Morgunblaðið - 25.08.1992, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
191. tbl. 80. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 25. AGUST 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fellibylurinn Andrés skilur eftir sig slóð eyðileggingar í suðurhluta Flórida
r~*rrr..."—’T—
Reuter.
Gífurlegur vindkraftur
Einna mest tjón á Flórida af völdum fellibylsins Andrésar varð í syðri hverfum borgarinnar
Miami. Þar fauk meðal annars þessi tíu metra langa vöruflutningabifreið upp á þak byggingar.
Eignaljón talið
••
nema morgum
milljörðum dala
Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
TAXJÐ er að fellibylurinn Andrés, sem gekk inn yfir strönd Flórída
í gærmorgnn skammt frá borginni Homestead um 25 mílur suður af
Miami hafi orðið fjórum mönnum að bana. Urðu tveir þeirra undir
trjám sem féllu og einn varð undir húsþaki. Eignatjón á Flórida er
gífurlegt vegna fellibylsins, þök fuku af fjölmörgum húsum, rafmagns-
línur slitnuðu, bifreiðar þeyttust um í vindhviðunum, tré rifnuðu upp
með rótum og loka varð flugvöllunum í Miami og Fort Lauderdale.
Tjónið er talið nema mörgum milljörðum dollara. George Bush Banda-
ríkjaforseti lýsti því yfir að þijú héruð Flórída væru náttúruhamfara-
svæði og lofaði fjárhagslegri aðstoð frá Bandaríkjastjórn.
Á tveimur til þremur tímum fór
fellibylurinn yfir Flórídaskagann og
út í Mexíkóflóa. Sérfræðingar telja
líklegast að þar taki hann norðlæga
stefnu, safni kröftum á ný og lendi
á strönd Louisiana-ríkis árla mið-
vikudags, líklega milli New Orleans
og Lake Charles.
Fellibylurinn skall á Flórídaströnd
nokkru sunnar en búist var við. Því
réði að mestu háþrýstisvæði út af
Kanaveralhöfða, sem lokaði honum
leið með ströndinni til norðurs.
Mest tjón varð í syðstu hverfum
Miami, borgunum Kendall, Home-
Friðarviðræðurnar um Mið-Austurlönd hefjast á ný í Washington
ísraelar boða tilslakan-
ir varðandi Gólanhæðir
Washington, Jerúsalcm. Reuter.
FULLTRÚAR sendinefnda arabaríkjanna jafnt sem ísraels voru mjög
jákvæðir að loknum fyrsta fundi er friðarviðræðurnar um Mið-Austur-
lönd hófust á ný í Washington í gær. „Við urðum greinilega varir
við breyttan stíl og breyttar áherslur," sagði Mouwafaq al-Allaf, for-
maður sendinefndar Sýrlands, við blaðamenn. Þetta er fyrsti fundur
aðilanna eftir að ný ríkisstjórn Yitzhaks Rabins tók við völdum í Isra-
el og hafa ísraelar boðað að þeir hyggist leggja fram nýjar tillögur
um sjálfstjórn Palestinumanna á hernumdu svæðunum og hvernig
leysa megi deiluna við Sýrland um Gólanhæðir í þessari umferð við-
ræðnánna.
ísraelar lögðu fram skriflega yfir-
lýsingu og tillögu að dagskrárliðum
á fundinum í gær. Ekki hefur verið
greint opinberlega frá því hvað felst
í tillögum þeirra en samningamaður
Jórdana sagði þær hafa verið ,já-
kvæðari en fyrri tillögur“. Joseph
Sneider, talsmaður bandaríska
utanríkisráðuneytisins, sagði
Bandaríkjastjóm telja að nú væri
möguleiki á að ná fram „raunveru-
legum friði“. Hann gat þess einnig
sérstaklega að James Baker, sem
fyrr í mánuðinum lét af störfum
utanríkisráðherra til að stjórna
kosningabaráttu George Bush for-
seta, yrði áfram viðloðandi viðræð-
urnar.
Mest selda dagblað ísraels, Yedi-
oth Ahronoth, hélt því í gær fram
að yfirsamningamaður ísraela hefði
fengið umboð til að tilkynna að ísra-
elar féllust á samþykkt Sameinuðu
þjóðanna númer 242 að öllu leyti,
en hún kveður á um að þeir eigi
að láta af hendi þau svæði sem
hernumin voru í sexdagastríðinu
árið 1967. Fyrri ríkisstjóm landsins,
undir forsæti Yitzhaks Shamirs,
krafðist þess að Gólanhæðir yrðu
undanskildar.
Skömmu áður en fundir hófust í
Washington í gær greindi Rabin frá
því að stjórn hans hygðist leysa um
átta hundruð arabíska fanga úr
haldi og að einhveijum hömlum yrði
létt af þeim Palestínumönnum sem
búa á hernumdu svæðunum. Þá var
tilkynnt að ákvörðun fyrri ríkis-
stjómar ixm að vísa ellefu Palestínu-
mönnum úr landi hefði verið aftur-
kölluð.
„ísraelar em að reyna að bæta
andrúmsloftið. Þetta em hins vegar
ekki eftirgjafir. Þetta eru mjög tak-
markaðar aðgerðir og því verða við-
brögð araba einnig mjög takmörk-
uð,“ sagði Elias Freij, einn fulltrúa
Palestínumanna og borgarstjóri
Betlehems.
Shítar með Saddam
Reuter
Bandaríkjamenn eru að sögn embættismanna reiðubúnir að láta bann
við að stjórn Saddams Husseins íraksforseta noti flugvélar í baráttu
sinni gegn uppreisnarmönnum af trúflokki Shíta í suðurhluta landsins
taka gildi í vikunni. Er líklegt að tillögur um hvernig framfylgja megi
banninu verði kynntar í dag eða á morgun. Það eina sem stjórnarerind-
rekar segja tefja fyrir að flugbanninu verði komið á er hik nokkurra
ríkisstjórna arabaríkja við Persaflóa. Á myndinni má sjá hóp íraskra
shíta koma saman í borginni al-Huweizah til að lýsa yfir stuðningi
við Saddam. Vestrænum blaðamönnum var sérstaklega leyft að koma
til borgarinnar til geta fylgst með þeim viðburði.
stead og nyrst á Keys-eyjunum. Á
margra ferkílómetra svæði í syðri
úthverfum Miami var"nánast hvert
einasta hús meira og minna skemmt.
í Cutler Ridge, skammt fyrir norðan
Homestead eyðilagðist mikil versl-
unarmiðstöð að mestu. Fór þakið af
og hluti veggja og allar rúður. íbúða-
hverfið í kring er sem ijúkandi rúst,
hús hrunin eða að hruni komin, flest
þaklaus, rúðulaus o.s.frv.
Um milljón manns var látin yfir-
gefa heimili sín í Miami af öryggis-
ástæðum. Nokkuð bar á því að hópar
fólks legðu leið sína í mannlausar
verslanir og kæmu út með fangið
fullt af illa fengnum vamingi.
í borginni Homestead er tjónið
gífurlegt. Borgarstjórinn þar sagði
sjónvarpsmönnum með tárin í aug-
unum, að það hefði tekið 12 ár að
byggja upp þessa borg og nú hefði
hún að mestu leyti verið lögð í rúst.
Víða í Miami, Miami Beach, og
ekki síst Coral Gables var eignartjón
mjög mikið. Rúður í verslunum
brotnuðu eða sviptust í fölsum. Bátar
vora víða á götum uppi eða bryggj-
um, húsvagnar höfðu fokið um eins
og hráviði og allt það fólk sem þar
bjó er nú heimilislaust.
Fellibylurinn gerði minni usla á
vesturströnd Flórídaskaga, en hann
gekk yfir Neaples og var síðdegis
kominn langt út á Mexíkóflóa.
Vindhraðinn í fellibylnum varð
mestur um 270 kílómetrar á klukku-
stund. Lán í óláninu var hversu sunn-
arlega hann bar að landi og hversu
hratt hann gekk yfir.
Sjá nánar bls. 24
♦ ♦ ♦
Dollarinn
lækkarenn
Lundúnum. Reuter.
GENGI dollarsins gagnvart þýska
markinu hélt áfram að lækka í
gær þrátt fyrir að vestrænir seðla-
bankar keyptu dollar til að hækka
gengi hans.
I fyrstu höfðu kaupin engin áhrif
á gengið og í gær komst það í fyrsta
skipti niður fyrir 1,40 mörk, eða
1,3985. Þegar evrópskum mörkuðum
var lokað í gær var dollarinn skráður
á 1,4060 mörk. ”
Sterlingspundið lækkaði einnig og
gengi þess gagnvart markinu hefur
aldrei verið jafnlágt frá því Bretar
gengu í Evrópska gengissamstarfið
(ERM) fyrir tæpum tveimur árum.
Hækki pundið ekki aftur næstu daga
er talið að breska stjórnin neyðist til
að hækka vexti, sem yrði pólitískt
áfall fyrir hana.