Morgunblaðið - 23.05.1992, Page 52
MOHGVNBLADII), AfíALSTRÆT! 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181. PÓSTHÚLF I5S5 / AKVREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Gert við malbik fyrir 187 milljónir
Morgunblaðið/Sverrir
Viðgerð á malbiki og undirbúningur undir yfirlögn er hafin á götum
borgarinnar og er gert ráð fyrir að veija um 187 milljónum króna til
framkvæmdanna í sumar. „Götur eru frekar illa farnar eftir vetur-
inn,“ sagði Sigurður Skarphéðinsson gatnamálastjóri. „Þessi vetur var
okkur erfiður. Auðar götur og frost og þíða til skiptis þannig að göt-
ur voru oft rakar. Það má því segja að þó að þetta hafi verið ágætis
vetur frá sjónarmiði sauðkindarinnar þá var hann okkur erfiður."
Úrskurður ríkisskattanefndar í kvótamálinu:
Hefur fordæmisgildi frá
og með gjaldárinu 1990
Urskurðurinn getur haft áhrif á kaup og sölu framleiðsluréttar 1 landbúnaði
Hagsmuna-
gæsla kostar
3 milljarða
KOSTNAÐUR við ýmiss konar
hagsmunagæslu samtaka vinnu-
veitenda, launþega og bænda má
gróflega áætla að sé um þrír
milljarðar króna á ári, að því er
fram kom í erindi Gunnars
Svavarssonar, formanns Félags
íslenskra iðnrekenda, á aðal-
fundi Vinnuveitendasambands
Islands í gær.
Gunnar sagði að um 800 manns
störfuðu nú að hagsmunagæslu
ýmiss konar, næstum tífalt fleiri
en fyrir 40 ánjm. Mannafli á vinnu-
markaði hefði á sama tíma tvöfald-
ast og fjöldi ríkisstarfsmanna þre-
faldast. Lauslega áætlað væri
* 'Rostnaður stéttarfélaga af hags-
munagæslunni um 1.600 milljónir
á ári, kostnaður atvinnurekenda um
800 milljónir og kostnaður bænda
um 700 milljónir króna.
Hann sagðist telja vænlegast að
við hagræðingu væru stofnuð ný
samtök fremur en ein samtök væru
yfirtekin af öðrum. Mannlegi þátt-
urinn væri erfiðastur viðureignar,
því menn vildu halda í það sem
þeir hefðu og helst engu sleppa.
„Slík afstaða torveldar mjög allt
- hagræðingarstarf og býr til bákn í
stað beinskeytts afls.“
—-----♦ ♦ ♦----
18 sektaðir
fyrir að aka
ánegldum
LÖGREGLAN í Reykjavík kærði
átján ökumenn í fyrrakvöld fyrir
að aka á nagladekkjum um götur
borgarinnar. Frestur bíleigenda
til að skipta yfir á sumardekkin
'“i ann út 15. apríl og nú er lögregl-
an farin að fylgjast sérstaklega
með því hvort menn hafi gert svo.
Menn sem staðnir eru að því að
aka á negldum hjólbörðum nú fá
2.500 króna sekt. Ómar Smári Ár-
mannsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn í lögreglunni í Reykjavík
sagði í gær að menn sem vildu losna
undan þeim útgjöldum ættu að flýta
sér að skipta yfir á sumardekkin
- eða láta draga naglana úr snjó-
dekkjunum ef þeir ætluðu að aka
áfram á þeim.
Þorgeir sagði að um þriðjungs
samdráttur yrði hjá fyrirtækinu
þegar útflutningur kindakjöts legð-
ist af í kjölfar niðurfellingar á út-
flutningsþótum næsta haust. Þá
yrði einnig samdráttur hjá slátur-
leyfishöfum sem væru eigendur
Goða hf. og bændum myndi senni-
lega fækka vegna almenns sam-
dráttar.
Hann sagði að uppsagnirnar
væru einn liður í hagræðingu innan
ÚRSKURÐUR sá sem ríkis-
skattanefnd héfur kveðið upp í
kvótamálinu hefur fordæmisgildi
frá og með gjaldárinu 1990. Sam-
kvæmt upplýsingum frá ríkis-
skattanefnd gildir úrskurður
hennar í máli útgerðarfyrirtæk-
isins fyrir gjaldárið 1990 og hef-
ur fordæmisgildi frá þeim tíma
þar til og ef honum verður
fyrirtækisins. Nýlega hefði verið
breytt skipulagi í sölumálum og enn
ætti eftir að laga það betur. Stefnt
væri að því að einfalda alla stjórnun
innan fyrirtækisins og kostnaðar-
aðhaldi yrði beitt í öllum þáttum
rekstrarins.
Með þessp sagði Þorgeir að verið
væri að takast á við það í tíma að
skapa fyrirtækinu rekstrargrund-
völl til framtíðar og styrkja stöðu
þess á aðalmarkaðssvæðinu í
hnekkt fyrir dómi. Þá telur
Haukur Halldórsson formaður
Stéttarsambands bænda að úr-
skurðurinn geti haft áhrif á kaup
og sölu á framleiðslurétti í land-
búnaði.
Guðmundur Kjartansson endur-
skoðandi sem flutti mál útgerðarfé-
lagsins fyrir ríkisskattanefnd segir
að úrskurðurinn sé endanlegur hvað
Reykjavík. Hann sagði að áhersla
yrði lögð á markaðssókn innanlands
og eindregin stefna væri að fyrir-
tækið yrði fyrst og fremst sölu- og
markaðsfyrirtæki með nauðsynlegri
vöruþróun og gæðaeftirliti.
Þorgeir sagði að afar sárt væri
að þurfa að segja upp fólki eins og
atvinnuástandið væri um þessar
mundir en um annað hefði ekki
verið að ræða. Hann vildi þakka
fólkinu störf þess í þágu fyrirtækis-
ins.
Goði hf. er í meirihlutaeign 21
sláturleyfishafa. 100-115 manns
hafa hingað til starfað hjá fyrirtæk-
inu.
varðar skattmeðferð kvótakaupa og
til að hrekja hann þurfi fjármálaráð-
herra að reka mál fyrir dómstólum.
„Úrskurðurinn breytir í sjálfu sér
ekki reikningsskilum félaganna en
hann veitir þeim heimild til að gjald-
færa keyptan langtímakvóta á því
ári sem hann er keyptur," segir
Guðmundur. „Fyrir félög sem eiga
yfirfæranlegt tap skiptir þetta ekki
máli en þetta getur breytt töluverðu
fyrir þau félög sem sýna hagnað
því þau geta skráð kvótakaupin sem
rekstrarkostnað og fengið þannig
skattfrádrátt á móti hagnaðinum,
krónu fyrir krónu.“
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra hefur beðið ríkisskattstjóra
um greinargerð vegna þessa máls.
Friðrik segir að til greina komi að
bera úrskurðinn undir dómstóla,
breyta skattalögunum eða láta úr-
skurðinn standa óbreyttan. Ekki
verði tekin ákvörðun fyrr en álit
ríkisskattstjóra liggur fyrir og mál-
ið hefur verið borið undir aðra í
ríkisstjórninni. „Úrskurður ríkis-
skattanefndar kom nokkuð á óvart
og það er óvíst hvaða áhrif hann
hefur á tekjur ríkissjóðs," segir
Friðrik Sophusson. „Mál þetta er
flókið en gera rná ráð fyrir að sömu
reglur gildi um fullvirðisrétt í land-
búnaði.“
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra segir að málið sé fyrst og
fremst skattalegs eðlis og snerti
ekki mikið framkvæmd fiskveiði-
stefnunnar. „Það kemur útgerðar-
mönnum mjög vel að fá að gjald-
færa allan kostnað við kvótakaup
á einu ári en það má ugglaust deila
um hvort það er skynsamleg niður-
staða frá sjónarhóli almennra hags-
muna,“ segir Þorsteinn.
Sjá nánar á miðopnu.
Bakkafjörður:
Þriðji búr-
hvalurinn
fundinn
Bakkaflrði.
ÞRIÐJI búrhvalurinn hefur
fundist í Bakkafirði á stuttum
tíma. Talið er að hann hafi
rekið á Iand á svipuðum tíma
og tveir aðrir er fundust um
síðustu mánaðamót.
Búrhvalurinn er svipaður hin-
um tveimur. Tarfur og um það
bil 10 m á lengd. Hann fannst
út undir Digranesvita í Dimmu-
fjöru. Fimm búrhvalir, svipað-
ir þessum, fundust í Eiðisvík á
Langanesi í síðustu viku.
Búrhvalurinn hefur ekki verið
rannsakaður. Aki
Goði hf.:
20 starfsmönnum sagt upp
TILKYNNTAR voru uppsagnir 20 starfsmanna Goða hf. í gærdag.
Þorgeir B. Hlöðversson, stjórnarformaður fyrirtækisins, segir að
aðalástæða uppsagnanna sé samdráttur í kjölfar niðurfellingar út-
flutningsbóta. Verið er að vinna að hagræðingu á fleiri sviðum í
rekstri fyrirtækisins. Uppsagnirnar ná til fólks í öllum deildum
Goða hf.