Morgunblaðið - 12.06.1992, Síða 11

Morgunblaðið - 12.06.1992, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1992 11 LISTAHÁTIÐ I REYKJAVIK 1992 Aukatónleikar Undrabarn- anna fimm frá Rússlandi Hestamót helgarinnar: Opnar skeiðkappreiðar Fimm mót haldin um helgina AF ÞEIM fimm hestamótum sem haldin varða um helgina bera hæst mót Harðar í Kjósarsýslu á Varmárbökkum, mót Geysis á Gaddstaða- flötum þar sem einnig verður kynbótasýning og mót Mána á Suðurnesj- Hjá Herði hefst mótið í dag kiukkan 17.00 föstudag með dómum á B- flokki gæðinga og í beinu framhaldi dómar á A-flokki. Á laugardag hefst dagskráin klukkan 13.00 með úrslit- um í gæðingakeppni, kappreiðar hefjast klukkan fjögur. Verður skeið- ið opið en mótinu lýkur á laugardag. Hjá Geysi stendur sjálft mótið yfir laugardag og sunnudag en kynbóta- dómar hafa staðið yfir alla vikuna og verður úrvalið væntanlega sýnt á sunnudag. Sömuleiðis verður um tveggja daga mót að ræða hjá Mána en þeir halda sitt mót á Mánagrund í Keflavík. Á morgun laugardag verða Ljúfur í Hveragerði og Háfeti í Þorlákshöfn með sameiginlegt mót að Faxholti og íþrótadeild Smára verður með íþróttamót sitt að Flúð- um. Þá verða skagfirðingar með kyn- bótasýningu á Vindheimamelum á sunnudag en dómar hófust í gær fimmtudag. Húsíð opnað kl. 19.00 Dagskrd: Pétur Sigurðsson, formaður sjómannadagsrdðs, setur hóftð. Ingimar Eydal leikurfyrir matargesti. Þorvaldur Halldórsson syngur sjómannalög. | Model '79 sýna sjóstakkafrd MAX Berglind Bjórk dsamt bldu sveiflunni. Stórghesileg sýning d „ Can can “ dönsum. __________Matseðill____________ Sjdvarréttasúpa LambafiUe með Rósenpiparsósu fs með jarðarberjakremi Verð kr. 4.100 Hljómsveit Ingimars Eydalleikur jyrir dansi til kl. 03.00 Kyntiir kvöldsins: Rósa Ingóljsdóttir Miða- og borðapantanir á staðnum og í síma 687111. HQTELiSLAffi) Bónstöð Höfum fengið í einkasölu mjög þekkta bónstöð miðsvæðis í Reykjavík. Góð viðskiptasambönd. Verð 1.2 millj. VIÐSKIPTAÞJÓNUSTAN Ráðgjöf ■ Bókhald ■ Skattaaðstoð ■ Kaup og sala fyrirtœkja Síðumúli 31 ■ I0H Reykjavík ■ Sími 68 92 99 ■ Fax 68 1945 Kristinn B. Ragnarsson, viðskiptafrœðingur TÓNLEIKAR Undrabarnanna fimm frá Rússlandi á Listahátíð verða í Þjóðleikhúsinu 15. júní nk. Strax í upphafi Listahátíðar seldust aðgöngumiðar að tónleikunum upp og hefur nú verið efnt til aukatón- leika 16. júní í Þjóðleikhúsinu. Auk þess leika Undrabömin á tónleikum á ísafirði 13. júní og á Akureyri 14. júní. Rússnesku unglingamir fimm eiga það sameiginlegt að teljast undraböm í tónlist og hafa hvert um sig haldið tónleika víða um lönd og leikið inn á hljómplötur og -diska Frá flutningi á óratóríunni Messías eftir Handel í Háskólabiói 5. júni. Morgunblaðið/Árni Sæberg ORATORIAN MESSIAS Tónlist Soffía Guðmundsdóttir Einsöngvarar: Hanna Dóra Sturludóttir, sópran. Þóra Einarsdóttir, sópran. Þórunn Guðmundsdóttir, sópran. Sigríður Elliðadóttir, alt. Sigrún Jónsdóttir, alt. Sverrir Guðjónsson, kontratenór. Björn I. Jónsson, tenór. Guðlaugur Viktorsson, tenór. Jón Rúnar Arason, tenór. Bjarni Thor Kristinsson, bassi. Eiríkur Hreinn Helgason, bassi. Ragnar Davíðsson, bassi. Sinfóníuhljómsveit íslands. Stjórnandi: Jón Stefánsson. Á þeirri Listahátíð, sem stendur yfir þessa dagana, hefur hver merkisviðburðurinn rekið annan. Erlendir listamenn hafa borið okkur andblæ af ýmsum sviðum heimslist- arinnar eins og hún gerist vegleg- ust, og íslenzkir listamenn láta ekki sinn hlut eftir liggja. Þetta tvennt hlýtur ævinlega að vera megininn- tak og tilgangur, þegar efnt er til Listahátíðar; að opna sýn til um- heimsins og jafnframt njóta þess sem okkar eigin listamenn hafa unnið og eru að vinna að, íslenzkri menningu til eflingar. Tónleikarnir í Háskólabíó, er 250 manna kór, einsöngvarar og Sinfón- íuhljómsveit íslands fluttu óratór- íuna Messías eftir Handel undir stjórn Jóns Stefánssonar, báru ágætt vitni þvi starfí, sem innt hef- ur verið af hendi hina síðari áratugi á sviði söng- og tónmenntar hér á landi. Sú var tíðin, að það var ein- stakur merkisviðburður, er fullhug- ar í hópi tónlistarmanna stóðu fyrir flutningi öndvegisverka tónbók- mennta. Þótti oft í mikið ráðizt og sætti tíðindum. Æft var af kappi mánuðum saman. Mér telst svo til, að rúmlega hálf öld sé liðin frá því að Páll ísólfsson stjórnaði flutningi á Sköpuninni eftir Haydn, og ári síðar var Messías Handels fluttur undir stjórn Viktors Urbancic. Síð- an hefur margt gerzt. Nú er hóað saman fólki héðan og þaðan, haldn- ar eru örfáar æfingar, söngfólkið kemur með sína bók og syngur Messías. Einsöngvarar, að þessu sinni tólf talsins, eru til kvaddir, ungir söngvarar, sem eru að hefja flugið „á vængjum söngsins". Þeir stóðu sig vel, sumir ágætlega, voru sjálfum sér til sóma svo og þeim, sem staðið hafa að þeirra skólun og músíkuppeldi. Og það var meira að segja kontratenór í þeirra hópi Sverrir Guðjónsson, sem söng fag- urlega altaríuna O thou that tel- lest. Við stjórnvölinn var Jón Stef- ánsson, og er skemmst frá að segja, að þetta var svipmikill flutningur og stór í sniðum. Undir frábærri stjórn Jóns náðist einmitt sá upp- lyfti fagnaðarríki blær, sem er svo einkennandi fyrir Messías Handels þar sem hið stórfenglega birtist með yfirburðum einfaldleikans. Það ríkti mikil stemmning í Háskólabíó á þessum tónleikum og áheyrendur þökkuðu flytjendum og stjórnanda innilega. Hallelújakórinn var svo endurtekinn í lokin svo sem vera ber, við mikinn fögnuð viðstaddra. Bandamanna- saga fær góð- ar viðtökur SÝNINGUM á leikgerð Sveins Einarssonar á Bandamannasögu hefur verið vel tekið. Tvær síð- ustu sýningar í Norræna húsinu verða um næstu helgi, laugardaginn 13. júní kl. 17 og sunnudaginn 14. júní kl. 15. Ekki verða fleiri sýningar á verkinu á Lista- hátíð. Bandamannasaga er sam- vinnuverkefni milli Norræna hússins og leikhópsins, og var sérstakt framlag þessara aðila til Norrænna leiklistardaga sem fóru fram um hvítasunn- una. Höfundur leikgerðarinn- ar og leikstjóri er Sveinn Ein- arsson. frá unga aldri. Þau koma hingað á vegum samtaka er nefna sig New Names sem voru stofnuð í Rúss- landi 1989. Þeir sem fram koma á tónleikun- um eru Grígoríj Goijatsjov, 15 ára gítarleikari frá Pétursborg, Alex- ander Kobrin, 12 ára píanóleikari og nemandi við Tónlistarakadem- íuna í Moskvu, Ilja Konovalov, 15 ára fíðluleikari og nemandi við Tón- listarakademíuna í Novosibrisk, Olga Pushetsnikova, 15 ára píanó- leikari frá Moskvu sem stundar nám við Central Musical School og Vlad- ímir Pushetsnikov, 14 ára trompet- leikari, nemandi við Tónlistaraka- demíuna í Moskvu og bróðir Olgu. DAGSKRAIN ÍDAG Borgarleikhús: Súkkul- aði-Mozart, (Mozart au Chocolat), kl. 20. Háskólabíó, salur 2: Opnun Halldórsstefnu kl. 21. Klúbbur Listahátíðar, Hressó Hljómsveitin Todmobile, kl. 22.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.