Morgunblaðið - 10.06.1992, Side 23

Morgunblaðið - 10.06.1992, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992 23 Hagfræðingur ASÍ: Sparisjóðirnir með hæstu útlánsvexti í bankakerfinu Hagfræðingur Alþýðusambands íslands segir að sparisjóðirnir séu með hæstu útlánsvexti i bankakerfinu og þeir og Búnaðarbanki hafi ekki enn lækkað vexti í samræmi við yfirlýsingar sem gefnar voru í tengslum við kjarasamninga. Sparisjóðsstjóri SPRON segir hins vegar að meðalvextir sparisjóðanna séu ekki hærri en viðskiptabankanna og sparisjóðirnir hafi ákveðið vexti í samræmi við það sem um var talað í kringum kjarasamningana. Guðmundur Gylfi Guðmundsson hagfræðingur ASI sagði við Morgun- blaðið, íslandsbanki hefði lækkað vexti strax í samræmi við yfirlýsingu um vaxtaþróun sem gefin var við gerð kjarasamninga og Landsbanki hefði lækkað sína vexti eftir nokkar málalenginga. Búnaðarbankinn hefði lækkað lítið eitt og sparisjóðimir enn minna og borið því við að útlána- flokkun þeirra væri þeim hætti að þeir væru í raun með lægstu vext- ina. Þess vegna hefðu ASÍ og Vinnu- veitendasambandið óskað eftir upp- lýsingum frá Seðlabankanum um útlánaflokkun banka og sparisjóða og þær reglur sem notaðar væru við þá flokkun. Guðmundur Gylfi sagðist hafa reiknað út vegið meðaltal á útláns- vöxtum banka og sparisjóða, á grundvelli upplýsinga Seðlabankans, og samkvæmt því væri meðaltal verðtryggðra kjörvaxta Landsbank- ans 8,75%, meðaltal kjörvaxta ís- landsbanka væri 8,87%, meðaltal kjörvaxta Búnaðarbanka væri 8,97% og meðaltal kjörvaxta sparisjóða 9,40%. Á sama hátt væri vegið með- altal óverðtryggra kjörvaxta íslands- banka 11,87%, meðaltal kjörvaxta Búnaðarbanka 12,20%, meðaltal kjörvaxta Landsbanka 12,23% og meðaltal kjörvaxta sparisjóðanna 12,74%. Guðmundur Gylfi sagði að íslands- banki og Landsbanki væru við þau efri vaxtamörk sem rætt hefði verið um í tengslum við kjarasamning- anna, en sparisjóðirnir og Búnaðar- bankinn væru þar fyrir ofan og hefðu því ekki staðið við þær yfirlýsingar sem þeir gáfu. Baldvin Tryggvason sparsjóðs- stjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og ná- grennis sagði að sparisjóðirnir reyndu að fara eftir markaðsvöxtum. Frá því seint á síðasta ári hefðu sparisjóðirnir verið með lægstu útl- ánsvexti ásamt Búnaðarbankanum og á síðasta ári hefðu þeir verið með hæstu meðalvexti á flestum innlán- „ STÚDENTARÁÐ Háskóla ís- lands mótmælir þeirri ákvörðun rík- isstjórnar að skera niður með út- hlutunarreglum LÍN um 500 millj- ónir króna. Ríkisstjórnin hefur með þessu síðasta útspili sýnt fádæma skiln- ingsleysi á högum námsmanna og gert að þeim atlögu. Stúdentaráð hvetur ríkisstjórnina til að endur- um. „Ég vil ekkert um það segja hvað við förum hratt niður núna, en þetta er sú meginstefna sem við höfum fylgt og við gerum það sjálf- sagt áfram,“ sagði Baldvin og bætti við að þeir teldu sig hafa ákveðið vexti í samræmi við það sem um var talað. Hann sagðist einnig draga mjög í efa þær upplýsingar SeðlabankanSj sem útreikingar hagfræðings ASI byggðust á. Hana sagði að starfs- menn Seðlabankans hefðu hringt í starfsmenn sparisjóða og spurt þá í hvaða kjörvaxtaflokki lán væru tíð- ust. Flest lánin væru að vísu í svo- kölluðum C-flokki en það væru yfir- leitt smálán og því segðu þau ekki til um meðaltal allra flokkanna. „Ef meðalvextir sparisjóðanna á útlánum eru skoðaðir þá tel ég ekki að við séum þar ofar en aðrir," sagði Bald- vin Tryggvason. skoða stefnu sína í málefnum LÍN og Háskóla Islands en skera ekki gegndarlaust niður með þeim hætti sem gert hefur verið í vetur. Ennfremur lýsir Stúdentaráð hneykslun sinni á þeim vinnubrögð- um sem fulltrúar ríkisstjó'mar beittu á fundum stjórnar LIN um úthlutunarreglurnar." (Fréttatilkyiining) A SHI mótmælir breytt- um úthlutunarreglum S HARÐVTOARVAL HARÐVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010 Hljómsveit Geitmundar Valtýssonar vinsœlasta danshljómsveit d Islandi Laugardagskvöldið 13. júní Lífidansinn Ort í sandinn Látum sönginn hljóma Ég syngþennan söng Nú er ég léttur Bíddu við Ég hefbara áhuga á þér Tifa tímans hjól Þjóðhátíð í Eyjum Með þér Borðapantanir frá kl. 9-15 ísíma 687111 Samviiuiiileröir-Laiiilsýn Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 6910 70 Símbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 • Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Simbréf 91 - 62 24 60 Akureyri: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Simbréf 96 - 2 40 87 Þeir eru fjölmargir sem þegar hafa bókað „ævintýralegt, blómstrandi, ólgandi, æsandi, hugljúft og rómantískt” ferðalag til Korfu í sumar. Fyrir þá sem eru að hugleiða slíkt ævintýri bjóðum við til grískrar gleðiveislu á Hótel Borg í kvöld kl. 20:30. Þórður Stuðmaður Árnason leikur gríska tónlist, grískar veitingar verða á boðstólum og sýnd verða myndbönd með hótelkynningum og hinni einstöku náttúrufegurð Korfu. Þessi gríska perla í Miðjarðarhafinu hefur algjöra sérstöðu á ferðamarkaðinum: Magnað næturlíf, ótrúleg náttúrufegurð og gróðursæld, blátær sjór og hreinar strendur, fyrsta flokks gisting, frábær matur og fagurt mannlíf. Sannarlega hrífandi umgjörð fyrir þá sem vilja njóta þess besta sem lífið hefur upp á að bjóða, ástar og unaðar. Sjdumst í kvöldl Korfueleði íil í kvöld!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.