Morgunblaðið - 06.09.1992, Side 1
80 SIÐUR B
202. tbl. 80. árg.
SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1992 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Sendiherra Moskvustjórnarinnar í Helsinki kvartar við yfirvöld
Rússneskir ferðamenn
sag’ðii’ sæta ofsóknum
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
JÚRIJ Derjabín, sendiherra Rússlands í Finnlandi, segir að finnsk stjórnvöld of-
sæki rússneska ferðamenn í landinu. Hann segist hafa fengið kvartanir frá löndum
sinum þess efnis að finnskir tollgæslumenn hafi gert farangur upptækan án þess
að heimildir séu fyrir slíkum aðgerðum í lögum. Einnig segist ferðafólkið hafa
orðið fyrir líkamsárásum af hálfu tollvarðanna. Finnsk yfirvöld vísa þessum ásökun-
um á bug.
Að sögn Derjabíns er um að ræða mann-
réttindabrot þar sem augljóst sé að mismun-
andi reglur gildi um meðhöndlun á farangri
Rússa og ferðafólks frá öðrum löndum.
Sendiherrann finnur einnig að því að kaup-
menn í þeim borgum sem rússneskir ferða-
mannahópar heimsækja helst hafa sett upp
skilti þar sem segir að Rússum sé meinaður
aðgangur nema þeir komi að minnsta kosti
tveir eða þrír saman. Heimildarmenn segja
að þetta sé gert ti! að auðvelda kaupmönn-
um að koma í veg fyrir búðahnupl ferða-
langanna. Deijabín telur að þetta sé lög-
brot þar sem finnsk lög banni misrétti milli
þjóða.
Finnsk tollgæsluyfirvöld hafa eins og
vænta mátti vísað ásökunum Rússa á bug.
Talsmenn þeirra segja að gert hafi verið
átak með það að markmiði að stöðva smygl
frá Rússlandi, eingöngu hafí komið til slags-
mála þegar meintir smyglarar hafi reynt
að beita valdi til ná varningi sínum úr vörslu
tollvarða.
Undanfarin misseri hafa rússneskir
ferðamenn í vaxandi mæli selt alls konar
varning á finnskum markaðstorgum sem
oft eru því nefnd „Rauða torgið". Megnið
af þessum vörum er skaðlaust dót sem
Rússarnir selja til að fjármagna dvöl sína
í landinu. Tollyfirvöld og lögregla hafa því
áhyggjur af því að á torgunum sé orðið æ
meira um ólögleg viðskipti með vopn og
fíkniefni. Almenningur verður þó fyrst og
fremst var við að i töskum Rússanna er
mikið af áfengi sem þeir selja síðan á frem-
ur hagstæðu verði.
Vegna fjárskorts hafa margir rússneskir
ferðamenn einnig reynt að bjarga sér með
því að stela úr verslunum og álíta kaup-
menn sums staðar að hér sé mikið vanda-
mál á ferðinni. Opinberir embættismenn
hafa tjáð sig um ofangreind skilti kaup-
mannanria og sagt að þeir sýni ferðafólkinu
dónaskap með þessu athæfi auk þess sem
verið geti að það brjóti í bága við lög.
Morgunblaðið/Kristinn
KÁTIR KRAKKAR í BARÓNSBORG
Lífsgæði eða
lífsnautn?
Á Gríðarrollubúgarðinum svonefnda
í Bideford í Englandi hafa menn að
undanförnu efnt til fremur óvenjulegra
veðreiða. Sex mjólkandi ær eru þar
keyrðar sporum af fisléttum knöpum
sem reyndar eru gerðir úr ull, ekki
fundust nógu léttir reiðmenn i mann-
heimum. Keppt er daglega frá páskum
og fram í október og vegalengdin sem
rollurnar hlaupa er 228 metrar. Ekki
tókst að fá upplýsingar um tímann hjá
þeirri hraðskreiðustu en einbeitnin skín
úr augum þeirrar fremstu á myndinni.
Við nákvæma athugun má sjá að rétt
aftan við rásmarkið situr vígalegur
hundur en ekki er vitað hvert hlutverk
hans er, sennilegast að hann ræsi þátt-
takendur með hrottalegu gelti.
NÝLEGA lýstu breska læknasambandið
og innanríkisráðuneytið þar í landi yfir
því að læknar mættu í andlátsvottorðum
nefna reykingar sem dauðaorsök. Rit-
höfundurinn Beryl Bainbridge, sem er
57 ára gömul og reykir 40 vipdlinga á
dag, sættir sig ekki lengur við andróð-
urinn gegn nautnasýki sinni. „Er það
nú endilega svo að reykingar séu slæm-
ar?“ spyr hún. „Oft vakna ég eftir að
hafa reykt og drukkið alla nóttina og
líður alveg stórkostlega, er til í allt.
Ef ég læt síðan líða tvo daga án þess
að drekka er ég ekki mönnum sinnandi.
Eg læt ekki eyðileggja skemmtunina
fyrir mér, það er ekki lengd lífsins sem
skiptir máli heldur hvernig maður ver
því.“
Hott hott á rollu
Á GRÁU SV/EÐI
BARATTA
TVEGGJA 18
STÓRVELDA
BLAÐ
B
KOMAi.
KONUNGSHJONA