Morgunblaðið - 21.05.1992, Síða 20

Morgunblaðið - 21.05.1992, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAl 1992 Sameining rithöfunda og eftirköst hennar Fyrri grein eftir Sigurð A. Magnússon í Rithöfundasambandi íslands stendur fyrir dyrum stjórnarkjör, og hafa í því sambandi orðið minnihátt- ar viðsjár um kjör formanns, einsog eðlilegt er og sjálfsagt í samtökum sem virða leikreglur lýðræðis. Hins- vegar hafa orðið um það nokkur blaðaskrif þarsem íbland voru við- höfð stór orð og tilfinningaþrungin, sem kannski er ekki nema eðlilegt þegar í hlut eiga pennaliprir og geð- ríkir einstaklingar. Þvílíkar uppá- komur eru engin nýlunda í röðum rithöfunda, enda er því ekki að leyna að með þeim hafa verið ýmsar grein- ir allt síðan fyrstu samtök þeirra klofnuðu árið 1945. Ýmsir yngri höfundar og aðrir almennir borgarar virðast þekkja lítið til þeirrar löngu sögu, og hafa sumir þeirra komið að máli við mig og farið þess á leit, að ég gerði grein fyrir helstu áföng- um þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað undanfarna tæpa hálfa öld. Skal ég leitast við að verða við'þeirri bón eftir bestu samvisku. Þess er þá fyrst að geta að árið 1943 var Rithöfundafélag íslands stofnað. Þá höfðu rithöfundar sjálfir bein afskipti af úthlutun listamanna- launa og upp komu deilur innan fé- lagsins vegna úthlutunar til Halidórs Laxness og Gunnars Gunnarssonar. Það leiddi til þess að Gunnar Gunn- arsson sagði sig úr félaginu og hafði ekki frekari afskipti af félagsmálum íslenskra rithöfunda þartil vorið 1972, að hann féllst á að verða heið- ursfélagi sama félags, ef það mætti stuðla að sameiningu rithöfunda í einum samtökum. Einu eða tveimur misserum eftir úrsögn Gunnars Gunnarssonar úr Rithöfundafélagi íslands gerðist það síðan, að Guð- mundur G. Hagalín og níu félagar hans sögðu sig úr félaginu og stofn- uðu til nýrra samtaka undir heitinu Félag íslenskra rithöfunda. í öndverðu var látið svo heita að nýja félagið væri samtök „lýðræðis- sinnaðra" höfunda, en gamla félagið samtök kommúnista og „nytsamra sakleysingja“, enda var kaida stríðið í uppsiglingu og MacCarthyisminn á næsta leiti. Hinsvegar leiddu félaga- skrár í ljós, að sú skipting átti sér ósköp litía stoð í veruleikanum, enda voru meðal félagsmanna í Rithöf- undafélagi íslands menn á borð við Sigurð Nordal og Tómas Guðmunds- son (sem báðir voru heiðursfélagar), Steingrímur Þorsteinsson prófessor og Vilhjálmur Þ. Gíslason síðar út- varpsstjóri. Klofningur rithöfunda í tvær and- stæðar fylkingar var mikill dragbítur á alla kjarabaráttu, enda gekk hvorki né rak í þeim efnum meðan. þetta ástand ríkti. Árið 1957 komu raunsæir menn í báðum félögum sér saman um að stofna t.il svonefnds Rithöfundasambands íslands, sem átti í orði kveðnu að vera spor í þá átt að sameina félögin með tíð og tíma. En sú reyndist ekki raunin, heldur má segja að Rithöfundasam- bandið gamla hafi í reynd verið nokkurskonar staðfesting eða lög- gilding á klofningi sem heyrði til lið- inni tíð og átti sér engar raunhæfar forsendur þegar hér var komið — nema kannski þær að einstakir höf- undar þóttust betur geta skarað eld að sinni köku í klofnum og máttvana samtökum. Rithöfundasambandið gamla var ekki félag í neinum eigin- legum skilningi, heldur nokkurskon- ar brú milli félaganna tveggja — í raun einungis framkvæmdanefnd fimm manna sem félögin tilnefndu á tveggja ára fresti, þannig að ann- að félagið hafði þijá menn í „stjórn“ sambandsins eitt kjörtímabil, og síð- an hafði hitt félagið meirihluta næsta kjörtímabil. Sambandið kom sér samt upp lítilli skrifstofu með starfsmanni sem vann tvo tíma á dag, og það hafði á hendi samninga við Ríkisútvarpið sem yfirleitt gengu með miklum harmkvælum, enda gátu viðsemjendur jafnan bent á að rithöfundar væru í reynd klofnir og í röðum þeirra hver höndin uppá- móti annarri. „Klofningur rithöfunda í tvær andstæðar fylk- ingar var mikill drag- bítur á alla kjarabar- áttu, enda gekk hvorki né rak í þeim efnum meðan þetta ástand ríkti. Árið 1957 komu raunsæir menn í báðum félögum sér saman um að stofna til svonefnds Rithöfundasambands Islands, sem átti í orði kveðnu að vera spor í þá átt að sameina félög- in með tíð og tíma.“ Tillaga um sameiningu Formenn í Rithöfundasambandinu gamla voru: Guðmundur G. Hagalín (1957-1958), Stefán Júlíusson (1958-1960, 1962-1964 og 1966- 1968) Björn Th. Björnsson (1960- 1962 og 1964-1966), Einar Bragi (1968-1970), Matthías Johannessen (1970-1972) og undirritaður (1972- 1974). í stjómartíð Einars Braga var efnt til fyrsta rithöfundaþings 25.-26. október 1969. Þingstjórar voru kosnir Stefán Júlíusson, Indriði G. Þorsteinsson og undirritaður. í þeirri veiku von að hægt væri að höggva á hnútinn, sem mörgum var orðinn hvimleiður og sumum þótti nánast óleysanlegur, gerðist ég svo djarfur undir lok þingsins að bera fram tillögu þess efnis, að vinna bæri að sameiningu rithöfundafélag- anna í ein allsheijarsamtök. Undir þá tillögu tóku margir fundarmanna, meðal annars Matthías Johannessen þáverandi formaður Félags íslenskra rithöfunda, sem lýsti opinberlega yfir stuðningi við hana. Aðrir tóku henni dræmlega, til dæmis Gunnar M. Magnúss úr Rithöfundafélagi ís- lands. Samt urðu lyktir þær að tillag- an var samþykkt af yfirgnæfandi meirihluta þingheims. Að loknu rithöfundaþingi áttu stjórnir félaganna með sér viðræðu- fundi um málið, þarsem meðal ann- ars kom fram að enginn málefna- ágreiningur væri milli félaganna eða einstakra félagsmanna, enda væru innan vébanda beggja félaga höf- undar af öllum hugsanlegum bók- menntastefnum og stjórnmálaskoð- unum. Gátu þeir sem sátu þessa fundi ekki bent á nein skynsamleg rök fyrir því, að rithöfundar væru áfram tvístraðir í tveimur félögum. Nýkjörinn formaður Félags íslenskra rithöfunda, Guðmundur Daníelsson, lýsti yfir því á einum fundinum, að sín persónulega skoðun væri sú, að skipting rithöfunda í tvö félög væri fáránleg og þjónaði engum tilgangi öðrum en þeim að efla klíkuskap og sundrung í röðum stéttarbræðra sinna. Tillögur um sameiningu félags- manna beggja félaga voru bornar upp á framhaldsaðalfundum þeirra í júní 1970. Þær voru samþykktar með öllum greiddum atkvæðum í Rithöfundafélagi Íslands, en felldar með öllum greiddum atkvæðum gegn einu í Félagi íslenskra rithöf- unda. Var það vægast sagt einkenni- leg niðurstaða með hliðsjón af því, að hálfu ári áður höfðu langflestir JtLfECH _ mýtt á íslandi Eltech tölvur frá Bandaríkjunum sem ítrekað hafa fengið „BEST BUY“ umsögn í tímaritinu PC-World. Dæmi 1: 486SX/25 Mhz örgjörvi, 4Mb RAM, 120 Mb harðdiskur, 64k cache minni, 3,5“ og 5,25“ disklingadrif, 14“ háupplausnar litaskjár, 1Mb á skjákorti, MS-mús, stór turnkassi, MS-DOS 5.0 og Windows 3.1 með handbókum. Opnunartilboð kr. 198.500 stgr. Þessi vél fékk BEST BUY umsögn í mars sl. Hún er með útskiptanlegum INTEL-örgjörva sem gefur möguleika á einfaldri og ódýrri uppfærslu í 50 megarið og reikniörgjörva. Dæmi 2: 386DX/25 Mhz örgjörvi, 2 Mb RAM, 85 Mb harðdiskur, 64 cache minni, 3.5“ disklinga- drif, 14“ háupplausnar litaskjár, 1 Mb á skjákorti, MS-DOS 5.0 og Windows 3.1. Opnunartilboð kr. 149.500 stgr. Þessi vél fékk „BEST BUY“ umsögn í október sl. Dæmi 3: Frábærlega falleg fistölva (Notebook). Örgjörvi 386SX/20 Mhz, 2Mb RAM, 60 Mb harð- diskur, 32 gráskala VGA skjár, allir tengimöguleikar. Mögnuð vél á tilboðsverði, kr. 149.500 stgr. Seljum einnig OKI prentara, t.d. OL400 leysiprentara á kr. 89.900. Allur almennur hugbúnaður og deilihugbúnaður. HUGVER Laugavegi 168 gengt Brautarholti, sími 91-620707, fax 91-620706. þessara höfunda goldið sameining- artillögunni jákvæði á rithöfunda- þingi. Ekki kom fram viðhlítandi skýring á þessari snöggu viðhorfs- breytingu né heldur fréttist neitt um röksemdafræsluna sem hlýtur að hafa komið fram til stuðnings því, að viðhalda bæri sundrung og fé- lagslegu máttleysi rithöfunda. Skýringin kann að hafa verið sú að helmingaskipti voru reglan í Rit- höfundasambandinu gamla, en Fé- lag íslenskra rithöfunda var talsvert fámennara en Rithöfundafélag ís- lands. Árið 1972 voru 92 höfundar í Rithöfundafélagi íslands (að með- töldum 6 innlendum heiðursfélög- um), en í Félagi íslenskra rithöfunda voru félagar 67 (að viðbættum 4 erlendum heiðursfélögum). Vafa- laust hefur skammsýnum sálum í fámennara félaginu þótt hag sínum betur borgið með óbreyttu ástandi, en við blasti að hér var um að ræða skrípamynd að hefðbundum lýðræð- isvenjum, ekki síst vegna þess að fráleitt var að tala um tvo aðgreinda hagsmunahópa þarsem fámennari hópurinn yrði að tryggja sig gegn yfirgangi fjölmennari hópsins. Ég tók við formennsku í Rithöf- undafélagi íslands vorið 1971 og á framhaldsaðalfundi 21. september 1971 var enn reynt að finna færa leið til að koma félagsmálum rithöf- unda í eðlilegt horf. Þar var einróma samþykkt svohljóðandi ályktun: „Framhaldsaðalfundur í Rithöf- undafélagi íslands mælir með og samþykkir fyrir sitt leyti, að rithöf- undar, sem fullnægja núverandi inn- tökuskilyrðum í rithöfundafélögin, geti orðið beinir aðilar að Rithöf- undasambandi íslands. Því sam- þykkir fundurinn að óska eftir end- urskoðun á þeim samningi við Félag íslenskra rithöfunda sem Rithöf- undasamband íslands byggist á.“ Félagi íslenskra rithöfunda var send þessi ályktun í bréfi 24. septem- ber 1971, en svar við því barst í bréfi 22. janúar 1972, þarsem skýrt var frá því að félagið hefði skipað Ármann Kr. Einarsson og Þórodd Guðmundsson frá Sandi í viðræðu- nefnd um málið. Rithöfundafélag Islands skipaði okkur Einar Braga í þessa viðræðunefnd, en sannast sagna gekk ótrúlega illa að ná henni saman og enn verr að fá skýr svör við þeirri málaleitan Rithöfundafé- lags íslands að samningur félaganna yrði endurskoðaður með það fyrir augum að gera rithöfundum fært að ganga persónulega í Rithöfunda- samband Islands. Norræna rithöfundaráðið studdi ný samtök Sigurður A. Magnússon Ég var kosinn formaður Rithöf- undasambandsins gamla vorið 1972 og tók við af Matthíasi Johannessen. Lét ég þess getið að ég tæki við embættinu með það eitt fyrir augum að leggja gamla sambandið niður og stofna nýtt Rithöfundasamband með beinni aðild höfunda. Matthías var mjög vantrúaður á að það tæk- ist og sagði orðrétt: „Gamli vinur, þér tekst aldrei að sameina þetta sundurvirka lið.“ Ýmsir eldri félagar í Rithöfundafélagi íslands tóku í sama streng. í nýju stjórninni var Jónas heitinn Gudmundsson annar fulltrúi Félags íslenskra rithöfunda. Við fórum saman á ársfund Norræna rithöf- undaráðsins í Biskops Arnö sumarið 1972, og tjáði hann mér þá umbúða- laust að hann mundi gera allt sem í hans valdi stæði til að koma_ í veg fyrir sameiningu rithöfunda. Á árs- fundinum kom ég að máli við for- menn allra rithöfundasamtaka á Norðurlöndum og innti þá eftir því, hver yrðu viðbrögð Norræna rithöf- undaráðsins við upplausn gamla Rit- höfundasambandsins og tilkomu nýrra samtaka. Fékk ég þau ský- lausu svör að ný samtök fengju umsvifalaust aðild að ráðinu, og ef einhveijir úr gömlu félögunum kysu að halda í þeim lífi og standa utan nýju samtakanna, þá kæmi ekki til greina að þeir fengju aðild að ráð- inu. Þarmeð þóttist ég hafa fengið í hendur vopn til að beita í samein- ingarbaráttunni. Eftir mikið og langt þóf í fyrr- nefndri viðræðunefnd félaganna fengum við Einar Bragi um síðir talið viðmælendur okkar á að fallast á almenna atkvæðagreiðslu í báðum félögum um sameiningarmálið. Þór- oddur Guðmundsson var þó ákaflega tregur til að fallast á þá leið; þegar atkvæðagreiðslan var í burðarliðnum kom fram sú óvænta krafa frá Fé- lagi íslenskra rithöfunda, að þeir sem tækju þátt í hinni leynilegu atkvæða- greiðslu skyldu gefa til kynna á kjör- seðli í hvoru félaginu þeir væru. Á þá kröfu var að sjálfsögðu ekki fall- ist, og þráttfyrir mótmæli úr hópi andófsmanna var loks efnt til at- kvæðagreiðslunnar í maí 1973. í henni tóku þátt tæp 58% úr Félagi íslenskra rithöfunda og tæp 68% úr Rithöfundafélagi íslands. Niður- staða hennar varð sú, að 70 höfund- ar greiddu atkvæði með sameiningu, en 25 voru henni andvígir (2 at- kvæði voru ógild). í Tímanum, sem Indriði G. Þorsteinsson ritstýrði, fylgdi fréttinni þessi athyglisverða klausa: „Lítil líkindi eru þó talin á að af frekari sameiningu verði, þar eð annað félaganna er mjög andvígt sameiningu, í öðru formi en nú er. Atkvæði voru hins vegar talin sam- eiginlega úr báðum félögunum og gefa því ekki eins góða myfid af vilja manna í rithöfundafélögunum tveim, að því er talið er. Er því engra tíðinda að vænta í bráð af samein- ingarmálum." (Tíminn 23.5.1973.) Þegar niðurstaða um almennan vilja höfunda var fengin, tóku hjólin loks að snúast. Ég gekk á fund Matthíasar Johannessens, sem verið hafði formaður bæði Félags ís- lenskra rithöfunda og Rithöfunda- sambandsins, og hét hann að gera það sem í hans valdi stæði til að stuðla að sameiningu, enda hafði hann ásamt Guðmundi Daníelssyni sagt sig úr Félagi íslenskra rithöf- unda. Sömuleiðis lýstu bæði Guð- mundur G. Hagalín og Stefán Júlíus- son eindregnum stuðningi við hug- myndina og örvuðu mig til dáða. Efnt var til sameiginlegs fundar beggja félaga í Iðnó í október 1973 sem var fjölsóttur og furðanlega ein- huga miðað við það sem á undan var gengið, enda flutti Guðmundur G. Hagalín eldheita hvatningarræðu til félaga sinna. Kosin var sex manna sameiningarnefnd til að semja drög að lögum fyrir hin nýju samtök sem áætlað var að stofna vorið 1974. I nefndina voru kosin Ási í Bæ, Er- lendur Jónsson, Guðmundur G. Hagalín, Indriði G. Þorsteinsson, Vilborg Dagbjartsdóttir og undirrit- aður. Segja má að síðasta atriði í fyrra þætti þessa staglsama spil- verks hafi verið það, að á útmánuð- um 1974 samþykkti aðalfundur Rit- höfundafélags íslands einróma að leggja félagið niður og arfleiða væntanlegt Rithöfundasamband að eigum sínum. Því fór þó fjarri að öll spenna væri úr leiknum, og verður seinni þáttur hans rakinn í annarri grein. I I I i I I > Höfundur er rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.