Morgunblaðið - 10.06.1992, Side 29

Morgunblaðið - 10.06.1992, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992 29 UMHVERFISRÁÐSTEFNAN í RÍÓ Reuter Oryggisgæsla á umhverfisráðstefnunni eykst daglega eftir því sem nær dregur leiðtogafundinum um helgina. A myndinni sést skrið- dreki fyrir framan Sykurtoppinn, einkennisfjall Ríó-borgar. Deilt um verndun skóga og hver eigi að borga brúsann Rio de Janeiro. Reuter. FULLTRÚAR á umhverfisráðstefnunni í Rio de Janeiro reyna nú að ná samkomulagi um framkvæmdaáætlun ráðstefnunnar áður en leiðtogafundur yfir 100 þjóðhöfðingja hefst um næstu helgi. Sam- komulag hefur náðst um að halda ráðstefnu um nýtingu fiskistofna á alþjóðlegum hafsvæðum og að stofna sérstaka nefnd um sjálfbæra þróun, en eitt helsta áreiningsefnið er yfirlýsing um verndun skóga. Þá mögnuðust deilur í gær um hvernig eigi að borga brúsann, en fulltrúar Sameinuðu þjóðanna hafa reiknað út að kostnaður við að framfylgja framkvæmdaáætluninni nemi um 600 milljörðum dollara, eða um 300-földum fjárlögum islenska ríkisins á ári. Þó að enn sé deilt um ágæti tveggja sáttmála um verndun and- rúmsloftsins og lífríkis jarðar, er texti þeirra kominn í endanlegt horf og fulltrúar á ráðstefnunni hafa einbeitt sér að framkvæmda- áætluninni, sem er þriðja meginvið- fangsefni Ríó-ráðstefnunnar. Áætl- unin á að verða leiðarljós ríkja um umhverfisvernd á 21. öldinni og gengur af þeim sökum undir nafn- inu Agenda 21. Hún er í 115 liðum og um 800 blaðsíður að lengd og á að taka á öllum umhverfisvanda- málum öðrum en sáttmálarnir tveir ijalla um. Umhverfisverndarsinnar fögn- uðu stofnun nefndarinnar um sjálf- bæra þróun, sem þeir segja að muni auka líkurnar á að fram- kvæmdaáætluninni verði fylgt. Nefndin verður sjálfstæð stofnun innan vébanda Sameinuðu þjóðanna og á að taka til starfa á næsta ári. Deilur ríkra og fátækra ríkja um fjármögnun umhverfisverndar juk- ust í gær, þegar hópur 128 þróunar- ríkja hafnaði málamiðlunartillögu frá Brasilíu. Hún nefndi áætlaðan kostnað Sameinuðu þjóðanna, en skyldaði engan til að greiða hann. Ríkin 128 vilja hins vegar koma því inn í textann að besta ráðið til að vernda umhverfið sé að beijast gegn fátækt í þriðja heiminum og að ríkurn þjóðum sé gert skylt að borga 0,7 prósent af þjóðarfram- leiðslu sinni í þróunaraðstoð ekki seinna en árið 2000. Vestrænn fuli- trúi sagði í gær að þessi krafa væri áfall fyrir viðræðurnar. Óvíst er hvort tekst að sam- þykkja yfirlýsingu um verndun skóga fyrir lok ráðstefnunnar á sunnudag. George Bush, Bandaríkj- aforseti, lofaði í gær 270 milljón dollara aðstoð til þróunarríkja og skoraði á önnur ríki að auka fram- lög til verndunar skóga. Banda- ríkjamenn hafa sagt verndun skóga vera forgangsverkefni og vonast til að aukin framlög þeirra til þess slái á gagnrýnisraddir umhverfisvernd- arsinna, eftir að Bandaríkin neituðu að skrifa undir sáttmálann um verndun lífríkis jarðar. PLO-maður skotinn París. Reuter ATEF Bseiso, háttsettur öryggis- ráðgjafi Yassers Arafats, leið- toga PLO, Frelsissanitaka Pal- estínumanna, var skotinn í París á mánudag. Arafat kenndi ísraelsku leyni- þjónustunni um verknaðinn en ísra- elskir embættismenn neita því. Yitzhak Shamir forsætisráðherra vildi ekkert um málið segja og ekki heldur Uri Sagie, talsmaður hers- ins. Hann sagði þó, að Bseiso hefði verið einn af leiðtogum félagskap- arins Svarta septembers, sem myrti 11 ísraelska íþróttamenn á Ólymp- íuleikunum í Múnchen 1972. Efnt til alþjóðlegrar ráð- stefnu um flökkustofna SAMÞYKKT hefur verið málamiðlunartillaga á umhverfisráðstefn- unni í Rio de Janeirio vegna ágreinings um veiðar á flökkustofn- um og felst hún í því að haldin verði alþjóðleg ráðstefna um málið sem fyrst. Ráðstefnan verður haldin á vegum Sameinuðu þjóðanna en fundarstaður hefur ekki verið ákveðinn. Eiður Guðna- son umhverfisráðherra átti fund með Jose Goldemberg, mennta- og umhverfismálaráðherra Brasilíu, í gær að sögn Guðmundar Eiríkssonar í sendinefnd Islendinga. íslendingar höfðu ásamt 39 öðr- um þjóðum komið sér saman um tillögoir varðandi úthafsveiðar fyr- ir ráðstefnuna að sögn Guðmund- ar. Margar þeirra höfðu þegar hlotið blessun ráðstefnuríkjanna fyrir ráðstefnuna en ein sú um- deildasta var þó eftir. Pjallar hún um hvaða reglur eigi að gilda um veiðar á flökkustofnum, veiðanleg- um utan og innan lögsögu. íslend- ingar hafa ásamt fleiri ríkjum stutt þá tillögu að lög strandríkis skuli gilda um veiðarnar en ríki Evrópu- bandalagsins hafa ekki verið á sama máli. Á föstudag var hins vegar kom- ist að samkomulagi um málamiðl- unartillögu. Felst hún í því að haldin verði alþjóðleg ráðstefna um ágreiningsefnið sem fyrst. Verður hún á vegum Sameinuðu þjóðanna en fundarstaður hefur ekki verið ákveðinn. EB-ríkin sam- þykktu tillöguna með þeim skilyrð- um að bætt yrði við innleggi frá landbúnaðar og matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna og að skýrt kæmi fram að ekki væri ætlunin að raska ákvæðum Hafréttarsátt- málans. Aðspurður sagði Guðmundur að Islendingar ættu að geta verið ánægðir með mál- amiðlunartillöguna. Önnur tillaga íslendinga var samþykkt á mánudag. Felst hún í því að beina þeim tilmælum til ríkja að heimila ekki geymslu geislavirks úrgangs nálægt hafi nema að hægt sé að sanna að efn- ið hafi ekki neikvæð áhrif á um- hverfið og löginæta nýtingu náttúrunnar gæða. Ennfremur hefur verið samþykkt tillaga Is- lendinga um að tekið verið mið af aimennum reglum um losun úrgangs við hernaðarumsvif sem á friðartímum. Eiður Guðnason, umhverfisráð- herra, átti fund með Goldemberg, mennta- og umhverfismálaráð- herra Brasilíu, um vanda götu- barna í gær. Kynnti íslenski ráð- herrann þar afstöðu sína og leitaði upplýsinga um málið. Mnan - macmillan Longman PUBLISHERS ™huLr Cambridge ELT u ■ NeLson'IIT PRENTICE HALL tátt Harper'Collins W. B. Saunders Bailliére Tindall Gyldendal CLF international 11 Mosby J BÆKUR OKKAR FAG Pöntun erlendra námsbóka er fastur liöur í undirbúningi hverrar námsannar, jafnt hjá kennurum sem hjá okkur. Viö útvegum allar fáanlegar erlendar námsbækur á besta verði. Skjót og örugg pöntunarþjónusta. Sími 682688 WILEY | SPRINGHOUSE PUBLISHING ICOMPANY Klett Viö leggjum áherslu á að hafa á boðstólum allar þær námsbækur sem kenndar eru í framhaldsskólum landsins. iLJJi Oxford English PENGUIN BOOKS Pantið bækurnar tímanlega -það er _L hagkvæmara ^ fyrir alia. HEINEMANN' INTERNAIIONAL JLangenscneidt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.