Morgunblaðið - 21.05.1992, Side 4

Morgunblaðið - 21.05.1992, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1992 Framlialdsskóli í Borgarholti tekur til starfa haustið 1993 BORGARRAÐ hefur samþykkt samkomulag um stofnun fram- haldsskóia í Borgarholtshverfi í Reykjavík, sem menntamála- ráðuneytið, Mosfellsbær og Reylyavíkurborg standa að í sam- einingu. Um er að ræða skóla með fjölbrautasniði og er gert ráð fyr- ir að kennsla í verklegum greinum hefjist að hluta haustið 1993. Samkomulagið gerir ráð fyrir að skólinn verði 10.500 fermetrar að stærð og er framkvæmdatími áætl- aður sjö ár frá og með árinu 1992. Skólinn greinist í tvö aðalsvið, bók- nám og verknám, er skiptast síðan Ellilífeyrir hækk- ar um 206 krónur BÆTUR almannatrygginga hækka um 1,7%, í samræmi við almenna kjarasamninga, og hefur hækkunin þegar tekið gildi, eða frá 1. maí. Hækkunin er komin til fram- kvæmda hvað varðar sjúkra- og slysadagpeninga. Siysadagpeningar hækka úr 654,60 krónum á dag í 665,70 krónur og sjúkradagpening- amir úr 517,40 krónum í 526,20 krónur. VEÐUR Maíhækkunin á aðrar bætur verð- ur greidd 3. júní, með júníbótunum. Sem dæmi um breytingar á bótaf|ár- hæð má nefna, að elli- og örorkulíf- eyrir hækkar úr 12.123 krónum á mánuði í 12.329 krónur, tekjutrygg- ing ellilífeyrisþega verður 22.684 krónur í stað 22.305, meðlag fer í kr. 7.551 úr 7.425 og fæðingarstyrk- ur, sem var 24.671 króna á mánuði, verður 25.090 krónur. í námsbrautir. Skal starfsemi skólans miðast við að unnt verði að útskrifa nemendur eftir mislangan námsferil og með mismunandi réttindi. Ríkið greiðir 60% af stofnkostn- aði, Reykjavíkurborg 28% og Mos- fellsbær 12%. Er samkomulag um að framvegis hafi framhaldsskóla- nemar úr Mosfellsbæ sama rétt til náms í framhaldsskólum í Reykjavík og nemar með lögheimili í Reykjavík. Tekur þetta til þeirra framhaldsskóla sem nú eru starfræktir í Reykjavík og annarra sem reistir verða í borg- inni í samvinnu við ríkið auk skólans í Borgarholti. Fram kemur að menntamála- ráðuneytið, með samþykki fjármála- ráðuneytisins, Reykjavíkurborg og Mosfellsbær ábyrgjast að leggja fram samtals 1.000 millj. miðað við vísitölu í nóvember 1991. Stefnt er að 70 millj. króna framlagi árið 1992, 100 millj. árið 1993 og 200 millj. á ári frá árinu 1994 til 1997 og 30 millj. árið 1998. Framlög eru háð árlegu samþykki Alþingis og viðkom- andi sveitarfélaga. Upphæðin miðast við byggingarvísitölu og breytist með henni. / / / / V f 8 IDAGkl. 12.00 ' / Heimlld: Veðurstofa ísiands {Byggt á veðurspá kl. 16.151 gær) VEÐURHORFUR I DAG, 21. MAI YFIRLIT: Vestur af Bretlandseyjum er 1028 mb hæð sem þokast norð- austur e'n minnkandi 1000 mb lægð á leið norðaustur um Grænlands- sund. SPÁ: Suðvestan gola en stinningskaldi sums staðar á Vestfjörðum og suðaustanlands. Víða dálítil rigning eða súld sunnan- og vestanlands en úrkomulaust norðaustanlands. Hiti 6-14 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðlæg og síðar austlæg átt. Þurrt að mestu norðanlands en dálítil rigning eða súld í öðrum landshlutum. Hiti 8-16 stig. Hlýjast í innsveitum norðanlands. HORFUR Á LAUGARDAG: Austlæg átt. Rigning eða súld með köflum suðaustan- og austanlands en þurrviðri norðan- og vestanlands. Hiti 8-16 stig. Svalast við.suðaustur- og austurströndina. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. ö ▼ Heiðskírt / / / / / / / / Rigning Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað * / * * * # * / * * / * / * * * Slydda Snjókoma Alskýjað * V V V Skúrir Slydduél Él $ Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig y súid = Þoka ^ FÆRÐA VEGUM: m. i7.3of9ær, Allir helstu þjóðvegir landsins eru nú færir. Einstaka vegakafiar eru þó ófærir, svo sem Þorskafjarðarheíði á Vestfjörðum, Hólssandur og Öxar- fjarðarheiði á Norðausturlandi, Mjóafjarðarheiði á Austfjörðum og Lág- heiði á Norðurlandi er lokuð vegna aurbleytu. Vegna aurbleytu eru sums staðar sérstakar öxulþungatakmarkanir á vegum og eru þær tilgreindar með merkjum við viðkomandi vegi. Allir hálendisvegir landsins eru lokað- ir vegna aurbleytu og snjóa. Ölfusárbrú við Selfoss verður opnuð fyrir umferð léttra ökutækja að morgni fimmtudags 21. maí. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UM HEIM ki. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri Reykjavlk 13 skýjað 7rigning Bergen 17 léttskýjað Helsinki 20 léttskýjað Kaupmannahöfn 18 léttskýjað Narssarssuaq 2 urk.ígrennd Nuuk -í-3 alskýjað Ósló 22 léttskýjað Stokkhólmur 24 skýjað Algarve 28 skýjað Amsterdam 24 heiðskirt Barcelona vantar Berlin 23 heiðskirt Chlcago ivantar Feneyjar 19 léttskýjað Frankfurt 23 léttskýjað Glasgow 18 skýjað Hamborg 22 léttskýjað London 25 léttskýjað LosAngeles 15 léttskýjað Lúxemborg 22 heiðskírt Madríd 26 skýjað Malaga vantar Mallorca 20 skýjað Montreal 15 háifskýjað NewYork vantar Orlando vantar París 23 heiðskirt Madeira 18 skýjað Róm 20 skýjað Vín 17 skýjað Washington vantar Winnipeg 21 hálfskýjað Morgunblaðið/Sverrir Sex skákmenn fara til þátttöku á Ólympíuskákmótinu í Manila ásamt fylgdarliði. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Gunnar Eyjólfsson, aðstoðarmaður, Krislján Guðmundsson, liðssljóri, Margeir Péturs- son, sem teflir á 2. borði, Áskell Örn Kárason, fararstjóri, Jóhann Hjartarson, sem teflir á 1. borði, Jón L. Árnason, sem teflir á 4. borði, Þröstur Þórhallsson, 2. varamaður, Hannes Hlífar Stefánsson, 1. varamaður og Guðmundur G. Þórarinsson, forseti Skáksambands Islands. Olympíuskákmótið í Manila: Sterkustu sveit- inni teflt fram TILKYNNT var í gær hvaða skákmenn skipa ísiensku sveitina sem fer á Olympíuskákmótið sem haldið verður í Manila á Filippseyjum 7.-25. júní næstkomandi. í sveitinni verða þeir Jóhann Hjartarson, sem teflir á 1. borði, Margeir Pétursson, Helgi Ólafsson og Jón L. Árnason, en varamenn verða Hannes Hlífar Stefánsson og Þröstur Þórhallsson. Karl Þorsteins gaf ekki kost á sér. Liðsstjóri er Krist- ján Guðmundsson, fararstjóri er Áskell Örn Kárason og aðstoðarmað- ur Gunnar Eyjólfsson. Að sögn Guðmundar G. Þórarins- sonar forseta Skáksambands ís- lands eru allir íslensku keppendum- ir í góðri æfingu um þessar mund- ir, en þeir hafa náð toppsætum á ýmsum alþjóðlegum skákmótum upp á síðkastið. Sagðist hann efa að sterkari sveit hefði áður verið send héðan á Ólympíuskákmót. Ólympíuskákmót eru haldin ann- að hvert ár, og eru þau jafngildi heimsmeistaramóts skáksveita. Búist er við metþáttöku að þessu sinni, eða sveitum frá 120 þjóðum og 1.000 til 1.200 keppendum. Á blaðamannafundi þar sem tilkynnt hveijir yrðu í íslensku sveitinni kom fram í máli Guðmundar G. Þórarins- sonar að íjölgun þátttökuþjóða staf- aði ekki síst af því að nú kæmu sveitir frá öllum ríkjum fyrri Sovét- ríkjanna, og nokkrar sveitir frá fyrrum Júgóslavíu. Hann gat þess að í þýska skáktímaritinu Schack Magazin væri ísland nú flokkað í 15.-18. sæti á lista yfir sterkustu skákþjóðir heims ásamt Búlgaríu, Króatíu og Tékkóslóvakíu, en á síð- asta Ólympíuskákmóti varð ísland í 8. sæti. Sagði Guðmundur að þetta stafaði af því að ofar íslandi á list- anum væru settar nokkur fyrrum ríki Sovétríkjanna sem hefðu á að skipa sterkum skákmönnum, en hann teldi líklegt að íslenska sveitin ætti að geta orðið í kringum 10. sætið á mótinu. Kostnaður Skáksambandsins vegna þátttökunnar í Ólympíuskák- mótinu er um 1,8 milljónir króna, og hefur söfnun vegna þátttökunn- ar gengið vel, en í því sambandi hefur verið leitað til fjölmargra fyr- irtækja eftir styrkjum. Vegna fjár- hagsörðugleika sambandsins er ekki send kvennasveit að þessu sinni, en frá því ísland tók fyrst þátt í þessu móti hefur kvennasveit farið fjórum sinnum til þátttöku. Skáksambandið er nokkuð skuld- ugt, m.a. vegna húsnæðiskaupa, en á aðalfundi sambandsins um síðustu helgi var kynnt bréf frá Ólafi G. Einarssyni menntamálaráðherra þar sem ségir að hann muni beita sér fyrir því að á næstu þrem árum fái Skáksambandið 5 milljónir ár- lega á sérstökum lið í fjárlögum til að greiða upp skuldir. Að sögn Árna Emilssonar fráfarandi gjald- kera sambandsins þýðir þetta straumhvörf í íjarmálum Skáksam- bandsins, en það hefur enga fasta tekjustofna, enda var orðsendingu menntamálaráðherra fagnað gífur- lega á aðalfundinum. Félag um nýja sjávarútvegsstefnu: Ekki til bóta að fækka og stækka - segir Hrólfur Gunnarsson, einn af talsmönnum félagsins HRÓLFUR Gunnarsson, einn af talsmönnum Félags um nýja sjávarút- vegsstefnu, segir að hann telji ekki til bóta að fækka og stækka útgerðarfyrirtækjum eins og þróunin hefur verið sl. hálft annað ár. Eins og fram hefur komið í fréttum undanfarið hafa ellefu stærstu útgerðarfyrirtækin bætt við sig verulegum aflaheimildum, einkum með samruna við önnur fyrirtæki. „Það er einsýnt að fækkun út- gerðarfyrirtækja leiðír til fækkunn- ar þeirra sem vinna við fiskveiðar," segir Hrólfur. „Og hvað varðar stækkun þeirra segja útgerðarmenn að það sé í samræmi við annað aðalmarkmið kvótakerfisins um hagræðingu í rekstri. Að mínu mati sýnir þetta gallana á kerfinu." Hrólfur segir að kvótakerfið sé gallað að því leyti að það hefti mjög útgerð smærri báta. „Þetta kom í ljós á nýliðinni vertíð því þá virtist nægur fiskur vera á grunnslóð þar sem smærri bátar veiða en ekki á miðum togskipanna. Sökum þess hve kvótakerfið heftir smærri báta reyndist ekki unnt að ná þessum afla/'.segir Hrólfur. „Því voru afla- brögðin jafnslök og raun ber vitni fyrstu átta mánuði fiskveiðaársins."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.