Morgunblaðið - 30.08.1992, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1992
21
leikstjórn við franskan skóla sem
nefnist C.L.C.F. (Conservatoire
Libre du Cinéma Francais), en hef
verið að mestu upptekinn við ann-
að, skriftir, þýðingar og framleiðslu.
Hlutirnir hafa æxlast á þann hátt
að ég hef ekki leikstýrt nema sjón-
varpsmyndum. Ég vil líka halda
mig á báðum þessum stöðum; rit-
velli og myndvelli. Hins vegar lenti
ég ósjálfrátt í skólanum í öllum hlut-
verkum framleiðslunnar, og not-
færði mér til dæmis að menn töldu
sér í trú um að ég gæti leikið, þrátt
fyrir ég hefði ítrekað reynt að leið-
rétta þann misskilning. En þar lenti
ég líka fljótlega í stól upptökustjór-
ans og framleiðandans, enda var
lögð áhersla á gerð fjárhagsáætlana
og sérstaklega að þær stæðust.
Allir kveinkuðu sér en einn aðal-
kennarinn barði í borðið og sagði
að þetta yrðum við að kunna þegar
alvara lífsins tæki við. Þetta reynd-
ist hárrétt hjá honum. Framleiðsla
kvikmyndar eins og Svo á jörðu sem
á himni er flókið samspil sem fólst
meðal annars í að samhæfa 8 þátt-
takendur framleiðslunnar sem eru
staðsettir í 6 löndum, hafa yfírsýn
yfir málið og ganga frá samningum
- í heildina má lýsa verksviðinu sem
yfírstjóm alls þess er snertir fjár-
hagslega, tæknilega og listræna
framvindu verkefnisins. Starfíð
krefst þess að maður hafi í höfðinu
alla þætti og sjái án tafar ef áætlun-
in ertekin að skekkjast. Kostnað-
aráætlunin er tölvuunnin með öllum
smæstu smáatriðum, en hættan í
jafn viðamiklu verkefni getur samt
verið að týna þér í smáatriðum. Ef
þér tekst að forðast slíkar gildrur,
getur púlið við að þroska minnið á
tölur og staðreyndir gefíð mikið til
baka. Að þroska yfírsýn er skap-
andi.“
Þwí þitt er ríkió, mátturinn
og dýrðin
Myndskynjun Kristínar og næmi
fyrir byggingu og jafnvægi þykir
mér heillandi, hún hefur auga mál-
arans þó pensillinn sé myndavél.
Leitar hún innblásturs í smiðju
meistaranna?
„Ég sæki hugmyndir jöfnum
höndum í myndlist, tónlist og bók-
menntir eins og kvikmyndir. Ekkert
sprettur upp af engu, og það verður
að næra það sem upp rís. í þrjá
áratugi hef ég hangið inn á söfnum
og galleríum og hámað í mig mynd-
list, smjattað á litum og formum
sem þar er að fínna auk þeirra sögu-
legu heimilda sem felast í málverk-
um. Þau ljóstra upp um klæðnað
fólks, hvemig þ_að snertist og hvem-
ig lífí það lifði. Ég á ógrynni af
texta í fómm mínum auk þess að
hafa fengist við myndlist, en þetta
tvennt veitti mér ekki sömu full-
nægju og vinna við kvikmyndagerð.
Mér fínnst ekkert endanlegt nema
það sem ég geri með fílmuna í huga.
Snar þáttur í þessu er líklega að á
þeim vettvangi fæ ég að koma inn
á öll sviðin; texta, myndlist, tónlist
o.s.frv., en einnig skipar þetta ritú-
el sem ferð í kvikmyndahús er háan
sess í huga mér. Fátt nær manni
jafn kröftuglega á sitt vald og að
sitja í myrku kvikmyndahúsi og
hverfa til fjarlægra heima ásamt
öðmm bíógestum, en vera samt
einsamall. Sjónvarpið í stofunni og
kvikmyndahús verða ekki lögð að
jöfnu, þessir miðlar em jafn ólíkir
og að horfa á dropa detta úr eldhús-
vaskinum hjá þér og standa við
Dettifoss. Ferð í kvikmyndahús gef-
ur auk þess gífurlega orku, og ég
er hissa á að fólk noti þau ekki
meira sem orkustöð en raun ber
vitni, einkum nú þegar orku er þörf.
Fólk getur ekki endalaust verið upp
á Snæfellsjökli eða á Homströndum
til að svelgja í sig endurnæringu,
en auðvelt að staldra við í bíósal í
tvo tíma og leyfa kvikmynd að
umvefja skilningarvitin. Það em að
vísu ekki margar myndir sem þú
fínnur lykt af, en ég hef séð eina,
meistaraverkið „Le sang des Bétes"
eða „Blóð dýranna" eftir Georges
Franju, er fjallar um sláturhús í
París. Sjálfa langar mig til að gera
kvikmynd sem skapar svo sterk
áhrif að fólk fínni lyktina af því sem
er að gerast átjaldinu, áskorunin
verður ekki meiri."
Samkoma og kaffi-
sala í Kaldárseli
ALMENN samkoma verður haldm í sumarbúðunum í Kaldárseli ofan
Hafnarfjarðar sunnudaginn 30. ágúst kl. 14.30. Ræðumaður verður
Benedikt Arnkelsson guðfræðingur sem lengi hefur starfað meðal
drengjanna í sumarbúðunum. Að samkomu lokinni hefst kaffisala
og stendur hún yfir til kl. 22 um kvöldið og eru allir velkomnir.
Starfinu í Kaldárseli er nýlega
lokið. Alls dvöldust þar um 260
böm að þessu sinni, flest á aldrinum
7-10 ára, í níu dvalarflokkum. Sum
bömin hafa komið ár eftir ár.
Skálinn í Kaldárseli er elsti sum-
arbúðaskáli KFUM og K á landinu.
Hann var byggður árið 1925. Síðan
hefur hann verið stækkaður og að-
staðan bætt. Þó er enn margt ógert,
bæði innan dyra og utan, og rennur
ágóðinn af kaffísölunni til fram-
kvæmda á staðnum.
Þess má geta að í sumar var
byrjað að gróðursetja trjáplöntur í
Kaldárseli. Sauðfé hefur löngum
gengið laust um svæðið en svo er
ekki lengur. Hugsa Kaldæingar
gott til framtíðarinnar þegar trjá-
gróður tekur að prýða umhverfíð.
Ungir drengir að leik í Kaldánni sem Kaldársel stendur við.
HEIMSKIUBBUR
INGÓLFS KYNNIR
ÞAD BESTA í AFRÍKU
FEGI JRI )0 GFI JRDl JRAFI RÍKI
Landið er ríkara en flest önnur af öllu, sem ferðalangur
getur óskað sér. Hvergi fínnurðu aðra eins fjölbreytni
og litadýrð í ríki náttúrunnar, nærri 300 tegundir villtra
dýra, þ. á m. fíla, gíraffa, ljón, hlébarða, zebra, nashym-
inga, visunda, ótal yndisfagrar antilópu- og gazelluteg-
undir, 500 tegundir fugla og 24.000 tegundir blóm-
strandi trjáa og jurta í blóma vorsins á suðurhveli. Fólk
er orðlaust af undrun og f ögnuði og f innst engin skemmt-
un jafnast á við að njóta þessara töfra i ríki náttúrunnar.
Ferðin er full af spennandi ævintýrum og sterkari upp-
Iifun náttúrunnar en þig hefur órað fyrir, þú verður
þátttakandi í þessu stórkostlega sjónarspili, rétt eins og
í kvikmynd. Alls þessa nýturðu við beztu skilyrði, vega-
kerfíð er gott eins og farartækin, hótelin glæsileg og
matur og vin með þvi bezta, sem þekkist í heiminum á
verði, sem er lægra en viðast annars staðar, loftið tært,
hitastig hæfilegt, um 25°C, heilnæmasta veðurfar i heimi
er talið vera i Höfðaborg.
m
' - ' 3 1
JvrisDRSS*'
w1 P
\ V
FERÐA TILHÖGUN:
Flogið er til London og áfram samdæg-
urs til JÓHANNESARBORGAR og gist
á hinu glæsilega JOHANNESBURG SUN
& TOWERS með fullkomna þjónustu og
fjölda veitingasala. Heimsókn í GOLD
REEF CITY, gaxnla gullgrafarabæinn
og daginn eftir dagsferð til höfuðborg-
arinnar PRETORIA með fagrar bygg-
ingar, minnismerki og blómstrandi tijá-
göng. Jóhannesarborg er nýtízkuleg
með fíölda fagurra bygginga og glæsi-
verzlana, borgin sem reis á gulli, en þar
fundust auðugustu gullnámur heims fyr-
ir 100 árum.
Ekið norður um fijósamar lendur
TRANSVAAL í KRUGER-ÞJÓÐGAM)-
INN, stærsta friðaða svæði villidýra í
heimi, i safari-ferðina miklu og gist 2
nætur i Safari Lodge við jaðar villidýra-
svæðisins og lágskógarins „bushweld“,
fullt fæði, sundlaug og frábær aðbúnað-
ur. Ekið suður í DREKAFJÖLL og gist
2 nætur á lúxushótelinu DRAKENS-
BERG SUN í hrífandi umhverfi „Hring-
leikahússins" svonefnda, farið þaðan í
safariferðir. Þaðan liggur leiðin til DUR-
BAN, stærsta baðstaðar Afriku, gist á
fimmstjörnuhótelinu MAHARANI á
strönd Indlandshafsins, 3 nætur. Flogið
tU PORT ELIZABETH, en þaðan hefst
þriggja daga ferðalag eftir „blómaleið-
inni“, GARDEN ROUTE, til HÖFÐA-
BORGAR með viðkomu á mörgum heill-
andi stöðum eins og OUTSHORN og
WILDERNESS. Gist á nýjasta lúxushót-
eli CAPE TOWN í einni af fegurstu
borgum veraldar í 4 nætur og farið í
ferðir á „Borðfjallið" fræga, GÓÐRAR-
VONARHÖFÐA og í VÍNLÖNDIN, þar
sem sum beztu vín heimsins eru fram-
leidd. Hægt að framlengja í Höfðaborg.
Flogið þaðan um London heim.
.Við höfum víða ferðast, en oð okkor mati eftir þrjár
heimsreisur bero ferðir tngótfs af öltu, sem við höfum
kynnst á ferðalögum.
Allt hefur staðist, sem auglýst var og vol á gististöð-
um og allri þjónustu í sérflokki. Yfir ferðunum hefur
verið ákveðinn blær menningar og fullkomnunar, sem
við höfum ekki fundið annars staðar. Auk þess hafa
ferðimar reynst ódýror. “
Guðrún og Boldur Bergsteinsson,
byggingomeistari.
HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
AUSnjRSTRATI 17,4. Ui 101 REYKJAVÍK-SÍMI 620400*1« 626564
REYNSLA FARÞEGA:
„Afríkuferðin var samfellt ævintýri. Hver
einstakur dagur var ferðarinnar virði. Ég
sagði við Sigriði kvöldið sem við komum
frá Chobe að ég mundi hafa keypt ferðina
fyrir þennan eina dag. Mér flnnst ólíklegt
að ég eigi eftir að fara jafn skemmtiiega
ferð og þessa, þó ég voni, að ég komist í
ferð síðar, sem nálgist þessa. Glaðværðin,
sem ríkti í allri ferðinni og hve allir urðu
góðir vinir, tel ég líka einn bezta mæli-
kvarðann á hrifningu og
ánægju þátttakenda.
Beztu þakkir.
Björn Traustnson,
byggingameistari.
Heimsreisufarar í Höfða-
borg. Borðfjallið í baksýn.
LÖNDMORGUNRODANS
Filippseyjar - Japoit - Taiwan - Tkailond
Stórkostleg ferð um Austurlönd fjær ó mjög hog-
stæðu verði, bestu hótel heimsins, fjórir ólikir
menningarheimor, dulormögn og litríkt monnlíf.
Siðasti pöntunardagur á morgun.
TÖFRAR MALAYSIll
Heillandi ferð, Austurlönd í hnotskurn.
Kuala Lumpur - Bomeo - Singapore - Penang.
FERÐAKYNNING
Ingólfur Guðbrandsson kynnir ferðina í A-sal Hótel
Sögu og sýnir fegurð londsins í fjölbreyttri myndo-
sýningu miðvikud. 2. sept. kl. 20.30.
Einhver mest hrífandi upplifun ævinnor ó ferða-
logi. Munið að myndasýningor og ferðakynningor
Ingólfs eru svo vinsælor oð oft komost færri oð
en vilja. Aðgongur ókeypis. Koffiveitingar seldar
við inngang.