Morgunblaðið - 30.08.1992, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 30.08.1992, Blaðsíða 27
^í?f>r TfjirnÁ 08 ÍHJOAfFIVÍMtTfi 0K3AjaVJlIOSOM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. AGUST 1992 Blakkur frá Eylandi þrítugur Aldrei þurft á dýralækni að halda — segir Hákon í Sporti sem átt hefur hestinn í 23 ár Valdimar Kristinsson ÞAÐ TELST til tíðinda þegar hestar ná því að verða þrítugir, sem gæti samsvarað 100 mannsárum ef gengið er út frá því að hvert ár hjá hesti jafngildi ríflega þremur árum hjá manni. Blakkur frá Ey- landi í Landeyjum náði þessum áfanga í vor en hann er í eigu Hákons Jó- hannssonar sem gjarnan hefur verið kenndur við verslunina Sport. Hákon keypti Blakk sjö vetra gamlan af Þorgeiri Jónssyni í Gufunesi fyrir tuttugu og þrem- ur árum en Þorgeir hafði keypt hann sem folald frá Eylandi. Segir Hákon að Þorgeiri hafi lit- ist vel á hann sem folald og því keypt hann. Hann bætir við að Geiri hafi verið mjög hestglögg- ur. Blakkur var, ásamt Háleggi frá Gufunesi, reiðhestur Hákons og vöktu þeir mikla athygli á hindrunarstökksýningum en Hákon var brautryðjandi í þjálf- un þess hér á landi. „Blakkur Blakkur og Háleggur komu víða fram þar sem þeir sýndu samsíða stökk yfir 80 sentí- metra háa hindrun og segir Hákon, sem situr Hálegg, ekki vita til þess að þetta hafi verið leikið eftir hér á landi. var vel viljugur og sótti frekar á taum, þá var hann geðgóður og hafði allan gang en ég not- aði hann ekki sem skeiðhest," segir Hákon. „Þá reyndist hann afbragðsvel sem ferðahestur. Eitt sinn fór ég á þeim á Lands- mót hestamanna á Vindheima- Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson Á eftirlaunaldrinum fær Blakkur það hlutverk að bera Stefán Hákon, dótturson Hákons í Sporti. melum og man ég eftir því að riðið var f einum áfanga frá Húsafelli að Grímstungu í Hún- vatnssýslu. Daginn eftir skoðaði ég þá vandlega og var ekki að sjá að þeim hafi orðið um þessa löngu dagleið." í dag er Blakkur við ótrúlega góða heilsu. Að sögn Helga Sig- urðssonar dýralæknis, sem hefur skoðað hestinn, eru tennur hans í góðu lagi og fætur mjög góðir. Hákon segir að Blakkur hafi alla tíð verið sérlega heilsu- hraustur og aldrei orðið misdæg- urt á einn né annan hátt og aldr- ei þurft á dýralækni að halda. Þeir sem til þekkja vita að fáir hugsa eins vel um hesta sína og Hákon og telur hann að góð og nákvæm umhirða ásamt því að hesturinn er hraustur að upplagi hafi tryggt honum svo góða endingu sem raun ber vitni. „Ég hef alla tíð forðast harðar reið- götur þar sem því hefur verið komið við,“ segir Hákon. í dag hefur Blakkur það frek- ar rólegt eins og vera ber. Ellefu ára dóttursonur Hákons, Stefán Hákon, sem býr erlendis en var gestkomandi þegar blaðamann bar að garði, hefur notað hestinn til útreiða en auk þess teymir Hákon hann með þegar hann leggur á reiðhest sinn, Glanna Ómar frá Keldudal, sem er kunnur gæðingur og með fljót- ustu vekringum landsins. „Þeir eru mjög samrýmdir og hneggja alltaf hvor til annars fari ég á Glanna Ómari einum,“ segir Hákon sem er með mjög góða aðstöðu á Blásteinum á Kjalar- nesi þar sem hestarnir geta ver- ið mikið utan dyra á vetrum eftir að þeir eru hýstir. Hvor þeirra hefur stóra og rúmgóða stíu fyrir sig sem þætti vel rúm fyrir tvo hesta. „Ég leyfi honum að lifa svo lengi sem hann heldur góðri heilsu,“ segir Hákon að endingu. Veana ótrúlegrar eftirspurnar 09 so u. mmm 20-26. september «1 M1KAF tRÐ TIL fAJÁLLORCW 31.255.- miSab við 4 í 'tó- 21 ,-29.sepiember 30.590.- m 5a5 viö 4 í íbúö. Samviiiiiiiíepllir-Lamlsj/ii Reykjavik: Austurstrætl 12 • S. 91 - 6910 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 6910 70 • Slmbrét 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 Hótel Söqu vlð Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Slmbréf 91 - 62 24 60 Keflavfk: Hafnargötu 35 • S. 92 - 13 400 • Símbrét 92 - 1 34 90 Akureyri: Sklpagðtu 14 • S. 96 - 27 200 • Slmbrél 96 - 2 40 87

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.