Morgunblaðið - 10.06.1992, Side 48

Morgunblaðið - 10.06.1992, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ Mp3VIKUDAGUR;,-lQ.TJÚNJ' 1992 Þórður Guðmunds- son - Minning Fæddur 31. ágúst 1917 Dáinn 30. mai 1992 í dag er til moldar borinn móður- bróðir minn, Þórður Guðmundsson leigubílstjóri. Þórður, eða Doddi eins og við alltaf kölluðum hann, hafði kennt sér meins um nokkum tíma. Þar kom að ljóst varð, að því stríði lyktaði ekki nema á einn veg. Reyndar var Dodda það ljóst fyrir nokkuð löngu síðan hvert stefndi. Hann tók því með æðruleysi og jafn- aðargeði, skapgerðareiginleikar, sem einkenndu hann alla ævi. Til þess að skilja menn og læra að meta skaphöfn þeirra, lyndisein- kunn og aðra eiginleika, fínnst mér að maður þurfi að þekkja upp- mnann, jarðveginn, sem þeir spruttu úr, umhverfí og aðstæður sem áttu sinn þátt í að móta þá. Upplag, starf og þroski bæta síðan mikilvægum þáttum í myndina. Þórður Guðmundsson vær fædd- ur í Ólafsvík 31. ágúst 1917. For- eldrar hans voni hjónin Guðmundur Þórðarson og Ólafía K. Sveinsdóttir. Guðmundur Þórðarson var mikil- hæfur sjómaður og glæsimenni að valiarsýn. Hann stundaði sjó- mennsku á skútum og gerði síðan út, fyrst á árabátum og varð síðar fyrstur til að gera út vélbát frá Olafsvík. Báturinn hét Gammur og gerði Guðmundur hann út í félagi við annan. Guðmundur var sonur Þórðar Þórarinssonar frá Ytri-Bug og konu hans Kristínar Guðmunds- dóttur, sem ættuð var frá Gíslabæ á Hellnum. Þau Guðmundur og Ólafía bjuggu í Hruna í Ólafsvík og höfðu þar gjaman kú og nokkrar kindur auk útróðra. Foreldrar ólafíu voru Sveinn Ein- arsson ættaður úr Hvalfírði og Andrea Jóhannesdóttir frá Ber- serkjahrauni á Snæfellsnesi. Þórður Guðmundsson var næst- elstur átta' systkina. Elstur var Hallgrímur, sem dó á fyrsta ári, þá var Þórður, síðan Kristín, Aðal- heiður Sigríður, María Hallgerður, Nanna, Guðrún Andrea og Guð- mundur. Doddi ólst upp á myndarlegu og góðu heimili. En skyndilega syrti í álinn. Faðir hans, Guðmundur, tók árið 1935 þá sótt er leiddi hann til dauða. Á tuttugu ára brúðkaupsafmæli þeirra ólafíu var hann fluttur suður til lækninga og átti ekki aftur- kvæmt. Yngsta barnið, Guðmundur var þá nokkurra vikna gamalt. Þá breyttist allt. Fyrirvinnan horfín yfír móðuna miklu og heimilið tók að leysast upp. Þá komu eðlisþættir Ólafíu Sveinsdóttur vel fram. Sterkustu þættirnir í skapgerð hennar voru viljastyrkur og festa og þá eigin- leika erfðj Þórður sonur hennar ríkulega. Ólafía gat verið skaphörð og stundum skapstór, einkenni margra, sem standa meginhluta lífsins í brimrótinu, þar sem sjaldan hillir undir sléttan sjá. Þrátt fyrir aðeins 11/2 árs skóla- göngu var hún fróð vel og víðlesin og kunni ógrynnin öll af sögum og ljóðum. Aldrei man ég eftir að hún æðr- aðist, þótt óþægilega oft blési á móti. Með ráðvendni, sparsemi, stakri eljusemi og mikilli vinnu tókst henni að leysa vandann. Síðar, þegar hún bjó i Skölavörðuholtinu og vann með skúringum fyrir heimilinu ásamt Stínu var hún af nágrönnun- um kölluð „heiðarlega konan“. Þegar ég hugsa til þessara ára í braggahverfinu, umhverfísins þar og lífsins, þykir mér þessi nafngift eins og skínandi kóróna á höfði fátækrar ekkju. Kóróna, sem smíð- uð var úr svo hreinu og björtu gulli heiðarleika og réttsýni að glóði á í augum allra sem til þekktu. Doddi var aðeins átján ára, þegar hann missti föður sinn, og elstur systkinanna, en hann hafði ungur alist upp við sjóinn. Þrettán ára fór hann að stunda sjóróðra með föður sínum á skútum og nú tók hann við sexæringnum. Átján ára varð hann formaður á bátnum og hlutur hans var lagður til heimilisins. Á þessum árum var minna um sigl- ingatækni og öryggisbúnað en nú er. Þeir, sem reru á bátskeljum undir jöklinum, urðu að hafa vak- andi auga á öllu. Menn urðu að átta sig fljótt ef ský dró upp á him- in, syrti í vestrinu eða jafnvel ský- hnoðri á ákveðnum stöðum á jöklin- um. Þar gat skilið milli lífs og dauða. Menn vissu, að skjótt skip- uðust veður í lofti og þekktu veður- merkin og kunnu að lesa úr þeim. Doddi var góður og öruggur sjó- maður. Hann var snemma sterkur vel og handtökin voru föst og fum- laus. Móðir Dodda, Ólafía amma mín, varð að sækja vinnu til Reykjavík- ur. í Ólafsvík var ekkert að hafa. Hún fékk vinnu í Gamastöðinni. Kristín, sem verið hafði í vist í Reykjavík, kom heim 16 ára til þess að sjá um heimilið. Nanna var um tíma í fóstri á Hellissandi og María um tíma hjá prestshjónunum. Baráttan var hörð. Aðalheiður, móðir mín, lagði af stað á ferming- ardaginn sinn þrettán ára gömul til Reykjavíkur til þess að reyna að vinna fyrir sér og tók með sér yngsta bróðurinn, Guðmund á fyrsta ári, sem fór í fóstur í Hafnar- fírði. Líklega þætti mörgum það hörð örlög nú. í tvö ár gerði Doddi bátinn út, en 1938 fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur. Doddi tók vélstjóra- próf og stundaði um tíma sjó frá Keflavík. En hann tók líka snemma bílpróf og síðan meirapróf. Hann tók að keyra leigubíl og gerði það alla ævi síðan, í fímmtíu ár. Og vinnudagurinn var oft langur. Hann keyrði allar helgar, um nætur. Stundum hefur mér fundist margt líkt með sjómanninum, sem sækir fast og situr yfir veiðinni og leigu- bílstjóranum, sem situr um þá vinnu, sem er að hafa. Doddi var óvenju myndarlegur maður ungur. Ég man eftir að margar stúlkur sögðu að Þórður Guðmundsson væri myndarlegasti maðurinn, sem þær hefðu séð. Árið 1945 giftist Doddi Dagmar Clausen. Dæja var dóttir Onnu Maríu Einarsdóttur og Axels Claus- en á Heliissandi. Þau Doddi og Dæja kynntust ung fyrir vestan og felldu hugi saman. Ég held að leit hafi verið að myndarlegra pari. Ég man enn hvað hún Dæja var falleg. þó ég væri ekki nema sex ára var ég skotinn í henni. Mér fannst ekki hægt að eignast fallegri konu en hana Dæju. + Útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, VILHELMS STEINSEN fyrrv. bankafulltrúa, verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavik föstudaginn 12. júní nk. kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Krabbameinsfélag- ið og Barnaspítala Hringsins. Garðar Steinsen, Ásthildur G. Steinsen, Orn Steinsen, Erna Franklfn, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, LAUFEYJAR KRISTJÖNU BENEDIKTSDÓTTUR, Hvammi, Húsavík. Jónas Gunnlaugsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar og ömmu okkar, LILIAR HJÖRDfSAR AUÐUNSSON, Tunguvegi 6, Hafnarfirði. Þorsteinn Auðunsson, Þorsteinn Auðunn Pétursson, Ingunn St. Einarsdóttir, Hjálmar Pétursson, Lovísa Þórðardóttir, Róbert Einar Pétursson, Mikael Árni Bergmann Þorsteinsson. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför JENS V. MARTEINSSONAR, Marklandi 4. Sérstakar þakkir og kveðjur til lækna og starfsfólks í Hátúni og heimahjúkrun. Gerða Guðnadóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, JÓNS TRAUSTASONAR, Skúlagötu 76. Bjarni Jónsson, Hörður Hólm Garðarsson, Guðrún Ólafsdóttir, Þóra Haraldsdóttir, Kaj Larsen, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR frá Uppsölum, Eyjafirði, Hátúni 10B, Reykjavík, lést að kvöldi 6. júní. Jón Ólafsson, JúlíSæberg, Marino Þorsteinsson, Sigurður Þorsteinsson, Svava Berg, Ágústfna Berg, barnabörn og Guðrún Jónsdóttir, Sigrfður Karlsdóttir, Anna Garðars, Hraf nhildur Jónsdóttir, Ágúst Guðmundsson, Sigursteinn Jónsson, barnabarnabörn. + Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNLAUGUR GUNNLAUGSSON, Lambhaga 2, Selfossi, andaðist að Ljósheimum 7. júní sl. Jarðsett verður frá Selfosskirkju laugardaginn 13. júní kl. 13.30. Sigríður Ketilsdóttir, Erling Gunnlaugsson Guðrún Gunnarsdóttir, Erla Gunnlaugsdóttir, Ólafur íshólm Jónsson, Áskell Gunnlaugsson, Sesselja Óskarsdóttir, Eygló Gunnlaugsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Ásta Gunnlaugsdóttir, Björn Guðjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Og Þórður Guðmundsson var gæfumaður. Dæja bjó honum gott heimili og þau eignuðust góð og mannvænleg börn. Sem drengur kom ég oft á heim- ili þeirra. Segja má að heimili þeirra hafí verið mitt annað heimili, meðan þau bjuggu á Þórsgötu og síðar á Kársnesbraut og elsti sonur þeirra, Guðmundur, varð einn af mínum bestu vinum. Þegar ég renni huganum aftur til þeirra ára minnist ég þess að hafa ekki nokkum tíma heyrt falla styggðaryrði á milli þeirra. Ég held að hjónaband þeirra hafí verið óvenjufarsælt á þessum tímum upp- lausnar í heimi andstæðna. Börn þeirra Dodda og Dæju eru þijú: 1) Guðmundur Þórðarson, hér- aðsdómslögmaður, giftur Margréti Lindu Þórisdóttur. Guðmundur og Linda eiga þrjá syni, Guðmund Inga, Þórð og Jónas Þór. 2) Þórður Þórðarson, bæjarlögmaður í Kópa- vogi, giftur Lindu Leifsdóttur. Þau eiga saman dæturnar Thelmu og Dagmar. Fóstursonur Þórðar er sonur Lindu, Guðjón Leifur, og dótt- ir Þórðar er Sjöfn. Sonur Sjafnar og Lárusar Lárussonar var skírður daginn eftir andlát Dodda Aron Freyr. 3) Anna María Þórðardóttir, hjúkrunarfræðingur, gift Ragnari Jóhanni Jónssyni, viðskiptafræðingi og endurskoðanda. Þau eiga þtjá syni: Þórð Rafn, Jón Rafn og Átla Þór. Eins og fyrr segir hafði Doddi réttindi til leiguaksturs í 50 ár eða frá 1942 til 1992 og ók leigubíl nær óslitið allan þann tíma. Ólíklegt þykir mér að margir jafni það met. Ifyrst ók hann á Litla Bíl, síðar á Bifröst og loks á Hreyfli. Doddi var einn þeirra, sem átti akstursréttindi sem leigubflstjóri til 75 ára aldurs, en það voru aðeins þeir, sem réttindi höfðu áður en lögunum var breytt. Ekki var Doddi sáttur við að missa þessi atvinnu- réttindi 75 ára nú í ágúst, ef hann hefði lifað. En Dodda fannst það ólög að svipta menn réttindum á þennan hátt. Við ræddum þetta mál oft. í þeim orðræðum varð ég langskóla- maðurinn ævinlega að lúta í lægra haldi fyrir rökum hans. Og einmitt þetta var eitt af skapgerðarein- kennum frænda míns. Hann gafst aldrei upp, hann lét mótvindinn aldrei buga sig, hann bognaði aldr- ei. Þórður Guðmundsson var svo traustur og heill. Hann var vamm- laus. Ég man hvað mig langaði til að líkjast honum, þegar ég var lít- ill. Föðurlaus leit ég á hann, lítill drengur, sem föður. Atti enda alltaf hjá honum athvarf, ef á bjátaði. Aldrei brást hann illa við ærslum mínum né strákapörum. Tíminn og atvikin höguðu því svo að við hittumst sjaldnar hin seinni ár en við hefðum báðir kosið. En kynni mín af Dodda á uppvaxtar- árum mínum hafa reynst mér mikið veganesti á lífsleiðinni. Skapstyrkur hans og jafnaðar- geð, æðruleysi einkenndu hann fram á síðustu stund. Hann kvart- aði aldrei, enginn andbýr virtist hafa áhrif á hann. Hjá honum var ævinlega allt í lagi. Doddi reykti í þijátíu ár. Hann var ekki einn af þeim, sem voru

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.