Morgunblaðið - 30.08.1992, Page 15
MORGONHIiAttH) SUNNUDACÖK'30. ÁÖOST l9’ð‘2’
lægni í vinnubrögðum hans. En
satt að setja hefði hann átt að
velja sér meira rými til að sýna
í, því að ekki er mikil heild í slíkri
tvískiptri sýningu auk þess sem
þröngt er um myndirnar á báðum
stöðunum. Og þótt formin komi
manni kunnuglega fyrir sjónir, eru
myndirnar það vel málaðar sumar
hverjar, að aðdáun vekur.
Haraldur Jónsson, sem sýnir
nokkrar teikningar í Mokka er
fæddur í Helsinki, en stundaði nám
við MHÍ á árunum 1974-87 og
listaháskólanum í Dusseldorf
1987-89. Síðastliðinn vetur dvaldi
hann í París sem styrkþegi við
„Institut des Hautes Études en
Arts Plastiques" með öðrum Evr-
ópubúum.
Haraldur hefur þannig langt
nám að baki, en eftir teikningun-
, um á Mokka að dæma mætti jafn-
, vel frekar ætla að hann hafi num-
; ið í Hollandi en Dusseldorf því að
þær eru mjög hugmyndafræðilegs
eðlis og einmitt í þá veru sem
maður hefur vanist að sjá á sýn-
ingum þeirra er þar hafa stundað
I nám á undanförnum árum og ára-
j tugum.
Haraldur hefur haldið sýningar
i á ýmsum stöðum í Evrópu og síð-
ast sýndi hann á sýningunni ís-
lenzk höggmyndalist í Kringlunni
á Listahátíð nú í sumar.
Teikningarnar láta ekki rnikið
yfir sér, eru einfaldar og ljóðræn-
ar. Fram koma ýmsar endurtekn-
ingar og rof á endurtekningum,
j sem koma manni kunnuglega fyrir
; sjónir. Hér er þannig um hug-
myndafræðileg heilabrot á mynd-
fleti að ræða, sem höfða til inn-
vígðra, en ögra hins vegar ekki
hinum almenna skoðanda. Sumt
af þessu kenndi maður í forskóla
■ MHÍ fyrir margt löngu, en án
þess að önnur hugmyndafræði
væri að baki en skyn- og form-
rænn hrynjandi.
Slíkar myndir þurfa sérstakt
umhverfi og hnitmiðaða lýsingu
til að njóta sín til fulls og koma
hinum einfalda boðskap til skila,
en á veggjunum á Mokka fer und-
arlega lítið fyrir þeim.
Halldóra Emilsdóttir, sýnir
nokkur málverk af minni gerðinni
í listhúsinu Úmbru á Amtmanns-
stíg 1. Halldóra nam við MHÍ og
lauk þaðan námi árið 1987, hélt
síðan utan til framhaldsnáms við
Gerrit Rietveld Academi í Amst-
erdam í tvö ár. Þetta er sjötta
einkasýning hennar og auk þess
hefur hún tekið þátt í nokkrum
samsýningum.
Myndirnar á sýningunni eru-
dálítið frábrugðnar því sem maður
hefur séð frá hendi myndlistarkon-
unnar til þessa, en yfir þeim er
þó sá sérstaki blær sem löngum
hefur einkennt litameðferð henn-
ar. Er hér um að ræða formstef
er minna sum á blóm, en önnur
eru óræðari og óhlutlægari.
Kannski væri hægt að kalla
þetta samstillingar á myndfleti
sbr. uppstillingar eða kyrralífs-
myndir, því að hér er um nokkuð
hnitmiðaða niðurröðun litaflata að
ræða, er leiða hugann að slíkri
myndgerð.
Yfir litameðferðinni er fágun
og mýkt, ásamt því Halldóra er
óspör á rauðu litbrigðin, sem hún
dempar með innbyrðis blöndu á
þann hátt að þeir eru sem sam-
vaxnir litafletinum. Þetta eitt er
nokkur list og sýnir að hér er á
ferð menntuð listakona, en hins
vegar vildi maður sjá metnaðar-
fyllri verk frá hendi hennar og
stærri sýningu.
ORLANDO - GOLF
Bed & Breakfast 7 nætur
Bílaleigubíll 1 vika
Golf 3 dagar
Verð $481.00 á mann í 2ja manna herbergi.
I.flokksaðstaða.
Verð $481.00 í eins manns herbergi.
Faxnr.: 901-407-381-5610.
___STEINAR WAAGE_
SKÓVERSLUN
Leikfimiskór
Stærðir: 30-46
Verð kr. 1 .995;-
Ath. Góður sóli fyrir
innanhússíþróttir
* Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur.
V
Domus Medica,
Egilsgötu 3, •
sími 1 8519
Kringlunni,
Kringlunni 8-12,
sími 689212
J
SÖNGTÓNLEIKAR
Tónlist
Jón Asgeirsson
Styrktarfélag íslensku óper-
unnar stóð fyrir tónleikum sl.
fimmtudag og komu þar fram
baritonsöngvarinn Jorge Chaminé,
píanóleikarinn Marie-Francois
Bucquet og bandoneonleikarinn
Oliver Manoury. Á efnisskránni
voru spönsk, portúgölsk og suður-
amerísk lög, þar í flokki fímm
argentínsk tangólög.
Tónleikarinir hófust á spánskri
tónlist, fyrst lagi eftir óþekktan
höfund frá 16. öld og lagi eftir
vilhuela-leikarann Fuenllana, sem
talinn er fæddur um 1500. Hann
var blindur en náði því að verða
mikill hljóðfæraleikari og 1554 gaf
hann út safn tónsmíða og útsetn-
inga fyrir vihuela (forvera gítars-
ins) og þá líklega í tabúlator rit-
hætti. Tvær skemmtilegar tóndill-
ur eftir Laserna (1751-1816) voru
næstar en hann starfaði mikið við
leikhúsin í Madrid og samdi mikið
af „Tonadillas“ og meðal annars
óperuna „La gitanilla por amor“.
Tónadillurnar voru ákaflega vel
sungnar og sérstaklega sú seinni,
E1 Tripili. Chaminé, sem er frá
Portúgal söng fimm portúgölsk
þjóðlög, útsett af Artur Santon
(fæddur 1914), falleg lög, sem
Chamine söng af mikill innlifun.
Eftir Turina söng Chamminé eitt
lag og síðustu tvö lögin fyrir hlé
voru eftir spánska tónskáldið
Josquin Nin (1879-1949), en hann
lagði fyrir Sig píanóleik og tón-
smíðar og var fræðimaður í gam-
alli spánskri tónlist. Hann starfaði
um tíma sem kennari við Schola
Cantorum.
Eftir hlé flutti Caminé tvö frá-
bær lög eftir Villa-Lobos og var
seinna lagið Xango (Afriskur guð,
sem ræður yfir eldinum og elskar
konur), sérlega áhrifamikil tón-
smíð, sem Chaminé söng af mik-
illi innlifun. Tvö síðustu lögin sem
Chaminé og Bucquet fluttu saman
voru argentínsk lög, eftir Carlos
Guastavino, ekta suðuramerísk
dægurlög, sem þau flutt mjög vel
og af sterkri innlifun. Þar með
lauk samleik Chaminé og Marie-
Francois Bucquet, en hún lék mjög
fallega og af mikilli tilfinningu
fyrir þessari sérstæðu tónlist.
Chaminé er góður söngvari og
túlkaði öll lögin af mikilli innlifun,
þar sem hljóðfallssútfærsla og tón-
mótun, jafnvel þar sem sungið var
undir tóni, urðu óijúfanlegur hluti
af túlkun þessarar tilfinninga-
þrungnu tónlistar.
Tónleikunum lauk með fimm
argentínskum tangólögum og þá
var samleikari Chaminé, bon-
doneonleikarinn Oliver Manoury.
Þessi sérstæða tónlist er í flutn-
ingi þrungin tilfinningasemi og
fjalla flest lögin auðvitað um ást-
ina. Skemmtilegasti og áhrifa-
mesti tangóinn var Che bandoeon,
þar sem talað er til hljóðfærisins,
hvernig það ýfir upp gömul sár
og beisk tárin eigi sér enduróman
í sárum tóni þess. Þarna var sam-
spilið á milli Chaminé og Manoury
sérlega vel útfært. Það sem ein-
kenndi tónleikana í heild var mik-
ið listfengi, sem sprottið er upp
úr alþýðlegri tónlist, þar sem
margþætt litróf tilfinninganna,
allt frá brennandi ástríðum til
svartnættis sorgar er útfært af
alþýðlegu hömluleysi.
STÚDÍÓ JÓIUÍIUU OG ÁGÚSTU
Við bjóðum nú aftur upp á 12 vikna skóla ætiaðan
konum sem eiga við offituvandamál að stríða.
Markmið námsins er að breyta um lífsstíl sem stuðlar að
léttara lífi jafnt andlega sem líkamlega um ókomna framtíð.
Kennslan byggist á fundum
og gönguferðum um falleg
svæði innan borgarmarkanna.
- Gönguferðir.
- Fitumælingar og vigtun.
- Vikulegir fundir, mikið aðhald,
stuðningur og fræðsla.
- Uppskriftir að léttu mataræði.
- Heimaverkefni.
- Þú nærð varanlegum árangri.
Allar nánari upplýsingarí síma
£?£?£? ##0362.
Kr. 9.900,-
Opiðídag kl. 12-15.
STUDÍÓ JÓNINU & AGÚSTU
Skeifan 7, 108 Reykjavik. S 689868