Morgunblaðið - 23.05.1992, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992
( . (
iíltsíöur ni H
a morgun V j ww&h, •þafln
ÁSKIRKJA: Sameiginleg guðs-
þjónusta Ás- og Laugarnes-
sókna kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson prédikar. Drengjakór
Laugarneskirkju syngur. Organ-
isti Ronald Turner. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BUSTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Arna, Gunnar og Sigurjón.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Sigur-
jón Árni Eyjólfsson messar.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00.
Ferming, altarisganga. Fermd
verður Kristín Taylor, pf.
Bræðraborgarstíg 13, Rvk. Dóm-
kórinn syngur. Organisti Mart-
einn H. Friðriksson. Sr. Hjalti
Guðmundsson. Miðvikudag kl.
12.10: Hádegisbænir í kirkjunni.
Léttur málsverður á kirkjuloftinu
og kl. 13.30—16.30 samvera
aldraðra í safnaðarheimilinu.
Tekið í spil. Kaffiborð, söngur,
spjall og helgistund.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðs-
þjónusta kl. 10.00. Sr. Baldur
Sigurðsson.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl.
11.00. Prestur sr. Halldór S.
Gröndal. Organisti Árni Arin-
þjarnarson. Þriðjudag: Kyrrðar-
stund kl. 12.00. Orgelleikur í 10
mínútur. Fyrirbænir, altaris-
ganga og léttur hádegisverður
og kl. 14.00 biblíulestur og
kirkjukaffi. Sr. Halldór S. Grön-
dal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Tómas Sveinsson. Mánudag:
Biblíulestur kl. 21.00. Kvöldbæn-
Guðspjall dagsins:
Jóh. 16.:
Biðjið í Jesú nafni.
ir og fyrirbænir eru í kirkjunni á
miðvikudögum kl. 18.
LANDAKOTSSPÍTALI: Messa í
kapellu kl. 13. Organisti Birgir
Ás Guðmundsson. Kjartan Örn
Sigurbjörnsson sjúkrahúsprest-
ur.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Hesta-
messa kl. 11. Prestur sr. Ingólfur
Guðmundsson. Ræðumaður sr.
Sigurður Haukur Guðjónsson.
Kór Langholtskirkju (hópur II) og
Fákskórinn leiða sönginn. Blás-
arasveit undir forystu Lárusar
Sveinssonar. Gunnar Eyjólfsson
og Klemens Jónsson lesa
ritningarlestra. Heit súpa eftir
athöfnina. Aftansöngur alla virka
daga kl. 18.
LAUGARNESKIRKJA: Sameigin-
leg guðsþjónusta Ás- og Laugar-
nessókna í Áskirkju kl. 11. Sr.
Jón D. Hróþjartsson prédikar.
Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson
þjónar fyrir altari. Drengjakór
Laugarneskirkju syngur. Söng-
stjóri og organisti Ronald Turn-
er.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Sr. Frank M. Halldórsson.
Miðvikudag: Bænamessa kl.
18.20. Sr. Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Guðfræðinemar
koma í heimsókn og lesa ritning-
arlestra. Bára Friðriksdóttir
stud. theol. prédikar. Organisti
Gyða Halldórsdóttir. Prestur sr.
Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Miðvikudag: Kyrrðarstund kl. 12.
Söngur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur hádegisverður í safnaðar-
heimilinu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón-
usta á bænadegi hinnar íslensku
þjóðkirkju kl. 11 árdegis. Eiður
Guðnason umhverfisráðherra
flytur stólræðu. Helga Þórarins-
dóttir leikur á víólu. Organleikari
Sigrún Steingrímsdóttir. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Daníel
Jónasson. Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu þriðjudag kl.
18.30. Sr. Gísli Jónasson.
DIGRANESPRESTAKALL:
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 14. Sr. Þorþergur Kristjáns-
son.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr.
Hreinn Hjartarson. Organisti
Guðný M. Magnúsdóttir. Eftir
guðsþjónustuna verður aðal-
fundur Fellasafnaðar haldinn.
Prestarnir.
HJALLAPRESTAKALL: Messu-
salur Hjallasóknar, Digranes-
skóla. Guðsþjónusta kl. 11. KÓr
Hjallasóknar syngur. Organisti
Oddný Þorsteinsdóttir. Kristján
Einar Þorvarðarson.
KÁRNESPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 11.
Organisti Sighvatur Jónasson.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SEUAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Kjartan Sigurjóns-
son. Molakaffi eftir guðsþjón-
ustuna. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í Rvfk: Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Vænst er þátttöku
nemenda Fermingarskólans.
Miðvikudaginn 27. maí kl. 7.30
morgunandakt. Orgelleikari Pav-
el Smid. Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Messa kl. 8.30. Hámessa kl.
10.30. Fermdur verður Gísli Kort
Kristófersson, Skógarási 1, Rvík.
Messa kl. 14 og ensk messa kl.
20. Laugardaga messa kl. 14 og
ensk messa kl. 20. Aðra rúm-
helga daga messa kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti:
Messa kl. 11. Laugard. messa
kl. 14, fimmtud. kl. 19.30. Aðra
rúmhelga daga kl. 18.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Útisam-
koma kl. 16 á Lækjartorgi. Hjálp-
ræðissamkoma kl. 20. Óskar
Einarsson stjórnar. Ingibjörg
Jónsdóttir prédikar. Jóhannes
Ingimarsson syngur einsöng.
KFUM/KFUK: Samkoma í
kristniboðssalnum kl. 20.30.
Ræðumaður Ragnar Gunnars-
son.
VEGURINN, Kópavogi: Fjöl-
skyldusamkoma kl. 11. Guðni
Þorvaldsson prédikar. Almenn
samkoma kl. 16.30, ræðumaður
Gautur Steingrímsson og al-
menn samkoma kl. 20.30. Björn
Ingi Stefánsson prédikar. Mið-
vikudag kl. 18 biblíulestur, sr.
Halldór S. Gröndal.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa í Mosfellskirkju kl. 14.
Sr. Gunnar Kristjánsson á Reyni-
völlum í Kjós. Hestamenn mun
koma í hópreið til messu. Sr. Jón
Þorsteinsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
VÍÐISTAÐASÓKN: Guðsþjón-
usta í Víðistaðakirkju og guðs-
þjónusta í Hrafnistu kl. 13. Kór
Víðistaðasóknar. Organisti sr.
Sigurður Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Messa kl. 14. Altarisganga. 50,
60 og 70 ára fermingarbörn
heimsækja kirkjuna og hittast að
messu lokinni í veitingahúsinu
Skútunni. Organisti Helgi Braga-
son. Sr. Gunnþór Ingason.
KAPELLAN, St. Jósefsspítala:
Messa kl. 10. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl.
8.
KÁLFATJARNARKIRKJA: Kirkju-
dagur. Guðsþjónusta kl. 14. Kór
kirkjunnar syngur undir stjórn
Franks Herlufsens. Sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir prédikar.
Einsöngur Sigrún Ingadóttir.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 21. Sr. Baldúr
Rafn Sigurðsson.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 16.
HVALSNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Barn borið til skírn-
ar. Sr. Hjörtur Magni Jóhanns-
son.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Hjörtur Magni
Jóhannsson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Messa
kl. 14. Minnst 20 ára vígsluaf-
mælis kirkjunnar. Sr. Jónas
Gíslason vígslubiskup prédikar.
Tónleikar í kirkjunni kl. 17. Sr.
Tómas Guðmundsson.
AKRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Organisti Jón Ól. Sigurðsson. Sr.
Björn Jónsson.
BORGARPESTAKALL: Messa í
Borgarneskirkju kl. 11. Sóknar-
prestur.
33
Norræna húsið:
Kynning á
stangveiði
í silungs-
vötnum
FJÖLBREYTT dagskrá um
stangveiði í silungsvötnum verð-
ur í Norræna húsinu á morgun,
sunnudag, en þar munu m.a.
nokkrir landufrægir veiðimenn
fjalla um veiðiskap og sýna listir
sínar. Dagskráin er ætluð fyrir
alla fjölskylduna og spannar allt
frá umfjöllun um Iítt þekkt en
fengsæl veiðivötn til fluguhnýt-
inga, fiskverkunar og kast-
kennslu. Þá verða kynntar nýj-
ungar í veiði- og útivistarbúnaði.
Innan dyra í Norræna húsinu
mun Gylfi Pálsson fjalla um silungs-
veiði sem útivistaríþrótt fyrir alla
fjölskylduna og Margrét Jóhanns-
dóttir fjallar um þá þjónustu sem
Ferðaþjónusta bænda býður upp á
fyrir stangveiðimenn, auk þess sem
hún kynnir „Veiðiflakkarann." Þá
mun Kristján Guðjónsson sýna
hvernig hnýta á góðar flugur, Rafn
Hafnfjörð segir veiðisögur í lit-
skyggnum og Landssamband veiði-
félaga kynnir „Vötn og veiðar“,
upplýsingahefti um 450 veiðivötn.
Utan dyra verður kastkennsla við
tjörnina við Norræna húsið, og
verða leiðbeinendur þeir Kolbeinn
Grímsson og Þorsteinn Þorsteins-
son. Þá sýnir Skúli Hauksson sil-
ungsbóndi í Útey í Laugardal verk-
un og meðferð á silungi.
------------
Fyrirlestur
um ofvirk börn
SÓLVEIG Ásgrímsdóttir sál-
fræðingur og Rósa Steinsdóttir
artþerapisti halda fyrirlestur um
Sjálfsmynd og tilfinningalíf of-
virkra barna mánudaginn 25.
mai kl. 20.30 i Æfingadeild Kenn-
araháskólans.
Báðar eru með mikla reynslu af
vinnu við ofvirk börn. Um er að
ræða síðasta fyrirlestur vetrarins
og er aðgangur ókeypis.
• •
KARTOFLUR
Blóm vikunnar
Umsjón: Ágústa Björnsdóttir
234. þáttur
Kartafla er sú matjurt sem
mest er ræktuð hér á landi. Heim-
ilisræktun er mikil, þar sem fólk
ræktar karföflur fyrst og fremst
sér til ánægju. Þá eru ræktuð
fljótsprottin afbrigði til að taka
upp snemma sumars og einnig
afbrigði sem hverjum og einum
finnst góðar til matar og geymast
fram á veturinn. Kartöfluútsæði
þarf að setja í spírun um mánaða-
mótin mars/apríl. Eitt til tvö lög
af útsæði eru sett í grunna kassa.
Ofan á kartöflurnar skal setja
dagblað og láta það vera ofan á
þar til spírurnar fara að koma úr
augunum. Þá skal taka dagblaðið
ofan af útsæðinu óg láta það vera
í birtu. 2-3 cm háar spírur eru
æskilegar þegar útsæðið er sett
niður í garðinn. Kartöflumar
þurfa djúpan sandblandinn mold-
arjarðveg eða vel fúinn mýratjarð-
veg. Áburðarþörf í heimilisgarða
er 12-15 kg af alhliða tilbúnum
garðáburði á 100 fm. Hafí fólk
tök á að ná i kúamykju er áburðar-
þörfin 800-1.000 kg á 100 fm og
í flestum tilfellum er þá rétt að
dreifa til viðbótar 1-2 kg af kalk-
saltpétri milli kartöflugrasanna
þegar þau eru komin vel upp. í
stað kúamykju er hægt að nota
hrossatað og nota þá um 1.200
kg. á 100 fm ásamt kalksaltpétri.
Hrossatað dregur í sig hita og
vermir moldina betur en kúamykj-
an. Oft kemur fyrir að kartöflu-
grös verða mjög há, e.t.v. meira
en metri á hæð. Stönglarnir eru
þá grannir og blöðin fremur lftil.
Þegar líður á sumarið vilja þessi
háu grös leggjast út af, einkum
í roki og rigningu og rétta sig þá
ekki við aftur. Myndast þá mikil
grasaflækja, raki er mikill í
stönglum og blöðum sem getur
leitt til þess að loft kemst ekki
að niður við moldina og getur það
leitt til þess að kartöflumyglu
getur orðið vart, sérstaklega ef
lofthitinn er hár. í slíku umhverfí
koma garðsniglar og éta laufblöð-
in. Undir háum grösum er yfir-
leitt mikið smælki og í sumum
tilfellum fáar kartöflur og smáar.
Þessi óeðlilegi vöxtur stafar yfir-
leitt af því að í jarðveginum er
of mikið af köfnunarefni (salt-
pétri), sem eykur blaðvöxt. Þeir
garðræktendur sem hafa slíkan
garð ættu aðeins að nota þrífosfat
eða súperfosfat og brennisteinss-
úrt kalí í garðinn en sleppa köfn-
unarefnisáburði alveg í 2-3 ár
og einnig búfjáráburði. Hæfilegur
skammtur af þrífosfati er 2-4 kg
og 6-9 kg af brennisteinssúru
kalí í 100 fm. Ef um litla heimilis-
garða er að ræða er ráðlegast að
hætta alveg kartöflurækt í 2-3
ár og rækta þá í staðinn blað-
grænmeti sem þarf mikinn köfn-
unarefnisáburð. Má þar til nefna
blaðsalat, spínat, grænkál,
strandblöðku (silfurblöðku eða
spínatblöðku), steinselju eða kál-
blöðku. Framangreindar tegundir
draga til sín köfnunarefnið úr
jarðveginum á 2-3 árum og eftir
þann tíma ætti köfnunarefnisjafn-
vægið að vera komið í lag svo
hægt verði að rækta þar kartöflur
aftur með góðum árangri. Mörg
kartöfluafbrigði eru í ræktun hér
á landi. Snemmsprottið afbrigði
er Dore, sem hefur egglaga kart-
öflur. Hýðið og holdið er gult. Er
næm fyrir kartöflumyglu og
kláða. Það er hægt að losna við
kláðann úr garði með þvi að bera
brennistein í hann. Bintje er í
meðallagi snemmsprottin tegund.
Kartöflurnar eru sverar og af-
langar, hýðið og holdið ljósgult.
Þær eru næmar fyrir kláða, stöng-
ulsýki og stöngulveiki. Eyvindur
(Kerr’s Pink) hefur svera stöngla
og stór blöð. Kartöflumar eru
hnöttóttar, rauðar eða jafnvel
bleikar, holdið ljósgult. Þolir dálítð
kartöflumyglu og næturfrost, en
eru næmar fyrir stöngulveiki.
Gullauga er fremur seinþroska.
Kartöflurnar hnöttóttar með djúp-
um augum. Hýðið gult en blárauð
augu. Holdið er gult. Kartöflurnar
eiga til að springa, sérstaklega
eftir vætutíð og þær þurrkaðar í
sólskini. Þær eru næmar fyrir
stöngulveiki, kartöflumyglu og
veirum. Hér á landi eru í ræktun
tveir stofnar af gullauga sem hafa
verið hreinsaðir af kartöflumyglu,
stöngulveiki og veirum. Verði vart
við kartöflumyglu í gullauga,
Helgu eða öðrum afbrigðum er
rétt að úða grösin með efninu
Bitdomil M 2. Helga á gullaugað
að foreldri og fékkst með úrvali
út frá einni kartöflu. Kartöflurnar
eru hnöttóttar með djúp augu og
nafla. Hýðið rauðbleikt og holdið
gult. Helga er næm fyrir kartöflu-
myglu, stöngulveiki og veirum.
Hún er meðal snemmsprottin.
Mandla er meðalhátt afbrigði,
stönglar grannir, blöðin mörg og
lítil. Grasið leggst útaf í roki og
rigningu. Kartöflur eru möndlu-
laga, sívalar og bognar; breiðari
í annan endann og mjókka í hinn
þar sem naflinn er. Mandlan er
seinsprottin, vex best í sand-
kenndri mold. Þær geymast vel.
Kartöflurnar eru bragðgóðar og
þurrefnisríkar.
Einar Ingi Siggeirsson