Morgunblaðið - 10.06.1992, Side 45

Morgunblaðið - 10.06.1992, Side 45
MÓRÖUNBLAÐÍÐ MÍÍÐVÍlíúbÁGUR 10. JÚNÍ 1992 ' Minning-: Marís K. Arason Fæddur 25. maí 1908 Dáinn 31. maí 1992 Vaktu, minn Jesú, vaktu i mér. Vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki, þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (H. Pétursson.) Okkur langar til þess að skrifa nokkrar kveðjulínur um hann Mar- ís afa nú þegar hann er allur. Marís afi var að mörgu leyti mjög sérstakur maður sem fór oft eigin leiðir og hafði sínar skoðanir á málunum. Ekki var hlaupið að því að kynnast Marís afa en þeir sem það gerðu sáu fljótt þann góða mann er hann hafði að geyma. Hann var einn af þeim mönnum sem ekki vilja skulda neinum neitt og komst áfram af eigin rammleik með öflugum stuðningi frá ömmu Gunnu. Nú hin síðari ár eftir að Marís afi og amma fluttu í Einholtið og afi hætti að vinna voru þær ófáar ferðirnar sem þau komu til okkar hingað í Jakaselið í morgunkaffi og þá var nú eins gott að fólkið á bænum væri komið á fætur. Marís afi fylgdist alltaf vel með öllu bæði innan fjölskyldunnar og einnig því sem var að gerast í þjóð- félaginu og oft voru umræður um pólitík hinar skemmtilegustu og þegar svo bar undir gagnrýndi hann bæði til hægri og vinstri og sagði svo að hann væri sko ekki flokksbundinn í pólitík og gæti því sagt það sem hann vildi við hvem sem var. Það var líka gaman þegar okkur tókst að fá hann til þess að segja okkur frá æsku sinni á Hvallátrum á Breiðafirði og veru sinni í Borg- arfirðinum og líka þegar hann var að segja okkur frá því þegar hann var að leggja raflínur um landið fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur, en hjá því fyrirtæki starfaði hann í yfir 40 ár. Marís afi var heilsuhraustur mest alla ævi ef frá er talið hjarta- áfall er hann fékk fyrir nokkrum árum, en hann náði sér að mestu aftur eftir það. Hann var duglegur við að stunda laugarnar sér til heilsubótar og líka vegna þess að þar hitti hann svo marga til þess að „kjafta við“ eins og hann sagði alltaf og af því hafði hann gaman. Eins voru þær ófáar ferðirnar sem hann fór í Hagkaup eða Kringluna til þess að skoða eða til þess að kaupa eitthvað smávegis í búið eða til þess að gefa börnum og barna- börnum. Öll eigum við eftir að kveðja þennan heim og gerum við það á marga vegu og ráða því víst fæst- ir. Ef Marís afi hefði mátt velja hefði hann valið þá leið er hann fór, hress og skýr framundir það síðasta. Það verður tómlegra að koma í Einholtið til Gunnu ömmu, en hann Marís afi verður þar áfram þótt hann sjáist ekki því minning- in um Marís afa lifír. Fari hann í friði. Fjölskyldan, Jakaseli 42. í dag verður til moldar borinn Marís Kristinn Arason. Hann var fæddur á Barmi í Gufudalssveit, A-Barðastrandarsýslu 25. maí 1908, yngstur af níu börnum hjón- anna Ara Guðmundssonar og Bjargar Jónsdóttur. Ari var ættað- ur úr Gufudalssveit og Stranda- sýslu en Björg úr Breiðafjarðareyj- um og Barðaströnd. Þau bjuggu fyrstu búskaparár sín á Hallsteins- nesi, en síðan á Barmi til æviloka. Barmur var ekkert stórbýli fremur en margar af þeim jörðum sem setnar voru á þessum árum. Marís fór ungur að vinna fyrir sér, fyrst lá leiðin út í Hvallátra, en þar var hann vinnumaður ásamt föður sínum, en hann var þar stundum tíma og tíma. Síðan fór hann að Bæ í Króksfírði en þar var Marís þar til hann fór á Hvítárbakkaskóla í Borgarfirði haustið 1927. Marís stundaði alla venjulega vinnu til lands og sjávar. Auk þeirra staða sem fyrr eru taldir var hann vinnumaður í Borgarfirði og í Árnessýslu, sjómaður við Breiðafjörð, í Kollsvíkurveri og á Kveldúlfstogurum. Hann hafði próf og starfsréttindi sem línu- maður og starfaði við það hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur í 40 ár. Fyrst við lagningu Sogslínunn- ar, en síðan sem viðgerðarmaður raflagna í Reykjavík. Einnig vann Marís við lagningu fyrstu raflín- unnar til Suðurnesja. Hann kvæntist árið 1945 Guð- rúnu Guðbjartsdóttur, f. 3. júní 1919, frá Kollsvík í Rauðasands- hreppi og eignuðust þau fjögur börn; Elsu, f. 1945, gifta Gunnari Tómassyni, þau eiga tvö börn; Magnús, f. 1947, kvæntan Sigríði Sigurðardóttur, þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn; Björgu, f. 1948, gifta Jónasi Marteinssyni, þau eiga þijú börn og eitt barnabarn og Hildi, f. 1954, gifta Þorvarði Óskarssyni, þau eiga þijár dætur. Áður átti Marís son, Gísla Rúnar, f. 1933, d. 1991, hann ólst upp hjá móður sinni, Guðbjörgu Gísla- dóttur. Gísli Rúnar eignaðist fjög- ur börn og níu barnabörn. Marís og Guðrún bjuggu allan sinn búskap í Reykjavík, lengst af á Baugsvegi 19. Það var eftir- tektarverður eiginleiki í fari Marís- ar hvað hann var einstaklega snyrtilegur og reglusamur. Hann var sífellt að dytta að húsinu, garð- inum eða bílnum. Hann var mjög snyrtilegur í klæðaburði og vand- aði sérstaklega spariklæðnað sinn og sagði þá stundum: „Þeir vildu hafa þetta svona í franska." Hann átti þá við tímabil sem hann starf- aði í franska sendiráðinu, en þar fékk hann ráðleggingar sem í dag væri kallað fataval. Þó að línan væri í aðra röndina sótt til Parísar gleymdist uppruninn aldrei. Þegar honum bauðst að velja sér það besta af réttunum í veislu valdi hann svartfugl ef hann var í boði, en harmaði e.t.v. að ekki væri hægt að fá soðningu. Talsmáti og orðfæri Marísar var mjög til fyrirmyndar, aldrei heyrð- ist hann tala lélegt mál eða sletta, en var kjarnyrtur í meira lagi. Ósjaldan heyrðist hann nota orð sem Orðabók Háskólans var að spyija um og komust sum á seðla þar. Marís hafði mikinn áhuga á innanlandspólitík og fylgdist mjög vel með öllum hræringum í stjórn- málalífinu og hafði skoðanir á því. Sá oft fyrir næsta leik í hinni pólitísku refskák. Eftir að Marís flutti til Reykja- víkur var hann fastagestur í sund- laugunum í Laugardal. Einhvern kaldan dag sl. vetur þegar hann var að koma úr Laugunum hafði undirritaður orð á því, að það væri harka að fara í Laugarnar í svona kulda. Svarið var: „Það er lítil harka að sulla í nýmjólkur- volgu vatni og þurrka sér síðan í upphituðu húsi á eftir. Á Hvítár- bakkaskóla fórum við oft í vök á Hvítá eftir leikfimitíma og þurrk- uðum okkur síðan undir vegg.“ Ekki verður ævi Marísar rakin hér nánar, en það væri hægt að segja langa sögu um ýmsar ferðir sem línumenn þurftu að fara gangandi um hávetur með allt sitt hafurtask á sleðum allt austur í Jórukleif, hafast þar við í tjöldum o g ganga síðan aftur til Reykjavík- ur að viðgerð lokinni. Hann var alla tíð mjög vinnusamur. Tveimur dögum fyrir andlát sitt var hann ásamt meðeiganda sínum að hús- inu við Einholt að taka upp hellur í garðinum og laga þær. Hann dvaldi á heimili sínu fram á síð- ustu stundu. Blessuð sé minning Marísar Arasonar. Gunnar Tómasson. nýtt Þeir rækta kaffijurtina af aldagamalli hefð við bestu aðstæður í frjósömum fjallahlíðum Colombiu. ^ Við veljum bestu baunirnar þeirra. Pú færð ilmandi nýbrennt Colombiakaffi í stjörnuflokki nánast beint úr kvörninni — njóttu þess. KAFFIBRENNSLA AKUREYRAR HF ilmandi JARDVATNSBARKAR Með eða án filters. x Stœrðir 50 -100 mm. Lengd í rúllu 50-200 mtr. K Tilvalið þar sem rœsa þarf fram land. Vara sem vinnur með þér, auðveld í meðhöndlun. * VATNSVIRKINN HF. ARMULA 21 SIMAR 686455 - 685966 FAX 91-687748 BOSCH V E R S L U N Lágmúla 9 sími 3 88 20 RAFSTÖÐVAR ALLT AÐ 30% L Æ K K U N 1,90 kw 62.627 stgr. 2,15 kw 55.456 stgr. 3,00 kw 80.741 stgr. 3,40 kw 1 fasa 3,80 kw 3 fasa 115.446 stgr. VZterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.