Morgunblaðið - 30.08.1992, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRETTUM SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 1992
oyour
Græn-
land
*
Ahugamenn um veiðiskap
hafa í ýmis hús að venda
hér á landi, en engu að síður
verður alltaf til staðar hópur sem
vill reyna eitthvað nýtt. Selfyss-
ingur einn að nafni Bjarni Olesen
býður nú í samvinnu við Stefán
Magnússon hreindýrabónda á
Grænlandi, upp á stanga- og
skotveiðiferðir til Grænlands.
Þegar er búið að fara eina hrein-
dýraferð sem heppnaðist afar vel
og 5. september næst komandi
er næsta ferð áformuð og meg-
ináherslan þá lögð á sjóbleikju-
veiði í ám og vötnum.
„Þó við séum að tala um
Grænland þá er aðbúnaðurinn
sem við bjóðum prýðilegur. Búið
er í húsum með öllum þægingum
og menn eru fluttir á milli á
hraðbátum. Ámar eru fremur
vatnslitlar, en geyma þó vel mik-
ið magn af fiski. Ein áin heitir
Stokkanesá og önnur Botnsá.
Það er ótrúlega mikill silungur
VEIÐAR
Félagarnir Bjarni t.v. og Stefán
skima eftir hreindýrum.
Sjóbleikja er aðalsportveiðifiskurinn.
í þessum ám á haustin, ég var
einu sinni að hjálpa mönnum að
veiða bleikju til undaneldis og
það var dregið á einn hylinn.
Við tókum þarna 600 fiska á
skömmum tíma. Svona 80 pró-
sent af veiðinni var svona 3
punda silungur. Svo er ein og
ein bleikja allt að 5 gund. Þetta
á við Stokkanesána. I Botnsá er
fiskurinn enn stærri, allt að 7-8
pund. Og þessi fiskur tekur allt
agn. Sjálfur hef ég mest notað
flugu og spón. Straumflugur
hafa gefist vel, en sumir nota
allar venjulegar gerðir af sil-
unga- og laxaflugum með góðum
árangri. Menn verða ekkert á
fiæðiskeri þarna, innifalið í verð-
inu hjá okkur er flug, bátar, gist-
ing, fæði og leiðsögn hvort held-
ur er hreindýraskytterí eða
bleikjuveiði," sagði Bjarni í sam-
tali við Morgunblaðið.
Kvikmyndir
Jeremy
Irons
iðinn við
kolann
Breski leikarinn Jeremy Irons er
nú 43 ára gamall en sýnir á
afgerandi hátt að allt er fertugum
fært, þeysist leðurklæddur milli
staða á mótorhjóli og má gjarnan
sjá konu hans Sinéad Cusack sitja
aftan á hjá kappanum. Fyrir stuttu
var frumsýnd kvikmynd með þeim
hjónum, er nefnist „Waterland“ eða
Fenjasvæði, og fjallar um sögu-
kennarann Tom sem missir áhug-
ann á sögustagli og skólabókum og
snýr sér að uppgjöri við eigin æsku,
þroskaheftan bróður sinn og ekki
síst eiginkonu sína Mary.
í nýlegu viðtali segir Jeremy að
þegar leikstjórinn afréð að skipa
Sinéad í hlutverkið, lét hann þau
búa hvort í sínu lagi. „Hún flutti á
hótel og við hittumst viku síðar á
tökustað. Hún bar hárkollu og hafði
tanngarð uppi í sér. Þetta var furðu-
leg reynsla. Hjónaband Toms og
Mary er svo ólíkt okkar, að við
þurftum að vissu leyti að færa
mörk sambands okkar út.“ Irons
hefur raunar verið iðinn við kolann
upp á síðkastið, og valið að leika í
metnaðarfullum en hljóðlátum
myndum. „Mér geðjast ekki að því
að leika í kvikmyndum sem ég held
að njóta muni almenningshylli, því
BERUre
ORDABÆKURNAR
34.000 emk uppflrtHwí
Ensk
íslensk
orðabók
lngrisb-Uclandtt
Diclionary
DÖnsk
islensk
istensk
dönsk
orðabók
Frönsk
íslensk
íslensk
ImíhcIí
5.000 vppll***'**^
íslensk
ensk
ordabók
/.«»*
'slensk
é5"Gh$k
ensk
I orMók
'sleiisk
£nsk
—
°ÖMSK
Uelandi»*ln9ktk
DlúionorY
55*
íslensk
þýsk
orðabók
Msk Spænsk
íslensk s»
£?”sk íslensk »
'Msk spænsk
orðabók A
SSJíu-ié. Æf
uEL.m+tJp j
****£*#?*£
Ódýrar og góðar orðabækur fyrir skólann,
ó skrifstofuna og í ferðalagið
ORÐABÓKAÚTQÁFAN
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Sjónvarpsmennirnir frá BBC, Bernard Walton, Barrie Britton og
Dr. Kenny Taylor, við myndatökur í Klaufinni í Eyjum.
SJÓNVARP
Lundapysjur í Eyjum
á jóladagskrá hjá BBC
Vestmannaeyjum.
Kvikmyndagerðarmenn frá
breska sjónvarpinu, BBC, voru
í Eyjum fyrir skömmu til að mynda
lundapysjurnar sem fljúga inn í bæ-
inn og krakkana sem vinna að björg-
un þeirra. Voru þeir að vinna efni í
sjónvarpsþátt sem BBC og National
Geograpich eru að gera saman um
líf lundans.
Kristján Egilsson, safnvörður
Náttúrugripasafnsins í Eyjum, var
sjónvarpsmönnunum til aðstoðar við
efnisöflunina í Eyjum. Sagði Kristján
í samtali við Morgunblaðið að sjón-
varpsmennimir hefðu verið þrír.
Bernard Walton, framleiðandi,
Barrie Britton, kvikmyndatökumað-
ur, og Dr. Kenny Taylor, vísindaleg-
ur ráðgjafi. Hann sagði að myndinni
væri ætlað að sýna lífsbaráttu lund-
ans. Á flestum stöðum leyndust
hættur og hann ætti sér fáa vini
nema börnin í Vestmannaeyjum sem
hjálpuðu pysjunni að komast til hafs
eftir að hún væri orðin strandaglópur
í bænum.
Kristján sagði að vinna við gerð
þáttarins hefði byijað síðastliðið vor.
Þá hafi verið myndað í Skotlandi er
lundinn var að koma á varpstaði til
að undirbúa varpið og para sig. Síð-
an hefði verið haldið til Noregs þar
sem fylgst var með ýmsum hættum
sem að lundanum steðja í náttúr-
unni. Þá var myndað í Vík í Mýrdal
þar sem skúmurinn er aðal óvinur
hans.
í Eyjum var svo aftur á móti fylgst
með vinum lundans, bömunum sem
hjálpa pysjunni að komast til hafs.
Kristján sagði að ætlunin væri að
myndin yrði um hálfrar stundar löng
og myndi David Attenborough lesa
texta með myndinni. Ráðgert er að
sýna þáttinn í breska sjónvarpinu um
næstu jól og er áætlað að um 11
milljónir manna muni fylgjast með
sýningu hans þar en síðan verður
þátturinn sýndur í Bandaríkjunum.
Grímur