Morgunblaðið - 10.06.1992, Page 37

Morgunblaðið - 10.06.1992, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1992 37 Framleiðsla ÁTVR: Enn óvissa um tilboð EKKI er enn Ijóst hvaða tilboði verður tekið í framleiðslutæki, vöruheiti og uppskriftir Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, ÁTVR. Útboðsaðilar, Innkaupastofnun ríkisins, fjármálaráðuneytið og ÁTVR eru enn að meta tilboðin og ræða við tilboðsaðila. Inn- kaupastofnun lítur svo á að tilboðin séu bindandi. Halldór Kristjáns- son sem er í forsvari fyrir þá aðila sem standa að fimm hæstu tilboðunum telur ekki tímabært að gefa yfirlýsingar í blöðum. Tilboð í framleiðslutæki, vöru- heiti og uppskriftir ÁTVR voru opnuð í síðasta mánuði, þau voru tíu talsins. 1) Kristín Stefánsdóttir átti hæsta tilboð, 17.425.500 kr. Næstu tilboð voru: 2) Halldór Kristjánsson, 16.425.500 kr. 3) Rek-Is hf., 15.425.500 kr. 4) Kristján G. Halldórsson, 14.425.500 kr. 5) Elding Trading Co. hf., 13.425.500 kr. 6) Tryggvi Halldórsson, 12.310.000 kr. 7) Helgi G. Sigurðsson, 10.500.000 kr. 8) Jónco, 8.200.000 kr. 9) Delta hf., 5.100.000 kr. 10) Sproti hf. 4.761.000 kr. Pálmi Jónsson hjá Innkaup- stofnun Ríkisins sagði í samtali við Morgunblaðið að verið væri að fara yfír tilboðin og bera þau saman. Greiðsluskilmálar væru mismunandi og Innkaupastofnun, fjármálaráðuneytið og ÁTVR tækju fljótlega ákvörðun um við hvem yrði samið. Litið væri svo á að öll tilboð væru bindandi. Það vakti nokkra eftirtekt að ákveðin vensl voru milli þeirra aðila sem stóðu að hæstu tilboðum. Kristín Stefánsdóttir sem átti hæsta tilboð er gift Halldóri Kristjánssyni sem gerði næst hæsta tilboð. Rek-ís hf. á þriðja hæsta tilboðið og bæði Kristín og Halldór eiga sæti í stjórn þess fyrirtækis. Kristján G. Halldórsson á fjórða hæsta tilboð en hann er faðir Halldórs. Fimmta hæsta til- boð er frá Elding Trading Co. hf. og þar er Kristján G. Halldórsson formaður stjórnar. Kristín Stefánsdóttir vildi ekki tjá sig um þetta mál en vísaði á eiginmann sinn, Halldór Kristjáns- son. Hann sagði að fjölskyldan hefði áhuga á þessu dæmi, enda komið nærri viðskiptum með þessa vöru. Halldór taldi ekki tímabært að svara því hvort Kristín eða aðrir tilboðsaðilar myndu falla frá sínum tilboðum. Enn væri verið að meta tilboðin og í viðræðum þyrfu báðir skýra út og spyija um ýmis atriði. Á meðan væri kjána- legt og óviðeigandi að vera að gefa yfírlýsingar í blöðum. Á myndinni frá vinstri eru Helgi Hallvarðsson skipherra, yfirmaður gæsluframkvæmda, Guðríður Þorvarðardóttir frá Náttúruverndar- ráði, Hjörleifur Ólafsson yfirvegaeftirlitsmaður og aðstoðarmaður hans Sigurður Hauksson, Jón Magnússon lögmaður LHG, Páll Hall- dórsson, yfirflugstjóri LHG, Arnþór Ingólfsson yfirlögregluþjónn og Magnús Einarsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Fylgst með hálendinu úr flugvélum AÐ FRUMKVÆÐI Landhelgisgæslunnar var í fyrravor og sumar farið í eftirlitsferðir á þyrlum Gæslunnar um hálendi íslands og aðakstursleiðir til að fylgjast með vélknúnum ökutækjum og var revnslan mjög góð af eftirliti þessu. Nýverið var haldinn samstarfs- ýýverið var haldinn samstai fundur, þar sem yfirmenn frá Land- helgisgæslu, Náttúruvemdarráði, vegagerðinni og lögreglu lögðu á ráðin um eftirlit með vélknúnum ökutælq'um á hálendinu í sumar - einkum meðan vissir vegir væru þar Iokaðir. Auk þyrlna Gæslunnar TF-SIF og TF-GRÓ mun Fokker-vélin TF- SYN fylgjast með hálendisvegum, þegar sú vél á erindi yfir hálendið. Brot á gildandi reglum verða kærð til viðkomandi sýslumanns- embættis og munu framangreindir samstarfsaðilar fylgjast náið með því að kærumál fái rétta málsmeð- ferð. (Fréttatilky nning) Hárgreiðslusveinn óskast sem hefur reynslu í herraklippingum. í boði eru góð laun fyrir hæfan starfskraft. Æ RAKARA- 0G HÁRGREIÐSLUSTOFAN iA GREIFIM HRINGBRAUT 119 S 22077 W ’** Miðskólinn grunnskóli fyrir 9-12ára börn Upplýsingar um skólann verða veittar í sfma (91)62-97-95. Umsóknir um skólavist ber að senda til skólanefndar Miðskólans, pósthólf 234, 121 Reykjavík. Skólanefnd Miðskólans. i" tílboð- Tilboð óskast í vinnu við þakskiptingu og tréverk á fjölbýlishúsi. Upplýsingar gefnar í síma 71757 til og með 16. júní nk. HÚSNÆÐIÓSKAST Einbýli eða sérhæð Óska eftir góðu einbýlishúsi eða sérhæð til leigu nú þegarfyrir skjólstæðing minn. Leigu- tími 1 -2 ár. Reglusemi og öruggar greiðslur. Lögmenn Jón GunnarZoega hri, Hverfisgötu 4a, s. 11230. AUGLYSINGAR Almennir bændafundir með Halldóri Blöndal, landbúnaðarráðherra, verða haldnir sem hér segir: ídalir, Aðaldal, miðvikudaginn 10. júní kl. 21.00. Valaskjálf, Egilsstöðum, fimmtudaginn 11. júní kl. 21.00. Miðgarður, Skagafirði, laugardaginn 13. júní kl. 13.30. Hótel Borgarnes, Borgarnesi, sunnudaginn 14. júní kl. 13.30. Hótel Selfoss, Selfossi, sunnudaginn 14. júní kl. 21.00. Dagskrá fundanna: Landbúnaðarráðherra flytur ræðu um stöðu og horfur í landbúnaði. Almennar umræður og fyrirspurnir. Fundirnir eru öllum opnir. Landbúnaðarráðuneytið. Nauðungaruppboð Vestur-Skaftafellssýsla Eftirtaldar fasteignir verða boðnar upp og seldar á nauðungarupp- boði, sem haldið verður á skrifstofu embættisins, Ránarbraut 1, Vik ( Mýrdal, föstudaginn 12. júní nk. og hefjast uppboðin kl. 14.00: Mýrdalshreppur Ytri-Sólheimar III, þinglýst eign Tómasar ísleifssonar. Uppboðsbeiðendur eru Húsnæðisstofnun ríkisins, Tryggingastofnun ríkisins og Stofnlánadeild landbúnaðarins. 2. sala. Eystri-Dyrhólar, þinglýst eign Stefáns Gunnarssonar. Uppboðsbeiðandi er Byggðastofnun. 2. sala. Vfkurbraut 24, 1/11 hluti, eign Erlends Erlendssonar yngri. Uppboðs- beiðandi er Gjaldheimtan ( Reykjavík. 2. sala. Skagnes I, þingl. eigandi Ríkissjóður, en ábúandi Paul Richardsson. Uppboösbeiðandi er innheimtumaður ríkissjóðs. 2. sala. Presthús I, þingl. eigandi Ólafur Tómas Guðjónsson. Uppboðsbeiðandi er innheimtumaður sveitarsjóösgjalda. 1. sala. Kviaból, þingl. eigandi Ólafur Tómas Guðjónsson. Uppboðsbeiðandi er innheimtumaður sveitarsjóðsgjalda. 1. sala. Skaftárhreppur Skaftárdalur III, þingl. eigandi Alexander Sigurðsson. Uppboðsbeiðandi er innheimtumaður sveitarsjóðsgjalda. 1. sala. Hruni I, þingl. eigandi Einar Þ. Andrésson. Uppboösbeiðendur eru Lögheimtan hf., Húsnæðisstofnun rikisins og Stofnlánadeild landbúnaðarins. 2. sala. Sýslumaður Vestur-Skaftafellssýslu. Garðsláttur Tek að mér garðslátt. Geri föst tilboð. Uppl. í síma 73555 eftir kl. 19. ■ KENNSLA Vélritunarkennsla Kvöldnámskeið er að byrja. Vélritunarskólinn, s. 28040. FERDAFELAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533 Kvöldferðir Ferðafélagsins Miðvikudag 10. júni kl. 20.00 Helðmörk - skógræktarferö. Brottför frá Umferðarmiðstöð- inni, austanmegin og Mörkinni 6. Ekkert þátttökugjald. Fimmtudagur 11. júní - kl. 20.00 - Siglt að Lundey og frá sjó er unnt að virða fyrir sér eina stærstu lundabyggð í nágrenni Reykjavíkur, að því loknu verður gengið á land í Viðey. Verð kr. 700,- frítt fyrir börn 12 ára og yngri. Brottför frá Sundahöfn- Viðeyjarbryggju. Helgarferð 12.-14. junítil Þórs- merkur. Gist í Skagfjörðs- skála/Langadal. Farmiðar og upplýsingar á skrifstofu F.f., Mörkinni 6. Sjálfboöaliðar í land- græðsluferð til Þórsmerkur 19. júní ættu að gefa sig fram á skrifstofunni, Mörkinni 6. Laugardagur 13. júnf - Sögu- slóðir Njálu - brottför kl. 9.00. Ferðafélag Islands. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma í kvöld kl. 20.00. Samkomuherferðin, þar sem kapteinarnir Magna og Jostein Nielsen eru aðalræðumenn, heldur áfram i kvöld og næstu kvöld kl. 20.30. Fjölmennið á þessar góðu samkomur. Samvera fyrir fólk á öllum aldri í kvöld í Suðurhólum 35. Bænastund kl. 20.05. Samveran hefst kl. 20.30. Kall til þjónustu Ragnheiður Guðmundsdóttir og Karl Jónas Gfslason sjá um fund- inn. Fólk á öllum aldri er velkomiö. SAMBAND (SLENZKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58 Samkoma í kvöld kl. 20.30. Ræöumaöur: Sr. Ólafur Jóhannsson. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Biblíulestur í kvöld kl. 20.30. Ræðumaöur Hafliði Kristinsson. Allir hjartanlega velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.