Morgunblaðið - 10.06.1992, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.06.1992, Blaðsíða 22
j(>()r i/:in. ,or flúPAniJMivQiM aiq/wiH/uoflOM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992 8£ 22 Fjármálaráðherra um Eignaskrá ríkisins: Grundvöllur að end- urskoðun reglna um meðferð ríkiseigna Fjármálaráðherra segir að nýútkomin eignaskrá ríksins gefi rík- inu góðan grundvöll tii að endurskoða reglur um hvernig eigi að ná fjármunum út úr eignum ríkisins, þar á meðal reglur um leigu fyrir embættisbústaði. „Þessi eignaskrá gefur okkur mjög góðan grundvöll til áð endur- skoða allar reglur um það hvemig hægt er að ná fjármunum út úr þessum eignum, í fyrsta lagi með sölu þeirra og í öðru lagi með leigu á þeim. Og íjármálaráðuneytið mun vinna að þessum málum,“ sagði Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra við Morgunblaðið. Hann sagði að fjármálaráðuneyt- ið sæi ekki eitt ráðuneyta um þess- ar eignir. „En að sjálfsögðu er það ekki tilgangur ríkisins að eignast sem mestar eignir hér á landi held- ur þvert á móti að koma þeim úr ríkiseigu sem allra fyrst. Ég tel að það sé vel hægt að setja upp á næstunni reglur um hvemig þessar eignir verði best nýttar fyrir ríkið, þar á meðal um embættisbústaði. Það gilda um þá mjög mismunandi reglur eftir ráðu- neytum og ég tel að í mörgum til- fellum séu reglumar orðnar úreltar, ekki síst vegna þess að það er ekki lengur eins og áður var að fólk vilji ekki fara í opinberar stöður úti á landi, heldur er nú þvert á móti orðin eftir því eftirspum. Ég sé því ekki minnstu ástæðu til þess að borga mönnum fyrir það, auk laun- anna, því það veldur einungis vand- ræðum," sagði Friðrik Sophusson. Námskeid í reykbindindi Innritun er hafin á sumarnámskeið Krabbameins- félagsins í reykbindindi. Eftirfarandi efnisþættir eru m.a. teknir fyrir á námskeiðunum: e Undirbúningur e Áhrif reykinga á iíkamann e Streita og reykingar e Persónuieiki og reykingar e Nikótínfíkn e Megrun og matarvenjur • Grundvaiiaratriði sjálfsdáleiðslu e Ráð til að draga úr löngunum Kennt er í hópum með fyrirlestrum og myndasýningum. Auk þess er innifalin persónuleg ráðgjöf fyrir þá sem þess óska. Námskeiðið hefst með undirbúningsfundi mánudaginn 6. júlí og því lýkur fimmtudaginn 6. ágúst (alls 7 fundir). Allir fundir hefjast kl. 17.30. Fund- arstaður er í húsi Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8. Aðal- leiðbeinandi er Ásgeir R. Helgason. Upplýsingar og skráning í síma 621414 á skrifstofutíma (kl. 08.30-16.30). I Krabbameinsfélag Reykjavíkur Morgunblaðið/Þorsteinn Torfason Frá opnun sýningarinnar í nýja ráðhúsinu, talið frá hægri: Beate Blankenhorn, Anette Ack- ermann, sem er unnasta Jóns og sýndi einnig málverk, m.a. frá heimsókn sinni hingað til lands, Jón Þór Gíslason og tveir sýningargestir. íslenskur málari fær lofsamlegar viðtökur í Þýskalandi: Oneitanlega lyftistöng fyrir frekari landvinninga - segir Jón Þór Gíslason listmálari FYRIR skömmu lauk í Leon- berg, nærri Stuttgart í Þýska- landi, samsýningu fjögurra listamanna í nýlega vigðu ráð- húsi borgarínnar. Sýningin nefndist „Mahlwerk", og er tit- illinn sóttur í nokkurs konar þýskuskotna afmyndun af ís- lenska orðinu „málverk“ en ís- lenskur listmálari, Jón Þór Gísl- ason, var einn þeirra sem þar sýndu. Vakti hans hlutur í sýn- ingunni athygli og hlaut lof- samlega dóma dagblaðanna, auk þess sem kunnur þýskur málverkasafnari var einn þeirra sem festi kaup á mynd eftir Jón Þór. JÓN Þór Gíslason er þijátíu og fimm ára gamall, borinn og bam- fæddur Hafnfirðingur, og lauk í febrúar síðastliðnum framhalds- námi í myndlist frá Ríkisakadem- íunni í Stuttgart undir handleiðsiu prófessors síns, Erichs Mansens, en áður nam hann við Myndlista- og handíðaskóla íslands frá 1977 til 1982. í stuttu spjalli við Morg- unblaðið kvaðst Jón Þór Gíslason vera hæstánægður með þær við- tökur sem sýningin og hans þátt- ur í henni fengu. „Ég hef heyrt utan að mér, m.a. frá fólki sem fylgist grannt með hræringum og nýjungum í listheiminum, að horf- ur mínar á markaðnum hér séu mjög vænlegar og ræðst það ekki síst af þeirri staðreynd að ég fylgi ekki meginstraumunum sem hér eru í myndlist. Þetta er óneitan- lega fjárhagsleg og andleg lyfti- stöng fyrir frekari landvinninga í Brúðuleikur (Puppenspiel) eftir Jón Þór Gíslason. Evrópu, og með þessu er orðið næsta ljóst að hér í Þýskalandi á ég eftir að búa og vinna um langa hríð.“ Hann segir að listrænir og hugmyndafræðilegir áhrifavaldar sínir komi úr margvíslegum átt- um, og þó eflaust megi spyrða hann saman við einhveijar skil- greiningar sé slík iðja fyrir fræð- inga og gagnrýnendur: „Mæli- kvarði gagnrýnanda hér virðist miðast nær eingöngu við konsept- listina og þeim er hampað óspart sem gengið hafa í smiðju til Josefs Beuys og félaga. Við öðru bregð- ast þeir við af furðu, eins og þeir hafi aldrei heyrt það né séð. Ég má því í raun vera þakklátur fyr- ir móttökurnar sem sýningin fékk, þrátt fyrir fyrmefnda glám- skyggni listskríbenta." Umfjöllun um sýninguna var mikil og al- mennt mjög jákvæð. í gagnrýni um sýninguna í Leonberger Krei- seitung er m.a. að fínna þessa klausu: „Jón Thor Gíslason endur- speglar innlöndin í ytri heiminum. Hann notar sér klassískar fyrir- myndir eins og Munch, Dix eða Gauguin til að sýna andlegt ástand mannsmynda sinna. [•••] Ahorfandinn stendur frammi fyrir olíumálverki með góða litasam- setningu, málverk af konu með alvarlegan, innbyrgðan svip.“ Önnur grein er í Amtsblatt der Stadt Leonberg, og segir listfræð- ingurinn Dietholt M. Zerweck í umfjöllun sinni um iistsköpun Jóns Þórs Gíslasonar: „Andlegt ástand verður sýnilegt eins og hjá þyrrkingslegu, hnúskóttu tré sem teygir beinaberan fingur út yfír náttsvört rúðugler húss. Vísifing- ur sem bendir á risavaxna kven- veru, sem er máluð af svo nöktu raunsæi að hún hefur breyst í „týpu“ og dregur raunsæið þannig í efa. Jón kallar fram sígildar fyr- irmyndir í olíumálverkum sínum. Hann skírskotar til helgimynda (íkona) liðins tíma með sérstæðri uppbyggingu mynda sinna.“ Til- tekin eru dæmi um myndefnin og nálgun listamannsins og sagt að myndirnar „endurspegli ótta, langanir og ástríður mannvera, sem Jón gerir áþreifanlegar og raunverulegar með pensli, spaða og túpu, ásamt aðstoð mismun- andi áferðar í fatnaði, húð og bakgrunni. Raunveruleikinn verð- ur þannig margræður. Ráðgáta sem vefst fyrir mönnum að leysa.“ Jón Þór seldi allmargar myndir góðu verði á sýningunni, og með- al annars keypti kunnur þýskur safnari, Fritz Uphoff að nafni, málverk eftir listamanninn, en í safni hans eru meðal annars myndverk eftir heimsfræga lista- menn eins og Wassily Kandinsky og áðumefndan Josef Beuys. Það sést strax að húsið er málað með Max Max utanhússmálningin er þrælsterk akrylmálning frá Jotun. — Max er með 7% gljáa sem gerir það að verkum að óhreinindin festast síður í henni. — Max er vatnsþynnanleg og því sérlega þægileg í notkun. — Max er fáanleg í hundruðum litatóna. — Max er árangur áratuga þróunarstarfs og hefur reynst einkar vel á Islandi. Max utanhússmálningin situr sem fastast og verndar verðmæti. HÚSASMMDJAN Skútuvogi16, Reykjavlk, sími 687710 Helluhrauni 16, Hafnarftði, slmi 650100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.