Morgunblaðið - 25.08.1992, Blaðsíða 46
46
MQRGUNBLAE>H) mUJUPAGUIt.25. ÁGÚST: ,1992
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
*
*
-fc
*
¥
*
*
*
★
*
*
*
*
*
*
M
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 350,- Á ALLAR MYNDIR
NEMA BÖRN NÁTTÚRUNNAR OGINGALÓ.
STEPHEN KING STEPHEN KING STEPHEN KING
NATTFARAR
S T E P 11« N\ K I N ' S
IPIL
SAHNKALLADUR SUMARHROLLUR!
m NÝJASTA HROLLVEKJA
STEPHENS KING.
- SKUGGALEG!
Sýnd kl. 5, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
OÐURTIL
HAFSINS
Sýnd kl. 9. b.í. 14.
Síðustu sýn.
BORN NATTURUNNAR
Sýnd kl. 7íA-sal,
sýnd kl. 5 f B-sal.
ENGLISH SUBTITLE KL.5.
ilS Miðaverð kr. 500.
HNEFALEIKAKAPPINIU:
Sýnd kl. 11.15. b.í. 16.
INGALÓ
Sýnd kl. 7.05.
ENGLISH SUBTITLE
¥
¥
¥
¥
Frönsk fiskisúpa
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Atlantis. Sýnd í Bíóhöllinni.
Höfundur: Luc Besson.
Tónlist: Eric Serra.
Luc Besson er einn af fræg-
ustu leikstjórum Frakklands
eftir athyglisverða og spenn-
andi þrillera á borð við
„Subway“ og Nikita, sem bor-
ið hafa hróður hans víða. Atl-
antis, nýjasta mynd þessa
franska stflista hér í bíóunum,
er ekki einn af kaldrifjuðu
þrillerunum hans heldur er
hún frænka neðansjávar-
myndarinnar „The Big Blue“,
nema núna er allt drama
mannanna horfið og dýralífið
neðansjávar komið í öndvegi.
Atlantis er náttúrulífsmynd
úr undirdjúpunum, nk. frönsk
fiskisúpa að hætti Bessons.
Sumir gætu litið á hana
sem óformlegt framhald „The
Big Blue“ þar sem undirdjúp-
in eru þá séð með augum
mannhöfrungsins, sem hvarf
í hið djúpa bláa undir lok
myndarinnar. Atlantis sýnir
a.m.k. að höfundurinn er al-
gerlega gagntekinn af undir-
djúpunum og því sem þar lifir
og myndar það fullur lotning-
ar. En náttúrumyndir sem
þessar eru skiljanlega sjald-
séðar í kvikmyndahúsum og
varla nema fyrir sérstaka
áhugamenn.
Atlantis á auðvitað vel
heima í allri þeirri umræðu
um umhverfisvemd sem við
þekkjum og er greinilega
sprottin úr henni. Besson
myndar lífríkið í sínu náttúru-
lega umhverfi og bregður á
leik með samblandi mynda,
áhrifshljóða, tónlistar og
klippinga á nokkuð áhrifarík-
an hátt.
Þannig myndar hann sela-
torfu frá sjónarhóli selsins,
veltir sér í hringi og syndir í
torfunni miðri. A einum stað
setur hann heila óperu á svið
þar sem risaskata er í hlut-
verki dívunnar en fiskitorfur
leika hlutverk áhorfenda og
með fylgja fagnaðaróp og
skarkali og mas úr tónleika-
húsi. Hákarlarnir fá samsvar-
andi ógnandi tónlist og höfr-
ungarnir léttleikandi og svo
mætti lengi telja.
Atlantis er fallegur óður til
hafsins. Hún er 70 mínútna
löng breiðtjaldsmynd og Bes-
son er lagið að filma bæði hið
fagra og hið volduga í undir-
djúpunum. Myndin býður upp
á óvenjulega bíóferð en þeir
sem búast við bófahasar og
látum ættu að halda sig
heima.
Morgunblaðið/Kári
Hópur norrænna gesta auk Islendinga sem þátt tóku í norrænu íþróttakennaranámskeiði á Laugarvatni.
Norrænt íþróttakennaranámskeiö á Laugarvatni
_
Island í fararbroddi í
íþróttakennslu grunnskóla
Laugarvatni.
NORRÆNT íþróttakennaranámskeið var haldið á Laugarvatni dagana
10.-14. ágúst sl. Námskeiðið sóttu um 110 íþróttakennarar, þar af 34
frá hinum Norðurlöndunum. Þar kom fram að timafjöldi til íþrótta-
kennslu í grunnskólum á íslandi er með því mesta sem gerist á Norður-
löndunum, en með minnsta móti í framhaldsskólunum.
Þetta er í fyrsta skipti sem íslend-
ingar taka að sér að halda samnor-
rænt íþróttakennaranámskeið en þau
fara fram á þriggja ára fresti á Norð-
urlöndunum til skiptis. íþróttakenn-
arafélag íslands, íþróttakennara-
skólinn, Kennaraháskólinn og
menntamálaráðuneytið stóðu sam-
eiginlega að námskeiðshaldinu að
þessu sinni sem var sniðið fyrir fram-
Evrópumeistaramótið í skák
Sigurður Daði í 20. sæti
AÐ SJO umferðum loknum á Evrópumeistaramótinu í skák í Sas von
Gent í Hollandi hefur Sigurður Daði Sigfússon 3 vinninga og er í 20.
sæti. Sigurður tapaði fyrir Rúmenanum Ceteras í 7. umferð.
í efsta sæti á mótinu eru nú Alex- með 5 vinninga. Ekki liggur ljóst
androv frá Hvíta-Rússlandi, Rasik fyrir hvem Sigurður Daði fær sem
frá Téekkóslóvakíu, Nalbandisn frá andstæðing í 8. umferð í dag vegna
Armeníu og Reinderman frá Hollandi fjölda biðskáka.
haldsskólakennara í íþróttum. Meðal
efnis var fyrirlestur um „fólk í fyrir-
rúmi“ þar sem fjallað var um þróun,
skipulag og breytingar innan fram-
haldsskólans sl. tvö ár og áframhald
þeirra. Borin var saman staða Norð-
urlandaþjóðanna hvað varðar tíma-
fjölda í íþróttakennslu á hveiju skóla-
stigi. Kom fram að ísland stendur
nokkuð vel hvað varðar yngstu nem-
enduma en aftur verr þegar kemur
að framhaldsskólunum.
Á námskeiðinu var einnig farið í
notkun þolprófa í skólum og fyrir
almenning, fyrirlestur var haldinn
um íþróttameiðsl, sundnám í íslensk-
um skólum var kynnt ásamt sund-
leikfimi og nýrri bók eftir Sólveigu
Þráinsdóttur fyrir íþróttakennslu í
efstu bekkjum grunnskólans. Nor-
rænu gestimir fengu auk þess að
reyna sig á hestbaki, baka hvera-
brauð og borða íslenskan mat og
mæltist það vel fyrir. - Kári
Norræn umhverfis-
ráðstefna í Sevilla
NORRÆN umhverfisráðstefna á vegum Norrænu ráðherranefnd-
arinnar fór fram á Heimssýningunni í Sevilla á Spáni í gær, mánu-
dag.
Á ráðstefnunni voru flutt tvö
erindi frá hveiju Norðurlandanna.
Norðmenn fjölluðu um loftslag,
Finnar um líffræðilega fjölbreyti-
leika, íslendingar um mengun sjáv-
ar, Svíar um súrt regn og Danir
um þátttöku almennings í um-
hverfismálum.
Eiður Guðnason, umhverfisráð-
herra, setti ráðstefnuna og flutti
erindi fyrir hönd íslands um norr-
æn sjónarmið og stefnu varðandi
vemdun sjávar gegn mengun. Dav-
íð Egilsson, deildarstjóri Meng-
unardeildar Siglingamálastofnun-
ar, fjallaði um mengun sjávar.
Ráðstefnan hefur verið kynnt
víða erlendis og höfðu 200 þátttak-
endur skráð þátttöku sína fyrir
helgi. Þar af eru 40 blaða- og
fréttamenn.
Sparísjóðir og Iðnnemasamband semja
Emil Emilsson, markaðsstjóri sparisjóðanna, og Ólafur Þ. Þórðars-
son, formaður Iðnnemasambands íslands, skrifuðu undir samkomu-
lag um sérkjör iðnnema í viðskiptum við sparisjóðina föstudaginn
21. ágúst. Samkomulagið gerir ráð fyrir að umfram venjulega þjón-
ustu fái iðnenmar ýmis fríðindi, sérstök námsyfirdráttarlán, sem
nemi a.m.k. 90% af áætlaðri mánaðarlegri lánveitingu frá LÍN,
fjármálaráðgjöf og aðra sérþjónustu. Sparisjóðirnir munu styrkja
ýmsa starfsemi á vegum iðnnema og koma á fót sérstökum styrkt-
arsjóði nemenda innan Iðnnemasambandsins.