Morgunblaðið - 12.06.1992, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1992
29
NÁMSKEIÐ í umhverfistúlkun
verður haldið í Alviðru dagana
21.-25. ágúst nk. Námskeiðið
er einkum ætlað kennurum og
fóstrum eða öðrum þeim er
vinna að fræðslu og uppeldis-
störfum.
Á námskeiðinu verður gerð
grein fyrir þeirri hugmyndafræði
sem liggur að baki umhverfistúlk-
un sem hluta af umhverfisfræðslu
og leitast verður við að skýra
umhverfístúlkun með verklegum
dæmum, s.s. gönguferðum. Farið
verður í helstu aðferðir við um-
hverfistúlkun og bent á leiðir til
að tengja hána öðrum þáttum.
Lögð er áhersla á virkni þátttak-
enda og verkefni sem nýtast þeim
í starfí.
Efni námskeiðsins er skipt í
fjóra hluta: Hugmyndafræði,
tengsl við ýmsa þætti fræðslu,
helstu aðferðir við umhverfístúlk-
un og umræður. Fyrri hluti nám-
skeiðsins felst að mestu í fyrir-
lestrum og æfíngum þar sem
umhverfístúlkun er skilgeind svo
og umræðum. Á síðari hluta nám-
skeiðsins verður þátttakendum
skipt í fjóra hópa og spreyta þeir
sig í umhverfístúlkun út frá ýms-
um sjónarhomum. Námskeiðinu
lýkur með gerð hópverkefna.
Fermingar á landsbyggðinni
Ferming í Víðidalstungukirkju
14. júní kl. 11. Prestur sr. Guðni
Þór Ólafsson.
Fermd verða:
Hallfríður Ósk Ólafsdóttir,
Víðidalstungu.
Harpa Ragnarsdóttir,
Hrísum.
Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir,
Dæli.
ísólfur Líndal Þórisson,
Lækjamóti.
Jón Hilmar Karlsson,
Hvammstanga.
Leó Viðar Bjömsson,
Litlu-Ásgeirsá.
Ólafur Sigfús Benediktsson,
Gröf n.
Ferming í Tjarnarkirkju, Vatns-
nesi, Húnavatnsprófastsdæmi,
14. júní kl. 14. Prestur sr. Krist-
ján Björnsson.
Fermdur verður:
Öm Steinar Ásbjamarson,
Þorgrímsstöðum.
Loftárás á Seyðisfjörð að hefjast
DAGANA 13.-28. júní næstkom-
andi verður haldin óháð listahá-
tíð í Reykjavík og hefur hún hlot-
ið nafnið „Loftárás á Seyðis-
fjörð“. Á hátiðinni koma fram
u.þ.b. 500 listamenn úr öllum list-
greinum. í Héðinshúsinu, vestast
á Vesturgötunni, verður dagskrá
alla dagana nema 22. og 23. Þar
verða sex stórir rokktónleikar,
um 50 hljómsveitir, leikinn blús,
flutt ljóð og gjörningar auk þess
sem fjöldi leikliópa af öllum
stærðum og gerðum kemur fram.
Sýndar kvikmyndir og vídeó-
verk, fram koma kórar og söng-
hópar auk danshópa og margt
fleira óvænt og skemmtilegt
bæði fyrir börn og fullorðna.
Myndlist verður sýnd á Bergstöð-
um, bílastæðahúsi við Bergstaða-
stræti, í Djúpinu, auk þess sem þar
verður leikin jass- og gospeltónlist,
á 22 við Laugaveg, í Geysishúsinu
við Vesturgötu, Galleríi einn einn
við Skólavörðustíg, í Hlaðvarpan-
um, á Næstu grösum, á Kaffí splitt,
á Púlsinum og í Galleríi. Ingólfs-
stræti á homi Bankastrætis og Ing-
ólfsstrætis. Þar verður og klassísk
tónlistardagskrá flesta dagana, þar
sem fram munu koma margir af
þekktustu einieikurum, söngvurum
og tónskáidum landsins.
í Borgarleikhúsinu verða frum-
sýnd sex dansverk eftir innlenda
og erlenda danshöfunda.
í MÍR-salnum við Vatnsstíg
verða sýndar allar kvikmyndir Eis-
ensteins, auk allra mynda Friðriks
Þórs Friðrikssonar. Sönghópurinn
Vocis Thulis verður með sumarsól-
■ LAUGARDAGINN 13. júní kl.
14.00 heldur Málfundafélag al-
þjóðasinna opinberan fund undir
yfírskriftinni „Kreppan í Svíþjóð og
átökin um verslun og viðskipti í
Evrópu“. Frummælandi er Carl-
Erik Isacsson, baráttusinni úr
verkalýðshreyfíngunni í Svíþjóð. Að
lokinni framsögu Carl-Eriks verða
fijálsar umræður. Fundurinn fer
fram í aðsetri málfundafélagsins á
Klapparstíg 26, 2. hæð og er öllum
ópinn.
(Fréttatilkynning)
stöðutónleika þann 21. í Fossvogs-
kirkju þar sem sungin verður mið-
aldatónlist.
Enginn af þeim listamönnum sem
fram koma á hátíðinni þiggur laun
fyrir vinnu sína, en eitt af markmið-
um hátíðarinnar er að sýna fram á
nauðsyn þess að listamenn í Reykja-
vík eignist sitt eigið fyjöllistahús og
er ljóst að þörfín er fyrir hendi.
Gefínn hefur verið út ítarlegur
dagskrárbæklingur sem dreift er
ókeypis. Miðaverð á hátíðina er
mismunandi. Aðgangur er ókeypis
á allar myndlistarsýningar og í
MÍR-salinn, en annars staðar er
aðgangseyri haldið í lágmarki. Seld-
ir verða 200 forsölumiðar á hátíðina
og munu þeir gilda á alla dag-
skrána nema í Borgarleikhúsið.
Miðamir verða til sölu á Kaffí 22
við Laugaveg alla daga milli kl. 14
og 1"6.
Hátíðin verður opnuð 13. júní kl.
14 í öllum galleríunum samtímis
og verða óvæntar uppákomur á öll-
um stöðunum. Opnunarhátíðinni
verður framhaldið í Héðinshúsinu
um kvöldið.
(Fréttatilkynning)
Tóvinna á baðstofuloftinu í Árbænum.
Arbæjarsafn:
Heimilisiðnaðardagur
SUNNUDAGINN 14. júní verð-
ur haldinn heimilisiðnaðardag-
ur á Árbæjarsafni. Sýndar
verða ýmsar tegundir af vefn-
aði ásamt aðferðinni við að lita
ull og spinna úr hrosshári.
Sýnt verður hvemig bönd voru
ofín og brugðin með ýmsum að-
ferðum, spjaldofín, fótofín eða
kríluð.
Frá fornu fari hafa íslendingar
klæðst mest fötum í sauðalitun-
um. Þó er saga jurtalitunar
jafngömul þjóðinni og sömu grös-
in notuð til litunar þá og nú, svo
sem sortulyng, beitilyng, fjall-
drapi og litunarskóf.
Á baðstofuloftinu í Árbænum
verður tóvinna í fullum gangi,
ullin kembd, spunnin, pijónuð og
sýnt verður hvernig hrosshár er
spunið. Til að auka á stemmning-
una verða kveðnar rímur.
í eldhúsinu verður sýnt hvemig
ijóminn er skilinn frá mjólkinni í
skilvindu og síðan strokkaður í
smjöri. Jafnframt fá gestir að
kynnast osta- og skyrgerð. Þá
verða hinar vinsælu grautarl-
ummur bakaðar og sýnt hvemig
kaffí var brennt og malað.
Hinn síkáti Jón físksali mætir
á staðinn með fískvagninn sinn
og selur harðfísk. Ef þetta mettar
ekki fólk er krambúðin opin og
auðvitað Dillonshús með sínar frá-
bæru veitingar. Þar skemmtir líka
Karl Jónatansson gestum með
harmóníkuleik.
Þá verður unnið í aldamóta-
prenstsmiðjunni og húsdýrin
verða á sínum stað.
(Fréttatilkynning)
R AÐ AUGL YSINGAR
Bifreiðastjórar
Okkur vantar bifreiðastjóra til afleysinga í
sumarleyfum. Þurfa að hafa réttindi til akst-
urs strætisvagna.
Upplýsingar hjá verkstjóra okkar í Skógar-
hlíð 10, símar 13792 og 20720.
Norðurleið - Landleiðir hf.
Alhliða
skrifstofustarf
Félagasamtök í Hafnarfirði óska eftir starfs-
krafti í hálft starf með vinnutíma eftir há-
degi. Starfið er fólgið í tölvuvinnslu og al-
mennum skrifstofustörfum.
Umsækjandi verður að geta hafið störf strax!
Umsóknir, með upplýsingum um menntun,
aldur og fyrri störf, sendist auglýsingadeild
Mbl. fyrir 20. júní, merktar:
„Vön manneskja - 9699“.
Laugavegur
Til leigu mjög gott ca 117 fm verslunarhús-
næði á götuhæð við Laugaveg neðan.Frakka-
stígs. Stórir gluggar. Laust fljótlega.
Upplýsingar í síma 670179 (á kvöldin).
Garðplöntusala
ísleifs Sumarliðasonar, Bjarkarholti 2,
Mosfellsbæ, auglýsir tré, runna, rösir, garð-
skálaplöntur, skógarplöntur, sumarblóm og
fjölærar plöntur. Fjallarifs kr. 150, blátoppur
kr. 175, gljámispill kr. 135.
Opið daglega frá kl. 10-20. Sími 66 73 15.
Aðalfundur
Látravíkur hf. verður haldinn fimmtudaginn
18. júní nk. kl. 17.00 í fundarsal S.V.F.R.,
Háaleitisbraut 68, 2. hæð.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Vanefndauppboð
Vanefndauppboft á fasteigninni nr. 4 við Egilsbraut í Neskaupstað,
þinglesinn eigandi þb. Ness hf., fer fram á eigninni sjálfri ménudag-
inn 15. júní 1992 kl. 14.00.
Uppboösbeiðandi vanefndauppboös: Lifeyrissjóður Austurlands.
Aðrir uppboðsbeiöendur: Atvinnutryggingasjóður útflutningsgreina,
Byggðastofnun, Bæjarsjóður Neskaupstaðar, innheimtumaður ríkis-
sjóðs, þb. Rekstrartækni hf. og Sveinn Valdimarsson.
Bæjarfógetinn i Neskaupstaö.
Tákn og undur
Samkoma með Paul Hansen
í kvöld kl. 20.30.
ÚTIVIST
Hallveigarstíg 1, sími 614330.
Dagsfer&irsunnud. 14. júní
Kl. 9.30 Kirkjugangan loka-
áfangi. Hítardalur, kirkjan í
Staðarhrauni.
Skrifstofan er opin frá kl. 9-17.
Sjáumst í Útivistarferð!
Útivist.
ISLENSKI
ALPAKLÚBBURINN
Jöklanámskeið í
Kerlingarfjöllum
Helgina 20.-21. júni verður hald-
ið námskeið í sprungubjörgun
og undirstöðuatriðum jökla-
ferða. Áhugasamir hafi sam-
band við Torfa í vinnusíma
668067 eða heimasíma 667094.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Ferðir F.í.
um næstu helgi:
Helgarferð til Þórsmerkur
12.-14. júli. Gist í Skagfjörðs-
skála/Langadal. Gönguferðir um
Mörkina með fararstjóra.
Við hefjum miðvikudagsferðir
til Þórsmerkur 24. júní nk.
Laugardagurinn 13. júní -
Söguslóðir Njálu -
Staldrað við á helstu sögustöð-
um Njálssögu og sagan rifjuð
upp. Fræðandi og skemmtileg
ferð. Brottför kl. 9.00 frá Um-
feröarmiðstöðinni, austanmegin
og Mörkinni 6. Verð kr. 2.000.-.
Fararstjóri: Árni Björnsson.
Munið raðgönguna á sunnu-
daginn - áfangar 4a og 4b -
komið með i hressandi göngu-
ferðir.
Ferðafélag islands.