Morgunblaðið - 23.05.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGAJRDAGUR 23. MAI 1992
25
Alþjóðaherfræðistofnunin:
Utbreiðsla kjarnavopna
stöðvuð með hervaldi?
Lundúnum. Reuter.
ÖFLUGUSTU ríki heims kynnu
að þurfa að íhuga þann mögu-
leika að beita hervaldi til að
koma í veg fyrir að ríki þriðja
heimsins framleiddu kjarna-
vopn, að því er segir í árlegri
skýrslu frá Alþjóðaherfræði-
stofnuninni (IISS) sem gefin var
út í Lundúnum í gær.
Eldflaug-
um skotið í
Kabúl-borg
Kabúl. Reuter.
ELDFLAUGUM var skotið yfir
einskismannsland sem aðskilur
stríðandi fylkingar skæruliða í
suðurhluta Kabúl í gær, aðeins
einum degi eftir að tilkynnt
hafði verið um friðarsamkomu-
lag þessara aðila.
Hezb-i-Islami-skæruliðahópur-
inn, sem hefur komið sér fyrir í
útjöðrum borginnar, hélt því fram
að fjórir menn hefðu særst í
skotárásinni og að skæruliðar
Uzbeka bæru ábyrð á henni. Uz-
bekar héldu því á hinn bóginn fram
að Hezb-i-lslami-skæruliðahópur-
inn hefði skotið eldflaugunum.
Ekkert benti hins vegar til þess
að átök lík þeim sem geysuðu í
borginni í apríl og byijun maí,
brytust út á ný.
Stofnunin telur að útbreiðsla
kjarnavopna og annarra gjöreyð-
ingarvopna sé „að líkindum alvar-
legasta ógnunin við frið í heimin-
um nú“. Mest hætta stafi af Norð-
ur-Kóreumönnum, sem geti að
öllum líkindum framleitt kjarnork-
usprengjur mjög bráðleg. Þá sé
það því sem næst öruggt að ísrael-
ar hafi yfir kjarnorkueldflaugum
að ráða og Indveijar og Pakistan-
ir geti framleitt kjarnavopn að
vild sinni.
I skýrslunni eru Kínveijar, Isra-
elar og Norður-Kóreumenn sakað-
ir um að hafa flutt út „vopn sem
stefni friðnum í hættu“ með að-
stoð fyrirtækja í Evrópu, Japan
og Bandaríkjunum.
Stofnunin segir að besta leiðin
til að fá ríki í þriðja heiminum til
r
■ 'NUUK - Danir hafa fiykkst
frá Grænlandi síðustu þijú árin og
hafa „útlendingar“, eins og það
heitir samkvæmt skýrslum græn-
lensku hagstofunnar, ekki verið
færri í landinu í 20 ár. Þegar Græn-
lendingar fengu heimastjórn 1. maí
1979 dvöldust 8.700 útlendingar í
landinu, flestir frá Danmörku eða
Færeyjum, og ijöldi þeirra jókst
stöðugt fram til ársins 1989. Síð-
ustu þijú árin hefur þeim hins veg-
ar fækkað um 1.341 eða 14%, þar
af fluttu 640 fleiri Danir frá Græn-
landi í fyrra en til landsins. Alvar-
legast við þessa flutninga er að það
er einkum fólk með sérmenntun eða
fagkunnáttu sem flytur brott.
að hætta tilraunum sínum til að
framleiða kjarnavopn sé að leysa
svæðisbundin deilumál. Ella yrðu
„helstu herveldin annaðhvort að
íhuga að beita hervaldi eða horfa
upp á að heiminum verði ógnað
með örri fjölgun þéirra ríkja sem
geta... tortímt stórum hluta
þeirrar litlu siðmenningar sem
mannkyninu hefur til þessa tekist
að skapa.“
Tæland:
Reuter
Thinnawat Maruekapitak, einn helsti leiðtogi sljórnarandstöðu-
flokksins, Palang Dharma, hét mannfjölda sem kom saman við Minn-
isvarða lýðræðisins í Bangkok að flokkurinn myndi ekki unna sér
hvíldar fyrr en Suchinda Kraprayoon forsætisráðherra hefði verið
rekinn frá völdum.
Ríkisstjórnin ætlar að
velta Suchinda úr sessi
Bangkok. Reuter.
LEIÐTOGAR samsteypustjórnar fimm stjórnmálaflokka í Tælandi hafa
samhljóða samþykkt að beita sér fyrir brej’tingum á stjórnarskrá lands-
ins sem gera það að verkum að Suchinda Kraprayoon forsætisráð-
herra verður að segja af sér. Þessi samþykkt kemur í kjölfar mestu
óeirða í Tælandi í tvo áratugi og óttast sumir að allt að 80 óbreyttir
borgarar hafi fallið fyrir hendi hersins er þeir kröfðust afsagnar Suc-
hinda.
Montree Pongpanit, leiðtogi sósíal-
ista, sagði að það yrði ekki aftur
snúið með þessa ákvörðun. „Við höf-
um skrifað nöfn okkar undir
breytingartillöguna og beðið forseta
neðri deildar þingsins að hefja um-
ræður um málið nk. mánudag," sagði
Montree. Breytingartillagan snýst
m.a. um það að forsætisráðherra
landsins verði að koma úr röðum
lýðræðislega kjörinna þingmanna.
Pongpol Adireksarn, utanríkisráð-
herra landsins, var fyrstur stjórn-
arliða til að snúa baki við Suchinda
opinberlega. Hann sagði fréttamönn-
um í gær að Suehinda bæri ábyrgð
á fjöldamorðunum og hann yrði að
segja af sér. „Imynd þessarar þjóðar
breytist ekki fyrr en hann hefur sagt
af sér,“ sagði Pongpol.
Orðrómur er á kreiki í Bangkok
um að allt að eitt hundrað manns
hafi fallið fyrir hendi hermanna.
Þeir hafi brennt lík fómarlamba eða
hent þeim í ána Chao Phraya. I
gærmorgun söfnuðust mörg hundruð
manns saman á vettvangi átakanna
og minntust fórnarlambanna. Fjár-
málasérfræðingar telja að atburðir
síðustu daga muni hafa neikvæð
áhrif á efnahag landsins í mörg ár.
Fjárfestar frá iðnvæddum þjóðum
haldi að sér höndum varðandi fjár-
festingar í landinu og snúa sér eink-
um til Malasíu og Indónesíu.
VIRSTÖÐIN
Heimildarkvikmynd ífjórum
hlutum um sögu útgerðar og
sjávarútvegs Islendinga frá
árabátaöld fram á okkar daga.
Sýningar í Háskólabíói:
Laugardag 23. maí og sunnudag 24. maí
Laugardag 30. maí og sunnudag 31. maí
Aðgangur ókeypis.
Sýnd vegna fjölda áskorana
- aðeins þessar tvœr helgar.
1. hluti - Frá árabátum til véla (-1918) kl. 14:00
2. hluti - Bygging nýs íslands (1920 -1950) kl. 15:15
3. hluti - Baráttan um fiskinn (1950-1989) kl. 16:30
4. liluti - Ár í útgerð (1989) kl. 17:40
Umsagnir um myndina:
'Verstöðin ísland flokkast unisvifalaust undir það
besta, sem við höfum gert í kvikmyndagerð yfir
höfuð. Stórbrotið, skemmtilegt og
vandvirknislegt verk sem á sér aðeins eina
hliðstæðu í öðm meistarastykki, Islenskum
sjávarháttum Lúðvíks Kristjánssonar."
SV, Mbl. 16/5 '92
"Sainan mynda hlutarnir fjórir skennntilegasta,
ítarlegasta og heilsteyptasta upplýsingabanka um
íslenskan sjávarútveg sem Víkverji minnist að
hafa litið auguin - ekki þurrar hagtölur heldur
upplifun í myndum og máli..."
Víkverji, Mbl. 8/5 '92
"Hér sjáutn við útvegsmálin í nýju ljósi.
Komumst í snertingu við rammíslenskan
raunveruleika og tökum á púlsi atvinnulífsins..."
.S'K Mbl. 16/5 '92
"Allt áhugafólk um íslenskt atvinnulíf ætti ekki
að láta þessa mynd fram hjá sér fara meðan hún
er sýnd á stóru tjaldi í Háskólabíói..."
Víkverji, Mbl. 8/5 '92
"Þetta er mynd sem hverjum íslendingi ber
eiginlega skylda til að sjá, ef hann ætlar að botna
hætis hót í líflnu á þessari eyju okkar. Og það á
stóru kvikmyndatjaldi. Á litlum sjónvarpsskermi
verður hún eins og listaverk á frímerki."
E. Pá. Gárur 17/5 '92
"Hér hafa verið sköpuð ómetanleg
menningarverðmæti."
SV, Mbl. 16/5 '92