist sem lítt
skiljanleg viðhorf hafi ráðið því
að tiiboðinu var hafnað en í ljósi
þeirrar niðurstöðu hafí Hagvirki-
Klettur, í samráði við íslands-
banka, ákveðið að senda bæjarráði
Akureyrar bréf, þar sem óskað sé
eftir lóð fyrir 40 til 50 íbúðir,
Að sögn Jóhanns segir í bréf-
inu, að óskað sé eftir lóð, sem stað-
sett sé í samræmi við þarfir aldr-
aðra. Hugmyndin sé sú, að byggja
ódýrar en góðar íbúðir fyrir aldr-
aða Akureyringa, sem séu við-
skiptavinir íslandsbanka og/eða
annarra banka. Verði af lóðarút-
hlutun og lóðin hæfi starfseminni
sé ætlunin að stofna sjálfstætt
dótturfyrirtæki Hagvirkis-Kletts á
Akureyri, sem starfí þar og víðar
á Norðurlandi. Starfsmenn þess
fyrirtækis yrðu Akureyringar að
æðstu stjórnendum undanskildum.
Verð íbúðanna yrði lægra en gert
væri ráð fyrir í tilboði fyrirtækisins
í bygginguna við Lindarsíðu.
Að sögn Jóhanns mun fyrirtæk-
ið beita sér fyrir markaðskönnun
til að ganga úr skugga um hvort
markaður sé fyrir íbúðir af þessu
tagi. Hann segist hins vegar ekki
hafa trú á öðru en að svo sé. Ef
af þessum framkvæmdum verði
geti þær tengst frekari áformum
Hagvirkis-Kletts um umsvif á
Norðurlandi.
Bústjórar þrotabúsins auglýstu
fasteignir og eldisaðstöðu Isno á
Öxnalæk í Ólfusi, í Lónum í Keldu-
hverfí og í Vestmannaeyjum til sölu
eftir gjaldþrot félagsins. Jóhann
H. Níelsson hrl. bústjóri sagði í gær
að borist hefðu tvö kauptilboð og
eitt leigutilboð og að vitað væri um
eitt kauptilboð á leiðinni. Hann
sagði að eitt tilboðið væri í eldisað-
stöðu á öllum þremur stöðunum en
hin í hluta, sérstaklega aðstöðuna
í Lónunum. Jóhann sagðist ekki
geta upplýst hverjir stæðu að tilboð-
unum fyrr en í dag.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru heimamenn í Keldu-
hverfi, fiskeldisstöðin Svarthamar
hf. á Húsavík og fyrri eigendur ísno
hf., meðal þeirra sem haft hafa hug
á að kaupa stöðina. Eftir gjaldþrot-
ið var boðaður almennur sveitar-
fundur í Kelduneshreppi um málefni
fyrirtækisins og ákveðið að reyna
að fá fiskeldisstöðina keypta eða
leigða. íbúar á flestum bæjum
hreppsins, þar á meðal starfsmenn
stöðvarinnar, skrifuðu sig fyrir
hlutafé í hlutafélagi sem stofnað
verður um reksturinn ef heimamenn
eiga kost á kaupunum.
Jóhann Níelsson sagði að hinn
bústjóri þrotabúsins, Sigurður Jóns-
son hdl., færi á fund stjórnenda
Framkvæmdasjóðs árdegis í dag til
að gera þeim grein fyrir boðunum
enda réðist það mest af vilja sjóðs-
ins sem helsta veðhafa hvaða til-
boði yrði tekið.
Landsbanki íslands er aðalveð-
hafí í fiskinum í ísno og hefur rek-
ið stöðina frá gjaldþrotsdegi. Bank-
inn auglýsti fiskinn til sölu og að
sögn Más Hallgrímssonar, forstöðu-
manns afurðalánadeildar, hafa
nokkur tilboð borist. Fleiri hefðu
áhuga á fiskinum en þeir sem vildu
reka stöðina áfram. Vonaðist hann
til að hægt yrði að ganga frá söl-
unni fljótlega.
Sérblað
um útiveru
SÉRFRÆÐINGAR á sviði
íþróttalækningafræða beina
nú sjónum sínum í auknum
mæli að hreyfingarleysi og á
nýlegri ráðstefnu var skað-
semi hreyfingarleysis lögð að
jöfnu við reykingar um al-
mennt heilbrigði og lífslíkur.
Þessar upplýsingar eru á
meðal þess sem kemur fram í
sérblaði um útiveru sem fylgir
Morgunblaðinu í dag. í því er
ijallað um ýmsar leiðir í útiveru;
hestamennsku, golf, gönguferð-
ir, veiðiskap og fleira.
Menntamálaráð;
Vantraust á for-
Ályktun aðalfundar læknaráðs Landspítalans:
Sumir af hæfustu starfs-
mönnum íhuga að hætta
Á AÐALFUNDI læknaráðs Landspítalans sem fram fór 15. maí
var samþykkt einróma ályktun þar sem lýst er miklum áhyggjum
vegna niðurskurðar fjárframlaga til sjúkrahússins. Segir þar
m.a. að afleiðingar aðgerðanna séu að neikvæðni og óánægja séu
ríkjandi og að sumir af hæfustu starfsmönnum Landspítalans
íhugi að segja upp störfum. Ásmundur Brekkan, formaður læknar-
áðs Landspítalans, segir að þetta starfsfólk hyggist leita sér starfa
erlendis.
Ályktunin er svohljóðandi:
„Læknaráð Landspítalans hefur
miklar áhyggjur af stefnu stjórn-
enda spítalans undanfarin misseri.
Þær einhliða aðgerðir, sem m.a.
hafa verið viðhafðar til þess að
mæta niðurskurði á fjármagni til
sjúkrahússins, hafa hvarvetna
valdið mikilli óánægju meðal
starfsfólks. Þeir sem vinna með
sjúklingana vita best hvernig þjón-
ustan hefur breyst, oft sjúklingun-
um í óhag. Neikvæðni og óánægja
er ríkjandi og hefur eyðilagt þann
góða starfsanda sem ríkti áður á
sjúkrahúsinu. Sumir af hæfustu
starfsmönnum íhuga að segja upp
störfum. Það eru eindregin til-
mæli læknaráðs að meira samráð
verði haft við starfsfólk í mikil-
vægum ákvörðunum er snerta
störf þeirra.“
Ásmundur Brekkan lagði í sam-
tali við Morgunblaðið áherslu á
að um væri að ræða uppsafnaðan
vanda til margra ára. „Stjórnvöld
hafa verið að svelta þennan spít-
ala í lengri tíma. Þær aðgerðir sem
ráðist hefur verið í að undanförnu
og staðið hefur verið afar klaufa-
lega og marklaust að, eru einung-
is dropinn sem fyllir rnælinn," seg-
ir Ásmundur.
mann hugsanlegt
FUNDUR verður væntanlega haldinn í menntamálaráði í næstu viku,
en í fyrrinótt var Hlín Daníelsdóttir kosin á Alþingi fulltrúi Alþýðu-
flokksins í ráðinu. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er hugsan-
legt að á fundinum verði borið fram vantraust á Helgu Kress for-
mann menntamálaraðs.
Hlín Daníelsdóttir var kosin aðal-
fulltrúi Alþýðuflokksins í mennta-
málaráð í stað Helgu K. Möller, sem
féll frá í vor. Ragnheiður Davíðs-
dóttir, varamaður Helgu í ráðinu,
stóð þá að vantrauststillögu á for-
mann ráðsins, Bessí Jóhannsdóttur
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, og var
Helga Kress þá kosin formaður.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er ekki ósennilegt að van-
traust verði borið fram á Helgu
Kress á næsta fundi í menntamála-
ráði ef hún að fyrra bragði segir
ekki af sér formennskunni.
Aðspurð sagðist Bessí Jóhanns-
dóttir eiga von á því að unnið yrði
í menntamálaráði í anda þess sam-
komulags sem ríkti milli ríkisstjórn-
arflokkanna, en formaður Alþýðu-
flokksins og þingflokkurinn hefðu
lagt áherslu á að það yrði gert. Hún
sagði að á þessari stundu væri óljóst
með hvaða hætti stefnu stjórnar-
flokkanna yrði framfylgt í ráðinu.
Hlín Daníelsdóttir sagðist í samtali
við Morgunblaðið ekki vilja tjá sig
opinberlega um málefni mennta-
málaráðs.
Hlín á sæti í skólanefnd Kvenna-
skólans í Reykjavík og í jafnréttis-
nefnd Reykjavíkurborgar. Henm
var falið að taka sæti í jafnréttis-
nefnd í stað Ragnheiðar Davíðsdott-
ur, sem hætti að eigin ósk um sið-
ustu áramót, en varamaður Kagn-
heiðar í nefndinni var Guðlaugur
Gauti Jónsson.