Morgunblaðið - 23.05.1992, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992
Þorsteinn Pálsson siávarútvegsráðherra:
Stefna bæjarstjóm-
ar þýddi 5500 tonna
minni afla í Eyjum
Vestmannaeyjum.
„EF fiskveiðistjórnunin hefði verið bundin föst í upphafi eftir þeim
leikreglum sem tillaga Ragnars Óskarssonar og félaga í bæjarstjórn
Vestmannaeyja gerir ráð fyrir væru Vestmannaeyingar nú 5.500 þorsk-
ígildistonnum fátækari," sagði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
er Morgunblaðið fékk álit hans á samþykkt bæjarstjórnar Vestmanna-
eyja, þar sem skorað er á sjávarútvegsráðherra að láta afnema kvóta-
sölu.
Sungið í tilefni af ári söngsins
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Yngstu Akureyringarnir gerði sér glaðan dag í tilefni af ári söngsins í gær. Börn af dagvistarstofnunum
í bænum komu saman í Listagili, fóru í skrúðgöngu niður í bæ og sungu nokkur lög á Ráðhústorginu.
Tvær ferðir voru farnar, fyrir og eftir hádegi.
Tillögur um námsframvindu í úthlutunarreglum LÍN:
Undanþága vegna barnsburð-
ar verði bundin við mæður
Hugsanlega brot á jafnréttislögum, segir starfsmaður Jafnréttisráðs
í TILLÖGUM meirihluta sljórnar LÍN að nýjum úthlutunarreglum
fyrir næsta skólaár eru undanþágur frá kröfum um námsfram-
vindu hertar frá gildandi reglum. Er m.a. lagt til að ákvæði um
undanþágur vegna veikinda námsmanns, barns eða maka og að
faðir eða móðir geti nýtt sér aukið svigrúm vegna barnsburðar í
sex mánuði, verði breytt á þá lund að aðeins verði heimilt að víkja
frá kröfum um námsframvindu á hverju misseri ef um fyrsta árs
nema er að ræða, námsmaður verður veikur eða námsmaður elur
barn. Gunnar I. Birgisson, formaður stjórnar LIN, staðfesti að með
þessu væri gerð tillaga um að feður ættu ekki rétt á undanþágu
vegna barnsburðar og sagði að þar væri lítillega vikið frá gildandi
reglum.
Þorsteinn sagði að frá því kvófa-
kerfíð kom fyrst til framkvæmda
árið 1984 hafí Vestmannaeyingar
aukið hlutdeild sína í botnfiskaflan-
um talsvert. Árið 1984 hafi hlutdeild
Eyjamanna verið 8,5% af heildar-
botnfískaflanum en á síðasta ári
hafí hlutfall þeirra verið komið í
10%. Hann sagðist ekki gera ráð
fyrir að tillöguflutningsmenn í bæjar-
stjórn Vestmannaeyja hafi verið að
bjóðast til að skila frá Vestmannaeyj-
um því sem þangað hefur bæst við
til hinna sveitarfélaganna sem misst
hafa aflaheimildir en það kæmi sér
ekki á óvart að ýmsir mundu túlka
tillöguna á þann veg.
Þorsteinn sagði að eflaust mætti
deila um fiskveiðistefnuna. Aftur á
móti hefði sú stefna sem hann hefði
fylgt orðið til þess að aflahlutdeild
Vestmannaeyinga væri nú 5.500
tonnum meiri en hún hefði orðið ef
farið hefði verið eftir þeim reglum
sem bæjarstjómin samþykkti að rétt-
ar væru. Það segði sér að sú stefna
sem hann hefði fyigt væri Eyjamönn-
um hagsælli.
„Ég er ekkert að halda því fram
að tillaga Ragnars Óskarssonar og
félaga hafí verið illa ígrunduð. Hún
er eflaust flutt af góðum hug en
aðalatriðið er að menn geri sér grein
Kona kærir
fyrrverandi
sambýlis-
mann fyrir
nauðgnn
TUTTUGU og sex ára gömul
kona kærði þrítugan mann fyrir
nauðgun í húsasundi við Hverfis-
götu í fyrrakvöld. Maðurinn var
handtekinn síðar um kvöldið.
Málið var ekki upplýst í gær en
unnið að yfirheyrslum.
Um tíuleytið í fyrrakvöld kærði
konan nauðgun til lögreglunnar,
sakaði manninn um að hafa haft
samfarir við sig gegn vilja hennar.
Maðurinn er fyrrverandi sambýlis-
maður konunnar. Hann var hand-
tekinn undir míðnættið á bjórstofu
skammt frá þeim stað sem hinn
kærði atburður átti sér stað. Hann
var geymdur í fangageymslum lög-
reglunnar um nóttina.
fyrir hvaða niðurstaða er skynsam-
legust og leiði til mestrar farsældar
og það fer ekki á milii mála að Vest-
mannaeyjar hefðu skaðast mjög
verulega ef kerfið hefði verið fast
eins og gert er ráð fyrir í samþykkt
bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Vest-
mannaeyjar hafa getað aukið hiut-
deild sína og eru nú sterkara sjávar-
útvegspláss en þær hefðu ella verið
og ég sem þingmaður fyrir Vest-
mannaeyinga er auðvitað mjög
ánægður yfir því,“ sagði Þorsteihn.
Grímur
Stefanía Traustadóttir hjá Jafn-
réttisráði segir að samkvæmt jafn-
réttislögum sé kynbundin mismun-
un óheimil og út frá því mætti
draga þá ályktun að þetta ákvæði
í tillögum meirihluta stjórnar LÍN
sé brot á lögunum. Hún benti hins
vegar á að í lögunum segði einnig
að það teldist ekki mismunun að
taka sérstakt tillit til kvenna vegna
þungunar eða barnsburðar og
sagði hugsanlegt að þetta gæti
staðist samkvæmt því ákvæði en
þá vaknaði aftur sú spuming hvort
taka mætti rétt af körlum.
Aðspurður um þetta átriði sagði
Gunnar að menn gætu eins spurt
sig hvort það sé brot á jafnréttis-
lögum þegar sótt væri fæðingaror-
lof til almannatryggingakerfisins.
„Það verður einhvers staðar að
draga línurnar í þessu,“ sagði
hann.
í drögum stjórnarmeirihluta LÍN
er gert ráð fyrir að námsmaður
skuli að jafnaði ljúka 100% af fullu
námi samkvæmt skipulagi skóla
og að námseftirlit fari fram eftir
hvert misseri. Uppfylli námsmaður
ekki kröfur um námsframvindu
skuli námslán skerðast hlutfalls-
lega en samkvæmt gildandi reglum
hefur námsmönnum nægt að ljúka
75% af fullu námi til að fá fullt
námslán. Auk þess er lagt til að
námsmaður þurfi að ljúka í það
minnsta 75% af fuilu námi til að
eiga rétt á námsláni.
Gunnar sagði að með tillögum
um námsframvindu og um eftirá-
greiðslu lána væri verið að koma
í veg fyrir sjálftöku námslána í
upphafi misseris. „Með þessu erum
við að spara fé fyrir sjóðinn til að
halda okkur innan þess ramma sem
okkur var settur. Það er ekki
skemmtilegt verkefni,“ sagði hann.
Undanþáguákvæðið gerir ráð
fyrir að heimilt sé að víkja frá
kröfum um að námsframvinda á
hveiju misseri skuli að lágmarki
vera 75% af fullu námi en heildar-
Tekinn fyr-
ir að hnupla
oststykki
NOKKUÐ hefur borið á búðar-
hnupli í borginni undanfarna
daga. í fyrradag var lögreglan
kölluð þrívegis út vegna slíkra
mála. í eitt skiptið hafði maður
gengið út á nýjum skóm án þess
að borga, í annað skiptið var
fullorðinn maður stoppaður með
oststykki innan klæða og í þriðja
tilvikinu ætlaði drengur að laum-
ast út úr búð með kókdós.
Ekki er vitað hvað mikið er um
búðarhnupl en á síðasta ári var lög-
reglan í Reykjavík kölluð til í 232
slíkum málum. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar átti fólk 16 ára
og eldra þátt í þrem ijórðu tilvika.
f flestum tilvikum er um að ræða
tilraun til þjófnaðar úr stórmörkuð-
um og fatabúðum.
í fyrradag var lögreglan kölluð
í Kringluna. Þar hafði verslunarfólk
og öryggisverðir stoppað mann sem
gekk út úr tískuverslun á nýjum
skóm án þess að borga. Hann gat
'engar skýringar gefið á þessu.
Fimmtugur karlmaður var staðinn
að því í stórmarkaði í Skeifunni að
fara með oststykki að verðmæti 276
krónur innan klæða. Þá var lögregl-
an kölluð að verslun í Eddufelli þar
sem 14 ára drengur hafði ætlað að
laumast út með kókdós. Drengurinn
bar við peningaleysi.
svigrúm námsmanns, sem fær
undanþágu til að ljúka hveiju
námsferli, skal þó að jafnaði ekki
aukið í þessum tilfellum. Þarf
námsmaður því að hraða náminu
eftir veikindi eða barnsburð til að
öðlast rétt á fullu námsláni á ný
en námsmenn sem fullnægja skil-
yrðum um námsframvindu geta
samkvæmt tillögunum fengið lán
í allt að fimm ár samanlagt og í
fimm ár til viðbótar þegar um
framhaldsnám er að ræða að loknu
háskólaprófi.
I gildandi reglum er framfærslu-
grunnur lána til einstæðs foreldris
hækkaður um 50% fyrir hvert barn
en í tillögum meirihluta stjórnar
LÍN er þetta hlutfall lækkað í 35%.
Framfærslugrundvöllur vegna lána
til námsmanns í hjónabandi eða
sambúð er lækkaður úr 25% í
17,5% fyrir hvert barn.
Þá er gerð tillaga um að meðlag
verði talið til þeirra tekna náms-
manns sem geta haft áhrif á veitta
aðstoð á námstíma en meðlag hef-
ur til þessa ekki verið reiknað
námsmanni til tekna vegna náms-
lána samkvæmt gildandi reglum.
-----» ♦ ♦---
V estmannaeyjar:
Humarmok
í byrjun
vertíðar
V estmannaeyjum.
FYRSTA humrinum á vertíðinni
var landað í Eyjum í gær. Sjöfn
VE landaði þá 1,8 tonnum af
oslitnum humri eftir rúmlega
sólarhrings túr.
Rúnar Þórisson, skipstjóri á
Sjöfn, sagði aflann hafa verið góð-
an. Þeir voru í Háfadýpinu, austur
af Eyjum, og fengu aflann í fjórum
hölum. Hann sagði humarinn vera
talsvert blandaðan, eins og oft í
byijun vertíðar. Hann sagði að
mokveiði hefði verið í Lónsbugtinni
og þar hefði Sigurbára VE til dæm-
is fengið upp í hálft tonn af óslitn-
um humri í hali. - Grímur
Forsetakjör 27. júní:
Vigdís Finnboga-
dóttir ein í kjöri
UMBOÐSMENN Vigdísar Finnbogadóttur, forseta íslands, skiluðu
í gær inn framboði hennar vegna forsetakjörs 27. júní næstkom-
andi. Framboðsfrestur rann út á miðnætti í nótt, fimm vikum
fyrir kjördag. Framboð Vigdísar er hið eina sem barst og er hún
því sjálfkjörin forseti íslands til fjögurra ára, frá 1. ágúst 1992
til jafnlengdar 1996.
1 fréttatilkynningu frá umboðs-
mönnum Vigdísar Finnbogadóttur
kemur fram, að þeir hafi í gær
lagt fram skrár með nöfnum til-
skilins fjölda meðmælenda úr
hveijum iandsfjórðungi og vott-
orðum yfirkjörstjórna um að þar
væri um að ræða nöfn kosninga-
bærra manna, sem mæltu með
framboðinu. Þá hafí verið skilað
til dómsmálaráðuneytisins skrif-
legu samþykki Vigdísar Finn-
bogadóttur um að vera í framboði
og tilnefningu hennar á umboðs-
mönnum vegna framboðs og for-
setakjörs.
Vigdís Finnbogadóttir var fyrst
kjörin forseti íslands árið 1980.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands.