Morgunblaðið - 12.06.1992, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1992
Reuter
Börn að leik í Beirút
Á þessarri friðsælu mynd má sjá börn skemmta sér á frumstæðu Parísarhjóli í skemmtigarði í Beirút
í Líbanon. Víða um hinn íslamska heim gerðu menn sér dagamun í gær í tilefni af fórnarhátíð músl-
ima, Adha. Friður ríkir nú að mestu í Beirút eftir 15 ára blóðuga borgarastyijöld.
Fjarlægar
plánetur
fundnar?
Pasadena, Kaliforníu. Reuter.
VÍSINDAMENN við Bandarísku
geimrannsóknastofnunina, NASA,
hafa fundið merki um fylgihnetti
í kringum átta stjörnur í 450 ljós-
ára fjarlægð, sem þeir telja hugs-
anlegt að séu plánetur.
Stjörnumar eru í sömu vetrar-
braut og okkar sólkerfí, á einu af
tveimur svæðum í „nágrenni" jarðar
þar sem stjömumyndun á sér stað.
Aðstæður þar eru taldar líkar því sem
var þegar jörðin og aðrar plánetur
mynduðust fyrir um fjórum milljörð-
um ára úr gasdiski umhverfís sólina.
Vísindamennimir fundu eyður í gas-
diskunum umhverfis stjömurnar með
mælingum á innrauðum geislum, en
það telja þeir merki um að gasið sé
farið að þéttast í fylgihnetti. Enn sem
komið er telja þeir sig þó ekki geta
sagt hvort hnettimir séu daufar
stjörnur, svokallaðir brúnir dvergar,
eða plánetur á borð við jörðina eða
Júpiter.
Stjörnufræðingum hefur gengið
erfíðlega að fínna ábyggilegar sann-
anir fyrir tilvist pláneta utan okkar
sólkerfis, en slíkur fundur myndi
ekki einungis auka skilning á mynd-
un sólkerfisins, heldur eflatrú manna
á því að líf fyndist á öðmm stöðum
en jörðinni.
Vaxandi andstaða við Maast-
richt-samninginn í Evrópu
Bonn, Brussel, Dyflinni, París. Reuter.
ANDSTAÐA við Maastricht-samkomulagið hefur vaxið í mörgum
ríkjum Evrópubandalagsins eftir að Danir höfnuðu því í þjóðarat-
kvæðagreiðslu í síðustu viku. Hópur þýskra hagfræðinga fordæmir -
samninginn í sérstakri yfirlýsingu og aukinnar tortryggni gætir
gagnvart honum á meðal franskra og þýskra þingmanna.
í yfirlýsingu 62 virtra hagfræð-
inga í Þýskalandi, sem birt var í
gær, er Maastricht-samkomulagið
fordæmt og því lýst sem óþörfu
skrefí, sem sé líklegt til að stefna
frekari samrunaþróun í Evrópu í
voða. Hópurinn er hlynntur evr-
ópsku myntbandalagi og frekara
efnahagssamstarfi Evrópubanda-
lagsins (EB) en telur að Maastricht-
samkomulagið sé byggt á veikum
gmnni og að hroðvirknislega hafi
verið að því staðið. „Það em niður-
stöður Maastricht-fundarins, en
ekki andstaðan við þær, sem stefna
sammna Evrópuríkja, án átaka, í
hættu,“ segir í yfirlýsingunni.
Masastricht-samkomulagið gerir
ráð fyrir að myntbandalagi EB-ríkj-
anna og efnahagssamruna þeirra
verði komið á í síðasta lagi árið
1999. Hagfræðingamir segja að
slíkt verði mörgum ríkjum erfítt,
ef ekki ókleift, á svo stuttum tíma
og benda einkum á ströng skilyrði
samkomulagsins gagnvart verð-
bólgu og fjárlagahalla, sem erfítt
verði að fullnægja. „Það fínnast
engin sannfærandi rök fyrir því, að
koma á sameiginlegu myntbanda-
lagi Evrópu á meðan álfan er ekki
sameinuð í efnahagslegum, félags-
legum eða pólitískum skilningi,"
segja hagfræðingamir í niðurstöð-
um sínum.
Hingað til hefur ekki borið á
mikilli andstöðu í Þýskalandi gegn
hinni evrópsku sammnaþróun og
hefur gagmýnendum hennar hing-
að til oft verið brigslað um dulda
þjóðemishyggju. Talið er að niður-
stöður dönsku þjóðaratkvæða-
greiðslunnar hafí breytt þessu en
yfírlýsing hagfræðinganna er þung-
vægasta gagnrýnin, sem hefur
komið fram á samkomulagið í
Þýskalandi.
Leiðtogar, þýsku sambandsland-
anna óttast að Maastricht-samkom-
ulagið muni flytja völd úr höndum
þeirra til sambandsstjómarinnar í
Bonn eða til stofnana EB í Bmss-
el. Ráðherra Evrópumála í Rhein-
land-Pfalz, Florian Gerst, sagði í
gær að ef um víðtækt valdaafsal
yrði að ræða kynni að fara svo, að
samningurinn yrði felldur á þingum
landanna.
Tæp vika er nú til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um Maastricht-
samninginn í írlandi og samkvæmt
niðurstöðum skoðanakönnunar,
sem birtar vom í gær, em 57% íra
fylgjandi honum, 28% á móti en 15%
tóku ekki afstöðu. Benda má á, að
þessi niðurstaða er svipuð mörgum
niðurstöðum úr mörgum skoðana-
könnunum, sem vom gerðar í Dan-
mörku áður en samningurinn var
felldur þar í síðustu viku. Séu niður-
stöður könnunarinnar marktækar
er ljóst að andstæðingar samnings-
ins hafa unnið mjög á síðastliðnar
vikur en í sambærilegri könnun í
síðasta mánuði vom sex af hveijum
sjö, af þeim sem tóku afstöðu,
hiynntir honum. Fjórir stærstu
stjómmálaflokkar írlands styðja
samkomulagið.
Efri deild franska þingsins sam-
þykkti í gær breytingartillögu við
Maastricht-samkomulagið sem fel-
ur í sér takmörkun á lagasetningar-
valdi EB. Þetta er áfangasigur fyr-
ir andstæðinga samningsins en þó
er talið líklegt að samningurinn
verði á endanum samþykktur
óbreyttur á sameiginlegum þing-
fundi beggja deilda. Eigi að síður
hefur frönsku stjóminni mistekist
að hraða afgreiðslu samningsins í
þinginu eins og hún ætlaði sér.
Francois Mitterrand Frakklandsfor-
seti útilokar ekki þjóðaratkvæða-
greiðslu um samninginn í heild síð-
ar á árinu.
Jacques Delors, forseti fram-
kvæmdastjórnar EB.
Evrópubandalagið:
Breytingartillögum Breta við
Maastricht fremur fálega tekið
London. The Daily Telegraph.
STJÓRNVÖLD í Danmörku og fleiri Evrópubandalagsríkjum hafa
vísað á bug tillögum og tilraunum Breta til að bjarga Maastricht-sam-
komulaginu. Þykja þær fremur yfirborðskenndar og jafnvel líklegar
til að hafa þveröfug áhríf við það, sem ætlast er. Þjóðveijar hafa
þó lýst yfir efnislegum stuðningi við þær þótt þeir vilji ekki breyta
samkomulaginu. John Major, forsætisráðherra Breta, sagði í gær
að samkomulagið yrði ekki borið undir breska þingið fyrr en í októ-
ber, en mikil óánægja hefur verið um það meðal flokksmanna hans.
Bretar vilja breyta einu megin-
atriði Maastricht-samkomulagsins
þannig að það ýti undir að ákvörð-
unarvaldið flytjist að nokkru frá
Brussel og heim í hérað eða til þjóð-
þinga aðildarríkjanna. Anders Fogh
Rasmussen, fiármálaráðherra Dan-
merkur, hafnaði þessum tillögum á
miðvikudag með þeim orðum, að
þser breyttu engu um skoðun dan-
skra kjósenda, sem felldu Maastric-
ht-samkomulagið í síðustu viku.
Tillögur Breta um breytingar á
Maastricht-samkomulaginu eru
ekki aðeins tilkomnar vegna um-
hyggju fyrir stöðu Dana innan Evr-
ópubandalagsins, heldur ekki síður
vegna ástandsins á breska þinginu
og andstöðu margra þingmanna
íhaldsflokksins við Maastricht. Do-
uglas Hurd utanríkisráðherra vill
umfram allt komast hjá því, að sam-
komulagið verði allt tekið til endur-
skoðunar en við það myndu vakna
upp aftur í Bretlandi óánægjan með
of mikið miðstjómarvald í Bmssel.
Þess vegna vill hann reyna að
„snyrta" Maastricht-samkomulagið
þannig, að unnt verði að bera það
aftur undir danska kjósendur.
Andi laganna borinn ofurliði
í samkomulagsgreininni, sem
Bretar vilja breyta segir að megin-
reglan sé sú að ákvarðanir séu tekn-
ar í aðildaríkjunum sjálfum nema
þegar um sé að ræða mál, sem eru
svo viðamikil og afdrifarík að þau
missi marks nema Evrópubandalag:
ið sjálft taki um þau ákvörðun. í
sjálfu sér em allir sáttir við þessa
reglu, heimastjórnaregluna svo-
nefndu, en það hefur sýnt sig í
gegnum árin, að embættismennirn-
ir í Brussel eru glúmir við að rétt-
læta það með tilvísan til Rómar-
samningsins að ákvörðunarvaldið í
hinum ólíklegustu málum skuli vera
í Brussel. Breyting á ákvæðinu
væri því marklaus nema nákvæm-
lega væri tilgreint hvað væri á vald-
sviði ríkisstjórnanna og hvað ekki.
Verkamaður kannar
skemmdir á byggingu í mið-
borg London eftir sprengjut-
ilræði í gær.
Sprenging
í miðborg
London
TJÓN varð á byggingum í Vikt-
oríustræti í miðborg London í
fyrrinótt er sprengja írskra
hryðjuverkamanna sprakk í
ruslatunnu. Atvikið átti sér stað
skammt frá aðalstöðvum
bresku lögreglunnar og þing-
húsinu. Þingið hafði 20 mínút-
um áður en sprengingin varð
framlengt neyðarlög bresku
stjómarinnar á Norður-írlandi.
Talið er að í sprengjunni hafí
verið um eitt kíló af semtex-
sprengiefni.
Japanir and-
mæla hval-
veiðibanni
MASAMI Tanabu, landbúnað-
ar- og sjávarútvegsráðherra
Japans, sagði í gær að sam-
þykkti Alþjóðahvalveiðiráðið
(IWC) á fundi sínum í Glasgow
28. júní nk. tillögu Frakka um
algjört hvalveiðibann við Suð-
urskautið gæti það orðið Japön-
um tilefni til að yfirgefa hval-
veiðiráðið. Lét hann þessi um-
mæli falla á mikilli hvalkjötshá-
tíð í Tókíó þar sem hundruð
stjórnmálamanna, embættis-
manna og frægra Japana
snæddu ýmsa hvalkjötsrétti til
þess að sýna stuðning við að
Japanir héldu í fornar matar-
og lífsvenjur.
Líbýu-
menn kaupa
hótel í London
BRESKA stjórnin veitti í gær
leyfí fyrir því að ríkisfyrirtæki
í Líbýu fengi að kaupa þriðjung
í Metropole-hótelkeðjunni fyrir
177,5 milljónir punda, jafnvirði
18,7 milljarða ISK. Fyrirhuguð
kaup Líbýumanna á hótelunum
fimm vakti miklar deilur vegna
Lockerbie-málsins. Tveimur
dögum fyrir ákvörðun bresku
stjómarinnar afhentu líbýskir
embættismenn breskum stjórn-
arerindreka í Genf upplýsingar
um samskipti írska lýðveldis-
hersins (IRA) og Líbýumanna.
S-Týról fær
sjálfsforræði
ÞRJÁTÍU ára deilu yfírvalda í
Vínarborg og Róm um Alto
Adige héraðið (Suður-Týról) á
Norður-Ítalíu lauk í gær er
Austurríkismenn samþykktu
áætlanir um sjálfsforræði hér-
aðsins, sem ítalska þingið sam-
þykkti í ársbyrjun. Þar er með-
al annars kveðið á um að opin-
berir embættismenn verði að
geta mælt bæði á þýsku og ít-
ölsku. Ennfremur að skólar
verði starfræktir þar sem
kennsla fer fram á þýsku.