Morgunblaðið - 21.05.1992, Side 14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1992
14
Að falla í formannskjöri
eftir Hrafn
Gunnlaugsson
í Morgunblaðinu hafa birst skrif
um nýtt Félag kvikmyndastjóra sem
klofnað hefur út úr Samtökum kvik-
myndaleikstjóra. Ástæða klofnings-
ins er sögð skortur á lýðræði í sam-
tökum kvikmyndastjóra og mitt
nafn nefnt í því sambandi. Þar sem
ég hef verið dreginn inn í þessi
skrif, sem birtust í febrúar er ég
dvaldi erlendis, þykir mér nú rétt
að gera grein fyrir því sem ég veit
best um þennan klofning.
Samtök kvikmyndaleikstjóra
voru stofnuð fyrir þrem árum, 11.
október 1989. í undirbúningsnefnd
fyrir stofnun samtakanna sátu auk.
undirritaðs Kristín Jóhannesdóttir
og núverandi framkvæmdastjóri
Kvikmyndasjóðs, Þorsteinn Jóns-
son. Undirbúningsnefndin lagði
fram tillögur að lögum samtakanna
og voru þau sniðin eftir lögum
samskonar félaga í Frakklandi og
á Norðurlöndum. í lögum þeirra
útlendu félaga, sem lög samtak-
anna tóku mið af, eru strangar inn-
tökureglur um menntun og reynslu
umsækjenda og var stjórnin sam-
mála um að hafa sambærilegar inn-
tökureglur fyrir samtökin í upp-
hafi, en lögum mætti síðan breyta
þegar starfsemin hefði náð að mót-
ast. Samtök kvikmyndaleikstjóra
eru fullgildur aðili í Sambandi norr-
ænna kvikmyndaleikstjóra og Sam-
bandi evrópskra kvikmyndaleik-
stjóra og sótti ég fundi þessara fé-
laga ásamt Kristínu og núverandi
„í ljósi þeirra stað-
reynda er raktar hafa
verið hér að framan
liggur ljóst fyrir að sá
„klofningur“ sem skrif-
aður var um er í raun-
inni þessi: Þráinn Bert-
elsson gat ekki sætt sig
við lýðræðislega niður-
stöðu í formannskjöri á
aðalfundi Samtaka
k vikmy ndaleikstj óra. “
framkvæmdastjóra kvikmynda-
sjóðs, Þorsteini Jónssyni, enda skip-
uðum við fyrstu stjórn samtakanna,
Kristín sem formaður.
Á síðasta aðalfundi samtakanna,
27. des. sl., voru gerðar víðtækar
lagabreytingar sem m.a. miðuðu að
því að rýmka inntökureglur í sam-
tökin, þannig að sem flestir er ættu
hagsmuna að gæta sem kvikmynd-
aleikstjórar kæmust inn í samband-
ið. Allar lagabreytingar sem lagðar
voru fram á fundinum voru sam-
þykktar og ríkti mikil eindrægni
meðal fundarmanna og voru þeir
sammála um að nú væri búið að
opna félagið fyrir öllum sem ættu
þar heima.
Til skýringar skal sagt frá því að
í millitíðinni hafði það gerst að einn
stjórnarmanna, Þorsteinn Jónsson,
var ráðinn framkvæmdastjóri Kvik-
myndasjóðs. Þorsteinn lét af störf-
Hrafn Gunnlaugsson
um í stjórn samtakanna að eigin
ósk, því hann taldi það ekki sam-
rýmast starfi framkvæmdastjóra
Kvikmyndasjóðs að vera jafnframt
áhrifamaður í því hagsmunafélagi
sem flestir umsækjendur til Kvik-
myndasjóðs kæmu úr. Þorsteinn
lýsti þá þeirri skoðun sinni að fram-
kvæmdastjórinn yrði að vera hafinn
yfir alla flokkadrætti. Friðrik Þór
Friðriksson kom því inn í stjórnina
á miðju kjörtímabili í staðinn fyrir
Þorstein Jónsson.
Að loknum lagabreytingum á
áðurnefndum aðalfundi 27. des. sl.
var gengið til stjórnarkjörs, en sam-
kvæmt lögum félagsins er hver
stjórnarmaður kosinn út af fyrir
sig, fyrst formaður o.s.frv.
Kristín Jóhannesdóttir, sem
gegnt hafði embætti formanns árið
á undan, gaf ekki kost á sér til
endurkjörs, en stakk upp á Friðriki
Þór Friðrikssyni sem formanni.
Þorsteinn Jónsson, framkvæmda-
stjóri Kvikmyndasjóðs, (hann sótti
fundinn sem leikstjóri) stakk hins
vegar upp á Þráni Bertelssyni, fyrr-
verandi ritstjóra Þjóðviljans. Ekki
komu fram fleiri uppástungur og
var kosið á milli Friðriks og Þráins.
Friðrik fékk 8 atkvæði en Þráinn
3. Friðrik sigraði því og var rétti-
lega kosinn formaður. Þráinn brást
þannig við ósigrinum, að hann lýsti
því yfir að hann hefði ekki áhuga
á því að starfa fyrir félagið á næst-
unni. Þegar Þorsteinn Jónsson,
framkvæmdastjóri Kvikmynda-
sjóðs, stakk aftur upp á honum og
nú sem varaformanni, þá neitaði
Þráinn að gefa kost á sér. Það er
ekki nýlunda að Þráinn láta frama
Friðriks fara í taugarnar á sér eins
og ummæli úr ýmsum blaðagreinum
gætu borið vitni um. Hvað varðar
kjör í önnur embætti á vegum fé-
lagsins þá var sjálfkjörið í þau,
m.a. í embætti ritara sem undirrit-
aður gegnir. Ekki gerðist neitt á
fundinum sem benti til þess að
klofningur væri í aðsigi og nefndi
enginn slíkt.
Nokkru síðar hafði Þráinn Bert-
elsson hins vegar frumkvæði um
að stofna nýtt félag og kallaði það
Félag kvikmyndastjóra. Sagði hann
sig úr Samtökum kvikmyndaleik-
stjóra, ásamt þeim félögum sem
höfðu kosið hann til formanns á
aðalfundinum.
Stofnfundur Félags kvikmynda-
stjóra var ekki auglýstur opinber-
lega og þeir leikstjórar sem kusu
ekki Þráinn þegar hann tapaði fyrir
Friðriki voru ekki látnir vita af fé-
lagsstofnuninni. Allir þessir leik-
stjórar eiga hagsmuna að gæta sem
kvikmyndaleikstjórar, en var ekki
gefinn kostur á að gerast aðilar að
Blúskvöld
í Duus-húsi
BLÚSKVÖLD verður í Duus-
húsi í kvöld, fimmtudaginn 21.
maí, og hefst það kl. 21.30.
Það er Blúsvinafélagið sem
stendur fyrir þessum tónleikum
og fram kemur hljómsveitin Vinir
Dóra ásamt bræðrunum Mick og
Danny Pollock.
Nú þvoum við
15%
Ut þessa viku
bjóðum við
staðgreiðsluafslátt
af öllum þvottatækjum frá
Þvottavélar Þurrkarar Þeytivindur Uppþvottavélar
Tilboðið gildir aðeins
fimmtudag, föstudag
og laugardag
Grípið einstakt tækifæri
Greiðslukjör eru einnig í boði.
^ B R Æ Ð U R N I R
m) ORMSSON HF
Láamúla 8. Sími 38820
Umboðsmenn okkar eru um land allt.