Morgunblaðið - 30.08.1992, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INIMLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1992
Endurkoma aldarínnar í sjónmáli
Fischer á flugvellinum í Búdapest ásamt fylgdarmönnum. Hann er annar frá vinstri. Sem sjá má
eru sögur um óhrjálegt útlit Fischers með öllu orðum auknar. Hárið hefur þó þynnst og kappinn
hefur þyngst á árunum 20.
FISCHER-SPASSKY MATCH CONTRACT1992
rÍj
ftohby riieiir . «na fUc« A (JoS j C
Borli Sftwily , O ud flaca ' -
'Qu.ojwU-. s OJid JlACt .
for Jugo«5t*ndic Coctpooy
0A
Undirskriftir Fischers, Spasskys og Vladimir Miljevic fyrir Jugo-
skandic á 16 blaðsíðna einvígissamningnum. Klausa í honum seg-
ir hann falla úr gildi heyri keppendur fallbyssudrunur.
Skák______________
Margeir Pétursson
HANN SLÓ í gegn í skákheim-
inum fjórtán ára gamall og
varð þá strax bjartasta von hins
vestræna heims um að sigrast
á áratuga yfirburðum Sovét-
manna í skákheiminum. Það
tókst honum að lokum 29 ára
gömlum hér er hann sigraði
Boris Spassky í einvígi aldar-
innar í Reykjavík. Þá hreif
hann með sér þúsundir og aftur
þúsundir víðsvegar um heim
með hárnákvæmri og rökréttri
taflmennsku sinni. Oflug kyn-
slóð stórmeistara sem nú er
komin fram var þá á barns-
aldri. Eftir sigurinn voru Fisc-
her boðin gull og grænir skóg-
ar, en hann kaus að draga sig
í hlé. Skáklegur þyrnirósar
svefn Fischers hefur staðið í
20 ár, en nú skyndilega leggur
hann drögin að endurkomu ald-
arinnar.
Næstum því á hveiju ári hefur
því verið slegið upp að Fischer sé
væntanlegur til keppni að nýju.
Þær hafa verið á misjafnlega
miklum rökum reistar, stundum
virðist aðeins hafa verið um full-
yrðingar út í loftið að ræða. Móts-
haldarar hafa notað slíkar sögur
til að vekja athygli á keppni sinni.
En nú virðist loksins alvara á
ferðum. Forsíður helstu skákblaða
heims eru undirlagðar og það má
sjá að það er mat ritstjóra þeirra
að Fischer tefli. Það er vissulega
margt sem bendir í þá átt. Hann
er kominn til Serbíu-Svartfjalla-
lands og hefur skoðað mótsstað-
inn í Sveti Stefan. „Þetta er falleg-
asti staður á jarðríki," sagði Fisc-
her. Hann sótti einnig móttöku
borgarstjórans í Belgrad og í
serbneska sjónvarpinu sagði
hann: „Já, ég tefli, það er ör-
uggt.“ Gerður hefur verið ýtarleg-
ur samningur um einvígið og
mótshaldarinn, eignarhaldsfyrir-
tækið Jugoskandic, virðist hafa
fullt fjárhagslegt bolmagn til að
halda keppnina með fimm milljón
dala verðlaunum. Það eru þó enn
margir vantrúaðir á að af einvíg-
inu verði. „Við höldum niðri í
okkur andanum þangað til hann
ýtir fyrsta peðinu,“ sagði fulltrúi
Jugoskandic og þau ummæli eru
líklega lýsandi fyrir afstöðu
skákáhugamanna alls staðar í
heiminum. Síðast á fímmtudaginn
afneituðu síðan fulltrúar Jugo-
skandic því með öllu að hótanir
nefndar Bandaríkjaþings um sam-
skiptabann á Serbíu og Svart-
fjallaland hefðu haft nokkur áhrif.
Nefndin hefur varað Fischer við
því að hans bíði sektir og fangelsi
heima fyrir ef hann brýtur bannið
með því að tefla.
Dró ástin Fischer úr
fylgsninu?
Samband Fischers við „Zitu“,
nítján ára stúlku af ungversku
bergi brotnu, mun hafa orðið þess
valdandi að hann lét af einangrun
sinni. Hún býr í Los Angeles eins
og hann, en tilheyrir ungverska
þjóðarbrotinu í Serbíu. Það gerir
líka Janos Kubat, stjórnandi
Ólympíuskákmótsins í Novi Sad
1990, og eftir að hann komst í
samband við Zitu fór boltinn að
rúlla. Kubat lagði dæmið upp fyr-
ir fjármálamenn í Belgrad og eft-
ir mikið leynimakk við þá Fischer
og Spassky var ákveðið að haldið
yrði áfram þar sem frá var horfið
í Reykjavík 1. september 1972.
Fischer hefur engu gleymt
Að sögn þeirra stórmeistara
sem hitt hafa Fischer nýlega hef-
ur hann fylgst gaumgæfílega með
þróun mála í skákheiminum.
Óstaðfestar sögusagnir ganga um
að hann hafí þegar leikið júgó-
slavneska stórmeistarann Svetoz-
ar Gligoric grátt í hraðskák.
Tölvufyrirtæki hafa eytt millj-
örðum króna í að kenna tölvum
aðTefla. Þykir skáklistin einkar
heppilegur mælikvarði á getu
gervigreindar til ákvarðanatöku.
En nú er gullið tækifæri fyrir
sálfræðinga og aðra slíka vísinda-
menn að skoða mátt mannlegrar
greindar. Hver verða áhrif 20 ára
hjásetu Fischers á styrk hans?
Það sem veikir trú manna á
styrk Fischers er einungis löng
fjarvist hans, en alls ekki aldur-
inn. Fyrir skákmenn eru 49 ár
enginn aldur. Skemmst er þess
að minnast er Viktor Kortsnoj
vann tvívegis áskorunarréttinn á
Karpov þegar hann var 47 og 50
ára. Þess eru líka mörg dæmi að
reyndir stórmeistarar hafí haldið
meira en 2.600 stiga styrkleika
fram yfír sextugt. Fyrrverandi
heimsmeistararnir Lasker og
Smyslov eru bestu dæmin.
Mótleikur gegn útskúfun
Serbíu
Á dögum Tító nutu Júgóslavar
víða virðingar á alþjóðavettvangi
vegna hlutleysisstefnu sinnar.
Þeir dagar eru löngu liðnir, vegna
framgöngu Serba gegn öðrum
fyrrverandi lýðveldum Júgóslavíu,
hafa þeir og Svartfellingar,
bandamenn þeirra, verið útskú-
faðir á alþjóðavettvangi. Þeir gera
sér vonir um að ef þeir fái Fisc-
her fram á sjónarsviðið á nýjan
leik verði það til að mýkja afstöðu
margra Bandaríkjamanna sem
fylgdust með sigri hans 1972 og
draga athyglina frá hörmungun-
um og glæpaverkunum í Bosníu.
Skákáhugi er óvíða meiri en í
lýðveldum fyrrum Júgóslavíu og
á dögum Fischers frá 1958-1972
voru margar mikilvægar keppnir
haldnar þar. Fischer á þar marga
vini frá gamalli tíð og 1972 var
Belgrad ofar á óskalista hans sem
einvígisstaður en Reykjavík. Það
kemur því ekki á óvart að hann
hafi valið Serbíu sem stað fyrir
endurkomu sína. Fischer var af-
skaplega vinsæll þar í landi og
nú má búast við því að hann verði
að þjóðhetju fyrir að tefla í trássi
við samskiptabann.
Fischer samdi leikreglurnar
Skákklukkan sem notuð er í
Sveti Stefan er mikil völundar-
smíð og byggð á hugmynd Fisc-
hers sjálfs. í stórum dráttum
byggist hún á því að hvor kepp-
andi byijar með 90 mínútna um-
hugsunartíma, en síðan bætast
tvær mínútur við fyrir hvern leik.
Það er því tryggt að þeir munu
aldrei lenda svo í tímahraki að
þeir hafi ekki tíma til að færa
mennina. Á skák sem er 40 leikir
hefur því hvor keppandi 2 klukku-
stundir og fimmtíu mínútur.
Einvígisreglurnar eru einnig í
samræmi við vilja Fischers. Vinna
þarf tíu skákir til að teljast sigur-
vegari í einvíginu. Það er því
nokkuð hætt við að það dragist á
langinn. Til samanburðar má geta
þess að í einvíginu 1972 vann
Fischer sjö skákir, en Spassky
tvær auk þess sem Fischer mætti
ekki til leiks í annarri skákinni.
Klukka Fischers kemur einnig
í veg fyrir biðskákir og er ætlun-
in að tefla fimm skákir á viku.
Þegar annar hvor hefur unnið
fímm skákir verður einvígið flutt
til Belgrad og teflt í hinni glæsi-
legu ráðstefnumiðstöð Sava Cent-
er á bakka Dónár.
Besta landkynning
í sögu Islands?
Heimsmeistaraeinvígi Fischers
og Spasskys í Laugardalshöll
1972 er einn þeirra viðburða sem
hvað mest hafa orðið til að vekja
athygli á íslandi. Enn njótum við
góðs af henni, ekki er svo fjallað
um fyrirhugað einvígi í Svart-
fjallalandi að Reykjavíkur sé ekki
getið í leiðinni. Það heldur ennþá
sessi sínum sem merkilegasta ein-
vígi gervallrar skáksögunnar og
hefur þó ýmislegt gengið á í við-
skiptum Karpovs við þá Kortsnoj
og Kasparov. Verðlaunaféð sem
Skáksamband íslands reiddi þá
fram var þó „aðeins“ 125 þúsund
Bandaríkjadalir, eða sem svarar
sex milljónum ísl. króna nú. Nú
eru verðlaun í bæði heimsmeist-
araeinvíginu í Los Angeles á
næsta ári og hjá Fiseher og Spas-
sky 5 milljónir dala í hvoru fyrir
sig. Hvor mótshaldari verður því
að reiða fram fjörutíufalda þá
upphæð sem íslenskir aðilar
greiddu. Fischer þótti verðlauna-
upphæðin lág og það var ekki
fyrr en breski fjármálamaðurinn
Slater tvöfaldaði hana að hann
mætti til leiks.
Vissir þú þetta um Fischer?
Bobby Fischer hefur aldrei unn-
ið meira en þijú þúsund (160 þús.
ísl. króna) dali á móti í Bandaríkj-
unum. Þess ber þó að geta að
verðmæti bandaríkjadalsins hefur
minnkað verulega frá því Fischer
hætti.
Fischer aflaði sér farareyris á
millisvæðamótið í Portoroz 1958
með því að fá verðlaun í spurn-
ingaleik í sjónvarpi.
Byggt á: Morgunblaðinu, Inter-
national Herald Tribune, Inside
Chess, Die Schachwoche,
Europe Echecs og greinum A.
Soltis i Chess Life & Review.
Ólympíumótið í brids
Svartur föstudagur hjá
íslenska landsliðinu
Brids
Guðm. Sv. Hermannsson
Föstudagurinn síðasti reynd-
ist íslenska bridslandsliðinu
erfiður á Ólympíumótinu í Sal-
somaggiore. Allir þrír leikir
dagsins töpuðuðust og afrakst-
urinn var aðeins 28 stig af 75
mögulegum. ísland datt úr 3.
sæti í það 8. í riðli sínum og
er nú 21 stigi frá fjórða sætinu
sem gefur sæti í úrslitakeppn-
inni um Ólympíutitilinn.
Mikil barátta er um úrslitasæti
í báðum riðlum opna flokksins og
einnig kvennaflokksins. Eftir 18
umferðir leiða Bandaríkjamenn
riðil íslands og Tyrkir voru mjög
óvænt komnir í annað sætið. Hol-
lendingar höfðu gefíð eftir og
voru í 3. sætinu, Svíar og Frakk-
ar voru þar ekki langt á eftir en
síðan komu Norðmenn, Pakistanir
og íslendingar í einum hnapp.
í hinum riðlunum hafa Danir
sífellt styrkt stöðu sína í efsta
sætinu en Hong Kong, Austur-
ríki, Israel, Belgía og_ Brasiiía
beijast um næstu sæti. í kvenna-
flokki voru Þjóðvetjar efstir í A-
riðli en á eftir komu Austurríki,
Kína, Holland, ísrael og Banda-
ríkin. í B-riðli voru Bretar í efsta
sæti en þá kom Svíþjóð, Kanada,
Frakkland og Danmörk sem á
Ólympíutitil kvenna að veija.
Þótt möguleikar íslendinga á
úrslitasæti hafí minnkað verulega
á föstudaginn hafa íslensku liðs-
mennirnir þó fráleitt lagt árar í
bát og í lokaumferðunum eiga
þeir möguleika á að bæta stöðu
sína. Það getur allt gerst í brids
eins og þetta spil frá leiknum við
Bandaríkjamenn sýnir.
Vestur Norður ♦ G984 ▼ Á965 ♦ K43 ♦ K8 Austur
♦ K76532 410
¥G8 ¥K107
♦ Á7 ♦ DG10652
♦ 1032 ♦ DG4
Vestur Suður ♦ ÁD ♦ D432 ♦ 98 ♦ Á9765 Norður Austur Suður
Wolff SSv Hamman JB
2 spaðar pass pass pass 2 grönd 3 grönd/
+400
Þetta var eitt af síðustu spilun-
um í leiknum og Bandaríkjamenn
höfðu náð öruggri forustu, raunar
stóð leikurinn í 25-3 fyrir þá. Og
Björn Eysteinsson fyrirliði fylgd-
ist skeifíngu lostinn með því þeg-
ar Jón Baldursson og Sigurður
Sverrisson renndu sér í 3 grönd
þrátt fyrir lítinn spilastyrk. Hvar
endar þetta? hugsaði Björn og sá
fyrir sér að spilið færi fjóra niður
með tígli út.
En Wolff valdi hjartagosann
sem útspil. Þrír niður, hugsaði
Bjöm. Og Hamman tók slaginn á
hjartakóng og skipti í tíguldrottn-
ingu. Tveir niður? hugsaði Björn.
Wolff drap á ás og spilaði meiri
tígli og Jón drap þriðja tígulinn
með kóng. Og nú var skyndilega
komin vinningsvon, ef Hamman
átti spaðakóng eða spaðatíu
staka. Jón spilaði spaða úr borði
og þegar tían kom átti hann þijá
spaðaslagi, þrjá hjartaslagi, tígul-
slag og tvo á lauf. Áfram Island,
sagði Björn upphátt og íslending-
ar sluppu með 6-24 tap.