Morgunblaðið - 21.05.1992, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAI 1992
öryggj kostar tima og peninga -
sjúkdómar og slys kosta meiri tima
og meiri peninga - auk þjáninga.
Veggspjaldið.
Veggspjald
vegna slysa
við prentvélar
ÖRY GGISNEFND prentiðn-
aðarins sendir nú frá sér vegg-
spjald til ábendingar í prent-
smiðjum landsins vegna tíðra
slysa við prentvélar þar sem
menn hafa klemmst milli valsa.
Á sl. ári virtist sem tíðni þess
háttar slysa ykist til muna. Varð
það til þess að öryggisnefndin ein-
beitti sér að athugun á þeim. Var
þess farið á leit við Vinnueftirlit
ríkisins að könnuð yrðu vinnuslys
í greininni sl. 2 ár. Þá kom í ljós
að af 13 slysum voru 9 valsaslys
og voru vélar hafðar í gangi með-
an unnið varð að hreinsun þeirra.
Eins kom í ljós að flestir þeirra
sem slösuðust höfðu litla starfs-
reynslu og skorti meiri þjálfun og
fraeðslu.
Á þetta er bent í þessu nýja
fræðsluefni og veggspjaldi og er
vonast til þess að prentsmiðjurnar
skoði þessi atriði nú sérstaklega
vel á þessu nýbyijaða vinnuvernd-
arári.
Þetta er í áttunda skipti sem
öryggisnefndin gefur út fræðslu-
efni fyrir bókagerðarmenn en hún
hefur starfað samfleytt frá árinu
1983, skv. 3. kafla vinnuvernd-
arlaganna um öryggisnefndir sér-
greina. Nefndin er skipuð fjórum
mönnum, tveimur frá Félagi bóka-
gerðarmanna og tveimur frá
Félagi ísl. prentiðnaðarins.
-----♦ ♦ ♦----
Sýnir á þrem-
ur stöðum
PÁLL Guðmundsson myndlistar-
maður frá Húsafelli sýnir nú á
þremur stöðum á Stór-Reykja-
víkursvæðinu, í Stöðlakoti við
Bókhlöðustíg, þar sem nú stendur
yfir höggmyndasýning, á Mokkac-
afé við Skólavörðustíg, þar sem
hann sýnir blýantsteikningar af
þekktum andlitum og í Hafnar-
borg í Hafnarfírði, þar sem hann
sýnir bæði höggmyndir og mál-
verk.
-----♦ ♦ ♦----
Nemendur FB
með sýningu
í Gerðubergi
NEMENDUM á Listasviði Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti hefur
verið boðið að sýna lokaverk-
efni sín í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi.
Sýning útskriftarnema verður
opnuð í Menningarmiðstöðinni
föstudaginn 22. maí nk. kl. 17 og
lýkur 30. maí.
EVROPSKA VINNUVERNDARARIÐ 1992-1993
Skipulegt vinnuvemdarstarf
í fyrirtækjum og stofnunum
eftir Hörð Bergmann
Til þess að samskipti atvinnu-
rekenda og starfsmanna um vinnu-
verndarmál séu formleg og innra
eftirlit fyrirtækisins sem best, eru
í lögunum ákvæði um samstarf
öryggistrúnaðarmanns, sem
starfsmenn kjósa úr sínum hópi,
og öryggisvarðar sem atvinnurek-
andi tilnefnir. Ætlast er til að slík-
ir fulltrúar starfi í fyrirtækjum og
stofnunum með 10-50 manns í
vinnu. Séu færri en 10 starfsmenn
í fyrirtækinu yfirtekur félagslegur
trúnaðarmaður hlutverk öryggis-
trúnaðarmanns og atvinnurekandi
og/eða verkstjóri hlutverk öryggi-
svarðar. Starfí fleiri en 50 í fyrir-
tæki skulu kosnir tveir öryggis-
trúnaðarmenn og tveir öryggis-
verðir skulu tilnefndir og mynda
þeir saman öryggisnefnd.
Öryggisverðir og öryggistrúnað-
armenn eiga að fylgjast með því
að aðbúnaður, hollustuhættir og
öryggi séu í samræmi við vinnu-
verndarlögin og reglur sem þeim
tengjast. Samkvæmt reglum, sem
félagsmálaráðherra setti 1982, er
þeim ætlað að fara um vinnusvæð-
ið svo oft sem þurfa þykir og huga
að eftirfarandi þáttum:
- Að vélar og tæknibúnaður,
hættuleg efni og starfsaðferðir
stofni ekki lífi og heilsu starfs-
manna í hættu.
- Að öryggisbúnaður og persónu-
hlífar séu til staðar í góðu
ástandi eins og til er ætlast og
séu notaðar af starfsmönnum.
- Að starfsmenn fái nauðsynlega
Vinnuvernd
í verki
Núgildandi lög um
vinnuvernd bera langt
og virðulegt heiti sem
segir sitt um inntak
þeirra og hvað átt er
við með hugtakinu
vinnuvernd. ,
fræðslu og þjálfun með tilliti til
aðbúnaðar, hollustuhátta og ör-
yggis-
- Að tilkynningarskyldu um vinnu-
slys og atvinnusjúkdóma sé
sinnt.
- Að umsagnar Vinnueftirlits
ríkisins sé leitað um umtalsverð-
ar breytingar á fyrirtækinu.
- Að eftirlitsbók sé færð eins og
reglur segja til um.
- Að farið sé að ákvæðum laga
nr. 46/1980 og gildandi samn-
inga aðila vinnumarkaðarins
sem gerðir eru á grundvelli
þeirra um hvíldartíma og frí-
daga og vinnu bama og ungl-
inga.
Þá eru í lögum og reglum ýmis
ákvæði um réttindi þessara fulltrúa
og það sem getur styrkt þá í starfi.
Þeir skulu fá hæfilegan tíma til
að sinna verkefnum sínum. Einnig
eiga þeir að fá tækifæri til að afla
sér nauðsynlegrar þekkingar og
menntunar um aðbúnað, hollustu-
hætti og öryggi á vinnustöðum
með því að sækja námskeið Vinnu-
eftirlits ríkisins eða önnur viður-
kennd námskeið. Ennfremur skulu
þeir fá upplýsingar sem varða
verkefni þeirra, s.s. kröfur vinnu-
eftirlitsmanna, áætlaðar breyting-
ar sem geta haft áhrif á starfsum-
hverfi o.þ.u.l. Öryggistrúnaðar-
menn og fulltrúar starfsmanna í
öryggisnefnd njóta þeirrar vemdar
sem félagslegir trúnaðarmenn hafa
samkvæmt lögum um stéttarfélög
og vinnudeilur.
Atvinnurekandi ber kostnað
vegna starfs að bættum aðbúnaði,
hollustuháttum og öryggi og bætir
þeim sem að því vinna tekjutap sem
af kann að hljótast. Kjör öryggis-
trúnaðarmanna og tilnefningu ör-
yggisvarða skal tilkynna Vinnueft-
irlitinu. Tilgangurinn með því að
halda skrá um þá er bæði sá að
tryggja að samband sé haft við
þá af eftirlitsmönnum stofnunar-
innar þegar þeir koma á staðinn
og að auðvelda sendingu frétta-
bréfs og annarra gagna til þeirra.
Um 1.700 öryggistrúnaðarmenn
og öryggisverðir eru nú á skrá hjá
Vinnueftirlitinu. Það vantar mikið
upp á að þeir séu til staðar hvar-
vetna þar sem starfsmenn hafa
rétt til að kjósa þá. Og víða eiga
Hörður Bergmann
atvinnurekendur og stjórnendur
opinberra stofnana eftir að nota
sér það tækifæri sem skipulegt
samstarf um vinnuvernd gefur til
að skapa gott og öruggt starfsum-
hverfi. Eitt af markmiðum vinnu-
vemdarársins hér á landi er að
bæta um betur.
Við höfum leyfi til að ætla að
bættur samstarfsandi fylgi skipu-
legu vinnuverndarstarfi - og heil-
næmt og öruggt starfsumhverfi
hafi bæði góð áhrif á líðan starfs-
manna og rekstur fyrirtækja og
stofnana. Hvort sem athygli
manna beinist að nýju markmiði
eins og gæðastjórnun eða gömlu
og góðu eins og lýðræði á vinnu-
stað þá ná menn ekki alla leið
nema hafa vinnuvernd með í mynd-
inni.
Höfundur er fræðslufulltrúi
Vinnueftirlits ríkisins.
NÁMSRÁÐGJÖF
ÞJÓNUSTA í ÞJÓÐARHAG
eftirÁstuKr.
Ragnarsdóttur.
Markmiðið með þessari grein er
að vekja athygli á starfsemi Náms-
ráðgjafar Háskóla íslands og mikil-
vægi hennar á tímum sem þessum.
Starfsemi Námsráðgjafar
Háskóla Islands
Hjá Námsráðgjöf Háskóla ís-
lands starfa 6 konur í 4,5 stöðugild-
um, og árlega aðstoðum við þúsund-
ir námsmanna. I fyrra sinntum við
t.d. á fjórða þúsund einstaklingsvið-
tala. Um helmingur þeirra sem til
okkar leita hafa ekki hafið nám á
háskólastigi. Þetta fólk kemur til
að kynna sér valkosti sína, og fá
ráðgjöf um nám við hæfí. í þessum
efnum bjóðum við upp á tvenns
konar leiðbeiningu. Annars vegar
viðtöl, þar sem áhugasvið einstakl-
ingsins er borið saman við valkosti
hans; hins vegar skriflega könnun,
með það fyrir augum að greina
áhugamál og hæfileika einstakþ
ingsins með tilliti til námsvals. í
kjölfar'þessara viðtala hefur stór
hluti þessa fólks nám við Háskóla
íslands, en margir fara einnig í
verknám, eða aðra skóla á háskóla-
stigi. Einhverjir falla frá þvi að
hefja framhaldsnám.
Um helmingur þeirra sem til
okkar leita er háskólanemar sem
þurfa ráðgjöf eða stuðning á meðan
á námi stendur. Þeim er boðið upp
á svonefnda námsstyrkingu, sem
m.a. felst í leiðsögn um bætt skipu-
lag og vinnubrögð til að stuðla
að auknum afköstum í námi.
Nemendum er auk þess kennt
að takast á við prófkvíða, og eru
t.a.m. haldin námskeið um það
efni. Hjá námsráðgjöfínni vinnur
sálfræðimenntað fólk, sem getur
aðstoðað nemendur við að kom-
ast yfir tímabundin persónuleg
áföll, svo sem í kjölfar veikinda,
skilnaðar eða. dauðsfalla.
Af öðrum hlutverkum námsráð-
gjafar má nefna aðstoð við fatlaða
nemendur, stuðning við réttinda-
baráttu námsmanna og árlega
kynningu á starfsemi Háskólans í
heild.
Fjárhagslegur ávinningur
Háskólanám er kostnaðarsamt
bæði fyrir námsmann og samfélag.
Meðalkostnaður háskólans fyrir
hvern nemanda er þannig um
300.000 kr. á ári, og ofan á þetta
bætist það fé sem nemandinn fram-
fleytir sér fyrir, hvort sem hann
nýtur aðstoðar Lánasjóðs íslenskra
námsmanna eða ekki. Af þessu má
sjá að hægt er að spara umtalsverð-
ar fjárhæðir með því að lágmarka
fjölda þeirra nemenda sem flosna
upp frá námi, tefjast í námi, eða
skipta um námsbraut. Erfítt er að
meta nákvæmlega árangur náms-
ráðgjafarinnar í þessum efnum, en
sem dæmi má nefna að ef 10%
þeirra nemenda sem leita aðstoðar
við námsval er forðað frá því að
eyða einu ári í námi sem síðan kem-
ur í ljós að hentar þeim ekki, spar-
ar Háskólinn 50 milljónir. Auk þess
sparar LÍN og nemendurnir sjálfír
tugrnilljónir.
Nú er samdráttar-
skeið í þjóðfélaginu.
Alls staðar eru seglin
dregin saman, jafnt í
einkageiranum sem hjá
hinu opinbera, og hefur
það m.a. leitt til mikils
niðurskurðar í heil-
brigðis- og menntakerf-
inu. Þrengingartímar
bitna á okkur öllum, en
ekki síst á æskufólki
sem þarf að taka mikil-
vægar stefnumarkandi
ákvarðanir varðandi
óvissa framtíð.
Staðan í dag
Eins og Sveinbjörn Björnsson,
háskólarektor, hefur bent á er mik-
ilvægi námsráðgjafar aldrei meira
en á samdráttartímum. Fyrir því
eru margvíslegar ástæður. Ein er
sú að með niðurskurðinum eykst
mikilvægi þess að hæfileikar nem-
enda og fjármunir háskólans séu
nýttir á markvissan hátt. Önnur er
sú óvissa sem blasir við ungu fólki
í kjölfar niðurskurðarins og þeirra
breytinga sem honum fylgja. Enn
önnur er sú aukna spenna og kvíði
sem þrengingartímar færa náms-
mönnum sem öðrum.
Á tímum sem þessum eykst
Ásta Kr. Ragnarsdóttir.
mikilvægi stofnunar sem stuðlar
að því að hæfileikar æskufólks
nýtist sjálfu því og samfélaginu
sem best.
Að lokum
Sumir segja ungt fólk í dag vera
stefnulaust — það viti ekki hvað
það vilji. Eitthvað kann að vera til
í þessu. Valfrelsið er mikið, svo og
ábyrgðin sem frelsinu fylgir, og
mörg ungmenni eiga erfítt með að
fínna sinn rétta farveg.
En við hjá Námsráðgjöfínni verð-
um einnig varar við aðra hlið þessa
máls. Hún snýr að ákveðni og sam-
viskusemi þeirra þúsunda náms-
manna sem ár hvert leita aðstoðar
námsráðgjafa, nýta sér hana, og
skipuleggja í kjölfar þess framtíð
sína. Þetta fólk þarf að koma til
móts við. Til þess er Námsráðgjöf
Háskóla íslands.
Höfundur er forstöðumaður
Násmráðgjafar Háskóla íslands.
LOKAÚTSALA ALLT Á KR. 500 ^síijas, PRUTTIÐ
Imarkaðshusið
Snorrabraut 56,
# Opið 12-18, lau. 10-14.
c
»
I
I