Morgunblaðið - 12.06.1992, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1992
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA / PÆJUMÓTIÐ í KNATTSPYRNU VESTMANNAEYJUM
Mikið fjö r á
Pæjumótinu
- þrátt fyrir nær stanslausa rigningu í
Eyjum á meðan að mótinu stóð.
Sigfús G.
Guömundsson
skrifarfrá
Vestamanna-
eyjum
PÆJUMÓT Þórs og RC var sett
síðastliðið fimmtudagskvöld
með tilkomumikilli f lugelda-
sýningu. Þetta er fjórða mótið
á síðastliðnum fjórum árum og
segja má að mikil rigning hafi
sett svip sinn á mótið.
Liðin hófu strax að leika á
fimmtudagskvöldið og léku
síðan næstu daga frá morgni til
kvölds allt fram á
sunnudag og þá
lauk mótinu með
lokahófi þar sem
verðlaunaafhending
fór fram og tók hún um tvær
klukkustundir. Það voru tólf félög
sem mættu til Eyja með um 700
stúlkur sem kepptu í 2.-5. flokki.
Leikið var í tveimur riðlum í 5., 4.
og 3. flokki en einum í 2. flokki,
síðan léku efstu lið úr hvorum riðli
til úrslita um sigurlaunin á mótinu.
ÍA náði í flest gull, þær sigruðu
í þremur aldursflokkum 5. flokki
A-liða, 4. flokki B-liða og 3. flokki
B-liða. Týrarar frá Vestmannaeyj-
um héldu uppi merki Eyjamanna,
og sigruðu þær í 2. flokki.
Það var ýmislegt fleira gert en
að leika knattspyrnu, til dæmis var
haldin grillveisla í Heijólfsdal,
kvöldvaka í íþróttamiðstöðinni, þar
sem liðin komu með heimatilbúin
skemmtiatriði og liðin fóru í báts-
ferð kringum eyjuna.
Veðrið lék ekki við þá 700 þátt-
takendur sem voru með í mótinu,
nær stanslaus rigning var allan tím-
ann og var það til þess að nokkrir
leikir voru færðir af grasi, en til
stóð að leika alla leiki á grasi og
voru þeir færðir á malarvöll þeirra
eyjamanna og þær yngstu í 5. ald-
ursflokki kláruðu sína leiki inni í
íþróttamiðstöð, enda voru vellirnir
orðnir mjög þungir.
Á lokahófi mótsins var liðum og
liðsmönnum síðan veittar ýmsar
viðurkenningar. Sigurliðin fengu
bikar og leikmenn gullpening, lið í
2. og 3. sæti fengu silfur og og
bronspeninga. Einnig voru valdir
bestu markmenn hvers flokks A-
og B-liða. Bestu leikmenn, prúðasti
leikmaður og markahæstu leikmenn
fengu einnig viðurkenningar sem
og prúðustu lið hvers flokks. Það
var Samúel Örn Erlingsson sem
stjórnaði lokahófi og fékk hann sér
fulltingis við verðlaunaafhending-
una nokkrar kunnar landsliðskonur
úr knattspymu.
Það voru Þór og Ölgerð Egils
Skallagrímssonar sem stóðu fyrir
mótinu sem aldrei hefur verið jafn
fjölmennt eins og nú.
Aðalheiður Sigfúsdóttir, Hauk-
um.
Ein Týsstúlka reynir markskot í leik liðsins við Hauka í fimmta flokki.
Ætla að reyna að
komast í landsliðið
- segir Aðalheiður Sigfúsdóttir, besti leikmaður 5. flokks
Morgunblaöið / Sigfús Gunnar Guðmundsson
„ÉG er búin að æfa fótbolta í
3.-4. ár og ætla að reyna að
komast í landsliðið þegar ég
eldist," segir Aðalheiður Sigf-
úsdóttir úr Haukum sem valin
var best í fimmta flokki b-liða.
Fótbolti er ekki bara fyrir stráka,"
segir Aðalheiður en Haukamir
höfnuðu í 2. sæti í flokknum eftir tap
gegn Breiðablik 1:0 í úrslitaleiknum.
Þær fengu viðurkenningu t 5. flokki A. Lilja Arngrímsdóttir Þór var val-
in besti markvörðurinn, Guðrún Jakobsdóttir besti leikmaður, Karitas Þórarins-
dóttir Tý sá prúðasti og Elfa Erlingsdóttir skoraði sex mörk og varð markahæst.
Liija Arngrímsdóttir, Þór VE:
„Ég er búin að æfa fótboita í þijú
ár með Þór. Okkur gekk ,ágætlega á
mótinu og urðum í 4. sæti en við
ætlum að reyna að vinna þetta á
næsta ári,“ sagði Lilja sem valin var
besti markvörður a-liða 5. flokks.
„Við höfum mjög fínan þjálfara, hann
Nökkva, og ef hann verður að þjálfa
okkur á næsta ári er ég viss um að
við getum unnið.“
Elfa Björk Erlingsdóttin
„Þetta er þriðja árið sem ég æfi
fótbolta og alltaf verið með Stjöm-
unni. Ég æfi með tveimum flokkum
og hef bara frí á sunnudögum og
miðvikudögum en æfi alla hina dag-
ana og finnst þetta rosalega gaman,"
sagði Elfa sem varð markakóngur i
fimmta flokki A með sex mörk.
Hulda Kristín Hlöðversdóttir:
„Ég komst í unglingalandsliðið
U-16 1991, fékk reyndar ekki að
spila mikið og tókst ekki að skora
með því, en á næstu dögum skýrist
hvort ég kemst í liðið fýrir NM í
þessum mánuði," sagði Hulda. Og
það er aldrei að vita nema Hulda sem
skoraði tíu mörk fyrir Hauka og varð
markakóngur nái að hrella markverði
Norðurlandanna í lok júní.
Tinna Karen Gunnarsdóttir:
Tinna sagðist vera búin að æfa
fótbolta í sex ár eða frá því hún var
sex ára. „Þá dreif ég mig á fótbolta-
Morgunblaðið / Sigfús G. Gunnarsson
Þær bestu fengu viðurkenningar
Eftirtaldar stúlkur hlutu verðlaunagripi fyrir góða frammistöðu á Pæju-
móti en veitt voru verðlaun tíl besta leikmanns, besta markvarðar,
prúðasta leikmanns og þess markahæsta, markaíjöldi er innan sviga.
2. flokkur: Helga Osk Hannesdóttir Val, Elísabet Stefánsdóttir Tý, Jenný
Knútsdóttir Víði, Hulda Kristín Hlöðversdóttir Haukum (6 mörk).
3. flokkur A: Edda Garðarsdóttir KR, Erla H. Viðarsdóttir Val, Kristín
Inga Grímsdóttir Þór, Ragna Ragnarsd. (15) og Guðrún B. Sigursteinsdótt-
ir (15). . .
3. flokkur B: Gréta Rún Arnadóttir Haukum, Tinna Magnúsdóttir Hauk-
um, Hildur Sævarsdóttir Haukum, Bergrún Finnsd. Tý (6).
4. flokkur A: Tinna Karen Gunnarsdóttir Val, Ragnheiður Á. Jónsdóttir
UBK, Elín Heiður Gunnarsdóttir Fjölni, Anna Björg Bjarnadóttir Val (11).
4. flokkur B: Guðrún Ólafsdóttir KR, María Anna Arnardóttir Haukum,
Tinna Eyjólfsdóttir Stjörnunni, Irma Dögg Sigurðardóttir (21).
5. flokkur A: Guðrún Jakobsdóttir ÍA, Lilja Arngrímsdóttir Þór, Karitas
Þórarinsdóttir Tý, Elfa B. Erlingsdóttir Stjömunni (6).
5. flokkur B: Aðalheiður Sigfúsdóttir Haukum, Tinna Guðjónsdóttir Stjöm-
unni, Rakel Hrafnsdóttir UMFG, Guðrún Helga Ingvadóttir UBK (4).
Tlnna Guðjónsdóttfr, Stjörn-
unni.
Gréta Rún Árnadóttlr, Haukum.
æfingar hjá Val, en bróðir minn var
einnig að æfa með þeim og ég byrj-
aði strax að æfa með 3. flokki. Ég
leik í vöminni en tókst samt að gera
fjögur mörk, eitt úr víti, og svo áttí4-
ég að bmna upp kantinn og skjóta
og það gekk ágætlega, ég náði að
skora þijú mörk þannig," sagði Tinna
sem valin var besti leikmaður íjórða
flokks.
Gréta Rún Árnadóttir:
„Ég er að koma hingað í annað
mótið mitt, við náðum að sigra í fýrra
en núna urðum við í 2. sæti þannig
að það hefur gengið ágætlega og við
erum ákveðnar að mæta næsta ár
og endurheimta titilinn. Ég byijaði
ekki að æfa fyrr en ég var þrettán
ára og þetta er annað árið mitt, vin-
konurnar byijuðu líka svona seint og
drógu mig með, sagði Gréta besti
leikmaður í 3. flokki B en hún lék
með Haukum.
Tinna Guðjónsd., 5. flokki B:
„Núna er ég búin að finna mér stöðu
á vellinum og ætla að halda áfram
að æfa mark og reyna að verða
landsliðsmarkvörður," sagði Tinna
sem er nýbyrjuð að æfa mark með
Stjömunni og var valin best í sinni
stöðu í 5. flokki b.
LOKASTAÐA
5. FLOKKUR A
1. ÍA, 2. Stjarnan, 3. Týr, 4. Þór.
5. FLOKKUR B
1. UBK, 2. Haukar, 3. Fjölnir, 4. Þór.
4. FLOKKUR A
1. Valur, 2. Haukar, 3. lA, 4. Týr.
4. FLOKKUR B
1. ÍA, 2. Týr, 3. UBK, 4. Valur.
3. FLOKKUR a
1. KR, 2. ÍA, 3. UMFA, 4. Týr.
3. FLOKKUR B
1. ÍA, 2. Haukar, 3. UBK, 4. Týr.
2. FLOKKUR
1. Týr, 2. Haukar, 3. Valur, 4. Þór,
5. Víðir.