Morgunblaðið - 30.08.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.08.1992, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C 196. tbl. 80. árg. SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins í í ÞINGVALLAKIRKJU Bandarískir kjósendur vilja umræður um efnahagsmái en ekki siðfræði Repúblikanar ætla að draga úr árásum sínum á Clinton Washington. The Daily Telegraph. KOSNINGASTJÓRAR George Bush Bandaríkjaforseta hafa ákveðið að endurmeta herferð Repúblikanaflokksins fyrir „fjölskyldugildum" og draga úr árásum sínum á Hillary Clinton, eiginkonu Bills Clintons, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins. Komust þeir að þessari niðurstöðu eftir að ljóst var samkvæmt könnunum að kjósend- ur vildu frekar fræðast um stefnu repúblikana í efnahagsmálum heldur en Guð og siðaumvandanir á sviði kynlífs. Flokksþing repúblikana, sem haldið var í Houston í Texas í síðustu viku, einkenndist af umræðu um „fjölskylduna“ og náði hámarki er Barbara Bush, eiginkona forsetans, kom upp á sviðið með 22 börn og barnabörn sín á besta sjónvarpstíma. Bretar epla- og perulaga Sá dagur kann að renna upp innan skamms að notaður verði sérstakur skanni til að sjá til að jakkafötin passi nú sem allra best. Rannsóknarhópur i Loughborough-háskólanum í Englandi hefur undanfarið unnið að hönnun slíks skanna og er fyrsta tilraunaeintakið nú tilbúið. Getur skanninn mælt út líkams- stærð og líkamshlutföll einstaklings á örfáum sekúndum. Hópurinn hefur einnig unnið að því að búa til gagna- banka yfir vaxtarlag Breta. Hafa 23 þúsund einstaklingar, allt frá korna- börnum upp í ellilífeyrisþega, verið mældir út með hefðbundnum aðferðum í þeim tilgangi. Eiga upplýsingarnar sem fást að segja til um hvaða áhrif mataræði, kynþáttablöndum, aldur og fleiri þættir hafa á meðalhæð og hlut- föll þjóðarinnar. Meðal fyrstu niður- staðna rannsóknarinnar er að greinst hefur þróun í þá átt að breskir karl- menn eru farnir að verða meira eins og epli í laginu, miðjan breiðari en mjaðmirnar, en breskar konur líkjast æ meir perum. Næsta skref verður að þróa fram einfaldaða gerð af skannan- um sem hægt verður að nota í verslun- um. Óreiða talin vera hagkvæm Þeir sem til þessa hafa sætt ákúrum snyrtilegra samstarfsmanna sinna vegna þess að skrifborð þeirra minna helst á ruslahauga geta tekið gleði sína á ný. Nýjar rannsóknir benda til að að baki slíkri óreiðu geti legið mjög per- sónuleg flokkunarkerfi sem oft reynast mikilvirkari en nýjasta skrifstofutækni. Óreiðan eigi ágætlega við starfsemi hins mannlega minnis. Menn noti ákveðnar vísbendingar til að finna hluti og geti oft fundið mikilvæg bréf sem leynast í draslinu hraðar en einhver sem hefur geymt bréfið samkvæmt fullkomnu flokkunarkerfi. Vísbendingar á borð við „hvað var ég að gera þegar ég sá það síðast“ eða „hvernig leit það út“ reyn- ast oft betur en nafn á einhverri skrá. Vísindamennirnir sem könnuðu þessi mál segja að skrifborð hins hefðbundna óreiðumanns minni helst á eldfjall. Það samanstandi af nánast keilulaga fjalli skjala með smá gig í miðjunni. Skjöl lenda fyrst í gígnum og eru síðan fjar- lægð eftir að vinnslu þeirra lýkur. Ef ekki er hreyft frekar við skjalinu færist það smám saman niður fjallið og dettur loks af skrifborðinu. Starfsmenn á stærri skrifstofum minna helst á hirð- ingja. Þeir eru á sífelldu flakki og mynda lítil eldfjöll alls staðar þar sem þeir koma við. Leiðtogar flokksins eru nú flestir hverjir að komast á þá skoðun að gengið hafi verið of langt í þessum efnum og að persónulegar árásir á andstæðingana séu farnar að hafa neikvæð áhrif. Nýjar skoðanakannanir rökstyðja þessi sjónarmið en samkvæmt þeim er Bush, sem saxaði verulega á forskot Clint- ons í kjölfar flokksþingsins, búinn að glutra niður uppsveiflunni. Er Clinton enn á ný kom- inn með um tíu prósentustiga forskot á forset- ann. Repúblikanar hafa ráðist mjög hart að eig- inkonu Clintons vegna ýtni hennar og rót- tækra skoðana á ýmsum sviðum en þeim árás- um á nú að linna. Jafnvel þeir harðsvíruðustu innan raða flokksins eru farnir að gera sér grein fyrir þeim hættum sem felast í því að byggja herferð, sem hefur að markmiði að sýna hversu mikla áherslu þeir leggja á fjöl- skylduna, upp á árásum á eiginkonu mótfram- bjóðanda. George Black, einn af helstu ráðgjöfum Bush, hefur til að mynda vítt þingmanninn Newt Gingrich harkalega fyrir framlag hans til fjölskylduherferðarinnar sem af mörgum repúblikönum er talið vera það fáránlegasta og ósmekklegastá sem fram hefur komið til þessa. Reyndi Gingrich að tengja Demókrata- flokkinn við deilur leikaranna Woody Allen og Miu Farrow og sagði Allen vera hina full- komnu fyrirmynd þeirra gilda sem Clinton og demókratar stæðu fyrir. Leikarinn hefði stundað „ekki-siíjaspell með ekki-dóttur sem hann væri ekki-faðir vegna þess að þau væru ekki-fjölskylda“. Bush sjálfur hefur ekki tekið þátt í ófræg- ingarherferðinni gegn Clinton-hjónunum per- sónulega heldur látið aðstoðarmenn sína sjá um grimmustu árásirnar. Úr röðum repúblik- ana eru líka famar að heyrast raddir þess efnis að kosningabaráttan hafi verið illa skipu- lögð fram til þess. George Will, sem er mjög áhrifamikill íhaldssamur dálkahöfundur, lýsti til að mynda kosningabaráttu forsetans sem „vitsmunalegu holræsi" sem væri uppfyllt af lygurum. „Heiðarlegir íhaldsmenn finna þessa stundina til sömu reiði og heiðarlegir íhalds- menn fundu til fyrir fjörutíu árum er Joe McCarthy var að koma vondu orði á and- kommúnisma," ritaði Will í dálk sinn. Sjánánar bls. 10 LESTUR OG LÆSR ÍSLANDI BLAÐ MARTRÖD í MOGADISHU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.