Morgunblaðið - 10.06.1992, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992
HA6NA&UR
fíl MOM WS \ue>
(3h.
Ahk,
f/Mfj Langar CÁ Sj'ó. þenr&n n&jCK, bbk-
AsGtldarCL sem. byrýabi d nnárxjdcgw!'
TM Reg. U.S Pat Off. — all rights reserved
• 1992 Los Anfleles Times Syndicafe
Þessi fiðlustrengnr var í Ef þú ert blankur, getum
súpunni ...? við samið um afborganir ...
HÖGNI HREKKVÍSI
/, l//£> HÖFUM EFJCJ SK&IFSTÖFUTEin ! *
flforguiiHftfrib
BRÉF UL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
Hjartaaðgerðir eða milli-
veggir fyrir 50 milljónir
Frá Frá Leifi Jónssyni:
SIGHVATUR heilbrigðisráðherra
Björgvinsson (sá sem ætlaði að
spara 4 milljarða í heilbrigðisgeir-
anum) er þessa stundina að byggja
milliveggi og gletja austur að
Sogni í Ólfusi. Eins og fólk rekur
minni til, er ráðherrann að böggl-
ast við að leysa vanda 5-10 geð-
veikra afbrotamanna með rándýr-
um vitleysisgangi að Sogni, í stað
þess að senda þessa sjúklinga á
geðsjúkrahús svo sem aðrar Norð-
urlandaþjóðir gera (sjá grein í
Morgunblaðinu 22.4. 1992).
Gæluverkefni ráðherrans er með
öðrum orðum Sogn í Ölfusi og
gnægð íjármuna í þeim geiranum.
Eftir að. hafa leigt húsið í 10 mán-
uði á fjórðung úr milljón mánaðar-
lega, keypti hann slotið á rúmlega
30 milljónir og ráðgerir síðan inn-
réttingar (milliveggi og skothelt
gler) fyrir 35 milljónir. Sú upphæð
hefur síðan skv. íslenskum staðli
hækkað í 50 milljónir og gr það
sú upphæð sem ég ætla örlítið að
fjalla um.
í Morgunblaðinu 3.6. sl. er haft
eftir ráðherra, að fjármagn vanti
til hjartaaðgerða. Þetta kemur í
raun engum á óvart þar sem fjár-
magn vantar til alls í heilbrigðis-
geiranum nema gæluverkefnis ráð-
herra. Árlegur rekstrarkostnaður
að Sogni gæti numið 150 milljón-
um skv. ummælum ráðherrans í
Morgunblaðinu 24.7. 1991. Sú
upphæð getur því hæglega orðið
200 milljónir áður en Sognið kemst
í gftBhi'Á WIR9 fl'wmftiftfáðheri'ti
eða jafnvel forsætisráðherra stöðvi
vitleysisganginn. Enn og aftur skal
á það bent, að hér er átt við umönn-
un 5-10 sjúklinga og dýr myndi
Hafliði allur.
En snúum okkur aftur að fjár-
skorti þegar hjartaskurðlækningar
eru annars vegar. Ráðherrann seg-
ir hverja aðgerð kosta 850 þús.
krónur og 60 sjúklinga vera á bið-
lista. Kostnaðurinn við að þurrka
út biðlistann er með öðrum orðum
50 milljónir eða nákvæmlega sama
upphæð og ráðherrann ætlar í
milliveggi og gler að Sogni. Þegar
manni er íjár vant verður stundum
að velja og hafna. Sighvats Björg-
vinssonar er valið og valið hefur
hann. Hjartaskurðlækningar skulu
bíða. Milliveggir skulu það vera.
Er nokkuð að undra þótt óbreyttir
borgarar eigi erfitt með að taka
sparnaðarhjal landsfeðranna hátíð-
lega?
LEIFUR JÓNSSON,
læknir á slysadeild Borgarspítalans,
Heiðarlundi 6, Garðabæ.
ast fyrir um það hvaða stólar eru
farnir að gefa sig í salnum og end-
urnýja. Hvorki listamönnum sem
troða upp í Háskólabíó né gestum
er bjóðandi upp á þessi truflandi
aukahljóð. Þá vakti það athygli
Víkveija að á slaginu 15 bárust
torkennileg aukahljóð honum til
eyrna, og var auðheyrt að hér hafði
tillitslaus gestur gleymt að slökkva
á hljóðmerkjum úrs síns. Hann lét
sér greinilega fátt um finnast, því
stuttu eftir hlé varð kl. 16 og þá
bárust tölvuóhljóðin á ný um salinn.
xxx
Hér í blaðinu síðastliðinn laugar-
dag var lítil frétt um ótrúlega
mannvonsku, þar sem greint var
frá því að hundurinn Spori var skot-
inn á færi á Blönduósi, er hann var
á leið til eiganda síns. Víkverji telur
að það sé meira en lítið athugavert
við mann sem grípur strax til skot-
vopns og skýtur á hund, þó svo að
hann sé á „bannsvæði“. Áð litlu eða
engu tilefni virðist sá hinn skot-
glaði hafa valdið hundeigandanum,
að nú ekki sé talað um litlu dóttur
hans, ómældum sársauka, sem af
fréttinni að dæma, hefði verið svo
auðvelt að komast hjá.
VELVAKANDI
TASKA
SKÆRBLEIK barnataska tap-
aðist við Menntaskólann í
Reykjavík þriðjudaginn 2. júní.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í Dagnýju Björk dans-
kennara í 642535.
KETTIR
GRÁR högni, mjög gæfur, með
hvítar hosur en grábröndótta
rófu og fætur hefur haldið sig
við Teigasel 2 í Seljahverfi und-
anfarið. Eigandi hans er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
73237.
Fimm kettlingar fást gefins.
Upplýsingar í síma 20267,
Tvær svartar tveggja mánaða
gamlar tvíburalæður vantar gott
heimili. Upplýsingar í síma
27836.
Gullfallegir kettlingar fást
gefins. Upplýsingar í síma
40043.
TVEGGJA
KLUKKU-
STUNDA BIÐ
Frá Ástu Pálsdóttur,
Skúlagötu 9, Borgarnesi:
ÉG var á Shellstöðinni í Borgar-
nesi fyrir helgina og var svo
óheppin að læsa bíllyklana inni
í bílnum. Ég hafði samband við
lögregluna í Borgarnesi en þeir
sögðust ekki geta komið fyrr
enn kl. 5 en ég var þarna um
þjúleytið. Þegar ég spurði hvers
vegna þeir gætu ekki komið
fyrr sögðu þeir að ég væri úti
í sveit. Nú er þessi bensínstöð
aðeins spölkorn frá Borgarnesi
pg finngt mér þetta mikil
ógreiðasemi.
ÚR
SVART Casio-úr tapaðist við
leikvöllinn við Frostaskjól 3.
júní. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 13588.
Víkveiji skrifar
Aþað hefur áður verið minnst
hér í Víkveijapistlum að borg-
in iði af list, nú þegar Listahátíð í
Reykjavík er í fullri sveiflu. Ekkert
hefur á hinn bóginn verið minnst á
að óttaleg kvefpest virðist hijá gesti
Listahátíðar, samkvæmt reynslu
Víkveija. Þegar hefur verið greint
frá því hvemig gullflautuleikarinn
góði, James Galway, gerði hlé á
leik sínum á tónleikum í Háskólabíó
í síðustu viku, til þess að ljá einum
hóstaglöðum tónleikagestinum
vasaklút sinn. Síðastliðið föstudags-
kvöld var Víkvetji viðstaddur leik-
sýningu Orionleikhússins frá Svía-
ríki í Þjóðleikhúsinu, þar sem sýnd-
ur var Draumleikur Strindbergs.
Víkveija fannst heilmikið til þessar-
ar sýningar koma og þótti uppsetn-
ingin, leiktjöld, tónlist, söngur og
leikur, kryddaður fjölkynngi, takast
í heild að mynda lifandi leikhús -
umgjörð um draumleik, þar sem
skilin á milli veraleika og óraun-
veruleika vora jafn óræð og vera
ber, þar sem áhorfendur og áheyr-
endur gátu notið leikhússins, án
þess að vera svo mjög bundnir af
því að skilja hvert orð hins sænska
texta. Það sem á hinn bóginn
skyggði á gleði Víkveija þetta
föstudagskvöld vora hin stöðugu
hóstakjöltur sem bárast víðsvegar
að úr sal Þjóðleikhússins sýninguna
á enda. Þegar eitthvert lát varð á
hósta eins tók bara við ræsking hjá
öðrum og nefsog hjá hinum þriðja.
Á tímabili hefði mátt ætla að háls-,
nef- og eyrnadeild heils sjúkrahúss
hefði farið í hópferð í leikhúsið.
Víkveiji hallast að því að hér sé
um séríslenskt fyrirbæri að ræða,
enda íslendingar alltaf kvefaðir.
XXX
Aldur er afstætt hugtak. Það
sannaðist enn einu sinni síð-
astliðinn laugardag á píanótónleik-
um Shura Cherkasskys í Háskóla-
bíó, sem þrátt fyrir 81 aldursár lék
af þvílíkum þrótti að undrum sætir.
Það er engan bilbug að finna á
þessum snillingi, enda kunnu gestir
vel að meta snilld hans. Enn voru
það aukahljóðin í salnum sem
skyggðu á gleði Víkveija. Hósta-
kjöltrin voru að vísu í hófsamari
kantinum, þótt vissulega trufluðu
þau öðra hvoru, en ótrúlegt ískur
og marr, líkast til úr einhveijum
stólum skar í hlustir gesta, hvað
eftir annað. Forráðamenn Háskóla-
bíós verða einfaldlega að láta graf-