Morgunblaðið - 25.08.1992, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1992
Þingnefnd
sakar de
Mello um
spillingu
BRAZILÍSK þingnefnd sakar
forseta Brazilíu, Femando
Collor de Mello, um meinta
spillingu og mútuþægni í
skýrslu, sem birt. var í gær.
Skýrslan er afrakstur þriggja
mánaða rannsókna nefndar-
innar og hafa fjölmargir verið
yfirheyrðir vegna málsins.
Nefndin segir að fýrrverandi
gjaldkeri í kosningabaráttu
Mellos, Paulo Cesar Farias,
hafi skipulagt fjárdrátt og
þjófnað á fé úr opinberum
sjóðum til að ijármagna kosn-
ingabaráttuna. Þá er Farias
einnig sakaður um að hafa, í
krafti stöðu sinnar, kúgað fé
af fjölmörgum einkaaðilum,
sem störfuðu í þágu ríkisins.
Farias neitar sakargiftunum
og de Mello hefur hvað eftir
annað rieitað allri vitneskju
um gerðir hins fyrrverandi
gjaldkera en þeir tveir eru
einnig persónulegir vinir.
Stjómarandstæðingar segjast
ætla að kæra forsetann fyrir
valdníðslu á grundvelli skýrsl-
unnar. Hingað til hefur Mello
neitað að segja af sér vegna
málsins.
Kosningasvik
í Líbanon
FORSETI líbanska þingsins,
Hussein Husseini, sagði af sér
embætti í gær og bað stjóm
landsins um að ógilda fyrri
umferð þingkosninganna, sem
var haldin á sunnudag, vegna
víðtæks kosningasvindls. Hus-
seini, sem fylgir Sýrlendingum
að málum, sakaði Hizbollah-
hreyfinguna, sem íranir
styðja, um að falsa atkvæða-
seðla.
Slóvakar slíta
viðræðum við
Tékka
VACLAV Klaus, forsætisráð-
herra Tékka, sagði í gær að
Slóvakar hefðu slitið viðræð-
um á milli þjóðanna um fram-
tíð Tékkóslóvakíu. Viðræðun-
um var ætlað að skera úr um
hvort Tékkar og Slóvakar yrðu
í laustengdu ríkjasambandi í
framtiðinni og hvaða mála-
flokkar yrðu sameiginlegir en
fimmti fundur þeirra átti að
vera á fimmtudag. Klaus lýsti
yfir vonbrigðum sínum með
ákvörðun Slóvaka en tékknesk
stjómvöld óttast að þeir hygg-
ist skera á öll stjómmálaleg
tengsl þjóðanna tveggja.
Skóg*areldar í
Kaliforníu
7.500 manns urðu að flýja
heimili sín í norðurhluta Kali-
fomíu um helgina vegna
mestu skógarelda, sem hafa
geisað í ríkinu í fimm ár. Eld-
amir kviknuðu í síðustu viku
og er talið að þeir hafí valdið
eyðileggingu á tugþúsunda
hektara svæði. Um 1.800
manns vinna við slökkvistarfið
en þrátt fyrir það hefur enn
ekki tekist að hefia útbreiðslu
stærstu eldanna. Hvassviðri
hefur verið í Kalifomíu undan-
farna daga en við slíkar að-
stæður breiðist eldurinn út
með leifturhraða í skóglendi.
Þýskaland
Breytíng-
ar í höfn
LEIÐTOGAR þýskra jafnaðar-
manna (SPD) og Frjálsra demó-
krata (FDP) sögðu um helgina að
þeir myndu styðja breytingar á
þýsku stjómarskránni, sem
stjórnvöld hafa lagt fyrir þingið,
með ströngum skilyrðum.
Samkvæmt stjórnarskrárbreyt-
ingunum verður þýskum stjórnvöld-
um í fyrsta sinn frá lokum Síðari
heimsstyijaldar heimilað að senda
þýskar hersveitir út fyrir vamar-
svæði Atlantshafsbandalagsins, til
að taka þátt í friðargæslu og hern-
aðarverkefnum á vegum Sameinuðu
þjóðanna (SÞ).
Með samþykki flokksleiðtoganna
þykir sýnt að frumvarp stjórnarinnar
um stjómarskrárbreytingarnar sé í
höfn en til að þær öðlist samþykki
þarf samþykki 2/3 hluta þingheims.
Reuter
Óveður í aðsigi
Gervihnattamynd af fellibylnum Andrési. Óveðrið kemur utan af Atlantshafi og stefnir á Flórldaskagann (t.v.)
Neðst á myndinni er Kúba en fellibylurinn hafði lítil sem engin áhrif þar.
Fellibylurinn Andrés veldur miklum usla á Flórída og stefnir á Louisiana
íslendingarnir ómeiddir en
margir urðu fyrir eignatjóni
Plórida. Frá Atla Steinarssyni, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
ALLMARGIR íslendingár búa í
Suður-FIórída, þar sem fellibyl-
urinn Andrés merkti sér slóð eyði-
leggingar þvert yfír Flórídaskag-
ann sl. nótt. Ekki er vitað til þess
að nokkur þeirra hafi hlotið lík-
amsmeiðsli, en nokkrir urðu fyrir
eignatjóni. Fellibylurinn olli millj-
arðatjóni og er aðeins lítið brot
af eyðileggingunni komið í Ijós,
því enn er ófært um ýmis svæði
vegna sandhrúga á götum eða
fallinna trjáa. Sjónvarpsmenn og
fleiri voru að kynna sér ástandið
úr þyrlum síðdegis í gær. Þá var
enn rafmagnslaust á rifínu sem
er næst Atlantshafsströndinni og
í byggð í grennd við siglingaleið-
ina innan skeija. Rafmagns-
skömmtun var komin á.
Ef Iitið er til íslensku nýlendunnar
í Suður-Flórída varð tjónið líklega
mest hjá Nönnu Roberts og fjöl-
skyldu hennar. Þar fuku plötur af
þaki og fleiri skemmdir urðu á íbúð-
arhúsinu, girðingu tók upp og tré
féllu á bíla Qölskyldunnar og fleiri
skemmdir urðu.
Hjá Jónu Ferrante, sem býr í sama
hverfí, sem Kendall heitir, varð einn-
ig eignatjón er girðing og fleira eyði-
lagðist. Báðar máttu þær hrósa happi
því fellibylurinn gerði mestan usla í
þessu íbúðarhverfi. Þar er nú meira
Leið fellibylsins Andnésar
TEXAS
Houston
Galveston
en helmingur húsa þaklaus, sum hús
eru hálffokin og ónýt og heildarsvip-
ur hverfísins eins og sprengja hafí
þar fallið.
Tvær konur aðrar íslenskar búa á
svipuðum slóðum. Ekki hafði náðst
til þeirra um sexleytið í gær en talið
er víst að þær hafí leitað skjóls hjá
vinum eða í neyðarskýlum.
Þórir Gröndal, ræðismaður íslands
í S-Flórída, taldi ekki ástæðu til að
óttast um þær. Hann sagði að um
tíma hefði enginn vitað um ferðir
íslenzks námsmanns á þessum slóð-
um, Magnúsar Helgasonar, en síðar
kom í ljós að hann hlýddi fyrirskipun-
um, yfirgaf svæðið og gisti í Orlando
í nótt.
New York. Reuter.
„Mia hefur beitt
mig ofbeldi og ég
hef óvéfengjan-
legar . sannanir
fyrir því. Ég gæti
sagt margt, sem
kæmi henni rnjög
illa, en ég mun
aðeins gera það
ef ég neyðist til
að bera vitni fyrir
Hjá Ingibjörgu Ragnarsdóttur
Mohamed og fjölskyldu hennar, sem
býr norðar, eða á mótum Dade-sýslu
og Broward-sýslu, varð mikið tjón í
húsagarði. 16 af 18 pálmattjám sem
þar eru rifnuðu upp með rótum. Þar
fauk einnig netskýli yfír sundlaug
og fleiri skemmdir urðu.
Þeir sem norðar bjuggu, t.d. allir
í Fort Lauderdale og Pompano
Beach, sluppu án tjóns. Á því svæði
býr m.a. Björn I. Gunnlaugsson
fyrrv. skipstjóri, formaður íslend-
ingafélagsins á þessum slóðum. Hús
hans er við siglingaleiðina innan
skerja. Þar varð ekkert tjón. Þarna
býr einnig Þorkell Valdimarsson og
fleiri og sluppu þeir án tjóns.
Sumir hafa enn ekki fengið að
fara heim til sín, því leiðin út á rifíð
er enn lokuð, a.m.k. milli Hollywood
og suður til Miami Beach. Þar er
vegurinn AIA ófær vegna sand-
skafla sem sjór hefur skolað yfír rif-
ið og skilið eftir á götunni.
Ræðismannsskrifstofa íslands er
við þessa götu í Hollywood. Þar var
yfirvofandi flóðahætta, en flóðbylgj-
an varð minni en búist var við. Hús-
ið slapp en er umflotið sandi.
Margir Íslendingar leituðu öruggs
hælis norðar á skaganum. Gistu t.d.
sex slíkir hjá undirrituðum í nótt.
Soon-Yi, fósturdóttír Miu Farrow
Seffir ásakanir móð-
ur sinnar fáránlegar
SOON-YI Farrow Previn, fósturdóttir leikkonunnar Miu Farrow og
ástmær Woody Allen, segir að ofsafengið skap Miu hafí bitnað á upp-
eldi barna hennar og að ásakanir á hendur Allen, um kynferðislega
misnotkun barna, séu fáránlegar.
Reuter.
Soon-Yi
rétti. Mia hefur ætíð verið örgeðja
og átt það til að taka æðisköst, sem
hafa skelft okkur bömin," sagði So-
on-Yi, hin 21 árs gamla fósturdóttir,
sem fæddist í Kóreu, í viðtali við
Newsweek.
Farrow hefur neitað að tjá sig um
ummæli dóttur sinnar að öðru leyti
en því, að segja að hún elski Soon-Yi
mjög mikið og að hjarta hennar hefði
brostið við að heyra þau.
Afar kröpp og
mjög djúp lægð
FELLIBYLUR er afar kröpp og mjög djúp lægð, að sögn Markúsar
Á. Einarssonar á Veðurstofu Islands. Loftþrýstingsmunur verður
þá gífurlega mikill á stuttu svæði og vindhraði verður því nyög
mikill.
Á Atlantshafi myndast lægðir
af þessu tagi 1.100 til 1.600 km
norður af miðbaug en skilyrði fyrir
myndun þeirra er að sjávarhiti sé
mjög hár eða allt upp í 27° C. Af
þeim sökum myndast fellibyljir oft-
ast á tímabilinu júní-október.
Þegar lægðin snardýpkar og
vindur fer að aukast hreyfist lægð-
in oftast til vesturs sem þýðir að
fellibyljir sem myndast á Átlants-
hafi lenda oftast á svæði milli Norð-
ur- og Suður-Ameríku; fara inn á
Karíbahaf, Mexíkóflóa og lenda oft
á Flórída og syðstu hlutum Banda-
ríkjanna.
Fari Atlantshafsfellibylur til
vesturs er það nánast regla að
krafturinn byijar að fara úr honum
þegar hann fer inn yfír land. Oft-
ast breytir hann þá líka um stefnu,
fer fyrst til norðurs og síðan norð-
austurs og endar þá venjulegast
aftur úti á hafi sem lægð.
Að sögn Markúsar er ákaflega
erfítt að spá hversu djúpar lægðir
geta orðið en samkvæmt fréttum
var meðal vindhraðinn í fellibylnum
Andrési 225 km/klst. en í hviðum
mældist hann 265 km/klst. Þver-
mál fellibyls getur verið 200-500
km en í miðju hans er svokallað
auga þar sem veður er tiltölulega
saklaust. Er augað 20-40 km í
þvermál.
Fellibyljir geta orðið víða um
heim þar sem skilyrði eru fýrir
hendi, þ.e. hár sjávarhiti. Þeir eru
algengir á Atjantshafi næst Vest-
ur-Indíum og við vesturströnd
Mexíkó. Einnig á austan- og sunn:
anverðu Kyrrahafi, á Bengalflóa,
Arabíuhafí og sunnanverðu Ind-
landshafí.