Morgunblaðið - 25.08.1992, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 25.08.1992, Blaðsíða 52
Lá í klukkustund skorðaður í kranabíl í Búlandsá Heppinn að sleppa lifandi „Maður er heppinn að sleppa lifandi. Á leiðinni niður hugsaði ég aðeins: Hvað er áin eiginlega 4júp? Ég bjóst ekkert endilega við að komast út,“ sagði Svanur Stefánsson, 27 ára gamall kranabíl- stjóri frá Djúpavogi, eftir að hafa orðið fyrir þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að liggja skorðaður í kranabíl sínum í Búlandsá 7 km frá Djúpavogi milli kl. 16 og 17 í gær. Kranabíll, sem Svanur ók, fór út af Búlandsbrú, féll um 4 metra og lenti á hliðinni í ánni. „Ég veit ekki alveg hvað gerðist. Hvort ég hitti ekki á brúna eða hvort löppin á krananum fór út og í handriðið. Bílinn vóg salt á brúnni og ég reyndi að komast út úr honum en varð ekki nógu fljótur og lenti með honum niður. Höndin skorðaðist föst á stýr- inu og hátt í klukkutíma lá ég hálfur á kafi fastur í bflnum," sagði Svanur. Eftir að hafa legið í ánni í tæpa klukkustund heyrði hann í útlendingum og kallaði til þeirra. Fólkið reyndi að hjálpa honum en tókst ekki og sótti aðstoð. Mönn- um frá Djúpavogi tókst að losa Svan með logsuðutækj- um og jámsögum. Hann var algjörlega tilfínningalaus í hendinni, sem skorðaðist við stýrið, og var flogið með hann á slysadeild Borgarspítalans. Svanur fékk að fara heim eftir að búið hafði verið um sár hans en höndin var bólgin og marin. Svanur var á leið frá Djúpavogi til Stöðvarfjarðar. Kranabíllinn er gjörónýtur. Slapp með skrámur Svanur Stefánsson slapp með skrámur eftir að hafa farið með kranabíl sem hann ók, 4 metra niður í Búlandsá og legið þar skorðaður í klukkutíma. -*Annað stærsta fíkniefnasmyglið á Keflavíkurflugvelli Náðu 4 kg af hassi og 340 g af amfetamíni Rætt um helgar- opnun í Kringlu EIGENDUR verslana í Kringlunni eru þessa dagana að ræða hug- myndir um að hafa verslanirnar opnar á sunnudögum. Búist er við að ákvörðun verði tekin í tengsl- um við stjórnarfund Kringlunnar á miðvikudag og fund eigenda á fimmtudag. Hagkaup, sem hefur flest atkvæði á fundum Kringlunn- ar, lagðist gegn sunnudagsopnun síðast þegar tillögur komu fram um það, en nú segjast forsvars- menn fyrirtækisins ekki láta slík- ar breytingar stranda á sér. Kaupmenn í Kringlunni eru bundnir af samþykktum um sama opnunartíma í húsinu. Jón Ásbergs- son, framkvæmdastjóri Hagkaups, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að afstaða fyrirtækisins kæmi fram á fundunum á miðvikudag og fímmtudag en sagði þó ljóst að opn- un verslana á sunnudögum nú myndi ekki stranda á afstöðu Hagkaups. Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélag Reykjavíkur, taldi að opnun verslana í Kringlunni yrði ekki vel tekið af verslunarfólki. Það þýddi viðbótarvinnu hjá því á dögum sem það ætti að eiga frí á. „Það hlýtur að vekja sérstaka at- hygli að þessi fyrirtæki sem kvarta stöðugt undan háum launakostnaði og telja sig ekki hafa efni á að hækka laun starfsfólks síns í dagvinnu, skuli getað lengt þann vinnutíma sem greiddur er með 80% álagi á dag- vinnulaun. Þetta bendir til þess að afkoma þeirra sé miklu betri en þau hafa látið í veðri vaka,“ sagði Magn- ús. Magnús sagði að svo virtist sem verslunin væri að færast sífellt meira yfir á laugardaga og sunnudaga. Þetta væri þróun sem erfitt væri að eiga við. Verslanir í nágrannasveitar- félögum Reykjavíkur hefðu byijað á að opna á sunnudögum og síðan hefðu aðrir komið í kjölfarið. ---------------------------- 21 ÁRS maður hefur verið úr- skurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á grófri líkamsárás og nauðgun sem 17 ára stúlka kærði hann fyrir. Maðurinn hefur játað brot sitt að mestu, að sögn rannsóknarlögreglu. Fólkið mun hafa hist á veitinga- stað á laugardagskvöld og stúlkan þegið far með manninum að heimili sínu í Hafnarfirði um nóttina. Hann er talinn hafa ruðst á eftir henni inn. Þar batt hann hendur hennar, gekk í skrokk á henni, nauðgaði henni og kæfði hljóð frá henni með því að kefla hana. Kunningjar stúlk- unnar komu að heimili hennar meðan þessu fór fram og við það kom styggð að manninum sem fór á brott. Maðurinn var handtekinn á heim- ili sínu á sunnudag. Hann mun hafa viðurkennt brot sitt að mestu leyti, en var í gær úrskurðaður í gæslu- varðhald til 16. september. Grunaður um grófa líkamsárás og nauðgun TOLLGÆSLAN á Keflavíkur- flugvelli fann við leit á rúmlega fimmtugum manni tæplega 4 kíló af hassi og um 340 grömm af amfetamíni í gærdag. Um er að 4præða annað stærsta fíkniefna- smygl sem uppgvötvast við toll- skoðun á Keflavíkurflugvelli. Áður hafa mest fundist 4Vi kg af hassi hjá farþega. Hinn fimm- tugi maður og annar yngri mað- ur voru handteknir og krafist hefur verið gæsluvarðhaldsúr- skurðar yfir _þeim. Gottskálk Olafsson deildarstjóri tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli segir að hinn rúmlega fímmtugi maður hafi verið að koma með flugi frá Lúxemborg. Hann hefur ekki áður komið við sögu fíkniefnamála hérlendis en lenti í skoðunarúrtaki og við þá leit fundust fíkniefnin á honum innanklæða. Með sömu vél - — sjg hann var annar yngri maður sem áður hefur komið við sögu fíkni- efnamála. Við nána skoðun á hon- um fannst ekkert en samt voru þeir báðir handteknir því talið er að þeir hafi átt með sér samvinnu um innflutning fíkniefnanna. Fíkniefnalögreglan í Reykjavík hefur nú mál þetta til rannsóknar, en í gærkvöldi fór lögreglan fram á að báðir hinir handteknu yrðu úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Gottskálk Ólafsson segir að toll- gæslan á Keflavíkurflugvelli hafí ^ætíð tekið ákveðinn fjölda af flug- farþegum af handahófi til nánari skoðunar. Á síðustu vikum hafí þeir hinsvegar gert meira af þessu en áður. „Þessi vinna okkar hefur skilað talsverðum árangri því þetta . fíkniefnasmygl er það þriðja sem við uppgvötvum á skömmum tíma hér í flugstöð Leifs Eiríkssonar," segir Gottskálk. J Frá slysstaðnum á sunnudagskvöld, Hjón biðu bana í árekstri við sjúkrabíl HJÓNIN Magnús Haraldsson, 77 ára, og Ásta Guðjónsdóttir, 81 árs, biðu bana er bíll þeirra lenti í árekstri við sjúkrabíl í neyðar- akstri á mótum Breiðholtsbraut- ar og Seljaskóga um miðnætti i fyrrakvöld. Amerískum fólksbíl hjónanna var ekið af Seljaskógum áleiðis inn á gatnamótin við Breiðholtsbraut og þar lenti bíllinn í vegi sjúkrabíls sem var á leið upp Breiðholts- braut, sem er aðalbraut, á miklum hraða með neyðarijós og sírenu, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Árekstur bílanna varð afar harður. Hjónin voru þegar flutt á slysa- deild með sjúkrabifreið en voru úrskurðuð látin við komu á sjúkra- húsið. Læknir í áhöfn sjúkrabílsins meiddist á fæti við áreksturinn en ekki alvarlega, að talið var. Þegar óhappið varð var sjúkra- bíllinn á leið til aðstoðar ungbarni í andnauð. Það komst á sjúkrahús með öðrum sjúkrabíl sem kvaddur var til. Hjónin Magnús Haraldsson og Ásta Guðjónsdóttir voru til heimilis á Látraströnd 52, Seltjarnarnesi. Magnús var fæddur 9. júní 1915 og því 77 ára, en Ásta var fædd 13. nóvember 1910 og því 81 árs að aldri. Magnús lætur eftir sig þijú uppkomin börn. Magnús Haraldsson og Ásta Guðjónsdóttir. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.