Morgunblaðið - 23.05.1992, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992
35
Þorbjörg Þórhalls
dóttir - Minning
Þórdís U. Stefáns-
dóttir - Kveðjuorð
Aðfaranótt 15. maí lést á hjarta-
deild Landspítalans mikil öðlings-
kona sem mig langar með örfáum
orðum að votta djúpa virðingu mína
og jiakklæti.
Eg kom í fyrsta sinn á heimili
Þorgbjargar Þórhallsdóttur í Skeið-
arvogi 89 hér í borg fyrir meira en
aldarfjórðungi. Hún var þá nýflutt
til Reykjavíkur með bömin sín eftir
að hafa misst mann sinn, Ara Krist-
insson sýslumann, nokkrum mán-
uðum áður. Missir hennar var mik-
ill og sorgin sár.
En hún æðraðist ekki, hún hafði
verk að vinna, verk sem ævinlega
hafði forgang, og það var að hlúa
að börnunum, uppfylla þeirra þarfir
og gera það vel. Hún var falleg og
létt í spori þá sem ætíð, og yfir
henni sú reisn sem einkenndi allt
hennar líf. Ég skynjaði það þá þeg-
ar, þó ég væri ung og óþroskuð,
að þarna fór kona mikilla mann-
kosta. Það fékk ég svo að sann-
reyna með árunum.
____________Brids________________
Umsjón Amór G. Ragnarsson
Afmælishátíð Bridsfélags
Reykjavíkur
Afmælishátíð Bridsfélags
Reykjavíkur hefst nk. miðvikudag
kl. 19.30 með firmasveitakeppni.
Verða spilaðar 10 umferðir, þijár á
miðvikudeginum og sjö á fimmtu-
deginum. Byijað verður að spila kl.
10 fimmtudaginn 28. maí og áætluð
mótslok um miðnætti. Spilað verður
eftir Monrad-kerfi og er ölium
heimil þátttaka. Keppnisgjald er 12
þúsund kr. á sveit. Spilað verður á
Holiday Inn.
Föstudaginn 29. maí spila þijár
sveitir frá BR við Breta, Pólveija
og Svía og fer sú keppni einnig
fram á Iioliday Inn.
Laugardaginn 30. maí kl. 10
hefst fjögurra umferða tvímenning-
ur sem spilaður verður með Mitc-
hell-fyrirkomulagi og er þátttaka
öllum heimil. Þar verða útlendingar
að sjálfsögðu með. Spilað verður í
Perlunni og spilaðar tvær umferðir
á laugardag og sunnudag. Þátttök-
ugjald er 10 þúsund krónur fyrir
almenna spilara en 7 þúsund fyrir
félagsmenn BR, og er hádegisverð-
ur innifalinn á laugardag. Skráning
í bæði þessi mót er nú í fullum
gangi hjá Bridssambandinu og
stjórn BR og eru félagar BR og
aðrir sem áhuga hafa hvattir til að
láta skrá sig, en lokaskráning er
kl. 12 nk. mánudag.
Lokahóf afmælishátíðar Bridsfé-
lags Reykjavíkur verður í ráðhúsinu
á sunnudagskvöldið en þar verða
aflient verðlaun fyrir keppnir hátíð-
arinnar.
Bridsfélag Breiðholts
Sl. þriðjudag var spilaður eins
kvölds tvímenningur. Röð efstu para
varð þessi:
Haraldur B. Gunnlaugsson - Rúnar Einarsson 191
Bryndls Þorsteinsdóttir - Ólöf Þorsteinsdóttir 168
Kolbrún Thomas - Einar Pétursson 166
Halldór Armannsson - Gísli Sigurkarlsson 165
Næsta þriðjudagskvöld fer fram
verðlaunaafhending fyrir aðalkeppnir
vetrarins, frá áramótum. Verðlauna-
hafar minntir á að mæta. Einnig verð-
ur spiluð létt rúberta. Allir velkomnir.
Visa-bikarkeppnin 1992
Skráningarfrestur vegna Visa-bik-
arkeppninnar rennur út föstudaginn
29. maí. Þeir sem eiga eftir að skrá
sveitir eru vinsamlega beðnir um að
gera það sein fyrst í síma Bridssam-
bands íslands 91-689360. Þetta er
gullstigakeppni og aðeins greitt þátt-
tökugjald fyrir þá leiki sem spilaðir
eru, gjaldið fyrir umferð er 3.000 kr.
á sveit.
Spilaðir eru 40 spila leikir og leikur-
inn er spilaður þar sem sú sveit á
heima sem dregst á undan. Gefinn
verður u.þ.b. mánuður til að ljúka
hverri umferð en fyrirliðar þeirra
sveita sem eiga að spila koma sér
saman um keppnisdag.
Ein með átta börn á aldrinum
eins til átján ára, hóf hún á þessum
tíma að leggja grunninn að því að
skapa þeim öryggi og skjól á nýjum
stað við nýjar aðstæður. Ávöxturinn
varð mannmargt, glaðvært og
rausnarlegt heimili, sem öllum stóð
opið og allir löðuðust að.
Fyrst voru það vinir barnanna,
svo fóru að koma tengdabörn og
barnabörn og það skipti engu máli
hversu mikið fjölgaði í ættinni, í
Skeiðarvogi var alltaf nóg hjarta-
rúm og þar með rými fyrir alla. Það
var ekki alvöru helgi nema litið
væri við í Skeiðarvogi og notið
óþijótandi örlætis og rausnar
mömmu, tengdamömmu og ömmu
Obbu. Á svipstundu töfraði hún
fram kræsingar, settist svo í stólinn
sinn. Teinrétt og tíguleg horfði hún
þaðan yfir hópinn og gætti þess að
allir fengju nægju sína og liði sem
best. Þarna sló hjarta stóríjölskyld-
unnar hennar.
Skarðið sem hún skilur eftir sig
er stórt og ég veit að hennar verð-
ur óskaplega sárt saknað af mörg-
um litlum og stórum manneskjum.
Þó leiðir okkar skildu að miklu
leyti fyrir meira en tíu árum, skildu
þær þó aldrei alveg. Á sinn hijóða
hátt leyfði hún mér alltaf að finna
að hún væri vinur minn. Hún dæmdi
ekki, hún fjasaði ekki, hún var. Ég
get ekki fullþakkað henni allt sem
hún hefur verið fyrir drengina mína
og gefið þeim, né allt sem hún
kenndi mér og gaf.
Hún kvaddi þennan heim með
hópinn sinn í kringum sig, hópinn
sem var henni allt og sannarlega
ber ævistarfið henni fagurt vitni.
Hún kvaddi hljóðlega og með reisn.
Eins og hún lifði.
Glæsilegu dagsverki er lokið. Það
var unnið í kyrrð, af æðruleysi og
í kærleika og heldur áfram að gefa
af sér í fagurri minningu.
Skeiðarvogsfjölskyldunni stóru,
systkinum og öðrum ástvinum Þor-
bjargar Þórhallsdóttur sendi ég
innilegar samúðarkveðjur og bið
algóðan Guð að vera með ykkur í
söknuði ykkar og sorg.
Minningin um góða kona mun
lifa og veita þeim birtu og yl sem
fengu að njóta samfýlgdar hennar.
Hafi hún þökk fyrir allt og allt.
Jóna Lísa.
Hinn 30. júní 1940 kvöddumst
við skólasystkinin á íþróttakenna-
raskólanum að Laugarvatni eftir
að hafa dvalið þar saman í 9 mán-
uði við erfitt en ánægjulegt nám.
Hver hélt nú til síns heima með
íþróttakennarapróf upp á vasann,
full áhuga að takast á við verkefn-
in á heimaslóðum.
En söknuðurinn var mikill. Á
skólatímanum hafði þessi fámenni
hópur, 2 piltar og 4 stúlkur, orðið
mjög samrýndur og tengst vináttu-
böndum. En nú lágu vegir til allra
átta og eftir þetta var vík milli vina.
Það fór líka svo að á lífsleiðinni
höfum við sára sjaldan hist. Það
var aðeins á stórafmælum sem við
mæltum okkur mót. Síðast var það
að Laugarvatni á 50 ára íþrótta-
kennaraafmæli okkar, 30. júní
1990. Þá vorum við öll glöð og
hraust og fögnuðum með skóla-
stjórahjónunum vexti og viðgangi
íþróttakennaraskóla íslands.
„En bilið er mjótt milli blíðu og
éls.“ Nú getur þessi Jitli hópur aldr-
ei fagnað sameiginlega, því ein úr
hópnum er horfin yfir móðuna
miklu, en það er hún Obba okkar,
réttu nafni Þorbjörg Þórhallsdóttir.
Obba, eins og við kölluðum hana
alltaf, var einstaklega fíngerð og
falleg stúlka og svo svífandi létt
og fim, en þó svo ótrúlega sterk.
Hún skaraði framúr í öllum þeim
íþróttum sem hún lagði stund á og
var einnig vel gædd andlegum gáf-
um og mun hún hafa tekið hæsta
próf frá íþróttakennaraskólanum
til þess tíma sem hún útskrifaðist.
Þegar við vorum á íþróttakenn-
araskólanum var það ekki til siðs
að stúlkur stunduðu mikið fimleika
á áhöldum. Obba var þó stöku sinn-
um að laumast í æfingar á dýnu
og lék sér fljótt að öllum þeim
stökkum sem strákar voru þá að
glíma við og sem nú eru einnig
orðin algeng í fimleikum stúlkna.
Líklega er Obba fyrsta stúlkan á
íslandi sem lék þessar listir.
Það varð þó ekki hlutskipti Obbu
að gera íþróttakennslu að ævistarfí
en við erum viss um að veganestið
sem hún tók með sér frá Iþrótta-
kennaraskólanum að Laugarvatni
hefur orðið henni dýrmætt á lífsleið-
inni sem og okkur skólasystkinum
hennar.
Hennar lífsstarf var erfitt en
göfugt. Hún varð móðir 8 barna
og háði lífsbaráttu ein eftir fráfall
eiginmanns síns, Ara Kristinssonar
sýslumanns.
Við vitum að það verða aðrir sem
fjalla nánar um lífshlaup Þorbjargar
Þórhallsdóttur. Þetta áttu aðeins
að verða fáein kveðju- og þakkar-
orð til okkar yndislegu skólasystur.
Um leið sendum við börnum
hennar, tengdabörnum, barnabörn-
um svo og öðrum ættingjum og
vinum innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Þorbjargar
Þórhallsdóttur.
Skólasystkinin frá íþrótta-
kennaraskólanum að Laugar-
vatni árið 1939-40.
Fædd 2. maí 1975
Dáin 11. maí 1992
Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið,
og enn ég veit margt hjarta harmi lostið
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu á eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt hjarta vor í hugum vina þinna.
Sem sjálfur Drottinn mildur lófa lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki.
(Tómas Guðmundsson.)
Um leið og ég þakka fyrir vináttu
Dísu, votta ég fjölskyldu hennar og
vinum dýpstu samúð. Megi góður
Guð styrkja ykkur á komandi tímum.
Kristín Björg.
Líf okkar er eins konar vegur.
Vegur sem er misbrattur og misauð-
veldur yfirferðar. Á leið okkar eftir
veginum þurfum við öll að takast á
við ýmsar þrautir. Ein þeirra er að
hefja skólagöngu í nýjum skóla. Það
er okkur öllum erfitt að þurfa að
byija að aðlaga okkur eftir nýjum
og breyttum aðstæðum og sam-
þykkja nýja kennara, skólafélaga og
vini. Þá er von okkar að við verðum
tekin með sátt inn í nýja umhverfið
og við fáum að vera þátttakendur í
leiknum. Við svona aðstæður von-
umst við auðvitað eftir því að sjá
og hitta hlýjar og hjálpsamar mann-
eskjur. Dísa var ein þeirra. Hún kom
mjög vel fram og var í alla staði hin
kátasta og kom ávallt þeim sem í
kringum hana voru í gott skap. Hún
var mjög þægileg í umgengni og
aldrei brást hláturinn þegar Dísa var
annars vegar.
Við sóttum leikfimitíma með Dísu
og bekkjarsystrum hennar á vetrin-
um sem leið. Á meðan við keppt-
umst við að standa á haus og hönd-
um og hlaupa úti í rigningu og snjó,
stundum gegn vilja okkar, var Dísa
alltaf til í að gera meira og vildi þá
helst að allir og jafnvel kennarinn
tækju þátt í uppátækjunum.
Dísa lét engan fram hjá sér fara
án þess að yrða á hann og vildi
helst koma öllum til að hlæja líka
og kom það á daginn að nafn Dísu
var nánast það eina í bekknum sem
kennararnir mundu eftir í lok skóla-
ársins og voru það einnig fáir sem
ekki þekktu Dísu og hláturinn henn-
ar þegar hann var í nánd. Hún var
alltaf til í að prófa eitthvað nýtt ef
hún hafði ánægju af því eða gat
skemmt öðrum og tókst henni það
svo sannarlega vel.
Það var vissulega gaman að kynn-
ast Dísu og eyða með henni leikfimi-
tímum okkar og öðrum stundum á
líðandi skólaári. Svona jákvæð og
skemmtileg manneskja eins og Dísa
var mun svo sannarlega skilja eftir
sig stórt skarð rétt eins og allir aðr-
ir ástvinir og félagar, sem við miss-
um á lífsvegi okkar, gera. Og nú
þegar vegi Dísu hefur verið lokað
viljum við samhryggjast fjölskyldu
hennar og vinum, sem eftir sitja í
sorg sinni, í von um að þau finni
styrk í því sem eftir er.
„Þá fyrst skiljum vér dauðann er hann legg-
ur hönd sína á einhvem sem vér unnum."
(Madame de Staél)
Guð blessi minninguna um Dísu
vinkonu okkar.
Huggun
Þótt æfibrautin sé brött og hál
og blóðrisa af þyrnúm sértu,
þá mundu, að áttu samt eilífa sál,
og öragg og þolinmóð vertu.
Sú kemur stund, er kallast þú átt
á kærleikans landið hið fríða;
og englar þá hugga, sem áttu hér bágt,
og öllum veitt samúð og blíða.
(Eva Hjálmarsdóttir, úr „Hvítum vængjum":
Akureyri 1946)
Stelpurnar í 3.D,
Verslunarskóla íslands
1991-1992.
Okkur vinkonunum var illa brugð-
ið þegar við fréttum um lát Dísu
vinkonu okkar.
Við minnumst Dísu sem hlátur-
mildrar stúlku sem kom okkur alltaf
til að hlæja með góða skapinu sínu
og þá sérstaklega með sínum sér-
stæða hlátri sem var engum líkur.
Okkur finnst erfítt að þurfa að
horfast í augu við það að fá ekki
að sjá hana aftur og njóta feiri gleði-
stunda með henni. Það er ekkert sem
réttlætir það að svona lífsglöð stúlka
þurfi að yfirgefa þennan heim svona
snemma, hún sem átti eftir að upp-
lifa svo margt og okkur finnst erfitt
að hugsa um framtíðina án hennar.
Við komum til með að sakna Dísu
en geymum minningu hennar ávallt
í hjörtum okkar.
Elsku Guðbjörg, Stefán og Massi,
við vottum ykkur okkar innilegustu
samúð í missi ykkar.
Megi Guð styrkja ykkur og megi
minningin um Dísu vera ljós í lífi
ykkar.
Valný, Mæja og Steinunn.
Garðaúrgangur er ekki sorp
Úrgangurinn úr garðinum er í raun mikilvæg
verðmæti sem tilheyra hringrás náttúrunnar.
Fleygjum honum því ekki í sorptunnuna
heldur látum náttúruna um að endurvinna hann.
Þeir sem ekki hafa aðstöðu til að koma á fót
endurvinnslu í garðinum hjá sér geta snúið sér
til SORPU sem safnar garðaúrgangi í moldar-
banka.
Á gámastöðvum SORPU getur þú lagt inn í
moldarbankann en mundu að henda umbúð-
unum ekki heldur nýta þær aftur!
Gámastöðin þín er í næsta nágrenni:
• Mosfellsbær: Viö hesthúsabyggöina í Mosfellsbæ.
• Noröausturhverfi Reykjavíkur, Austurbær,
Fossvogur og Árbær: Við Sævarhöfða.
• Hafnarfjörður, Garðabær og Bessastaöahreppur:
Miöhrauni 20, Garöabæ.
• Seltjarnarnes og Vesturbær: Við Ánanaust.
• Kópavogur: Við Dalveg.
• Breiöholt: Við Jafnasel.
• Grafarvogur: Við Gylfaflöt.
Stöðvarnar eru opnar alla daga frá 10:00 - 22:00
Tekiö er á móti förmum allt aö tveimur rúmmetrum.
S^RFA
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs