Morgunblaðið - 12.06.1992, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1992
35
ánægjan hjá henni yfir að fá heim-
sókn og fylgjast með högum afkom-
endanna. Og mikið var samfagnað
ef áfanga var náð. En jafnframt var
hvatt til frekari dáða. Fyrsta sjálf-
stæða heimsókn mín í Meðalholtið
orsakaði að vísu uppistand. Það hef-
ur verið árið 1949, að ég ákvað að
ég gæti farið einn úr Mjölnisholti í
Meðalholt. Sú ferð tók víst drjúga
dagstund og var haldið að drengur-
inn hefði farið sér að voða. Á leiðar-
enda komst hann þó og fékk þar ríku-
lega umbun.
Bamabömin ömmu Maríu urðu
þrettán, barnabarnabörnin orðin
tuttugu og fjögur og barnabama-
barnabarnið er orðið sjö ára. Þessi
hópur allur átti hauk í horni í ömmu
í Meðalhoiti. Þaðan bárust t.d. listi-
lega pijónaðir vettlingar og sokkar
og þaðan bámst bréf og póstkort
þegar dvalist var erlendis. Sendibréf
ömmu voru ávallt hlý og vel skrifuð.
Hún tók virkan þátt í félagsstörf-
um, t.d. innti hún mikið og óeigin-
gjarnt starf af hendi á vegum
kvennadeildar Slysavarnafélags ís-
lands. Starfaði hún þar m.a. mikið
með vinkonu sinni, Gróu Pétursdótt-
ur, sem lengi var formaður deildar-
innar. Árið 1980 var amma kjörin
heiðursfélagi kvennadeildar slysa-
varnafélagsins í þakklætisskyni fyrir
giftudijúg störf.
Þá söng hún í mörg ár í kirkjukór
Óháða safnaðarins og tók þátt í upp-
byggingu kirkju hans við Stakkahlíð.
Við Jóhanna föðursystir fórum í
sunnudagaskóla til sr. Emils, fyrst í
samkomusal Austurbæjarbarnaskól-
ans og síðar í kirkju safnaðarins við
Stakkahlíð og þar fermdust við fyrir
tilstilli ömmu. Hún spilaði mjög vel
á forláta orgel í stofunni í Meðal-
holti. Meðal undrunarefna æskuár-
anna var, að mér fannst hún kunna
alla sálmabókina utanað. Á prestum
og trúmálum hafði amma afgerandi
skoðanir, eins og svo mörgu öðru.
Prestar voru t.d. ekki prestar ef þeir
ekki gátu tónað, fannst henni. Hún
var ávallt viss í trú sinni á líf eftir
dauðann. Þess vegna óttaðist hún
hann ekki frekar en flestir af alda-
mótakynslóðinni. Hún var sjálf búin
að ákveða nákvæmlega sálma þá,
sem sungnir verða í Dómkirkjunni í
dag. Við sem á eftir göngum tökum
hressilega undir og þökkum langt
og farsælt líf og starf ættmóðurinnar
Maríu Hannesdóttur.
Blessuð sé minning hennar.
Hjálmar.
I örfáum orðum langar mig að
minnast María Hannesdóttur
ömmusystur minnar, eða „Mæju
ömmu“ eins og ég og systur mínar
kölluðum hana allt frá barnsaldri.
Ekki var ég hár í loftinu þegar ég
fór niður til að fá nammi og gott
að drekka þar, einnig til að hlusta
á orgelspil hjá henni. Er ég fluttist
úr Meðalholtinu fækkaði ferðum lít-
ið þangað, til ömmu og Mæju
ömmu, og urðu þær einn af föstu
punktum lífs míns fram eftir aldri.
Eg vil fyrir hönd systra minna
þakka Mæju ömmu allar góðar
stundir, og hlýhug í okkar garð á
liðnum árum. Hafi hún ástarþakkir
fyrir allt.
Ingimar Bragi Stefánsson.
María var fædd í Stykkishólmi,
elsta dóttir hjónanna Hannesar
Andréssonar skipstjóra og Jóhönnu
Þórunnar Jónasdóttur frá Helgafelli.
Móðir hennar dó er hún var 10 ára.
Um fermingaraldur dvaldist María
við ýmis störf í Breiðafjarðareyjum,
en fer 17 ára til Reykjavíkur. Árið
1922 giftist María Jóni Guðmunds-
syni frá Hjalla í Ölfusi, en þau settu
saman bú að Bakka í sömu sveit.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
vió öll tækifæri
Bblómaverkstæði
INNAæ.
Skólavörðustíg 12
á horni Bérgstaðastrætis
sími 19090
Jón andaðist fjórum árum síðar og
fluttist María þá til Reykjavíkur með
börn þeirra tvö, Hannes og Herdísi.
Eftir það bjó María allan sinn aldur
í Reykjavík.
Til að sjá börnunum farborða
pijónaði María fatnað úr ull og notað-
ist ávallt við handknúna pijónavél.
Þannig fengu óteljandi unglingar
hlýja og góða flík, er entist þeim
vel. Þannig man ég þessa fínlegu
frænku mína, sístarfandi, ítandi sleð-
anum fram og aftur, þar til ný flík
birtist.
Árið 1937 giftist María Ingimar
Björnssyni, sjómanni og vélvirlq'a, én
hann dó langt um aldur fram 1967.
Með Ingimar átti hún tvö böm, Jó-
hönnu og Ingimar Braga. Ingimar
Bragi dó aðeins 11 ára gamall.
Systkini Maríu voru Gunnar, Al-
fons, Sigríður og Ástríður, en þau
eru öll látin.
Börn Maríu voru fjögur. Dr. Hann-
es Jónsson fyrrv. ambassador,
kvæntur Karen Waag, þau eiga sjö
böm; Herdís Jónsdóttir kennari, var
gift Haraldi Árnasyni vélfræðingi,
en þau eiga fjögur böm; Jóhanna
Ingimarsdóttir kennari, gift Stein-
grími Hálfdánarsyni loftskeyta-
manni, en þau eiga tvö böm.
í nær fímmtíu ár bjuggu þær syst-
ur María og Sigríður í Meðalholti 9.
Þar leið þeim vel og bjuggu við mik-
ið öryggi. Dugnaður Maríu var ein-
stakur. Eftir að Ingimar dó 1967 og
María einstæð móðir í annað sinn
hélt hún heimili með reisn fram til
hins síðasta, vildi sem minnsta að-
stoð þiggja, þar sem hún gat komið
höndum við sjálf.
Hún sótti þrótt og gleði í kvæði
og tónlist, spilaði á orgelið sitt og
söng af list. María starfaði að mál-
efnum slysavamafélagsins í áratugi,
ekki með hávaðasömu tali heldur
hljóðlega og af sinni eðlislægu hóg-
værð. Hún var heiðurfélagi Slysa-
vamafélags íslands. Guð blessi minn-
ingu Maríu Hannesdóttur.
Þórir Jónsson.
Fleiri greinar um Maríu
Hannesdóttur bíða birting-
ar og munu birtast næstu
daga.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma
INGEBORG B. SIGURÐSSON,
Grænumörk 3,
Selfossi,
lést að morgni 10. júní.
Ernst Sigurðsson,
Kristin M. Sigurðsson, Einar L. Gunnarsson,
Margrét Sigurðsson, Baldur Jónasson
og barnabörn.
t
Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur, dóttursonur og frændi,
MATTHÍAS Þ. GUÐMUNDSSON,
Miðvangi 121,
Hafnarfirði,
lést þann 7. júní.
Ragnheiður Matthíasdóttir, Guðmundur Brandsson,
Guðmundur R. Guðmundsson, Ingibjörg S. Ingjaldsdóttir,
Ragnheiður B. Guðmundsdóttir, Ægir Örn Guðmundsson,
Örvar Þór Guðmundsson, Ragnheiður G. Guðmundsdóttir
og systkinabörn.
Utför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
VILHELMS STEINSEN
fyrrv. bankafulltrúa,
verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, föstudaginn
12. júní, kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Krabbameins-
félagið og Barnaspítala Hringsins.
Garðar Steinsen, Ásthildur G. Steinsen,
Orn Steinsen, Erna Franklm,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNLAUGURGUNNLAUGSSON,
Lambhaga 2,
Selfossi,
andaðist að Ljósheimum 7. júní sl.
Jarðsett verður frá Selfosskirkju laugardaginn 13. júní kl. 13.30.
Sigriður Ketilsdóttir,
Erling Gunnlaugsson Guðrún Gunnarsdóttir,
Erla Gunnlaugsdóttir, Ólafur (shólm Jónsson,
Áskell Gunnlaugsson, Sesselja Óskarsdóttir,
Eygló Gunnlaugsdóttir, Sigurður Guðmundsson,
Ásta Gunnlaugsdóttir, Björn Guðjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Dóttir mín, móðir, tengdamóðir og amma,
BJÖRG SÆMUNDSDÓTTIR,
Grettisgötu 54,
Reykjavík,
andaðist í Landspítalanum að morgni hvítasunnudags 7. júní.
Útför hennar verður gerð frá Stóra-Vatnshornskirkju í Haukadal
laugardaginn 13. júní kl. 14.00.
Sæmundur Jónsson,
Sigurbjörg Sigurðardóttir,
Barry Wéaving
og barnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn,
MAGNÚS EINARSSON,
Litlagerði 1,
Hvolsvelli,
verður jarðsunginn frá Breiöabólstaðarkirkju laugardaginn 13. júní
kl. 14.00.
Ragnheiður Guðmundsdóttir.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Fossheiði 34,
Selfossi,
er lést þann 9. júní, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardag-
inn 13. júní ki. 11.00 árdegis.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Selfosskirkju, Sjúkra-
hús Suðurlands og Ljósheima, dvalarheimili aldraðra, Selfossi.
Þorbjörg Sigurðardóttir, Kolbeinn I. Kristinsson,
Sigríður Ragna Sigurðardóttir, Hákon Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi, sonur og bróðir,
KRISTJÁN JÓNSSON,
Kleppsvegi 118,
lést í Landspítalanum 31. maí.
Útförin hefur farið fram.
Þökkum hlýhug og samúð.
Steinunn Sölvadóttir, Ida Sigríður Kristjánsdóttir,
Inga Dóra Kristjánsdóttir, Auðunn Kjartansson,
Kjartan Sölvi Auðunsson,
Sigriður Arnf innsdóttir, Auður Jónsdóttir
og aðrir vandamenn.
+
Ástkæreiginmaður minn, faðirokkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JAKOB GUÐLAUGSSON,
Skaftafelli,
sem andaðist 4. júní, verður jarðsunginn frá Hofskirkju í Öræfum
laugardaginn 13. júní kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á hjúkrunarheimilið
Skjólgarð, Höfn, Hornafirði.
Guðveig Bjarnadóttir,
Sigurður Jakobsson, Ragnheiður Þórarinsdóttir,
Þorsteinn Jakobsson, Guðrún Friðriksdóttir,
Bjarni Jakobsson, Kristbjörg Jónsdóttir,
Heiðar Jakobsson, Ragnhildur Hjaltadóttir,
Guðlaug Jakobsdóttir, Laurent Gressier,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför bróður og móðurbróður okkar,
KÁRA GÍSLASONAR,
Skipasundi 70.
Krístín Gísladóttir,
Guðrún B. Árnadóttir,
Inga B. Árnadóttir.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð,
vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður
okkar, dóttur, tengdadóttur og systur,
ÖNNUMARY SNORRADÓTTUR.
Sigmundur Jóhannesson,
Tinna Björk Sigmundsdóttir, Arna Þöll Sigmundsdóttir,
Snorri Ólafsson,
Jóhannes Sigmundsson, Hrafnhildur S. Jónsdóttir,
Nikolina Th. Snorradóttir, Sigurvin Snorrason,
Jón Freyr Snorrason, Þorbjörg Snorradóttir.
Lokað
Útibú íslandsbanka, Laugavegi 105, verður lokað
milli kl. 10.00-13.00 föstudaginn 12. júní vegna
útfarar BJÖRNS HJARTARSONAR, utibússtjóra.