Morgunblaðið - 12.06.1992, Page 46

Morgunblaðið - 12.06.1992, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1992 JUDO Þrír fara til Austurríkis Þrír íslenskir judomenn taka þátt í alþjóðlega Austurríska meistaramótinu í Linz um helg- ina. Mótið er í A-styrkleikaflokki og það síðasta fyrir Ólympíuleik- ana. Þeir sem fara eru Bjami Friðriksson, Freyr Gauti Sig- mundsson, sem báðir hafa náð Qlympíulágmarki ásamt Sigurði Bergmann og Halldór Hafsteins- son, sem er rétt við lágmarkið. Hann hefur 63 punkta af 70 sem til þarf. Halldór meiddist illa og var frá æfingum og keppni í rúmt ár af punktatímabilinu. Að mótinu loknu munu þeir ásamt Sigurði Bergmann haida í Hollands í æfingabúðir. KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA FOLK ■ KARL Finnbogason sem lék með Víði á síðasta keppnistímabili hefur gengið til liðs við IBK og verður löglegur með liðinu á morg- un er liðið mætir BÍ á ísafirði. Þá hefur Valur Sveinbjörnsson einnig tilkynnt félagaskipti úr Víði. Hann hyggst leika með Gróttu í sumar. ■ LLOYD Sergent, Bandaríkja- maðurinn sem lék með UBK i 1. deildinni í körfuboltanum síðasta keppnistímabil, verður áfram með liðinu í úrvalsdeildinni næsta vetur. Hann mun einnig þjálfa yngri flokka félagins. ■ ÍVAR Webster, sem lék með ÍR í 1. deild sl. vetur, hefur ákveð- ið að gagna til liðs við Breiðablik. ■ SIGURÐUR Hjörleifsson var fyrir skömmu útnefndur þjálfari ársins 1991 hjá aðalstjóm Breiða- bliks. Sigurður þjálfaði meistar- flokk félagsins í körfuknattleik og kom liðinu upp í úrvalsdeild. ■ BEN Johnson náði ekki Olymp- íulagmarkinu í 100 m hlaupi á fijálsíþróttamóti í Lissabon í fyrra- kvöld eins og hann ætlaði sér. Hann hljóp á 10,43 sek, en Ólympíulág- markið er 10,30 sek. Brasilíumað- urinn Robson da Silva sigrði í Lissabon á 10,17 sek., Jason Li- vingstone, Bretlandi, varð annar á 10,26 og Femando Botasson frá "Brasilíu þriðji á 10,38 sekúndum. ■ BEN Johnson sagðist ekki vera vonsvikinn þrátt fyrir að hafa ekki náði Ólympíulágmarkinu. Kana- díska meistaramótið fer fram í næstu viku og þar gerir hann aðra tilraun. „Ég á enn möguleika á að komast til Barcelona þar sem enn em sjö vikur fram að leikum," sagði Ben Johnson. Ef hann nær ekki að tryggja sér þátttökurétt í Barc- elona sagðist hann hafa áhuga á að reyna fyrir sér í bandaríska fót- boltanum. Tvö lið hafa þegar sýnt honum áhuga. Ikvöld Knattspyrna kl. 20.00 1. deild karla: Vestmannaeyjar: ÍBV - Þór Ak. 1. deild kvenna: Egilsstaðir. Höttur - KR Akranes: ÍA - Stjaman Valsvöllun Valur - Breiðablik 2. deild karla: ísafjarðarvöllun BÍ - ÍBK Fylkisvöllur Fylkir - Grindavík Garðsvöllun Víðir - Stjaman Þróttarvöllur. Þróttur R. - ÍR Selfossvöllur: Selfoss - Leiftur 3. deild karla: Grenivíkurvöllur: Magni - Völsungur Valhúsavöllur: Grótta - Skallagrímur Sauðárkróksv.: Tindastóll - Dalvík 4. deild: Njarðvíkurvöllur: UMFN - Emir Varmárv.: Afturelding - Hvatberar Valbjamarv.: Leiknir - Bolungarvík Hof8Ósvöllun Neisti - Hvöt Reyðarfjarðarvöllur: Valur Rf. - KSH 2. deild kvenna: Hvaleyrarholtsvöllur. Haukar - BÍ Keflavíkurvöllur: ÍBK - Týr FIUÁLSÍÞRÓITIR: Vormót HSK fer fram á Hvolsvelli í kvöld. Hollendingar brosa aftur TVEIR leikir eru á dagskrá Evr- ópukeppni landsliða í dag. Evr- ópumeistarar Hollendinga hefja titilvörn sína gegn Skot- um klukkan 15:15, og kl. 18:15 mæta heimsmeistarar Þjóð- vera liði Samvelda sjálfstæðra ríkja. Flestir spá Hollendingum mikilli velgengni í keppninni og flest- ir þeirra sterkustu menn em í topp- formi um þessar mundir. Þjálfari þeirra, Rinus Michels, stýrði þeim til sigurs í keppninni fyrir fjóram ámm en hætti með liðið eftir það. Hann tók síðan við því aftur eftir slakt gengi í HM 1990. Haft er á orði í Svíþjóð þessa dagana, að Michels hafi tekist hið nær ófram- kvæmanlega; að fá Hollendinga til að brosa aftur. Hann hefur náð að sameina liðið, og ljóst er að Skotar eiga ákaflega erfiðan leik gegn sameinuðum og brosandi Hollend- ingum. „Michels veit að hann verð- ur að gefa Hollendingi frelsi og hann veit að við emm ekki hrifnir af því að hafa undirbúninginn of skipulagðan," sagði fyrirliði Hol- lendinga Ruud Gullit og bætti við: „Þar að auki hefur hann mjög mikla kímnigáfu." Skotar hafa tekið þátt í síðustu fimm úrslitakeppnum HM, en aldrei komist lengra en í fyrstu umferð. Þeir em taldir vera með slakasta liðið í úrslitakeppni EM nú, a.m.k í sínum riðli, sem telur auk þeirra núverandi Evrópumeistara og heimsmeistara auk liðs fyrrum Sov- étríkja. Meiðsli hafa þar að auki hijáð lykilmenn í liðinu eins og Gordon Strachan, sem tekur ekki þátt í úrslitakeppninni. Þjóðverjar geta náð einstæðum árangri íjóðveijar eiga möguleika á því að verða fyrstu handhafar heims- meistaratitils til að bæta Evrópu- meistaratitli í safnið. Þeir mæta Samveldismönnum í fyrsta leiknum, og eiga eflaust erfiðan leik fyrir höndum. Erfiðasta vandamálið sem Berti Vogts, þjálfari Þjóðvetja, stendur frammi fyrir, er að fylla það skarð sem Lothar Mattháus skildi eftir sig, en hann er meidd- ur. Lið Samveldis sjálfstæðra ríkja leikur í keppninni við mjög svo . óvenjulegar aðstæður. Liðið veit að það mun ekki leika aftur saman í annarri stórri keppni, því lið SSR var aldrei hugsað sem annað en bráðabirgðalausn; það á einungis að ljúka þeim keppnum sem Sovét- menn voru þátttakendur í áður en Sovétríkin liðu undir lok. Spurning- in er hvort liðið hafi metnað til að gera jafn vel og í síðustu keppni, en þá léku Sovétmenn til úrslita á móti Hollendingum. Samveldisstjörn- ur ekki með gegn Islandi í HM Eftir Evrópukeppnina í Svíþjóð verður kveðjustund hjá lands- liðsmönnum Samveldanna, en leik- menn frá Úkraínu og Georgíu leika ekki framar undir merkjum Samveld- anna. Margir mjög sterkir leikmenn leika því ekki með liði Samveldanna gegn Islendingum í undankeppni HM, en íslendingar leika í Moskvu 14. október. Frægasti leikmaðurinn er Alexej Mikhailichenko, miðvallarleikmaður, sem leikur með Glasgow Rangers. Hann er 29 ára og hefur leikið 38 landsleiki fyrir Sovétríkin/Samveldið - og lék hann í EM í Þýskalandi 1988, ÓL í Seoul 1988 og HM á Ítalíu 1990. Aðrir frægir Ukraínu- menn em Andrej Kanchelski, Man. Utd., Oleg Kuznetsov, Glasgow Ran- gers, Sergej Juran, Benfica og Oleg Protasov, Olympiakos. Einn leikmað- ur frá Georgíu er í Svíþjóð - Akhrik Tsveiba, Dynamo Kiev og einn frá Moldova, Igor Dobrovolski, Servetta. Aðrir leikmenn í liðinu koma nær allir frá Rússlandi. Sex áðumefndir leikmenn leika með SSR gegn Þjóðveijum í dag. Kuznetsov (númer 5) leikur í stöðu aftasta vamarleikmanns. Tsveiba (4) er vamarleikmaður. Mikhailicenko (7) og Kanchelski (8) leika lykilhlut- verk á miðjunni og Juran (11) og Dobrovolski (10) era sóknarleikmenn. KORFUKNATTLEIKUR Ingvar þjátfar Hauka John Rhodes verðuráfram með liðinu Íngvar Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Hauka í karlaflokki í körfuknattleik. Þá verður Bandaríkjamaðurinn John Rhodes áfram með liðinu. Gengið var frá þessu á stjórnarfundi í gær- kvöldi. Ingvar þjálfaði meistaraflokk kvenna á síðasta keppnistímabili og náði mjög góðum árangri. Hann hefur þjálfað yngri flokka hjá Haukum í mörg ár, og margoft náð mjög svo ágætum árangri. Ingv- ar Kristinsson, formaður Körfuknattleiksdeildar Hauka, sagði að Ingv- ar Jónsson tæki við af Ólafí Rafnssyni. „Við væntum mikils af Ing- vari, en hann hefur alltaf skilað að minnsta kosti einum titli til félags- ins á hveiju ári. Við vonum að það verði engin breyting á því,“ sagði Ingvar. Þess má geta að tveir synir Ingvars Jónssonar, þeir Jón Amar og Pétur, leika báðir með meistaraflokki Hauka. Alexej Mlkhallichenko ekki með gegn Islandi í HM. FRJALSIÞROTTIR Birgir eftiriits- dómari í Svíþjóð Primo Nebiolo, forseti Alþjóða frjálsíþróttasambandsins, IA- AF, hefur óskað eftir því að Birgir Guðjónsson, formaður laganefndar Frjálsíþróttasambands íslands, verði eftirlitsdómari á stigamóti (Grand prix) í Stokkhólmi í Svíþjóð 2. júlí n.k. og hefur Birgir orðið við beiðninni. Birgir verður helsti fulltrúi IAAF í keppninni og kemur til með að hafa yfírumsjón með dómgæslu og auglýsingum. Einnig var óskað eft- ir að hann yrði jafnframt lyfjaeftir- litsmaður, en Birgir baðst undan því, sagði að einn maður gæti ekki sinnt öllum verkefnum svo vel væri. Þetta er í fjórða sinn á jafnmörg- um ámm, sem Birgi er falin yfirum- sjón þessara málaflokka á vegum IAAF. í Stokkhólmi verður m.a. keppt í spjótkasti og er gert ráð fyrir að bestu spjótkastarar íslands verði á meðal þátttakenda. KORFUKNATTLEIKUR / NBA Portland jafnaði Portland Trail Blazers sigraði Chicago Bulls 93:88 í fjórða leik liðanna í úrslitum um NBA-titil- inn í fyrrinótt og Frá Gunnari jafnaði þar með Valgeirssyni metin 2:2. Chicago / Bandaríkjunum hafði undirtökin mest allan tímann en góður endasprettur heimamanna tryggði sigurinn. Chicago gerði fyrstu 10 stigin í leiknum og komst í 18:5 og virtist hafa leikinn í hendi sér. En Port- land náði að saxa jafnt og þétt á forskotið o g komst yfir í fyrsta sinn í leiknum 83:82 þegar aðeins rúmar þijár mínútur vom til leiksloka. Á lokamínútunum gekk ekkert upp hjá Jordan og félögum og Portland nýtti sér það og vann með fímm stiga mun, 93:88, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 45:48 fyrir Chicago. Leikurinn var ekki vel spilaður, mikið um mistök á gáða bóga. Jord- an var stigahæstur í liði Chicago með 32 stig, en náði ekki að skora síðustu 10 mínúturnar. Scottie Pip- pen kom næstur í liði meistaranna með 17 stig. Clyde Drexler og Je- rome Kersey vom atkvæðamestir í liði heimamanna með 21 stig hvor og Cliff Robinson kom næstur með 17. „Við gáfumst aldrei upp þrátt fyrir að hafa byijað illa. Það var fyrst og fremst baráttan sem færði okkur sigurinn. Við getum leikið betur en í þessum leik og eigum eftir að ná toppleik gegn Chcicago," sagði Clyde Drexler, fyrirliði Port- land. „Við vissum að þetta yrði erf- iðara í ár en í fyrra. Það lítur ein- faldlega út fyrir að við þurfum að hafa meira fyrir þessu í næstu leikj- um,“ sagði Jordan á blaðamanna- fundi eftir leikinn og virtist ekki hafa miklar áhyggjur af tapinu. Fimmti leikur liðanna fer fram aðfaranótt laugardags í Portland og síðan verður leijcið í Chicago á sunnudagskvöld kl, 24.00 að ís- lenskum tima. Ef til sjöunda leiks kemur verður hann einnig í Chicago. Fríða Run Í11.sæti Fríða Rún Þórðardóttir, hlaupakona sem er við nám í Georgíu, komst í úrslit í 3.000 metra hlaupi á bandaríska há- skólameistaramótinu sem fram fór í Texas um síðustu helgi. Hún hljóp á 9.50 mínútum og hafnaði í 11. sæti. Fríða Rún sagði að aðstæður hafi verið mjög erifðar þar sem hitastigið var vel yfír 30 gráð- ur. „Ég var hálfri mínútu frá mínum besta tíma eins og reynd- ar flestar aðrar stúlkur ( hlaup- inu. Sígurvegarinn í hlaupinu hljóp á 9,24 mfnútum sem verð- ur að teljast frekar hægt. Það var mikill heiður fyrir mig og góð reynsla að hafa fengið áð taka þátt í þessu móti,“ sagði Fríða Rún. Hún sagðist hafa bætt sig veralega frá því í fyrra og að þjálfarinn væri mjög ánægður með framfarirnar. Fríða Rún kemur heim til íslands á laugar- dag og verður meðal þátttak- enda á Meistaramóti íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.